Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 22

Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Reuters MITCH, sem hér sést við Júkatanskaga, var næstum kyrrstæður um miðjan dag í gær og ekki vitað hvaða stefnu hann tæki. Gífurleg úrkoma fylgir fárviðrinu Chetumal. Reuters. HELDUR hefur dregið úr vindstyrk í fellibylnum Mitch en um tíma var hann einn sá öflugasti á Karíbahafi á þessaiá öld. Var vindhraðinn kominn í gær niður í 120 km á klukkustund en þá var hann úti fyrir ströndum Hondúras. Fylgir bylnum gífurleg úrkoma og hefur hann orðið 14 að bana að minnsta kosti. Óttaslegið fólk flýði í gær frá strandhéruðum í Hondúras, Gu- atemala og Belize en úrkoman, sem fárviðrinu fylgir, er allt að 50 sm á sólarhring. Wally Barnes, veður- fræðingur í fellibyljamiðstöðinni í Miami, sagði um miðjan dag í gær, að þá hefði Mitch verið næstum kyrrstæður í um 50 km fjarlægð frá Hondúrasströnd en vind.styrkurinn minni en áður. Var þá búið að færa Mitch niður í þrjá á Saffir-Simpson- kvarða. Prátt fyrir það er hann enn öllu meiri en fellibylurinn Georg, sem varð 500 manns að bana fyrr í þessum mánuði. Urkoman er eftir sem áður óskap- leg og getur valdið miklu tjóni og hörmungum í Hondúras og Belize þar sem mikið er um lélegt húsnæði og hálfgert hrófatildur. Barnes kvað ei*fitt að segja fyrir um hvaða stefnu Mitch tæki. Stefndi hann fyrst beint í vestur en gæti tekið upp á því að fara í norður eða suður. í Mexíkó hefur verið lýst yfir hættuástandi í þremur fylkjum á Júkatanskaga og öllum höfnum þar og annars staðar á þessum slóðum hefur verið lokað. Engin skipa- eða flugumferð er í námunda við fellibyl- inn. í Belize-borg, höfuðborg Belize, hafa næstum allir íbúanna, 75.000 manns, flúið burt og lengra inn í landið. Fréttii' eru um gífurlega eyðileggingu á tveimur eyjum við Hondúras, Roatan og Guanaja. ERLENT Skýrsla sannleiks- og sáttanefndarinnar lögð fram í dag Umdeildum kafla um de Klerk sleppt Reuters DESMOND Tutu leggur áherslu á mál sitt á fréttamannafundi í gær. Bonn. Reuters. F.W. DE KLERK, fyrrverandi for- seti Suður-Afríku, vann í gær áfangasigur í baráttu sinni um að hreinsa nafn sitt af áburði um að hafa tengzt ofbeldi sem beitt var í nafni aðskilnaðarstefnunnar í land- inu, með því að sannleiks- og sátta- nefndin svokallaða samþykkti að fjarlægja - að minnsta kosti um sinn - kafla um hann úr lokaskýrslu sinni sem leggja á fyrir Nelson Mandela forseta í dag. í þessum kafla skýrslunnar er De Klerk, sem hleypti Mandela úr fangelsi á sínum tíma, sagður hafa vitað um voðaverk sem framin hefðu verið í stjórnartíð aðskilnað- arstefnunnar, en hann hefði leynt þessari vitneskju sinni. Lögfræð- ingar de Klerks eru enn að reyna að fá sett lögbann við því að skýrslan verði birt með þessum kafla óbreyttum. Desmond Tutu, formaður sann- leiksnefndarinnar, sagðist í gær hafa gefið prenturum skýrslunnar fyrirmæli um að sleppa þessum kafla um de Klerk úr því eintaki skýrslunnar sem formlega verður lagt í hendur forsetans í dag. Tutu sagði að nefndin hefði ákveðið þetta eftir vandlega íhugun að ráði lög- fræðinga hennar, þar sem þeir teldu sig þurfa meiri tíma til að undirbúa sína hlið á málinu. Þeir hafa farið fram á frestun á því að beiðni lög- fræðinga de Klerks um lögbann verði tekin fyrir, þannig að hugsan- lega yrði kaflanum bætt inn í skýrsluna aftur síðar. Afríska þjóðaiTáðið (ANC), sem fer fyrir núverandi ríkisstjórn Suð- ur-Afríku, hefur líka mótmælt nið- urstöðum tveggja ára starfs sann- leiksnefndarinnar, sem skoðaði bæði þátt kúgara og kúgaðra í rann- sókn sinni á fortíðinni. Samkvæmt upplýsingum sem fram hafa komið um innihald skýrslunnar mun ANC vera sakað um að hafa borið ábyrgð á brotum á borð við pyntingar og aftökur án dóms og laga. ANC gaf í gær út tilkynningu um að það hefði skrifað sannleiksnefnd- inni bréf til að „svara (...) hinum staðlausu ásökunum og þeirri hróp- andi ónákvæmni sem er að finna í fyrirhuguðum niðurstöðum nefnd- arinnar." Þjóðarflokkurinn mótmælir Þjóðarflokkurinn, stærsti flokkur hvíta minnihlutans í Suður-Afríku og sá sem stjórnaði landinu fram til ársins 1994, tilkynnti jafnframt um það í gær að fulltrúar hans myndu sniðganga hina hátíðlegu afhend- ingarathöfn sannleiksnefndar- skýrslunnar, þar sem nefndin hefði ekki komið fram af sanngimi í garð flokksins. Leiðtogi Þjóðarflokksins, Martinus van Schalkwyk, kallaði sannleiksnefndina í útvarpsviðtali „ANC í dulargervi". Vissu ekki um eldinn Afsögn Wales-málaráðherrans minnir á uppákomur í stjórnartíð Ihaldsflokks Breska riTdsstjórnin segir ráðherrann einan ábyrgan London. Reuters. BRESKA ríkisstjómin hefur þvegið hendur sínar af allri ábyrgð á Ron Davies, ráðherra í málefnum Wales, en hann sagði af sér í fyrradag. Hafði hann þá verið rændur eftir að hafa slegist í fór með ókunnum manni, sem hann hitti í skemmti- garði. Er Davies sagði af sér kvaðst hann hafa gerst sekur um ófyrirgef- anlegt dómgreindarleysi en skemmtigarðurinn, sem hann lagði leið sína um, er sagður fjölsóttur af samkynhneigðum karlmönnum. Jack Cunningham, ráðherra í bresku rík- isstjóminni, viðurkenndi í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, í gær, að margt væri enn á huldu um þetta mál annað en það, að hann hefði orð- ið fyrir barðinu á glæpamönnum. Talsmaður Tony Blairs, forsætis- ráðherra Bretlands, sagði í fyrradag, að Davies neitaði með öllu, að upp- ákoman hefði haft eitthvað með kynferðismál að gera og Cunning- ham endurtók það. Kvaðst hann ekki hafa verið viðstaddur fund Davies og Blairs á þriðjudag en vita þó, að hann hefði verið mjög „tilfinningaþrunginn og erfiður“. Persónulegur harmleikur Cunningham sagði, að þetta mál væri persónulegur harmleikur fyrir Davies en lagði áherslu á, að hann sæti ekki lengur í stjóminni. Kvað hann pólitíska framtíð Davies vera mál hans sjálfs og Verkamanna- flokksins í Wales en ekki Blairs. Vildi hann ekkert um það segja hvort Davies ætti að skýra nánar frá atburðinum í skemmtigarðinum en bresku síðdegisblöðin eru ekki í neinum vafa um, að hann hafi verið í leit að karlmanni sem rekkjunaut. Breska lögreglan hefur handtekið þrjár manneskjur vegna þessa máls, tvo blökkumenn og eina blökkukonu, og haft uppi á bíl Davies. Davies er fyrsti ráðherrann í stjórn Blairs, sem segir af sér vegna misbresta í einkalífinu, og líklegt er talið, að afsögnin geri út um vonir hans um verða forseti nýs þings í Wales. Verður það kjörið á næsta ári. Þykir málið minna á það, sem ríkisstjórn Ihaldsflokksins átti við að stríða á sínum tíma, en hún stóð oft í ströngu vegna hneykslismála. Tengdust þau ýmist kynlífs- eða fjármálum og áttu jafnt ráðherrar sem þingmenn í hlut. Þáði heimboð ókunns manns í afsagnarbréfi sínu til Blairs seg- ist Davies hafa gerst sekur um alvar- legt dómgreindai'leysi. Hann hafi gengið um Clapham Common, stórt, opið svæði skammt frá heimili sínu, og hitt þar að máli ókunnan mann. Hafi hann boðið sér í kvöldverð og viljað taka tvo vini sína með. Segir Davies, að þeir hafi farið á bílnum sínum og er hann hafði tekið upp vini ókunna mannsins, karl og konu, hafi þeir ógnað sér með hnífi og stolið bflnum, veski hans og farsíma. Sjálf- ur var Davies skilinn eftir í Brixton- hverfinu, sem er alræmt fyi'ir eitur- lyfjaviðskipti. Toronto. Morgunblaðið. NIÐURSTAÐA rannsóknar á or- sökum flugslyss við Montreal í Kanada í júní sl. hefur leitt í ljós að flugmenn Fairchild Metroliner II- vélar sem fórst með ellefu manns vissu ekki hvar í vélinni eldur logaði og gátu því ekki gert ráðstafanir til að slökkva hann. Eldurinn kom upp í einu af hjól- húsum vélarinnar og er orsökin talin hafa verið ofhitun í bremsubúnaði. Viðvörunarljós í stjórnklefa og leið- beiningalistar sem flugmenn styðj- ast við gera ekki ráð fyrir þeim möguleika að eldur kvikni þar. „Þegar maður hefur ekki nægar upplýsingar er ekki hægt að bregð- ast rétt við,“ sagði Jean Desjardins, sem stýrði rannsókn slyssins. Vélin var í eigu flugfélagsins Propair og var á leið frá Mirabel-flugvelli við Montreal til Peterborough í Ontario- fylki. Vélin hafnaði á hvolfi utan brautar og sprenging varð í henni. Sam- gönguöryggismálanefndin leggur til að leiðbeiningum um stjórn Metroliner II verði breytt þannig að viðvörun um ofhitun í hjólhúsi skuli talin til marks um hugsanlegan eld. Útflutningsbann á portiígalskt kjöt Brussel. Reuters. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins, ESB, mæltist í gær til þess að útflutningur nautakjöts og lifandi nautgripa frá Portúgal verði bannaður, á þeirri forsendu að þar í landi fari tíðni kúariðutilfella fjölg- andi og að nauðsynlegum aðgerðum til að hindra að þessi sýki, sem getur borizt í menn, hafi ekki verið hrint í framkvæmd með fullnægjandi hætti. Þetta bann mun hafa mjög tak- markaðar afleiðingar í viðskiptalegu tilliti, þar sem mjög lítil af nautakjöti er flutt út frá Portúgal. Á morgun, fóstudag, kemur dýralæknanefnd ESB saman til að ræða málið, og að því loknu verður endanleg ákvörðun um bann tekin. Augljóst þykir að portúgölsk yfirvöld hafa ekki hrint í framkvæmd þeim aðgerðum sem ESB hefur krafizt til að vinna bug á sýkingarhættunni. Samkvæmt skil- greiningu alþjóðlega dýrasjúkdóma- ráðsins sé Portúgal núna í hæsta áhættuflokki. „Sterkur grunur" leiki á því að gert hefði verið mjöl úr nautgripum sýktum af kúariðu og aðrir nautgripir og sauðfé verið gefið mjölið sem fóður, segir í tilkynningu framkvæmdastjórnar ESB. Elding banaði fótboltaliði Kinshasa. Reuters. ELDING varð 11 knattspyrnu- mönnum að bana í Kongó um síð- ustu helgi. Laust henni niður í miðjum leik og svo undarlega vildi til, að allir leikmenn annars liðsins féllu fyrir henni en hinir sluppu ósárir. Var skýrt frá þessu í dagblaði í Kinshasa í gær. Dagblaðið L’Avenir sagði, að staðan í leiknum, sem fram fór í bænum Basanga í Kasai-héraði, hefði verið 1-1 þegar eldingunni laust niður á völlinn. Á eftir hefðu 11 manns, allt lið gestanna, legið í valnum en heimaliðið sloppið alveg. Segir blaðið, að ýmsar kenningar séu á kreiki um þennan atburð og gruni marga, að einhver fjölkynngi hafi búið að baki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.