Morgunblaðið - 29.10.1998, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ___________________________________________________________FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 57 f
FRÉTTIR
Athugasemd
vegna kynningar
á fræðsluriti
Fjölsótt ráðstefna um
rafmagnsöryggismál
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
Tilefni þessarar athugasemdar er
yfirskriftin yfir frétt í Morgunblað-
inu 24. október sl. en þar er sagt frá
kynningu á fræðsluriti um „Launa-
jafnrétti í framkvæmd í dreifstýrðu
launakerfi".
Yfirskrift fréttarinnar er „Dreif-
stýrt launakei'fi leiðir til launamis-
réttis“. Hvergi kemur fram í ritinu
að dreifstýrt launakerfi eins og það
sem um var samið á milli aðildarfé-
iaga BHM, ríkis og Reykjavíkur-
borgar leiði tii launamisréttis. Slíkt
var heldur ekki fullyrt á kynningar-
fundinum með þessu riti sem hald-
inn var af útgefendum fimmtudag-
inn 22. okt sl. Hins vegar var getið
um áhyggjur félagsmanna yfir því
að launamisrétti gæti aukist eins og
gerðist í Svíþjóð.
Á fundinum var sérstaklega fjall-
að um það hvernig kjarasamnings-
aðilar vildu tryggja að dreifstýrt
launakerfi myndi vinna að því að
jafna þann launamun sem byggir á
kynferði:
1. Með því að tryggja aðild og
ábyrgð stéttarfélaga á stofnana-
samningum.
2. Með því að taka yfirborganir
inn í taxtalaun þannig að raunveru-
leg dagvinnulaun verði sýnileg.
3. Með yfirlýsingu atvinnurek-
enda, ríkis og Reykjavíkurborgar,
um þann ásetning að afnema kyn-
bundinn launamun.
4. Með fyrirheitum atvinnurek-
enda að láta fara fram úttekt á
áhrifum nýs launakerfis á launamun
karla og kvenna á samningstímabil-
inu.
5. Með samningsákvæðum um at-
hugun Kjararannsóknanefndar op-
inberra starfsmanna á kynbundnum
launamun.
6. Með hugsanlegri endurskoðun
stofnanasamninga ef tilefni er til.
7. Með fræðslu til trúnaðarmanna
og forstöðumanna um jafnréttismál.
Tilgangur fræðsluritsins er sá að
fræða forstöðumenn og trúnaðar-
menn stéttarfélaga um ákvæði
kjarasamninganna, ákvæði jafn-
réttislaga og skyldur þeirra í þessu
sambandi við framkvæmd stofnana-
samninga. Það er tifi okkar að
þessir kjarasamningar marki tíma-
mót og að nú sé stefnt í rétta átt.
Sameiginlegt átak jafnréttisnefnd-
ar BHM, Reykjavíkurborgar, fé-
lagsmálaráðherra og fjármálaráð-
herra við að hrinda þessu fræðslu-
verkefni af stað er góð vísbending.
Réttara hefði verið að hafa yfir-
skrift fréttarinnar: „Dreifstýrt
launakerfi; - tæki til að draga úr
launamisrétti".
Með þökk fyrir birtinguna,
Birgir Björn Sigurjónsson,
jafnréttisnefnd Bandalags
háskólanianna,
Elsa S. Þorkelsdóttir,
framkvæmdastjóri
Jafnréttisráðs,
Hildur Jónsdóttir,
Jafnréttisráðgjafi
Reykjavíkurborgar,
Vigdís Jónsdóttir,
jafnréttisnefnd Bandalags
háskólamanna.
LANDSSAMBAND íslenskra raf-
verktaka gekkst nýlega fyrir viða-
mikilli ráðstefnu um rafmagnsör-
yggismál á Hótel Selfossi.
Ráðstefnuna sóttu rafverktakar
af öllu landinu ásamt fulltrúum
Löggildingarstofu, Samorku, skoð-
unarstofa á rafmagnssviði, Félags
raftækjaheildsala, Sjóvár-AImennra
og Rafiðnaðarsambands Islands.
Samtals sátu ráðstefnuna rúmlega
70 manns. Umfjöllunarefnið voru
þær breytingar sem orðið hafa á
fyrirkomulagi rafmagnsöryggis-
mála á Islandi síðustu misseri.
I lok ráðstefnunnar var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
„Við gildistöku nýrra laga um raf-
magnsöryggismál um áramótin
1996/1997 varð mikil breyting á fyrir-
komulagi rafmagnsöryggismála hér
á landi eftir langt tímabil óvissu. Raf-
magnseftirlit ríkisins var lagt niður
og yfirstjóm rafmagnsöryggismála
færð til nýrrar stofnunar Löggilding-
arstofu. Dregið var úr opinberu eftir-
liti en það jafnframt gert skilvirkara.
Oháðar faggiltar skoðunarstofur sjá
nú um framkvæmd rafmagnseftirlits
í umboði Löggildingarstofu. Eftirlitið
er unnið samkvæmt skilgreindum
verklags- og skoðunarreglum sem
Löggildingarstofa setui-. Rafveitm-
og löggiltir rafverktakar eru að koma
sér upp öryggisstjómunarkerfi með
eigin starfsemi og er það gert til þess
að auka öryggi raforkuvirkja og
neysluveitna. Fagmenn og húseig-
endur bera nú aukna ábyrgð á raf-
magnsöryggi um leið og ábyrgð raf-
veitna á eftirliti rafmagnsöiyggis er
fellt niður.
Til langframa er það farsælli leið
en að halda úti umfangsmiklu og
dým opinbera eftirliti. Opinbert eft-
irlit verður aldrei jafn skilvirkt og
sú aðgæsla sem ábyrgir einstakling-
ar og forráðamenn geta sjálfir haft
með höndum. Því er mikilvægt að
auka fræðslu til almennings og fag-
manna um rafmagnsöryggismál.
Jafnframt er þess vænst að bygg-
ingafulltifiar sinni þeim verkum
sem kveðið er á um í byggingar-
reglugerð um varðveislu og sam-
þykktir séruppdrátta. Þrátt fyrir
það að hið nýja fyrirkomlag hafi
reynst vel og sé óðum að festast í
sessi er hægt að bæta það og því
leggur fundurinn mikla áherslu á að
allar ábendingar og jákvæð gagn-
rýni verði notuð til þess að gera
gott fyrirkomulag enn betra.“
sunway lafuma# Vango <>~xman
itxiíkj* r..r.NC.'..s«Á«
iafuma #
Útivistarverslunin EVEREST býður eitt mesta úrval landsins af
útivistarfatnaði og ýmsum útivistarbúnaði.
Með því að hafa sérstaka kynningardaga /i
iÉllÉP^-SB á útivistarvörum fyrir konur erum við J
VyfjjB ekki aðeins að hvetja konur til að
stunda útivist yfir vetrartímann heldur
’ImÍHk einnig að vekja athygli á því að
ýmiss útbúnaður til útivistar er m •
BAKPOKI
Kvennasnið
Uar
Thórlo ^
O^cmon
konur.
Starfsfólk okkar, sem hefur mikla reynslu af vetrarútivist, mun þessa
daga leiðbeina viðskiptavinum um val á útivistarbúnaði sem
/% m | hentar konum á
AA, Ljj Flj| öllum aldri.
'K*' l;*# |f| /A toppurtiwv i úfívíát
tÖppM'íVU'V í/ útí\/L&t
Kvennasnið
EKKI MISSA AF ÞESSU!
PÚSTSENDUM SAMDÆGURS
Skeifan 6
Sími 533 4450
k lafuma