Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 48
»48 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ * tHera Newton fæddist í Reykja- vík 12. maí 1942. Hún andaðist á heimili sfnu, Garðatorgi 7, þriðjudaginn 20. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðmunda Sigríður Jónsdóttir, f. 15. októ- ber 1908, d. 25. októ- ber 1982, og Fred Newton. Systkini hennar eru Vilný Reynkvist Bjamadótt- ir, Kjartan Bjamason, og Hermann Vest- fjörð Bjömsson, en hann er látinn. Hera giftist 16. júní 1966 Elsku mamma mín, þú varst mér dýrmætari en orð geta lýst. Að eiga eftir að lifa án þín er afar erfítt að hugsa sér. Þú sem varst ekkert á leiðinni frá okkur þótt veik væri, þú varst að skipuleggja jólagjafir og Kanaríeyjaferðina sem þú og pabbi ætluðuð að fara í febrúar. Og ég var búin að lofa að athuga hvort ég gæti ekki nú fengið að fljúga með þig. Og þú varst full tilhlökkunar með allt. En eftir 3ja ára veikindi kom kallið okkar mati sem eftir syrgjum alltof snemma. Mamma var sú allra glæsilegasta kona, hún var Ijúf, gjafrnild stundum meira segja of og maður þurfti að hafa hemil á því og mikill vinur vina sinna, sem kom best glögglega í ljós þegar hún komst ekkert nema í hjólastól. Þá voru vinkonurnar boðn- ar og búnar að vera með henni. Og mamma skipulagði vikuna hver yrði með henni en við pössuðum alltaf uppá það að þegar við vorum saman mæðgumar þá vorum við einar. Og ^töluðum við mikið og margt saman og allar þær ljúfu stundir sem við áttum saman geymi ég í hjarta mínu sem mínar dýrmætustu minningar. Það er yndislegt að hafa átt svona góða mömmu og svona góða vinkonu, því mamma var líka mín besta vin- kona. Ef ég þurfti að velja föt eða Stanley Pálssyni, f. 28. nóvember 1945, verkfræðingi. Börn Heru og Stanleys eru: 1) Sigríður Rut, f. 15. október 1965, maki hennar er Hólmar Ólafsson og eiga þau þrjú börn. 2) Áslaug Líf, f. 26. júní 1971. 3) Sif, f. 10. ágúst 1972, maki hennar er Axel Örn Ársælsson og eiga þau einn son. Útför Heru fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. einhverja hluti til heimilisins vildi ég hafa mömmu með því hún hafði svo góðan smekk. Og mamma var líka af- ar vitur og ráðlagði manni alltaf rétt. Mömmu þótti afar vænt um barnabörn sín og þó að mamma væri orðin mikið veik þá tóku hún og pabbi þau reglulega til sín og leyfðu þeim að sofa hjá sér. Enda var mamma mér og systrum mínum allt sem átti að prýða góða og ljúfa mömmu og ömmu fyrir börnin okk- ar. Mamma dó í svefni heima við hlið síns heittelskaða eiginmanns og var það það sem hún vildi og er ég Guði þakklát fyrir það. Alúð, ást og umhyggja pabba íyrir mömmu var aðdáunarverð. Hann var henni svo afar góður og elskaði hana svo heitt. Pabbi minn, sorg þín er mikil en Guð gefí þér æðruleysi til að sætta þig við það sem við fáum ekki breytt. Elsku pabbi minn, þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mömmu, þú munt ávallt eiga virð- ingu mína og aðdáun fyrir það. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fyigi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Mamma, ég kveð þig með trega, en þakka þér fyrir að hafa verið mamma mín og amma barna minna sem syrgja þig og Drottinn, þakka þér fyrir að hafa gefið mér hana mömmu. Mamma, ég elska þig og mun ávallt elska þig. Þín heittelskandi dóttir Sigríður Rut. Með fáeinum orðum langar mig að kveðja í hinsta sinn elskulega tengdamóður mína, hana Heru. Eg naut þeirrar gæfu að fá að eignast hana sem tengdamóður, og er það nokkuð sem ég mun ævinlega vera þakklátur fyrir. Allir sem til Heru þekktu, vita hvaða manneskju hún hafði að geyma, hve einlæg og hjartahlý hún var, og í öllum okkai- samskiptum fékk ég oftsinnis stað- festingu á því að hún var alveg ein- stök og átti sér enga líka. Minningarnar streyma fram í hug- ann um leið og ég þarf að kijást við allar þær tilfinningar, sem bærast innra með mér, nú þegar hún hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir illvið- ráðanlegum sjúkdómi. Allan þann tíma eftir að Hera veiktist, hélt ég alltaf í þá von, að henni tækist að hafa betur í þessari erfiðu baráttu. Dvöl okkar Sifjar er- lendis varð sífellt erfiðari, því sú hugsun að kannski myndum við aldrei hittast aftur, varð sífellt raunverulegri. Þó margir hefðu bent mér á hvað væri í vændum, var erfitt að sætta sig við það, að þetta yrðu örlög hennar. Þeim mun þakk- látari er ég núna að við fengum tækifæri til að vera með henni síð- ustu mánuðina og að Stanley Örn hafi haft kost á því að umgangast ömmu sína. Allar þær ánægjustundir sem við áttum saman, bæði hér og erlendis, eru á þessari stundu það ljós sem til þarf, til að lýsa upp þann skugga sem lagst hefur af þunga sínum á huga minn. Öllu meiri er þó sorg og harmur Sifjar, systra hennar og ekki síst Stanleys, tengdafóður míns, sem á aðdáunarverðan hátt barðist og leitaði allra leiða til að bægja frá þeim hræðilega sjúkdómi sem tekur Heru og marga aðra á besta aldri frá okkur. Eg vona innilega að minning þeirra um góða móður og eiginkonu megi verða til þess, að þau muni sigrast á sorg sinni og að það góða sem hún gaf okkur öllum verði til þess að ylja okkur á þessum erfiðu tímum. Með Heru er farin tengdamóðir mín yndisleg, sem ég sakna sárt. Með stolti og virðingu kveð ég hana í hinsta sinn, minning hennar lifir áfram. Elsku Hera, Guðjgeymi þig. Axel Örn Ársælsson. Það er svo leiðinlegt að þú ert far- in frá mér og ég sé þig aldrei meir. Ég veit að það er rétt hjá mömmu og pabba að þér líður betur núna hjá Guði. En ég græt og græt þegar ég hugsa til þín, elsku amma mín. Ég vildi óska að ég gæti kvatt þig í stað þess að kveðja þig í bréfi. Mér þykir svo vænt um þig, elsku amma mín, þú varst alltaf svo góð við mig og svo gjafmild. Ég þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman. Ég vildi óska að ég hefði getað haft þig aðeins lengur og ég vissi ekki að þetta myndi gerast svona fljótt, það vissi enginn. Ég sem ætlaði að syngja fyrir þig lögin sem ég var að læra með kórnum og leika fyrir þig á fiðluna mína. Þú varst svo ánægð að ég skyldi vera að læra að syngja og spila. Þú varst svo vitur og sagðir mér svo margt sem hjálpaði mér og það reyndist alltaf rétt það sem þú ráð- lagðir mér. Þar sem Óli Palli og Thelma Rut eru svo lítil og kunna ekki að skrifa kveð ég líka fyrir þau. Okkur þykir öllum svo afar vænt um þig og við munum sakna þín. Bless elsku amma. + Ástkasr eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Viðey, Vestmannaeyjum, Árskógum 8, Reykjavík, sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja miðvikudaginn 14. október, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 31. október kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir. Björgvin Guðmundsson, Ragnheiður Björgvinsdóttir, Gunnar St. Jónsson, Guðmundur Ó. Björgvinsson, Björg Valgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + TEITUR BJÖRNSSON fv. oddviti og bóndi, Brún, Reykjadal, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 26. okt. sl. Útför hans fer fram frá Einarsstaðakirkju laugar- daginn 31. október kl. 14.00. Elín Aradóttir, Björm Teitsson, Anna G. Thorarensen, Ari Teitsson, Elín Magnúsdóttir, Erlingur Teitsson, Sigurlaug Svavarsdóttir, Sigríður Teitsdóttir, Eggert Hauksson, Helga Teitsdóttir, Jón Hermannsson, Ingvar Teitsson, Helen Teitsson og barnabörn. HERA NEWTON Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn. Augun spyija eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: Hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar bijósti sætt og rótt. Amma er dáin - amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann - lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir - amma kyssir undirblítt á kolhnn hans. Breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins htla manns. (Jóhannes úr Kötlum) Hera Rut, Ólafur Páll og Thelma Rut. AUt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, ht og blöð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pétursson) í hauströkkrinu kvaddi elskuleg vinkona mín og mágkona, Hera Newton, þennan heim. Fyrir um þremur árum greindist Hera með iH- vígan sjúkdóm og þá tók við erfitt tímabil í lífi hennar. Vitneskjan um það að hún myndi aldrei sigra þá baráttu var okkur öllum þungbær. En hversu mikið sem sjúkdómurinn tók á líkama hennar varð sál hennar og hugur sterkari. Að eiga góðan vin hefur alltaf ver- ið talinn fjársjóður en við Hera kynntumst er við vorum 15 ára gamlar. Hún var alltaf hjartfólginn vinur og að vita að eiga vináttu henn- ar var ómetanlegt og vil ég nú þakka þann kærleika og vinskap er ávaUt ríkti á miUi okkar. Við vorum líka mágkonur og er mér minnisstætt er við vorum í fríi í London og mér bár- ust í sífellu bréf frá Stanley bróður mínum, er virtist í skrifum sínum mjög áhugasamur um hagi okkar Heru. Þó að ég væri góðu vön frá bræðrum mínum, þótti mér það skrýtið og þegar ég nefndi það við Heru, brosti hún og augu hennai- Ijómuðu. Stanley og Hera gengu í hjónaband 16. júní 1966. Þau áttu gott og ástríkt hjónaband og eignuð- ust þrjár dætur. Það var aðdáunarvert að sjá um- önnun og samheldni fjölskyldunnar og að allt var gert sem í þeirra mannlega valdi stóð. En missir ykk- ar er mikill því þeir einir er eiga mikið missa mikið. Megi góður guð veita bróður mínum Stanley, dætr- um þeirra, tengdasonum, barnabörn- um og öðrum ástvinum styrk í þeirra miklu sorg. En minning um góða konu mun aldrei gleymast. Guðrún Pálsdóttir. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upprunnin á bak vid dimraa dauðans nótt. (V. Briem) Elsku frænka, þegar komið er að kveðjustund langar mig að minnast þín með fáum orðum. Alltaf leit ég upp til þín, þvi þegar ég var lítil varst þú eins og stóra systir mín, og sagði ég það við vinkonur mínar, að þú værir víst systir mín, þú værir móðursystir mín. Og oft kom fyrir að ég elti þig í vinnuna þegar þú varst að kenna dans heima á Selfossi. Þá faldi ég mig og var svo mætt þegar þið komuð í hlé, til að fá eitthvað í munninn. Þegar ég fór að eldast var ég hjá ykkur hjónunum að passa stelpurnar og fannst það mjög gam- an. Þá gat ég talað við þig um allt milli himins og jarðar. Þegar ég fluttist til Reykjavíkur, var gott að hafa þig sem næst mér og oft kom ég til þín ef mér leið ekki vel, og stutt var fyrir þig að koma þegar ég þurfti mest á ykkur mömmu að halda fyrir næstum 20 árum. Þú varst mér sem móðir og besta vinkona þessi ár og oft eftir það, þú varst ætíð tilbúin að hlusta á mig. Ég sá þig ekki oft eftir að þú veiktist svona mikið, og þú skildfr það svo vel, en nú ertu búin að fá hvfldina og þjáist ekki meir. Það hefur verið vel tekið á móti þér, Hera mín. Ég kveð þig, elsku frænka, og bið Guð að styrkja Palla, Siggu Rut, Áslaugu, Sif, tengdasyni, og barnabörn á þessari sorgar- stundu. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgarþraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. (V. Briem) Þín frænka, Ásdís. Kær vinkona mín, Hera Newton, er látin langt fyrir aldur fram. Tæp- lega þriggja ára baráttu við þann slæma vágest, sem leggur allt of marga að velli, er lokið. Þegar hún komst að því síðla árs 1995, að hún væri haldin illvígum sjúkdómi, sem er mikið áfall, þá hélt hún ró sinni - staðráðin í því að ná yfirhöndinni og ná heilsu á nýjan leik. Kjarkurinn var óbilandi þrátt fyrir mótlætið - hún var hin raun- verulega hetja sem barðist af æðru- leysi í veikindum sínum. Við Hera kynntumst fyrst fyrir rúmum 15 árum er eiginmenn okk- ar hófu samstarf um rekstur verk- fræðiskrifstofu. Við urðum strax góðar vinkonur, líkt og við hefðum þekkst frá fornu fari - milli okkar ríkti gagnkvæmur trúnaður ásamt því að samgangur milli heimila okk- ar og fjölskyldna okkar var mikill enda elstu börnin á svipuðu reki. Hera Newton var falleg og glæsileg kona, vel til höfð og snyrtileg, þannig að af bar. Heimili þeirra St- anleys var stórglæsilegt og hverj- um hlut haganlega fyrir komið. Síð- ustu tvö árin bjuggu þau hjónin í fallegri íbúð við Garðatorg í Garða- bæ, en þar undi Hera hag sínum mjög vel og var allt fram til hins síðasta að fegra heimili þeirra hjóna þrátt fyrir að hún væri orðin fárveik. Ég á eftir að sakna hennar mikið - að heyra ekki lengur hressa og uppörvandi rödd hennar í símanum, rödd sem ávallt var full af lífsgleði, þrátt fyrir mótlæti sjúkdómsins - geta ekki lengur farið með henni í bæjarferð, fylgt henni upp og niður Laugaveginn og sest síðan niður yf- ir kaffibolla og spjallað um alla heima og geima. Kæra Hera, þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og kærleik- ann sem þú sýndir börnunum mín- um og fjölskyldu. I veikindum þín- um lærði ég að endurmeta gildi kærleikans og hve mikilvægt það er að lifa fyrir einn dag í einu. Mikil sorg og eftirsjá er hjá St- anley Pálssyni, eiginmanni hennar, fallegu dætrunum þrem, sem Hera var svo stolt af, tengdasonunum og bamabörnunum, sem hún hafði mikla ánægju af. Guð veiti þeim öllum styrk í þeirra miklu sorg. Bjarndís Harðardóttir. Hún elsku Hera er dáin. Ég kýs að kalla hana elsku Heru, vegna þess hversu elskuleg hún var alltaf við mig þegar við unnum saman þónokkur jól hjá henni Gurru í Clöru. Einna helst er ég svo þakklát fyrir að fá að hafa setið við hliðina á henni í síðasta sinn í Flugleiðavél heim frá Lúxemborg í maí síðast- liðnum, og fengið að spjalla við hana, en einhvern veginn fann ég það á mér að það væri í síðasta sinn sem við myndum hittast a.m.k. hérna megin. Svo gleymi ég því heldur ekki hvað hún Hera leit vel út þrátt fyrir sjúkdóminn. Reyndar var Hera alveg stórglæsileg kona og átti líka stórglæsilega og elskulega fjöl- skyldu. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Heru og öll- um hennar hlýleika.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.