Morgunblaðið - 14.11.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 14.11.1998, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Meirihluti skólanefndar Kópavogs Leikskólagjöld hækka að meðal- tali um 14,5% MEIRIHLUTI skólanefndar Kópavogs samþykkti á fundi sín- um á mánudag grundvallarbreyt- ingar á gjaldskrá leikskólanna í sveitarfélaginu og eiga þær að taka gildi 1. janúar nk. Breyting- arnar ganga út á það að eitt ákveð- ið gjald, svonefnt grunngjald, gildi fyrir öll börn en að veittur verði 35% afsláttur af því gjaldi fyrir svokallaðan forgangshóp, þ.e. börn einstæðra foreldra, leikskólakenn- ara og námsmanna. Þá verður samkvæmt breytingunum veittur 25% systkinaafsláttur með öðru barni en 75% afsláttur með þriðja og fjórða bami. Að sögn Braga Michaelssonar, formanns skólanefndar, þýða breytingamar það að leikskólagjöld hækka að meðaltali um 14,5%. Minnsta hækkunin er 9,3% en mest er hún 42,8% og þá hjá forgangs- hópum sem hafa börn sín á leik- skóla í fjóra til fimm tíma á dag. Samkvæmt núgildandi gjaldskrá er mánaðargjald fyrir hverja klukkustund 1.800 kr. en verður samkvæmt nýrri gjaldskrá 2.100 kr. Afsláttur forgangshópa er nú 55% en verður 35% og um leið komast allir námsmenn inn í þenn- an forgangshóp en fram til þessa hafa báðir foreldrar þurft að vera í námi til að njóta afsláttar á dag- vistargjaldi. Þá er systkinaafslátt- ur 25% með öðm barni en verður 35% og með þriðja og fjórða barni er hann 50% en verður 75%. Breytingarnar taka ekki til hressingargjalds sem verður áfram 1.200 krónur á mánuði en matar- gjald hækkar samkvæmt breyting- unum um 300 krónur eða úr því að vera 2.200 á mánuði í 2.500. Bragi tekur fram að afsláttur forgangs- hópa sé nú veittur af grunngjaldi sem og matar- og hressingargjaldi en áður var einungis veittur af- sláttur af granngjaldi. Segja íbúum ekki mismunað I bókun meirihluta skólanefndar Kópavogs kemur fram sú skoðun að gjaldski'á leikskóla eigi að vera þannig úr garði gerð að hún mis- muni ekki íbúum bæjarins. „Gjald- skráin á að vera eitt granngjald, en afsláttur veittur til stuðnings ein- stæðum foreldrum, bammörgum fjölskyldum og námsmönnum. Sam- komulag er í gildi um afslátt til handa leikskólakennuram. Leik- skólar eiga ekki að veita félagslega aðstoð með afslætti af leikskóla- gjöldum. Það hlutverk er og á að vera í höndum félagsþjónustu sveit- arfélaga. Þrátt íyiir þessa 14,5% hækkun leikskólagjalda hafa lækk- anir á móti það í för með sér að tekjuaukning er aðeins um 10%,“ segir í bókuninni en undir hana rita auk Braga, Sigurbjörg Vilmundar- dóttii’ og Sigfús A. Schopka. I bókuninni er ennfremur bent á að rekstrarkostnaður leikskóla hafi hækkað um 16-17% frá árinu 1995 og að þar muni mest um launabreytingar, sem á samnings- tíma verða 27% hjá leikskólakenn- uram auk starfsaldurshækkana og 17-19% hjá öðrum starfsmönnum auk starfsaldurshækkana. Ákvörðun meirihluta skóla- nefndar um nýja gjaldskrá leik- skóla verður lögð fyrir bæjarstjórn Kópavogs til samþykktar á fundi hennar hinn 24. nóvember nk. Breytingar á gjaldskrá leikskóla í Kópavogi Hjón var krónur verður krónur hækkun/ iækkun - meö eitt barn í 6 klst. 14.200 16.300 +2.100 og annað barn í 6 klst. 11.500 10.595 -905 - með eitt barn í 8 klst. 19.000 21.700 +2.700 og annað barn í 8 klst. 15.400 14.110 -1.290 Einstætt foreldri - með eitt barn í 6 klst. 8.260 10.600 2.340 og annað barn í 6 klst. 7.045 6.890 -155 - með eitt barn í 8 klst. 10.360 14.110 3.750 og annað barn í 8 klst. 8.900 9.170 250 Námsmenn báðir í námi - með eitt barn í 6 klst. 8.800 10.600 +1.800 og annað barn í 6 klst. 7.500 6.890 -610 - með eitt barn í 8 klst. 11.200 14.110 +2.910 og annað barn í 8 klst. 9.250 9.171 -79 Námsmenn annar í námi - með eitt barn í 6 klst. 14.200 10.600 -3.600 og annað barn i 6 klst. 11.500 6.890 -4.610 - með eitt barn í 8 klst. 19.000 14.110 -4.890 og annað barn í 8 klst. 15.400 9.171 -6.229 Landssamband slökkviliðsmanna Urskurður kaupskrárnefnd- ar ógiltur HÆSTIRETTUR felldi á fimmtudag úr gildi hluta úrskurð- ar kaupskrámefndar vamar- svæða frá 23. maí 1996. Féllst rétturinn á kröfu Landssambands slökkviliðsmanna (LSS), f.h. slökkviliðsmanna á Keflavíkur- flugvelli, um að úrskurðurinn uppfyllti ekki kröfur stjórnsýslu- laga og reglna um kaupskrár- nefnd að því er varðar form og rökstuðning. Þar sem nefndin hefði það mikilvæga hlutverk að úrskurða endanlega á stjórn- sýslustigi um kjaramál manna yrði að gera ríkar kröfur til henn- ar um vandaða málsmeðferð. Samkvæmt dómnum ber kaup- skrárnefnd því nauðsyn til að fjalla á ný um þær kröfur LSS sem hafnað var með úrskurðinum árið 1996. Þar er um að ræða svo- kallað reykköfunarálag og 20 mínútna launaðan samvistatíma við vaktaskipti til handa slökkvi- liðsmönnum á Keflavíkurflugvelli eins og slökkviliðsmenn í Reykja- vík njóta. Málið fluttu Jóhannes Sigurðs- son hrl. af hálfu LSS og Guðrún M. Árnadóttir hrl. fyrir hönd ís- lenska ríkisins. Sjálfstæðismenn á Reykjanesi Prófkjörið fer fram í dag PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi fer fram í dag, laugardaginn 14. nóvember, og hefst kjörfundur kl. 10 og lýkur honum kl. 21. Kosið verður á 11 stöðum í kjör- dæminu: 1. Hlégarði, Mosfellsbæ, fyi'ir Mosfellsbæ, Kjalai’nes og Kjós, 2. Sjálfstæðishúsinu, Austurströnd 3, 3. hæð, Seltjarnarnesi, 3. Sjálfstæðis- húsinu, Hamraborg 1, 3. hæð, Kópa- vogi, 4. Garðatorgi 7, Garðabæ, 5. íþróttamiðstöðinni, Bessastaða- hreppi, 6. Víðistaðaskóla, Hafnar- firði, 7. Verkalýðshúsinu, Grindavík, 8. Sjálfstæðishúsinu, Hólagötu 15, Njarðvík, og Vesturbraut 17, Kefla- vík, 9. Miðhúsum, Suðurgötu 19, Sandgerði, 10. Samkomuhúsinu, Garði, og 11. Glaðheimum, Vogum. Fyrstu tölur lesnar kl. 21.05 Kjörfundi lýkur kl. 21 og þá verður opið hús í Félagsheimili Kópavogs. Talning atkvæða fer fram í Félags- heimili Kópavogs, Fannborg 2. Yfir- kjörstjórn hefur aðsetur í Félags- heimili Kópavogs. Fyrstu tölur verða lesnar upp kl. 21.05. Röðun frambjóðenda á prófkjörs- seðlinum er þannig: Árni R. Árna- son, Kópavogi, Gunnar I. Birgisson, Kópavogi, Markús Möller, Garðabæ, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Hafn- arfirði, Kristján Pálsson, Reykjanes- bæ, Stefán Þ. Tómasson, Hafnar- firði, Jón Gunnarsson, Kópavogi, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Sandgerði, Árni M. Mathiesen, Hafnarfirði, Helga Guðrún Jónas- dóttir, Kópavogi, og Sigríður Anna Þórðardóttir, Mosfellsbæ. Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri, og skal kjósa með því að láta tölustaf frá einum upp í sex fyrir framan nöfn fram- bjóðenda í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi endanlega á framboðslista. Héraðsdómur fellst á endurgreiðslukröfu Skipasmíðastöðvar Njarðvfkur hf. Innheimta stimpil- gjalds við endur- nýjun lána ólögmæt TÚLKUN fjármálaráðuneytisins á ákvæð- um stimpillaga og þar af leiðandi fram- kvæmd sýslumannsembætta landsins þegar um er að ræða innheimtu stimpilgjalds af skuldabréfum sem fela í sér endurnýjun eldri bréfa fær ekki staðist, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem upp var kveð- inn í gær. Var íslenska ríkið þar dæmt til að endurgreiða Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf., sem ákvað að láta á þetta reyna, ofgreidd stimpilgjöld að fjárhæð 506.205 kr. auk dráttarvaxta. Fullt stimpilgjald af veðskuldabréfum sam- kvæmt lögum nr. 36/1978 um stimpilgjald er 1,5% af höfuðstól skuldar. Þegar um er að ræða endurnýjun skuldar með nýju bréfí ber samkvæmt 26. gr. laganna að greiða hálft stimpilgjald eða 0,75% af höfuðstól. Árið 1991 felldi fjármálaráðuneytið þann úrskurð að þegar hluti skuldabréfs væri í vanskilum við endumýjun þá teldist sá hluti að fullu stimpil- skyldur. Var sú niðurstaða rökstudd með því að sá hluti fyi-ri lánssamnings sem væri í van- skilum væri á enda ranninn og eftir það yrði hann ekki endumýjaður. Samið við þijá lánardrottna Málshöfðandi í máli þessu, Skipasmíða- stöð Njarðvíkur hf., þurfti fyrir nokkram áram að endurskipuleggja fjárhag sinn og gekk til samninga við lánardrottna sína um það. Var samið við þrjá aðila að skilmálum veðskuldabréfa væri breytt þannig að end- urgreiðslutími skuldanna, þar með talið vanskilanna, var lengdur verulega. Hinn 21. júlí 1995 var gefið út skuldabréf til Lífeyris- sjóðs Suðurnesja í stað eldra skuldabréfs. Tók nýr höfuðstóll bæði til vanskila og ógjaldfallinna eftirstöðva eldra bréfsins. Af- staða sýslumannsins í Keflavík, sem annað- ist þinglýsingu, var sú að sá hluti skulda- bréfsins sem væri í vanskilum væri að fullu stimpilskyldur. Greiddi málshöfðandi gjald- ið þá með fyrirvara. Fjármálaráðuneytið staðfesti síðar með úrskurði ákvörðun sýslu- manns. Svipað var uppi á teningnum varðandi skjal sem skipasmíðastöðin gaf út 14. ágúst 1995 til handa Iðnlánasjóði um breytingu á endur- greiðsluskilmálum veðskuldabréfs, sem var að mestu leyti gjaldfallið. Var hún krafin um stimpilgjöld miðað við framangreint. Eins fór um tvö skjöl sem skipasmíðastöðin gaf út 3. september 1996 til handa Landsbanka ís- lands sem kváðu á um breytingar á greiðslu- skilmálum skuldabréfa í eigu bankans. Álit umboðsmanns Alþingis Skipasmíðastöðin leitaði þá til umboðs- manns Alþingis og kvai-taði yfir túlkun fjár- málaráðuneytisins á 26. gr. laga nr. 36/1978 um stimpilgjald. í áliti umboðsmanns dags. 20. mars 1997 segir: „Túlkun fjármálaráðu- neytisins er hins vegar sú, að máli skipti, hvort skuld sú sem endurnýjuð er með nýju bréfi, sé gjaldfallin eða ekki. Er þá lagt til grandvallar, að ekki geti verið um endumýj- un að ræða á vanskilaskuld, heldur sé um að ræða nýja skuldbindingu. Orðalag ákvæðisins ber þetta ekki með sér og ekki verður þessum skilningi fundinn staður í lögskýringargögn- um.“ Niðurstaða umboðsmanns var sú að túlkun ráðuneytisins hefði ekki byggst á lög- mætum forsendum. Beindi hann því til fjár- málaráðuneytisins að hlutast til um nýja ákvörðun um stimpilgjald, kæmi um það ósk frá skipasmíðastöðinni. Fjármálaráðuneytið ákvað í kjölfarið að endurskoða úrskurð sinn frá 1991 en þó ekki nema á þann veg að í þeim tilvikum þegar eldri skuld væri endumýjuð með nýju bréfi bæri að taka fullt stimpilgjald af þeim hluta bréfsins sem væri vegna vansldla á gjaldfólln- um vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum og kostnaði hvers konar. Af eftirstöðvum höfuð- stóls bæri að taka hálft stimpilgjald. í þeim tilvikum þegar skuld væri skuldbreytt með áritun eða nýju skjali, án þess að eldra skjal væri fellt úr gildi bæri að taka fullt stimpil- gjald af þeim hluta skuldarinnar sem væri vegna vanskila á gjaldfóllnum vöxtum, verð- bótum, dráttarvöxtum og kostnaði hvers kon- ar. Af eftirstöðvum höfuðstóls bæri hins veg- ar ekki að taka neitt gjald. Var lagt fyrir banka, sparisjóði og sýslumannsembættin í landinu að breyta framkvæmd sinni í þessa vera. Jafnframt beindi fjármálaráðuneytið því til sýslumanns í Keflavík að endurgreiða skipa- smíðastöðinni í samræmi við þessa breyttu afstöðu. Forsvarsmenn hennar vora ekki sáttir við þessa afgreiðslu, töldu hana alls ekki ganga nógu langt og sáu sig knúna til að höfða mál á hendur íslenska ríkinu. Töldu þeir ekki efni til að gera með þessum hætti greinarmun á gjaldföllnum höfuðstól og gjaldföllnum vöxtum og kostnaði. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, kveðnum upp af Sigurði Halli Stefánssyni héraðsdómara, er fallist á afstöðu málshöfðanda. Segir í dómn- um að hvað snertir endurnýjun skuldabréfs- ins til Lífeyrissjóðs Suðurnesja hafi sam- kvæmt skýram og ótvíræðum orðum 26. gr. laga nr. 36/1978 um stimpilgjald borið að inn- heimta helming stimpilgjalds. Af skjölum út- gefnum til handa Iðnlánasjóði og Lands- banka Islands hafi einungis borið að greiða fullt stimpilgjald af mismun nýs höfuðstóls og upphaflegs samanber 8. gr. laga nr. 36/1978. Fordæmisgildi Samkvæmt dómnum hefur framkvæmd stimpillaga verið röng allt frá árinu 1991 þeg- ar um er að ræða töku stimpilgjalds af skuld- breytingarskjölum. Erfitt er að geta sér til um hversu miklar fjárhæðir ríkið hefur þannig oftekið reynist dómurinn endanlegur. Að sögn Garðars Garðarssonar hri., sem flutti málið af hálfu skipasmíðastöðvarinnar, hlaupa þær að minnsta kosti á tugum millj- óna, hugsanlega enn hærri tölum. Hvað end- urkröfuréttinn varðar almennt talað telur Garðar að hér myndi eiga við fjöguiTa ára fyrningarfrestur. Þá eigi menn líklega ekki endurkröfurétt vegna stimpilgjalds greidds fyrir 1996 þegar gengu í gildi ný lög um end- urgreiðslu oftekins fjár nema þeir hafi greitt með fyiirvara. „Það sem mér finnst skipta hvað mestu máli er að hér á landi gengur dómur eftir dóm þar sem ríkið er dæmt til að endurgreiða oftekið fé. Það sýnir að það er veraleg brota- löm í stjórnsýslunni. Ríkið hlítir ekki einu sinni áliti umboðsmanns Alþingis heldur þui-fti að höfða dómsmál til að fá réttmætar kröfur samkvæmt skýra lagaákvæði dæmd- ar. Sú spurning hlýtur að vakna hvort ein- hver verði ekki að taka ábyrgð á þessu gagn- vart því fólki sem ranglega hefur verið krafið um of há stimpilgjöld, en margt hefur það átt við fjárhagsörðugleika að etja,“ segir Garðar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.