Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 35
ÞEIR þingbræður,
Egill á Seljavöllum og
Guðni frá Brúnastöð-
um, rjúka upp með
andfælum í Degi sl.
þriðjudag. M.a.s. á for-
síðu. Minna mátti ekki
gagn gera að dómi
blaðstjóra, sem nefndi
upplokið: „Lamb fá-
tæka mannsins fært
hinum ríkari.“ Og allt
er írafárið vegna til-
lagna, sem nefnd á
vegum Guðmundar
Bjarnasonar landbún-
aðaiTáðherra lagði
fram nýverið um fækk-
un bænda.
Þeir lagsbræður láta sem þeir
komi af fjöllum. Segja að óhugur sé
meðal bænda vegna tillagna land-
búnaðan-áðherra um niðurskurð á
búandköllum, en alla sjötuga
bændur mun eiga að skjóta á fæti,
ómýlda, sem er kannski hreinlegra
en að banna þeim lífsbjargir.
En í forsíðuviðtalinu víkja þessir
tveir næst-valdamestu menn á ís-
landi í landbúnaðarmálum ekki
einu orði að því ástandi, sem stefna
flokka þeirra í landbúnaðarmálum
hefir leitt yfír fjöldann allan af
bændum þessa lands. Þeir láta við
það sitja að kalla tillögur Fram-
sóknarráðherrans býsn og fádæmi,
sem aldrei muni ná fram að ganga,
a.m.k. ekki fyrir kosningar!
Það kemur nefnilega á daginn í
viðtalinu að þeir biðja heilaga ham-
ingju að forða sér frá að eiga slíkar
tillögur yfir höfði sér í komandi
kosningum! Það var takið sem olli
andfælunum. Og víst er um það, að
Guðmundur landbúnaðarráðherra
hefði aldrei gert tillögumar heyr-
inkunnar, ef hann
hefði sjálfur ætlað í
framboð í næstu al-
þingiskosningum. En
hann klæjar yfir að
þeir kumpánar fái eitt-
hvað að kljást við í
kosningum. Og nú er
Rendi hlaupinn í jarð-
eignir ríkisins og telur
þar allt útbíað í „sukki
og svínarí" en það er
orðalag, sem þing-
menn kannast mæta-
vel við frá síðasta vetri
- og Gunnlaugur Sig-
mundsson líka. Nú á
að tvöfalda leigugjald
ríkisjarða m.m.
Á að trúa því að þessir tveir
grandvöru þingmenn, Guðni og
Egill, hafi ekki gert sér grein fyrir
Ofurvald fáeinna fyrir-
tækja í sjávarútvegi er
orðið með fádæmum,
segir Sverrir Her-
mannsson, og á enn
eftir að aukast ef ekki
tekst að gerbreyta
stefnu flokka Egils og
Guðna í sjávarútvegs-
málum.
hvert stefnir óðfluga um hag
flestra einstaklinga þessa þjóðfé-
lags? Vegna stefnu flokka þeirra í
landbúnaðarmálum? I byggðamál-
um? I sjávarútvegsmálum? Svo
þrír af helztu málaflokkunum séu
nefndir og að þeim félögum snúa
sérstaklega. Ef svo er komið fyr-ir
þeim, er illt til þess að vita.
Héðan af þarf það ekki að dylj-
ast neinum, sem kominn er til vits
og ára, að stefna auðhyggjunnar
hefir náð föstum undirtökum á
stjórnmálastefnu ríkisstjórnar-
flokkanna. Þar ríður frjálshyggjan
húsum og ber fótastokkinnn ákaf-
lega, sem ætti að valda venjuleg-
um þingmönnum vökunum, svo að
þeir þurfi ekki að haga sér eins og
álfar úr hól við einstaka bresti í
rjáfrinu, svo sem eins og þegar
landbúnaðarráðherrann kynnir
nýjustu tillögur sínar í þeim efn-
um. Það er kenning frjálshyggj-
unnar, sem nú er fylgt einarðlega
af ríkisstjórninni, að þjóðfélaginu
vegni með því móti bezt, að sem
mestum auði verði komið á sem
fæstar hendur. Það eru staurblind-
ir menn, sem færi betur að láta
vera að bregða blundi, sem ekki
sjá hvert stefnir í undirstöðuat-
vinnugreinum landsmanna, þar
sem stjórnvöld skara elda að köku
örfárra einstaklinga, meðan af-
gangurinn af þjóðinni getur étið
það sem úti frýs, sem ánauðugir
þrælar auðvaldsins. Ofurvald fá-
einna fyrirtækja í sjávarútvegi er
orðið með fádæmum, og á enn eftir
að aukast ef ekki tekst að ger-
breyta stefnu flokka Egils og
Guðna í sjávarútvegsmálum. Með-
an sú stefna er óbreytt uppi er allt
starf að byggðamálum unnið fyrir
gýg og raunar hlægileg firra.
Það var frelsi einstaklingsins til
orða og athafna, sem var aflvakinn
í hinni íslenzku framfarasókn. Það
voru frjálsir framtaksmenn og
aflamenn, sem sigldu þjóðarskút-
unni íslenzku upp úr djúpum öldu-
dal örbirgðar og úrræðaleysis á
öldinni sem er að líða. Á glæsilegri
hátt en annars staðar eru dæmi
um. Svo mun enn verða þegar af
verður sú vonda frjálshyggjutíð
sem við nú lifum við, þar sem öllu
aflafé hinna efnaminni er smalað í
rétt hinna ríku.
Höfundur er fv. bankastjóri.
Upp með
andfælum
Sverrir
Hermannsson
Island viðurkenni Kosovo
sem fullvalda ríki
OF LENGI hefur
einræðisherranum
Slobodan Milosevic lið-
ist að fyrirskipa fá-
heyrð glæpaverk í
nafni Serbíu. Of lengi
höfum við hinn almenni
borgari látið illverk
gömlu kommaklíkunn-
ar í Belgrad viðgang-
ast, án mótmæla. Nú
er leiði til að krefjast
þess á alþjóðavett-
vangi, að Kosovo verði
viðurkennt sem full-
valda ríki. Ríkisstjórn
Islands á að hafa for-
ystu í þessu máli, eins
og við höfum áður gert
með svo myndarlegum hætti, þegar
ríki austan járntjaldsins fyrrver-
andi hafa átt í hlut. Almenningur í
Serbíu og Kosovo á betra skilið en
að hann sé hafður að leiksoppi
valdagráðugs einræðisherra.
Það hefur verið sérkennilegt að
lesa um þær röksemdir, sem born-
ar hafa verið á borð hér í fjölmiðl-
um af einstaklingum, um að glæpa-
verkin í Kosovo séu réttlætanleg
vegna sögunnar. Þegar kommarnir
í Belgrad sáu sæng sína uppreidda
og trúai-stefna þeirra var gufuð
upp, eins og hitaveituský, var snúið
á vit þjóðernisstefnu til að reyna að
halda völdum. Við þurfum ekki að
rifja upp þær hörmungar, sem
þessi stefna hefur haft í för með sér
í fyrrverandi Júgóslavíu. Fyrst Sló-
venía, þá Króatía, Bosnía og nú
Kosovo, og ofbeldið ávallt byggt á
sögulegum rökum. Það má segja að
íbúarnir í Kosovo standi frammi
fyrir höiTnungum af
manna völdum ef ekki
verður tekið rösklega í
taumana. Við höfum
tekið á móti nokkrum
einstaklingum frá
hinni gömlu Júgóslavíu
af ólíkum uppruna,
vegna afleiðinga skelfi-
legrar stefnu Milos-
evic. Hingað eru þeir
velkomnir, þar sem
lýðræðið og réttlætið
er hyrningarsteinninn
í samskiptum og gerð-
um.
Sú röksemd, sem
hefur verið notuð mest
í Kosovo-deilunni, er
orrustan um Kosovo 1389, sem var
milli Serba og Tyrkja. Sögulega
staðreyndin er sú, að í raun hafi
Hér með skora ég á
ríkisstjórn Islands,
segir Hreggviður
Jónsson, að hafa
forgöngu um að
viðurkenna Kosovo sem
fullvalda og frjálst ríki.
hvorugir tapað og íbúar Kosovo
hafi barist með báðum aðiljum.
Hins vegar hefur verið framleidd
„söguleg" kvikmynd um þetta, þar
sem spilað er á tilfinningar fólks og
mynd Serba fegruð á kostnað
Tyrkja. Einræðisherrum hefur
ávallt verið það ákaflega auðvelt að
sýna styrk sinn með skipulögðum
tökum á fjölmiðlum og með fram-
leiðslu á áróðursefni, jafnframt með
því að berja alla andstöðu gegn sér
niður. Skýrt dæmi um þetta er út-
gáfubann á tveimur óháðum dag-
blöðum í Belgrad nú nýlega. Ekki
hefur heldur staðið á fjölda fólks að
trúa þessum falsherrum og getum
við hér á íslandi rétt litið til áhang-
enda Stalíns, sem nú hafa margir
hverjir játað þessa missýn sína.
Það er kaldhæðnislegt árið 1998
eða um 600 árum eftir orrustuna í
Kosovo, að til skuli vera menn, sem
treysta sér til að réttlæta skelfileg
morð, eyðileggingu á heilu byggð-
arlögunum og að stökkva hundruð-
um þúsunda af saklausu fólki á
flótta undan þessu harðræði, allt
með „sögulegum og þjóðernisleg-
um“ rökum. Ekkert morð, eyði-
leggingu eða nauðung af neinu tagi
er hægt að líða 1998. Einmitt þessi
sjónarmið og gerðir Serba gera þá
óhæfa til að stjórna Kosovo. Við
sjáum hug Kosovo-AIbana í garð
Serba og afstöðu KLA, frelsis-
hreyfingar Kosovo. Mannúðarleysi
Serba hefur styrkt stöðu þeirra,
sem vilja frjálsa Kosovo. Gömlu
kommarnir í Belgrad verða að
læra, að leysa sín mál með frjálsum
kosningum og eftir ákvörðun fólks-
ins sjálfs, ekki með vopnavaldi og
nauðung.
Hér með skora ég á ríkisstjórn
íslands, að hafa forgöngu um að
viðurkenna Kosovo sem fullvalda
og frjálst ríki.
Höfundur cr fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hreggviður
Jónsson
Sigríður Anna,
leiðtogi
Reyknesinga
ÁGÆTU Reyknes-
ingar.
Með grein þessari vil
ég hvetja ykkur til að
kjósa Sigríði Önnu
Þórðardóttur, alþingis-
mann og formann þing-
flokks sjálfstæðis-
manna, í fyrsta sæti í
opnu prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins sem
fram fer hinn 14. nóv-
ember nk. Fyrir liggja
ákveðin kaflaskipti í
starfl sjálfstæðismanna
í kjördæminu þar sem
leiðtogi listans til
margra ára, Ólafur G.
Einarsson, hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér til
að sinna því hlutverki áfram. Ljóst
er að við því verðuga verkefni þarf
Sigríður Anna er
ábyrgur foringi, segir
Ásta Björg Björnsdótt-
ir, með hæfíleika og
reynslu til veigamikilla
embætta.
Sem formaður
menntamálanefndar
Alþingis sl. tvö kjör-
tímabil hefur hún af
röggsemi haldið um og
mótað störf þeirrar
nefndar. Á þessum ár-
um hafa verið sam-
þykktar róttækar
breytingar á lögum
sem snerta öll skóla-
stig, allt frá leikskólum
til háskóla auk sérskól-
anna. Þessi vinna hef-
ur verið erfið en ár-
angursrík og það
þekkja þeir sem að því
hafa komið, að Sigríð-
ur Anna hefur ekkert
af sér dregið við að stýra þeirri
vinnu. Skýrir það mikinn stuðning
sem hún á innan menntakerfisins.
Með þátttöku í prófkjörinu hinn
14. nóvember nk. getum við
Reyknesingar haft áhrif á skipan
okkar mála. Við þurfum reyndan
leiðtoga til að leiða lista sjálfstæðis-
manna í komandi alþingiskosning-
um. Við þurfum Sigríði Önnu, fyrst
og fremst.
Höfundur er bæjarfulltrúi
í Mosfellsbæ.
Ásta Björg
Björnsdóttir
að taka hæfur og röskur einstak-
lingur sem sátt getur verið um. Sig-
ríður Anna er sá einstaklingur.
Með störfum sínum og framgöngu
á Alþingi hefur hún sýnt að þar fer
ábyrgur foringi sem bæði hefur
reynslu og hæfíleika til veigamikilla
embætta. Það yrði ómetanlegur
akkur í því fyrir kjördæmið að ein-
staklingur gæddur slíkum kostum
leiddi lista flokksins í komandi
kosningum. Það er ekki að ósekju
sem Sigríði Önnu hefur verið treyst
fyiir því ábyrgðarhlutverki sem
formennska í þingflokknum er.
LLINIQUL
Við uppfyllum sérhverja þörf
Clinique-andlitsfarðar. 6 gerðir. 40 litir.
Clinique hefur farða sem henlar öllum
húðgerðum, hvort sem húðin er feit, þurr
eða eðlileg. Dökk eða Ijós, ung eða
þroskuð eða alll þar ó milli.
Það sem er mikilvægast er að við gelum
fundið rétta farðann fyrir þig.
Komdu og fóðu ókeypis húðgreiningu og
við finnum fullkominn farða fyrir þig.
Komdu eða hringdu og pantaðu tíma í ókeypis húðgreiningu og róðgjöf.
Rúðgjafi fró Clinique verður í Lyfju, Setbergi í dag og ó morgun frú kl. 13-18
LYFJA
Setbergi, Hafnarfirði, sími 555 2306.
- lake the day off augnhreinsir 30 ml.
- Rakakrem 15 ml.
- Voralitur - Creamy Nute
Fylgja með ef keypt er farði og púður
fró Clinique