Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 51
SÓLEY
SVEINSDÓTTIR
+ Sigurlaug Sóley
Sveinsdóttir
fæddist á bænum
Deplum í Stíflu 12.
júní 1904. Hún lést
á dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri 21.
október síðast-
liðinn. Faðir hennar
var Sveinn f. 18.
apríl 1868, d. á
Siglufírði 5. júlí
1914, foreldrar
Steinn bóndi í
Tungu í Stíflu,
Jónsson, Guð-
mundssonar hrepp-
sljóra á Hamri í Fljótum Jóns-
sonar, og konu hans Guðrúnar
Sveinsdóttur á Hring í Stíflu.
Sveinn var bóndi á Deplum í
Stíflu og síðar í Lundi. Móðir
Sigurlaugar var Sigurbjörg, f.
12. janúar 1880, Jóhannesdóttir
frá Miðhvammi í Aðaldal, Gunn-
laugssonar og konu hans Sum-
arrósar Sigurðardóttur frá
Miðkoti í Svarfaðardal. Börn
Sveins og Sigurbjargar voru
níu talsins: Gunnar, Jóhannes
Steinn, Sigurlaug Sóley, Hann-
es, Rósvaldur Lúðvík, Guðrún,
Elsku amma mín, þú varst minn
gleðigjafi og ráðgjafi því alltaf
varst þú kát og glöð, hvað sem á
gekk hjá þér, hvort sem þú komst í
heimsókn til okkar eða ég kom að
heimsækja þig norður á Akureyri.
Við gerðum allt mögulegt saman í
gamla daga. Þú kenndir mér að
prjóna til að ég gæti haft ofan af
fyrir mér, því ég var ofvirk, ég gat
ekki setið kyrr í eina mínútu og
það stoppaði mig á meðan. Við fór-
um í göngutúra upp í bæ, í Alaska
til að kaupa mjólk á brúsana og
komum við í Kristjánsbakaríi til að
kaupa glassúrtertu, því mér fannst
hún svo góð.
Alltaf lést þú allt eftir mér. Ég
man þegar við fóram saman út í
Ólafsfjörð til að heimsækja Helga
Sveins og Lára, konu hans, sem
var svo góð við mig. Og í leiðinni
fóram við að heimsækja Guðránu
og Þórð á Þóroddsstöðum, þau
yndislegu hjón, sem vora afi minn
og amma. Svo fórum við út í Hrís-
ey að heimsækja Hannes Sveins
og Jóhönnu konu hans. Og ég fór
út í móa til að sækja kríuegg og
ein krían réðst á mig og stakk mig
í hausinn.
Oft og mörgum sinnum sagðir
þú mér sögur frá því þú varst ung
og þinni barnæsku. Óg þá lágum
við uppi í rúmi og ég í skúffunni.
Það var svo notalegt.
Amma mín, þú varst mjög fögur
kona, með það fallegasta hár sem
ég hafði séð, falleg alla tíð hvort
sem þú varst þreytt eða ekki,
vegna þess að þú hafðir svo góða
iund. Þú varst ekki að ergja þig út
af smámununum þó að þú hafir
alltaf þurft að þræla og bjarga þér
með börnin þín, sem voru sex tals-
ins, í miklu basli. Afi minn, Tómas
Kristjánsson, dó svo ungur, aðeins
rúmlega fimmtugur og þá varst þú
ekkja með allan hópinn, rétt rúm-
lega fimmtug og þú þurftir að
vinna úti og vannst lengi hjá Gefj-
un.
Góður guð gaf þér mikið af auði,
ekki veraldlegum gæðum heldur
mikinn mannkærleika, ást og hlýju
til handa öðrum, sem þú gafst okk-
ur öllum mikið af sem við í fjöl-
skyldunni búum að í framtíðinni.
Þökk sé þér, Sóley amma. Alltaf
var gott að koma til þín því þú
varst alltaf boðin og búin að hjálpa
öðrum, heitt á könnunni á kola-
eldavélinni og nóg af góðgæti.
Sorgin kom líka til þín þegar þú
misstir tengdasyni þína, þá Garð-
ar, Guðmund og Jón, sem hjálpuðu
þér svo mikið, og síðar hana yndis-
legu dóttur þína, hana Ingibjörgu,
sem lést fyrir aldur fram og
Sigurður Helgi,
Sigríður Fanney og
Sveinfríður.
Hinn 25. nóvem-
ber 1925 giftist
Sóley Tómasi Hall-
grúns Kristjánssyni,
f. 10. júlí 1902, d. 24.
mars 1959, frá Götu
á Arskógsströnd.
Börn þeirra eru: 1)
Guðrán f. 21.1.1926.
2) Sigursveinn, f.
12.8. 1927. 3) Ingi-
björg Valgerður, f.
7.9. 1929, d. 29.8.
1994. 4) Sigríður
Rannveig, f. 26.3. 1934. 5) Gunn-
hildur Anna, f. 18.12. 1935, d.
6.1. 1936. 6) Anna Sigurbjörg, f.
30.10. 1942. 7) Kristján Harald-
ur, f. 28.5. 1950, d. 2.1. 1996.
Bamabörn þeirra eru 17, barna-
barnabörnin 43 og bamabarna-
barnabörnin 11. Sóley flutti í
Gránufélagsgötu 22 á Akureyri
árið 1936 og bjó þar til ársins
1992 að hún fluttist að dvalar-
heimilinu Hhð á Akureyri.
Utför Sóleyjar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
yngsta soninn þinn, hann Harald
Tómasson, sem fór frá okkur allt
of ungur. Blessuð sé minning
þein’a. Ingibjörg þín annaðist þig
svo vel eftir að þú veiktist og síðan
tóku þær við Sigríður dóttir þín og
Sigurlaug og Sóley dóttui’dætur
þínar og hafi þær þökk fyrir allt.
Ég bið algóðan guð að varðveita
þig, amma mín, og blessa alla tíð.
Svo langar mig að þakka læknum
og hjúkranarfólki á elliheimilinu
Hlíð á Akureyri fyrir allt það sem
þau gerðu fyrir þig.
Elsku amma mín, þakka þér fyr-
ir allt sem þú gerðir fyrir okkur
öll.
Hvíl þú í friði.
Þín dótturdóttir,
Guðrún Erla Sigurðardóttir.
Elsku amma er dáin. Þegar ég
hugsa um hana ömmu mína koma
upp í hugann ótal minningar.
Amma var aldamótabarn. Hún var
þriðja elst í hópi níu systkina sem
misstu móður sína á barnsaldri
þegar hún lést fyrir aldur fram. Þá
fluttist amma til ömmu sinnar og
afa og ólst hún upp hjá þeim sem
barn og ung kona. Ég man að hún
talaði oft um æsku sína og gamla
daga og átti hún góðar minningar
frá bemskudögum sínum. Einnig
er mér minnisstætt hve fallega
hún talaði um systkini sín og
ræktaði samband sitt við þau með-
an þau lifðu. Þau era nú öll látin
nema Sigurður Helgi sem er bú-
settur í Olafsfirði.
Amma giftist afa árið 1925 og
eignuðust þau saman sjö börn og
era fjögur þeirra á lífi. Eftir að afi
lést langt fyrir aldur fram bjó
amma ein þar til hún fluttist á
dvalarheimilið Hlíð á Akureyri.
Eftir að amma varð ekkja fór hún
út að vinna eins og það kallast í
dag og hafði gaman af. Já, hún
amma mín var dugleg kona og ég
man það vel að þegar ég var barn
að aldri var ég viss um það að hún
amma mín væri duglegasta,
klárasta og skemmtilegasta amma
sem til væri. Enda var hún mér
góð og ég á óteljandi góðar, falleg-
ar og skemmtilegar minningar
sem tengjast samskiptum okkar.
En þannig var hún amma mín, hún
r BlómabwoikA '
öa^Sskom
. v/ Fossvogskk‘l<jugat*ð .
X,. Simi: 554 0500 .S
var góð manneskja sem vildi öllum
vel og aldrei heyrði ég hana hall-
mæla nokkram manni. Hún var
falleg með síðu flétturnar sínar
sem hún fléttaði á hverjum morgni
meðan hún hafði heilsu til og vafði
í krans upp á höfuðið. Hún var líka
fagurkeri og hafði t.d. einstaklega
gaman af því að klæðast fallegum
fötum. Amma var handlagin kona.
Hún bjó til góðan mat, bestu baun-
irnar og bestu kleinurnar. Hún
saumaði líka og prjónaði mikið um
ævina. Þegar hún var yngri
saumaði hún falleg föt á börnin sín
og síðar var hún óþreytandi við að
sauma og prjóna dúkkufót og
dúkkurúmföt handa barnabörnun-
um, og vann hún þau gjarnan upp
úr gömlum slitnum fótum af okk-
ur. Ég man vel hvað hún vandaði
sig og lagði mikla vinnu í þessi
verk. Enda vora þessi föt vel gerð
og era ennþá í fullu gildi hjá mér
og dætram mínum.
Amma var heilsuhraust kona
eins og hún sagði alltaf sjálf og ég
man ekki eftir að hafa heyrt hana
kvarta þrátt fyrir mikla sjóndepru
sem háði henni mikið eftir að hún
eltist. Það ástand ágerðist með
aldrinum og seinustu árin sem hún
bjó heima var hún nánast blind.
Það var mikil synd því amma var
mjög starfsöm kona og hafði líka
gaman af að lesa. Eftir að hún
missti sjónina hlustað hún mikið á
útvarp og ég man vel eftir því að
það var heilög stund meðan
miðdegissagan var lesin. Þetta
vora yfirleitt framhaldssögur og
þá mátti hún ekki missa af neinu.
Ómmu fannst líka mjög notalegt
að láta lesa fyrir sig, hún var fróð-
leiksfús og fylgdist vel með mönn-
um og málefnum, enda var hún
óþreytandi við að segja manni sög-
ur og kunni ógrynni af vísum og
þulum. Já, hún amma var yndisleg
kona og svo var hún líka skemmti-
leg, hafði ríka kímnigáfu og gerði
oft grín af sjálfri sér og öðrum.
Hún heillaði fólk með framkomu
sinni, glettnu augnaráði og smit-
andi hlátri. Hún var gestrisin og
hafði gaman af því að taka á móti
fólki, enda vora þeir margir sem
lögðu leið sína i húsið á Gránu-
félagsgötunni til þess að heilsa upp
á hana, bæði afkomendur hennar
og vinir.
Ég minnist ömmu minnar með
þakklæti fyrir allt það góða sem
hún kenndi mér. Ég kveð hana
með lítilli bæn.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Eva Sóley.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Svem'r Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfídrykkjur
H
H
H
H
H
M
H
H
H
H
Sími 562 0200
Liiiiiiiiiirl
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORVALDUR SVEINSSON
frá Fáskrúðsfirði,
Skólabraut 1,
Mosfellsbæ,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 23.
október, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju,
Mosfellsbæ, föstudaginn 30. október kl. 13.30.
Guðrún Þorvaldsdóttir, Bjami Jóhannsson,
Hreinn Þorvaldsson,
Ragnar Þorvaldsson,
Jóna Þorvaldsdóttir,
Magnús Þorvaldsson,
Sveinn R. Ingason,
Guðrún Sigurborg Jónasdóttir,
Þóra Gunnarsdóttir,
Eiríkur Grétar Sigurjónsson,
Katrín Hjartardóttir,
Halldóra K. Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn hins látna.
+
KRISTÍN ALDA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Fossheiði 9,
Selfossi,
lést á dvalarheimilinu Sólvöllum, Eyrarbakka,
þriðjudaginn 27. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Auðunn Gestsson,
Guðleif Selma Egilsdóttir,
Valgerður Auðunsdóttir, Guðjón Vigfússon,
Gestur Ólafur Auðunsson, Anastasia Auðunsson,
Guðrún Auðunsdóttir, Jón Sigurpáll Salvarsson,
Ingileif Auðunsdóttir, Sigmundur Stefánsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ODDNÝ GUÐBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
Digranesvegi 54,
Kópavogi,
lést á heimili sínu föstudaginn 23. október.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
30. október kl. 15.00
Karl Jóhann Gunnarsson,
Þórður Karlsson, Þórsteina Pálsdóttir,
Jón Ólafur Karlsson, Elísabet Sigurðardóttir,
Gunnar Már Karlsson, Matthildur Jónsdóttir,
Ása Kristbjörg Karlsdóttir, Þröstur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
amma og systir,
SÓLVEIG ÞÓRA EIRÍKSDÓTTIR
frá Borgarfirði eystra,
síðast til heimilis
á hjúkrunarheimilinu Skjóli,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á r
un, föstudaginn 30. október kl. 15.00.
Ásdís Runólfsdóttir,
Runólfur Gíslason,
Þórir Guðlaugsson,
Heiðar Már Guðlaugsson,
Óttar Örn Guðlaugsson,
Sólveig Þóra Jóhannesdóttir, Ásta Eiríksdóttir
og barnabarnabörn.
+
Innilear þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓSKARS JÓNSSONAR,
Brún,
Laugarvatni.
Eygló Þórðardóttir,
Jón G. Óskarsson, Kolbrún Leifsdóttir,
Þórður Óskarsson, Steinunn Helgadóttir
og barnabörn.