Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 2

Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 2
2 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson STARFSMAÐUR ÍSAL stendur ofan á lokl ofns í steypuskálanum, en ál fór úr honum í kjallarann undir og eyðilagði þar vökvaslöngur og kveikti í glussa. Tjón talið nema 5-10 milljónum í Straumsvík Hætta á ferðum í eldsvoða í álverinu SÉRÞJÁLFAÐ slökkvilið ÍSAL réð ekki við eldinn og því varð að kalla til allt tiltækt slökkvilið í Reykjavík. 20 mán- aða fang- elsi fyrir fjársvik MAÐUR á fímmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur til 20 mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa notfært sér einfeldni og minnistap aldraðrar konu til að hafa af henni rúmlega þrjátíu milljónir króna. Hann var einnig dæmdur til endurgreiðslu upphæðarinnar allr- ar ásamt vöxtum. Maðurinn hafði kynnst konunni og eiginmanni hennar, efnuðum at- hafnamanni sem lést fyrir 17 árum, og aðstoðaði konuna í ýmsum efn- um eftir fráfall eiginmannsins og naut trausts hennar. Á árunum 1996 og 1997 tæmdi konan bankareikning sinn í Búnað- arbankanum og lét manninn hafa allt það fé að láni, um 28 milljónir króna, sem hann notaði til að greiða skuldir og í öðrum tilgangi, en hann hefur staðið í ýmsum viðskiptum og fyrirtækjarekstri. Einnig fékk hann hana til að af- henda öðrum manni skuldabréf að upphæð rúmar 2,4 milljónir króna, upp í eigin skuld. Loks fékk hann konuna til að breyta erfðaskrá sinni þannig að skuldir hans skyldu falla niður við fráfall hennar. I dómnum kemm- fram að Ijóst hafi verið að ákærði hefði enga íjár- hagslega burði til að endurgreiða konunni nema óverulegan hluta þess fjár sem hann tók á móti frá henni. Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þess að maðurinn hef- ur áður gerst sekur um auðgunar- brot. --------------- Knapi og ræktunar- maður árs- ins valdir SIGURÐUR Sigurðarson var út- nefndur knapi ársins og Jón Bergsson á Ketilsstöðum var út- nefndur ræktunarmaður ársins á uppskeruhátíð liestamanna sem haldin var í Súlnasal Hótels Sögu í gærkvöldi. Sigurður hampaði í ár sigri ásamt Kringlu frá Kringlumýri í B-flokki gæðinga og tölti á lands- mótinu. Hann varð Islandsmeist- ari í fimmgangi á Prins frá Hörgshóli auk þess að ná góðum árangri á mörgum minni mótum með þessum hrossum og öðrum. Þar fyrir utan þykir Sigurður hafa sýnt prúðmennsku innan vallar sem utan. Jón Bergsson hefur ásamt fjöl- skyldu sinni verið í fremstu röð ræktunarmanna um árabil og á landsmótinu í sumar voru fjögur hross á landsmóti í kynbótasýn- ingu og einn stóðhestur í allra fremstu röð í gæðingakeppni. ALLT tiltækt slökkvilið í Reykjavík var sent að steypuskála íslenska ál- félagsins í Straumsvík í gærmorgun vegna eldsvoða sem varð þegar 750 gráðu heitt ál flæddi úr ofni ofan í kjallara, eyðilagði vökvaiagnir og kveikti í glussa sem úr þeim spraut- aðist. í kjallaranum voru rafmagns- kaplar með háspennu og stórir olíu- tankar. Einn starfsmanna við steypuskálann, Sigurður Valgarðs- son, meiddist lítillega við slökkvi- störf. Hann segir það heppni að ekki fór verr við slysið. Tjón vegna eldsins er metið á bil- inu 5-10 milljónir króna og talið er að ein framleiðslulína álversins verði óvirk í viku. Unnið var að hreinsun á ofni í steypuskálanum þegar um 750 gráðu heitt álið flæddi úr honum og niður í kjallara skálans. Þar komst álið í vökvalagnir með þeim afleið- ingum að glussi streymdi út og kviknaði í honum. Sigurður Valgarðsson segir að starfsmennimir sem unnu við hreinsunina hafi strax gripið slökkvitæki og sprautað nánast í blindni niður í kjallarann. Sigurður varð fyrir minniháttar bruna í and- liti við þau störf vegna brennheits lofts. Aðstoð frá Reykjavík Sigurður Þór Ásgeirsson, steypu- skálastjóri í álverinu í Straumsvík, segir að talsverð hætta hafi verið á ferðum. „Við komumst fljótt niður i kjallarann og gátum tekið rafmagn af þannig að fljótlega var sú hætta liðin. Það logaði áfram í rafmagns- köplum og frá þeim kom mikill reykur þannig að ei-fitt var að at- hafna sig í kjallaranum," sagði Sig- urður Þór. Enginn var í kjallaranum þegar þetta gerðist. Þegar Ijóst varð að slökkvilið álversins réð ekki eitt við eldinn var beðið um aðstoð Slökkvi- liðsins í Hafnarfirði sem ekki gat sinnt erindinu þar sem það vai' að störfum við að slökkva eld sem kom upp um svipað leyti í flutningabíl á Reykjanesbraut skammt frá álver- inu. Allt tiltækt slökkvilið Reykja- víkur kom á staðinn um 45 mínútum eftir að eldurinn kom upp og tók skamma stund að ráða niðurlögum eldsins. Búið var að reyklosa kjall- arann kl. 13.30. Sigurður Þór segir að vitað hafi verið að fljótandi ál væri bakvið ofn- inn og áttu menn von á því að það flæddi. Magnið hafi hins vegar verið meira en búist var við og fór það framhjá ílátinu sem það átti að fara í. „Þetta gerðist við einn af fram- leiðsluofnunum okkar og hann er úr rekstri meðan verið er að laga þetta. En dýrasti búnaðurinn, tölv- ur og búnaður til þess að stýra framleiðslulínunni, virðist hafa sloppið. Lögð var áhersla á að verja þann búnað í slökkvistarfinu." Það voru fyrst og fremst raflagn- ir sem brunnu í eldsvoðanum. Talið er að það taki eina viku að koma framleiðslunni í gang á ný en á með- an verður henni beint yfir í aðrar vörur. Peningar týndust undir næt- urhólfí Á ÞRIÐJA hundrað þúsund la’óna bankainnlegg sem hvarf með dular- fullum hætti í sumar fannst fyrir skömmu við leit rannsóknarlögreglu. Fundarstaðurinn var næturhólf bankans en umslag með innlegginu hafði fallið undii' skúffu hólfsins og legið þar utan seilingar og sjónmáls. Hvarf peninganna var kært til lög- reglu sem nú hefur leyst málið. Kvöld eitt í júní fór starfsmaður fyrirtækis í höfuðborginni með veltu dagsins, á þriðja hundrað þús- und króna, í næturhólf banka. Síðai' kom í ljós að upphæðin hafði hvergi komið fram og ekki fundist við leit á staðnum. Fyrirtækið ákvað því að kæra hvarf peninganna til lögreglu til þess að hreinsa hlutaðeigandi af grun sem að þeim var farinn að beinast. Rannsóknarlögreglumenn fóru á vettvang og með hliðsjón af sam- bærilegu máli sem upp kom í Mos- fellsbæ fyrir fáeinum árum, ákváðu þeir að grandskoða innviði hólfsins. Kom þá í ljós peningaumslagið sem með ótrúlegum hætti hafði fest í rennunni og slegist undir skúffu hólfsins. Þar hafði féð legið síðan í sumar utan sjónmáls og seilingar. Málið leystist þannig á farsælan hátt en fyrii’tældð varð af nokkurra mánaða ávöxtun fjárins í bankanum. Fyrir nokki-um árum týndist taska með peningum í Mosfellsbæ er hún féll á milli laga í næturhólfi banka og fannst ekki fyrr en mörg- um misserum seinna. --------------- Ók vélsleða á 107 km hraða LÖGREGLAN á Akureyri stöðvaði í gær mann, sem var á ferð á vélsleða við hlið Drottningarbraut- ar, á 107 km hraða. Maðurinn var sviptur ökui'éttindum til bráða- birgða. Samkvæmt lögi'eglusam- þykkt er einungis heimilt að aka á vélsleða innanbæjar stystu leið að heiman og út úr bænum og til þess að taka bensín, en hámarkshraði er þá 30 km. Samkvæmt umferðarlög- um er þó hámarkshraði 40 km á vélsleða innanbæjar. Lögreglumað- ur á Akureyri sem rætt var við taldi að ei-fitt gæti orðið að skera úr um hvað væri rétt í þessum efnum. Flag’gað á degi íslenskr- ar tungu FORSÆTISRÁÐHERRA hefur ákveðið að flaggað skuli við opinberar stofnanir á degi íslenskrar tungu mánudaginn 16. nóvember næstkomandi. Hvatt er til að almenningur geri slíkt hið sama, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Sérblöð í dag ÁLAUGARDÖGUM LIjaDö ;U\BLAÐSINS AUGLÝStNG MEÐ blaðinu í dag á Austfjörð- um, Snæfellsnesi og í Vestmanna- eyjum fylgir aug- iýsingabæklingur frá versluninni Blanco y Negro. WWW George Graham mætir með Tottenham á Highbury/B2 Reynir Þór Reynisson frá út keppnistímabilið/B3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.