Morgunblaðið - 14.11.1998, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 15
AKUREYRI
Jólaskapið snemma á ferðinni á Akureyri
Jólaþorpið Norðurpóllinn
opnaður í næstu viku
NORÐURPÓLLINN
sem er aðsetur jóla-
sveinsins í Eyjafírði verð-
ur opnaður í næstu viku,
föstudaginn 20. nóvem-
ber, en jólasveinarnir
verða óvenjusnemma á
ferðinni á Akureyri að
þessu sinni. Norðurpóll-
inn er nokkurs konar
þorp sem nú er verið að
koma upp á flötinni neðan
við Samkomuhúsið.
Jólagleðin í bænum
hefst með jólasveinaþingi
sem haldið verður um
næstu helgi og verður þar margt til
skemmtunar og fróðleiks, hin ýmsu
mál er snerta jólasveina verða
rædd á málþingi, s.s. lífeyris- og
kjaramál, áhrif þeirra á daglegt líf
fólks og staða jólasveina við upphaf
nýrrar aldar. Efnt verður til sér-
stakrar jólasveinatugþrautar, þar
sem jólasveinar reyna með sér,
m.a. í veggjaklifri, leikni við að
komast um reykháfa og setja skó í
glugga.
Jólasveinar þinga
Að loknu jólasveinaþingi um næstu
helgi verður stöðug dagskrá allt fram
tO jóla og verður áhersla lögð á
skemmtun og gleði, jólasiði og hefðir
að ógleymdum boðskap jólanna.
Meðal dagskráratriða má nefna jóla-
föndur og handverk sem
sérstaklega verður fjallað
um helgina 27. til 29. nóv-
ember, jólamaturinn- og
sælgætið næstu helgi á
eftir og dagana 11. til 13.
desember verður jólatón-
listarhátíð á Norðurpóln-
um. Þá verða haldnir
fjáröflunartónleikar til
styrktar flugi með jóla-
pakka til stríðshrjáðra
bama úti í heimi. Þeir
verða haldnir í íþrótta-
skemmunni. Síðasta helgi
íyrir jól er svonefnd frið-
arhelgi, prestar munu taka þátt,
sungin verða jólalög og blysfór farin
um bæinn.
Jólasveinaverkstæði- og skóli
í Norðurpólnum verður opnað
jólasveinaverkstæði, jólasveinaskóli
verður starfræktur, pósthús fyrir
jólapóst og bakarí þar sem seldar
verða piparkökur og laufabrauð.
Morgunblaðið/Kristján
RAGNAR Sverrisson, Tómas Guðmundsson og Hlynur Jónsson kynntu
Norðurpólinn, jólaþorp sem verið er að setja upp á flötinni neðan við
Samkomuhúsið, á fundi í gær.
Börnum á öllum aldri verður boðið
að sækja jólasveinaskólana en þar
verða sögustundir, söngur og jóla-
föndur á dagskrá. Handverksfólk
og leikfangasmiðir verða að störfum
á verkstæðinu.
Á torgi Norðurpólsins verður
komið fyrir stóru jólatré, „Jólatré
allra barna“. Verður börnum gefmn
kostur á að koma með jólapakka og
setja undir tréð en þeim verður svo
safnað saman og þeir sendir til
stríðshrjáðra barna. í samvinnu við
íslandsflug verður pökkum frá
börnum annars staðar á landinu
safnað saman.
Okkur er ekki
til setunnar boðid
Jafnrétti er óaðskiljanlegur hluti
mannréttinda.
Það er lýðræðisleg krafa að ólíkar
aðferðir og reynsla einstaklinga af
báðum kynjum fái að njóta sín jafnt
í námi, starfi, launum og ábyrgð.
Stöndum saman.
Ráðherraskipuð nefnd
til að auka hlut kvenna í stjórnmálum
HÉR & NÚ / SÍA / l)i