Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 59
BRÉF TIL BLAÐSINS
Svar til Sigurðar
Lárussonar
Frá Finni Ingólfssyni:
í OPNU bréfí í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 14. október beindi
Sigurður Lárusson kaupmaður
nokkrum spurningum til mín um
greiðslukort. Tilefnið var ummæli
mín á ráðherrafundi OECD um
rafræn viðskipti að Island ætti
góða möguleika á að verða fyrsta
seðlalausa þjóðfélagið í heiminum
innan fimm ára. Eg vil þakka Sig-
urði fyrir bréfið. Það er kærkomið
að fá tækifæri til að útskýra betur
hvað við er átt og leiðrétta um leið
þann misskilning sem virðist gæta
í bréfi Sigurðar.
Rafræn viðskipti eru að gjör-
bylta hefðbundnum viðskiptahátt-
um. Þetta skapar okkur Islending-
um sóknarfæri því fjarlægðir
skipta litlu máli í hinu rafræna
heimsþorpi. Auk þess erum við Is-
lendingar fljótir að tileinka okkur
nýjungar og stöndum mjög fram-
arlega við að nýta okkur upplýs-
ingatæknina. Sem dæmi má nefna
að aðgangur Islendinga að Inter-
netinu er sá næstmesti í heiminum
og rafrænar greiðslur hvergi meiri.
Mikilvægt er að stuðla að enn
frekari vexti rafrænna greiðslna,
bæði á Internetinu og í öðnjm við-
skiptum. Að mörgu þarf þó að
hyggja. Þannig þarf t.d. að tryggja
öryggi fjármagnsflutninga á Inter-
netinu með alþjóðlegum stöðlum.
Hér á landi er mikilvægt að hefja
starf við að móta löggjöf um raf-
rænar undirskriftir og rafeyi'i. Lík-
legt virðist að greiðslukort framtíð-
arinnar verði örgjöi’vakort með að-
skilin foiTÍtakerfi til að sinna þeim
viðskiptum sem nú fara fram með
debet- og kreditkortum með segul-
rönd, auk þeirrar viðbótar sem
þarf til fyrir geymslu og meðhöndl-
un rafeyris. Slíkur rafeyrir verður
þá jafnan notaður í ýmsum smá-
söluviðskiptum í stað seðla og
myntar.
Sérfræðingar á sviði rafrænna
gi-eiðslna hafa lýst því yfir að Is-
lendingar stæðu næstir því allra
þjóða að verða fyi'sta seðlalausa
þjóðfélagið í heiminum. Með nýrri
tækni verða seðlar og mynt minna
notuð í viðskiptum. I grein sinni
virðist Sigurður álykta að notkun
hefðbundinna greiðslukorta, eins
og við þekkjum þau í dag, aukist í
hinu seðlasnauða þjóðfélagi. Það
er alls ekki svo. Það er hins vegar
rétt hjá Sigurði að heildstæð lög-
gjöf um gi-eiðslukortastarfsemi
hefur aldrei verið sett hér á landi
þó oft hafi verið rætt um nauðsyn
slíkrar löggjafar. Sérstakur kafli
um eftirlit með greiðslukortastarf-
semi var þó settur inn í samkeppn-
islög á sínum tíma. Að undanförnu
hefur verið til skoðunar í við-
skiptaráðuneytinu hvernig best sé
að tryggja eftirlit með greiðslu-
kortastarfsemi. Að mínu mati
verður ekki skilið á milli umræðu
um rafeyri og mótun löggjafar þar
að lútandi annars vegar og mótun
laga um starfsemi greiðslukorta-
starfsemi hins vegar. Hef ég því
ákveðið að skipa nefnd til að fjalla
um þessi mál og móta tillögur um
hvernig haga beri löggjöf um
greiðslukortastarfsemi.
Hvað aðrar spurningar Sigurðar
áhrærir er því fyrst til að svara að
ekkert samkomulag ríkisvalds og
bankakerfis er til um greiðslu-
kortastarfsemi nema samkomulag
um notkun sjálfskuldarábyrgða
sem stjórnvöld, greiðslukortafyrir-
tæki, bankakerfið og Neytenda-
samtökin skrifuðu undir fyrr á
þessu ári með það að markmiði að
draga úr vægi sjálfskuldarábyrgða.
í öðni lagi hefur engin úttekt farið
fram á því hvernig kostnaður við
greiðslukortastarfsemi kemur
fram í verði á vöru og þjónustu og
því engar forsendur til að meta
tekjuauka ríkis í fjárlögum. I
þriðja lagi hefur gi’eiðslukorta-
starfsemi verið ítarlega rædd á Al-
þingi og í þrígang á einum áratug
hefui’ frumvarp um slíka starfsemi
verið lagt fram. Ekki er hægt að
segja til um það á þessu stigi
hvenær lögum verður breytt en við
breytingar á lagaumhverfi
gi’eiðslukortafyrirtækja er óhjá-
kvæmilegt að hafa hliðsjón af örri
þróun tækninnar.
FINNUR INGÓLFSSON,
viðskiptaráðherra.
Þjóð og
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
f ATHYGLISVERÐRI grein
Gunnars Karlssonar sagnfræðings
um íslenskt, grænlenskt og norrænt
þjóðerni að fornu (Lesb. Mbl.
24.10.) - sem er andsvar gegn grein
Guðmundar Hansens fyrrum skóla-
stjóra (Lesb. 19. sept.) - reynir
Gunnar að gera sem minnst úr öllu
sem bendir til ákveðinnar þjóðern-
isvitundar íslendinga á fyrstu öld-
um landsbyggðarinnar. „Við getum
engan veginn treyst því, að Norður-
landamaður um aldamótin 1000 hafi
hugsað um sig sem þegn eða borg-
ara nokkurs eins lands. Þegar við
gefum slíku fólki eitt ákveðið lands-
fang erum við að troða upp á það
hugmyndum sem tilheyra öðrum
tíma,“ segir Gunnar í myndatexta
sínum.
í stað þess að fara út í nákvæmar
rökfærslur um einstök atriði í gi-ein
Gunnars - það kynni þó að verða
gert - skal ég hér stuttlega benda á
nokkur atriði, sem varpa ljósi á við-
horf íslenskra (og norskra) forn-
manna til þjóðernis.
Norska stórskáldið Eyvindur
Finnsson orti um 970 lofkvæði „um
alla íslendinga", segir Snorri St-
urluson, sem vissi allra manna best
skil á fornum kveðskap.
Um 1020 yrkir Einar bóndi Eyj-
ólfsson á Þverá vísu þar sem hann
varar við ásælni Noregskonungs í
eyjuna Grímsey. Einar Eyjólfsson
kemur þar fram sem „þjóðvarnar-
maður“ af bestu gerð - líkt og faðir
hans, Eyjólfur á Möðruvöllum, hafði
saga
gert 40 árum áður, þegar Haraldur
Gormsson var að útbúa sjóher gegn
íslandi.
Um 1130 er rituð bók, sem hefur
það saman að vera rituð á íslensku,
um sögu íslands og nefnd íslend-
ingabók. Þessi bók er einstök í öll-
um miðaldabókmenntum Evi’ópu, af
margföldum ástæðum. Fáum árum
síðar semur íslenskur málfræðingur
ritgerð þar sem hann talar um
nauðsjm þess að „rita oss íslending-
um stafróf". Þjóðlegt, menningar-
legt sjálfstæði lýsir sér í þeirri rit-
gerð.
Á síðari hluta 12. aldar var ort
kvæðið íslendingadrápa, um ís-
lenska afburðamenn á söguöld, en
annars eru frá 12. og 13. öld og svo
mörg dæmin um þjóðlegan metnað
íslendinga, að þarflaust er að rekja
þau. Það er ekki sagnfræðingi sæm-
andi að segja, að við séum „að troða
upp á það fólk hugmyndum sem til-
heyra öðrum tíma“ eða gefa því
„landsfang", þegar við tökum mið af
orðum þessa sama fólks.
Utsala
Vissulega var viðhorfið til ís-
lensks þjóðernis annað meðan
næstu nágrannaþjóðir töluðu hina
sömu tungu og Islendingar sjálfir.
En þegar norræn tunga („dönsk
tunga“) hrundi að grunni á Norður-
löndum á fjórtándu öld, stóð ísland
eitt eftir, og því fylgdi mikil ábyi’gð.
Það vill reyndar svo til, að tungan
hefur varðveitt furðuvel merkingu
margi’a þýðingarmikilla orða og
orðatiltækja, frá fornöld fram í nú-
tíma. „Tungan geymir í tímans
straumi - trú og vonir landsins
sona,“ segir skáldið.
Þessa hefur G.K. ekki gætt nógu
vel í grein sinni. Hann virðist ekki
þekkja vel íslenska reisn, þá sem
hér hefur haldist, þrátt fyrir langar
og myrkar aldir, allt frá hinum
forna tíma. Hann stendur þarna of
nærri flokki þeirra undarlegu
manna, sem tala eins og íslenskt
þjóðerni hafi verið „fundið upp“ á
18. og 19. öld. En ég ætla að vona,
að hann sé nógu skynsamur til að
fylla ekki slíkan flokk, þegar hann
hugsar sig um.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Einnig vei&ijakkar
og vööluskór
á nýjum og notuðum Neoprane og Gore-Tex
vöðlum laugardag og sunnudag frá kl. 10-16.
Frábær verð.
Skóstofan Dunhaga 18, sími 5521680
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00
1983-2.fl. 01.11.98 -01.05.99 kr. 81.391,60
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextii; vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka fslands, Kalkofnsvegi 1,
og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. október 1998
SEÐLABANKIÍSLANDS
Víi/oíef dagar
ítaísíqirfyrstafatnaður
Frábært kynningartilboð
v:
V . - dmMgm
%
'f W
Grenningarbuxur
Hafa hlotið alþjóðlega
hágæða viðurkenningu
QkesiCegir uííartoppar
Mikið úrval
LYFJA
Lágmúla, simi 553 2300
Dreifingaraðili:
Lýv
HíeUdversíun
Sími 588 6111