Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 13 FRÉTTIR Morgunblaðið/Guðlaugur Bergmann KORTIÐ sem sýnir siglingar Norðmanna um höfín og stendur við hlið Gauksstaðaskipsins á Bygdoy-safninu í Ósló. Bygdoy-víkingaskipasafnið í Noregi Ekkert minnst s á Islendinga Framkvæmdastjóri hjá framkvæmdastjórn ESB Spánverjar geta ekki sagt nei Morgunblaðið/Kristinn BRUNO Hansen, framkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu XII í fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins, kynnir fímmtu rammaáætlunina, sem tekur gildi nú um áramótin og nær til næstu fjögurra ára. Á víkingaskipasafninu í Bygdoy í Noregi, þar sem meðal annars er til sýnis hið merka Gauks- staðaskip, er hvergi minnst á þátt fslendinga í siglingum og landafundum víkingatímans. Guðlaugur Bergmann, sem nýverið heimsótti Bygdoy-safn- ið, segist hafa orðið undrandi þegar hann sá þær skýringar- myndir sem fylgja sögunni um ferðir Norðmanna yfir Atlants- hafið og landafundum Græn- lands og Ameríku. Hann segir að á skýringarmynd sem stend- ur við hlið Gauksstaðaskipsins séu allir viðkomustaðir víkinga- ferðanna merktir með nafni nema ísland. Auk þess sé leiðin sem þeir fóru til Ameríku sýnd töluvert neðan við ísland og annað sé ekki gefið til kynna en einhverjir Norðmenn hafi kom- ið þar við á leið sinni til Græn- lands og Ameríku. f texta sem einnig er á safninu er sagt að Norðmenn hafi verið fyrstu Evrópubúamir sem stigu fæti á Norður-Ameríku, en þeir liafi einnig sest að á íslandi og Grænlandi. Mál sem þarf að ræða Guðlaugur segir þetta stað- festingu á að það sé ekki aðeins í umræðum sem Norðmenn snið- gangi þátt íslendinga í landa- fundum Ameríku, heldur sé það staðreynd. Hana megi sjá á upp- lýsingunum sem gefnar eru og Tveir árekstrar í Þrengslum TVEIR árekstrar urðu í gær á Þrengslavegi með stuttu milli- bili. Sá fyrri varð um hádegis- bil þegar tvær fólksbifreiðar rákust saman á móts við Vota- berg í mikilli hálku. Kona, sem ók annarri bifreiðinni, slasað- ist og var flutt á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Seinni áreksturinn varð við Lambafell kl. 14.30 þegar tvær vörubifreiðar rákust saman með þeim afleiðingum að hús annarrar þeirrar gjör- eyðilagðist. Engin slys urðu á ökumönnunum. þær beri fyrir augu þúsunda ferðamanna dag hvern. „Að mi'nu mati gera Norðmenn það vísvitandi að nefna ekki Island í sambandi við fundi Grænlands og Ameríku. Það virkar eins og þeir séu að gera lítið lír Islandi en á Bygdoy-safnið koma fjöl- margir útlendingar, enda Gauksstaðaskipið einn merkasti fornleifafundur á norðurslóð- um,“ segir Guðlaugur. „Það er ekki til neinnar skammar fyrir Norðmenn að viðurkenna að íslendingar, og reyndar allir menn af norrænu bergi brotnir, hafí verið hluti af þessari miklu landkönnun vík- inganna. Þetta mál þarf að ræða því það væri leiðinlegur blettur ef við frændþjóðirnar færum ár- ið 2000 að sýna þá lágkúru að rífast um þetta á alþjóðavett- vangi,“ segir Guðlaugur að lok- VEGNA stöðugrar þróunar og framfara þarf á næstu 10 til 15 ár- um að vinna áætlun um nýtt sjúkra- hús á höfuðborgarsvæðinu en fram að því verður að auka samvinnu sjúkrahúsanna tveggja í Reykjavík til dæmis á sviði yfirstjórnar og inn- kaupa. Einnig er nauðsynlegt að fá fram nýjar hugmyndir í heilbrigðis- kerfinu sem gerist helst með því að fleiri læknar og hjúkrunarfræðing- ar sinni yfirstjórn spítalann. Þetta var meðal þess sem fram kom í umfjöllun Ólafs Ólafssonar landlæknis á hjúkrunarþingi í gær þar sem hann ræddi framtíðar- skipulag sjúkrahúsa. Landlæknir rifjaði upp að með heilbrigðisþjón- ustulögunum 1973 hefði verið ákveðið að fækka sjúkrahúsum sem sinntu skurðlækningum sem þá voru um 20. í dag væru þau átta og hann sagði ljóst að slík þróun næð- ist ekki fram á einni nóttu. Með bættum samgöngum og breyttum áherslum í byggðastefnu hefði þessi þróun orðið smám saman. Hann sagði starfsemi sjúkrahúsa hafa BRUNO Hansen, framkvæmda- stjóri stjórnarskrifstofu XII hjá framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins, kvaðst í gær telja að Spánverjar myndu ekki geta staðið við hótanir sínar um að tefja þátt- töku Islands og annarra EFTA- i-íkja í fimmtu rammaáætlun ESB um rannsóknir og þróun. „Spánverjar geta ekki sagt nei,“ sagði Hansen í samtali við Morgun- blaðið, en Spánverjar hafa sagt að þeir munu standa hagsmunum EFTA fyrir þrifum verði ekki geng- ið að kröfu þeirra um að EFTA-rík- in haldi áfram að greiða í þróunar- sjóð, sem styrkt hefur fátækari svæði innan ESB. Eiga hótanir Spánverja við um aðild Islands og Noregs að Schengen-vegabréfasam- starfinu, aðild ríkjanna að Lyfja- stofnun Evrópu í London og þátt- tökuna í fimmtu rammaáætluninni. Verkefni skilgreind út frá markmiðum Stjórnarskiifstofurnar eim nokk- urs konar ráðuneyti innan fram- kvæmdastjórnar ESB. Stjórnar- skrifstofa XII, sem Hansen stjórn- ar, fer með vísindi, rannsóknir og þróun. Hansen flutti í gær fyrirlest- ur um fimmtu rammaáætlunina við upphaf Evrópudaga, sem haldnir verða í Periunni um helgina. Hann benti á að með tilkomu fimmtu rammaáætlunarinnar, sem nær frá 1998 til 2002, myndi margt breytast. Ferli ákvarðana myndi einfaldast til muna. Helsti kosturinn væri sá að verkefni yrðu ekki lengur flokkuð út frá greinum, heldur markmiðum, til dæmis félagslegum. Spurningin væri hvernig nota ætti vísindin til að leysa vandamál. Hann sagði að vísindamenn yrðu að snúa bökum saman og nýta möguleika sína í áætluninni. Islend- ingar hefðu gert það hingað til, til dæmis í samstarfsverkefnum um príonsjúkdóma. Hellen M. Gunnarsdóttir, deildar- sérfræðingur í menntamálaráðu- neytinu, fjallaði um það hvaða áhrif fjórða rammaáætlunin hefði haft á breyst mjög á síðustu árum meðal annars vegna þess að landamæri milli lyflæknisdeilda og handlæknis- deilda væru að rofna eins og þegar væri orðið t.d. á hjartadeild og kvensjúkdómadeild Landspítala. Þar ynnu saman á nýrri deild skurðlæknar, lyflæknar, tækni- menn og aðrir. „Aður voru legurými á bráða- sjúkrahúsunum kringum 70% af heildarrými en á nýjustu sjúkrahús- um í útlöndum 1 dag eru þau milli 30 og 40% af heildarrými sem stafar af því að mjög oft fara sjúklingar heim samdægurs eða daginn eftir aðgerð og legutíminn hefur sífellt styst. Þess vegna þarf ekki allan þennan fjölda sjúkrarúma á sjúkrahúsum," sagði Olafur Olafsson í samtali við Morgunblaðið og benti á að meira rými þyi’fti fyrir dag- og göngu- deildir og rannsóknadeildir. „Gömlu byggingarnar henta því ekki sem bráðasjúkrahús framtíðarinnar og því verður nauðsynlegt að hefja undirbúning að byggingu nýs sjúkrahúss á höfuðborgarsvæðinu á íslandi. Hún sagði að íslendingar tækju þátt í Evrópuverkefnum með næstum öllum ríkjum Evrópusam- bandsins. Mest væri samstarfið við Breta, sem tækju þátt í næstum 70% verkefnanna. Hún benti á að samskipti hefðu aukist mjög milli Islands og annarra Evrópulanda vegna þátttöku í Evr- ópuverkefnum. Mikil aukning veltu í vísindum á Islandi Hellen sagði að kostnaður við um- sóknir um styrki væri um 83 millj- ónir króna, en styrkirnir næmu 1,3 milljörðum. Að auki hefðu íslenskir þátttakendur lagt til einn milljarð króna. Þetta þýddi því mikla aukn- ingu á veltu í vísindum á Islandi og mætti því segja að þátttaka fslend- inga í þróunarverkefnum hefði haft mjög skyndileg áhrif, en EES- samningurinn tók gildi árið 1994, eða um leið og fjórða rammaáætlun- in. Oskar Einarsson, sem er svokall- aður heimansérfræðingur eða starfsmaður íslands hjá stjórnar- skrifstofu XIII, sem sér um mála- flokkana fjarskipti, upplýsinga- markaðinn og nýtingu rannsókna í framkvæmdastjóm ESB, fjallaði um næstu 10 til 15 árum,“ sagði land- læknir ennfremur og telur brýnt að hefja áætlanagerð þar að lútandi sem fyrst. Hefja mætti samhæfingu á yfírstjórn Ólafur sagði nauðsynlegt að sam- hæfa störf sjúkrahúsanna í Reykja- vík, byrja á yfirstjórn, tæknimálum, rannsóknavinnu og innkaupum. „En við verðum að gæta að því að byggja ekki nýjan spítala á sömu hugmyndum og notaðar voru fyrir 50 árum.“ Landlæknir nefndi að lokum eitt atriði sem sér fyndist vanta í þróun í heilbrigðismálum: „Við þurfum að hugsa til framtíð- ar og það vantar hugmyndir. Ég tel að ein ástæðan fyrir mikilli íhalds- semi í sjúkrahúsarekstri sé sú að það er stöðugt verið að fækka heil- brigðisstarfsmönnum í stjórnun. Rekstrarmenntað fólk, sem er auð- vitað ágætis fólk, er að taka meira við þessum störfum og læknum og hjúkrunarfræðingum fækkar i efstu stjórnunarstöðunum. En þá gleyma það hvernig íslendingar gætu hasl- að sér völl í tæknimálum. Hann sagði að menn yrðu að hafa í huga að með fimmtu rammaáætluninni yrði sú breyting að skrifa yrði um- sóknir út frá þvi að þær mættu sett- um markmiðum, en nú væri hrein fyrirskrift. Markmiðsleiðin gæfi aukið frelsi, en krefðist um leið aga í framsetningu. Hann benti á að heimabankakerf- ið, sem væri hér á landi, væri ein- stakt og gæfi til dæmis möguleika. I styrkumsóknum yrði þá markmiðið að styðja smá og meðalstór fyrir- tæki, sem vildu starfa á alþjóðlega vísu. Kynningarráðstefnan í gær var haldin í tengslum við Evrópudaga 1998 undir yfirskriftinni markaðs- torg tækifæranna. í tilefni af fimmtu áætluninni hafa Vinnuveit- endasamband íslands, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og Euro Info skrifstofan á íslandi gefið út upplýs- ingar um það hvernig hægt er að nýta sóknarfæri í Evrópusamvinnu á hinum ýmsu sviðum þar sem með- al annars eru upplýsingar um um- sóknarfresti og hvernig eigi að bera sig að við þátttöku. Evrópudagar voru opnaðir í gær og verða um helgina í Perlunni. menn því að nýjungarnar í tækni og spítalaþjónustu koma frá fagfólk- inu, heilbrigðisstéttunum, en síður frá hagfræðingi eða viðskiptafræð- ingi. Mér finnst alvarlegt mál að fækka heilbrigðisstarfsfólki í stjórn- un, það getur hreinlega valdið stöðnun. Það verða stöðugt að koma fram hugmyndir og menn verða að fylgjast með og það er á sviði heil- brigðisstarfsmanna." Landlæknir vildi meina að meðal annars vegna þessa hefðu hug- myndir um sjúkrahótel ekki náð fram að ganga hérlendis, sem hefði t.d. byrjað í Bandaríkjunum fyrir 50 árum. „Menn mega ekki halda að deildirnar megi ekki minnka, starf- semin er að breytast, eins og aukin starfsemi göngudeilda hefur sýnt hérlendis, og næsta skref er að taka upp miklu víðtækari þjónustu á sjúkrahótelum. Kjarni sjúkrahúss framtíðarinnar verður móttöku- og dagdeild sem tengjast rannsókna- stofum og þá mun hótelþátturinn koma miklu meira við sögu.“ um. Landlæknir segir vanta heilbrigðisstéttir í yfírstjórn sjúkrahúsa Vinna þarf áætlun um nýtt sjúkra hús á höfuðborgarsvæðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.