Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Styrktarsamningur við Kristin Björnsson skíðamann undirritaður
KRISTINN Svanbergsson, frainkvæmdastjóri Skíðasambands ís-
lands, og Egill Jóhannsson, formaður þess, Kristinn Björnsson og
Halldóra Garðarsdóttir, fulltrúi Garðars Guðmundssonar.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
ÓLAFSFIRÐINGAR færðu Kristni rúmlega 700 þúsund krónur;
Þorvaldur Hreinsson afhendir ávisunina fyrir þeirra hönd.
Morgunblaðid/Kristján
Ný tækni við fram-
kvæmd verðkannana
Fáir geta státað af
slíkum stuðningi
Ólafsfírði. Morgunbiaðið
NEYTENDAFÉLÖGIN á Akur-
eyri, Selfossi og Isafírði stóðu
fyrir verðkönnun í matvöruversl-
unum á félagssvæðum sínum í
gær. Vilhjálmur Ingi Árnason,
formaður Neytendafélags Akur-
eyrar og nágrennis mætti í versl-
anir vopnaður strika-
merkjaskanna og mun þetta vera
í fyrsta skipti sem verðkönnun er
framkvæmd hérlendis með slíku
tæki.
Vilhjálmur Ingi sagði að skann-
inn þekkti vörurnar á strika-
merkjunum og hann þyrfti því að-
eins að slá inn verðið til viðbótar.
Þetta flýtir mjög framkvæmd
verðkannana, auk þess sem nið-
urstöður liggja fyrir mun fyrr en
áður. Hann sagðist reikna með að
niðurstaða í þessari sameiginlegu
verðkönnun félaganna þriggja
lægi íyrir nk. mánudag.
Vilhjálmur Ingi sagði nokkuð
langt síðan verðkönnun var síðast
framkvæmd og að Neytendasam-
tökin stæðu sig ekki nógu vel á
því sviði. „Fólk er alltaf að hafa
samband við okkur og leita eftir
verðkönnunum og neytendur
vilja sjá kannanir reglulega.“
A myndinni er Vilhjálmur Ingi
með nýja tækið við mjólkurkæl-
inn í KEA Nettó í gær.
SKRIFAÐ var undir styrktar-
samning Skiðasambands fslands
og nokkurra fyrirtækja í Ólafs-
firði við Kristin Björnsson skíða-
mann í heimabæ hans, Ólafsfirði,
fyrir helgi. Styrkurinn er að upp-
hæð 1.150 þúsund krónur.
Kristinn kvaðst ánægður með
heimsóknina til Ólafsfjarðar og
sagði því ekki að leyna að það
væri Ólafsfirðingum að mestu að
þakka að hann hefði náð svo
langt í íþróttinni sem raun ber
vitni. „Það eru ekki margir
íþróttamenn sem geta státað af
slikum stuðningi,“ sagði hann og
bætti við að það væri góð tilfinn-
ing að geta gert eitthvað á móti -
sýnt góðan árangur. Sagðist
Kristinn reyna af fremsta megni
að koma vel fram fyrir hönd bæj-
arins. Fram kom í máli hans við
undirritun samningsins að kostn-
aður vegna ferðalaga hans á mót
næmi um 1.200 þúsund krónum á
ári. Þakkaði Kristinn að lokum
Skíðasambandi íslands, Ólafs-
firðingum og ekki síst foreldrum
sínum sem stæðu sem klettur að
baki honum.
Egill Jóhannsson formaður
Skíðasambands Islands sagði við
þetta tækifæri að Kristinn væri
ekki bara einn af bestu skíða-
mönnum heims, heldur væri
hann líka drengur góður. Það
væri mikilvægt fyrir hreyfinguna
að hafa mann eins og Kristin
Björnsson í fararbroddi.
A sama tíma og skrifað var
undir samninginn afhenti Þor-
valdur Hreinsson skrifstofustjóri
Sparisjóðs Ólafsfjarðar Kristni
rúmlega 700 þúsund krónur, en
það er framlag bæjarbúa, stofn-
aður var reikningur í sparisjóðn-
um og gafst íbúum Ólafsfjarðar
kostur á að styðja Kristin í verki
með framlagi sínu.
Fyrirtækin sem styðja Kristin
eru Ólafsfjarðarbær með 250
þúsund krónur, Þormóður
rammi-Sæberg með 500 þúsund,
Sparisjóður Ólafsfjarðar 100
þúsund, Vélsmiðja Ólafsfjarðar
50 þúsund, Garðar Guðmunds-
son 100 þúsund, Sigvaldi Þor-
Ieifsson 50 þúsund, Kristbjörg
50 þúsund og Arni Helgason 50
þúsund.
Kjara- og starfsmenntunarmál rædd á formannafundi VMSÍ
Markmið hafa
gengið eftir
Morgunblaðið/Kristján
EDDA Rós Karlsdóttir, hagfræðingur ASI, ræddi stöðu kjaramála á
formannafundi VMSÍ sem hófst á Akureyri í gær og er fram haldið í
dag. Hér ræðir Edda Rós við Björn Grétar Sveinsson, formann VMSÍ.
Sendiherra Rússlands heimsækir Dalvík
ÞRÓUN og staða kjaramála og
starfsmenntunarmál eru til umfjöll-
unar á formannafundi Verkamanna-
sambands íslands sem nú stendur
yfír á Akureyri. Edda Rós Karls-
dóttir hagfræðingur ASI fjallaði um
stöðu kjaramála og í máli hennar
kom m.a. fram að dagvinnulaun á Is-
landi hafa hækkað um 50% frá árinu
1990 en hjá ASÍ-fólki er hækkunin
42-43% á þessu árabili.
Edda Rós sagði að það markmið
sem samningsaðilar hafí sett sér við
gerð síðustu kjarasamninga hafí
gengið eftir og gott betur. Kaup-
máttaraukning ráðstöfunartekna af
daglaunum á áranum 1996-1997 nam
6,9% hér á landi en aukningin i
helstu viðskiptalöndunum var 2,4% á
sama tímabili. Þó lækkaði kaupmátt-
ur ráðstöfunartekna á þessum ái’um
í Svíþjóð og Kanada af ýmsum
ástæðum.
Minni verðbólga
Einnig kom fram hjá Eddu Rós að
í spá í mars á síðasta ári hafi verið
gert ráð fyrir 2,5% verðbólgu á árinu
1998. Nú er hins vegar útlit fyrir að
verðbólga á þessu ári verði 1,6% og
2% á næsta ári og því er kaupmátt-
urinn meiri en gert var ráð fyrir.
Edda Rós sagði að skattakerfið
hér á landi drægi úr tekjumun fólks
en hins vegar skekktist myndin þeg-
ai- kæmi að yfirvinnu. Hún nefndi
sem dæmi að bamafólk með lágar
tekjur héldi minna eftir en hátekju-
fólk af sinni yfirvinnu, þar sem bæði
barnabætur og vaxtabætur lækkuðu
hjá láglaunafólkinu. Hún sagði þetta
mikið vandamál hjá verkalýðshreyf-
ingunni og í raun fátæktargildru,
þrátt fyrir að hlutirnh’ hafí lagast við
gerð síðustu kjarasamninga.
SENDIHERRA Rússlands á ís-
landi, Anatoly S. Zaytsev, heimsækir
Dalvík í dag, fimmtudag, og dvelur í
bænum ásamt eiginkonu sinni fram á
sunnudag.
Heimsókn hans til Dalvíkur er að
frumkvæði Fiskmiðlunar Norður-
lands og kemur í beinu framhaldi af
auknum umsvifum fyrirtækisins í
Rússlandi. Sendiherrann heimsækir
ýmis fyrirtæki og stofnanir á Dalvík
og kynnir sér starfsemi þeirrá.
Sendihei’rahjónin sitja hátíðarkvöld-
verð í boði bæjarstjórnar á fóstu-
dagskvöld ásamt nýbúum af rúss-
neskum ættum og öðrum gestum. Á
laugardag er ætlunin að kynna
sendiherrahjónunum svarfdælska
búskaparhætti og fara með þá í sjó-
ferð ef veður leyfir.
Aukin umsvif í Rússlandi
Fiskmiðlun Norðurlands hefur
frá árinu 1992 átt viðskipti við
Rússland á sviði sjávarútvegs og
hafa þau aukist jafnt og þétt. I vor
sem leið var ráðinn rússneskur
starfsmaður, Alexei Sergueev, að
fyrirtækinu en markmið með ráðn-
ingu hans er að auka og bæta þá
þjónustu sem fyrirtækið býður upp
á í Rússlandi, m.a. með því að hefja
sölu á íslenskum sjávarafurðum og
tengdum vörutegundum til Rúss-
lands og rússneskum vörum á al-
þjóðamarkað.
Fiskmiðlun Norðurlands hefur
gefíð út veglegt kynningarrit á rúss-
nesku og forsvarsmenn fyrh’tækisins
era nýkomnir heim úr 10 daga við-
skiptaferð til Rússlands. Ferðin þyk-
ir lofa góðu um framhaldið.
Vélsleða-
menn funda
AÐALFUNDUR Félags
vélsleðamanna í Eyjafirði verð-
ur haldinn í Blómaskálanum
Vín við Hrafnagil í Eyjafjarðar-
sveit í kvöld, fímmtudagkvöld
og hefst hann kl. 20.30.
Auk hefðbundinna aðalfund-
arstarfa verða ýmis hagsmuna-
mál sleðafólks á svæðinu til um-
ræðu. Fundurinn markar í raun
nokkurs konai’ upphaf vélsleða-
vertíðarinnar við Eyjafjörð ár
hvert og þar gefst kjörið tæki-
færi til að hittast, spá í spilin og
rifja upp minnisstæða atburði.
Markmið Félags vélsleða-
manna í Eyjafii’ði er að vinna að
hagsmunamálum vélsleðafólks
á svæðinu og ekki síst að stuðla
að betri vélsleðamenningu. í því
sambandi hvetur félagið
vélsleðamenn til að virða reglur
um akstur innanbæjar, nú þeg-
ar snjór er á jörðu.
Samveru-
stundir fyrir
aldraða
SAMVERUSTUNDIR f'yrir
aldraða eru að hefjast á ný í
Akureyrarkirkju, en fyrsta
samverustundin verður á morg-
un, fimmtudaginn 29. október,
kl. 15.
Þessar stundir hafa notið
mikilla vinsælda og verið fjöl-
sóttar. Kaffi er á boðstólum,
ræður fluttar, skemmtileg tón-
listaratriði, almennur söngur og
bæn. Ræðumenn á fyrstu sam-
verustundinni verða hjónin
Ragnhildur Einarsdóttir og Al-
freð Jónsson sem lengi áttu
heima í Grímsey. Allir eru vel-
komnir. Bílar fara frá Víðilundi
kl. 14.40 með viðkomu í Hlíð.
Þrjú innbrot
BROTIST var inn á þremur
stöðum á Akureyri og Dalvík í
fyiTnótt. Á Akureyri var brotist
inn í Bifreiðaverkstæði BSA og
stolið þaðan töluvert af pening-
um.
Á Dalvík var brotist inn í
Bifreiðarverkstæði Dalvíkur og
Esso-stöðina og peningum
stolið á báðum stöðum. Málin
eru óupplýst en rannsóknar-
deild lögreglunnar á Akm’eyi’i
vinnur að rannsókn þeirra.
Vitni vantar
LÝST er eftir vitnum að
árekstri sem varð á gatnamót-
um Hlíðarbrautar og Ki’ossa-
nesbrautar rétt fyrir kl. 9.30
föstudaginn 2. október sl. Þeir
sem geta gefíð upplýsingar um
málið eru beðnir að hafa sam-
band við rannsóknardeild lög-
reglunnai’ á Akureyri.
Tískusýning-
hjá Stórum
stelpum
TÍSKUVERSLUNIN Stórar
stelpur efnir til tískusýningar í
Krónunni í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 29. október og hefst hún
kl. 20.30 en húsið verður opnað
hálftíma fyrr. Arnar Símonar-
son kynnir og boðið verður upp
á léttar veitingar. Eftir sýning-
una býður verslunin viðskipta-
vinum sínum 20% staðgreiðslu-
afslátt.
Aksjón
29. október, fimmtudagur
12.00ÞSkjáfréttir
18.15ÞKortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endursýnd-
ur kl. 18.45, 19.15, 19.45, 20.15
og 20.45.
21.00ÞTrélist Bæjarsjón-
varpið heimsækir Anton Ant-
onsson á Gilsá.