Morgunblaðið - 14.11.1998, Side 26
26 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Blóðugar
óeirðir á göt-
um Jakarta
Jakarta. Reuters.
AÐ MINNSTA kosti níu manns
biðu bana í Jakarta, höfuðborg
Indónesíu, í átökum sem blossuðu
upp á götum borgarinnar þegar um
20.000 námsmenn og stjórnarand-
stæðingar gengu um miðborgina til
að krefjast róttækra lýðræðisum-
bóta í landinu. B.J. Habibie forseti
hvatti mótmælendurna til að hætta
óeirðunum og einn af helstu forystu-
mönnum stjórnarandstöðunnar,
múslimaleiðtoginn Amien Rais,
sagði að landið virtist ramba á
barmi borgarastyrjaldar. Hann
hvatti þingið til að hefja strax við-
ræður við námsmennina til að af-
stýra frekari átökum.
Hermenn skutu gúmmíkúlum og
beittu táragasi til að dreifa mótmæl-
endunum á aðalgötu miðborgarinn-
ar og koma í veg fyrir að þeir réðust
á þinghúsið. Mótmælendurnir köst-
uðu bensínsprengjum, grjóti og um-
ferðarmerkjum á öryggissveitirnar.
Sjö manns létust og
tugir særðust
Átökin í miðborginni kostuðu að
minnsta kosti sjö manns lífið, m.a.
fréttakonu indónesískrar útvarps-
stöðvar, og tugir manna særðust.
Tveir stuðningsmenn stjórnarinnar
biðu einnig bana í átökum við íbúa í
austurhluta borgarinnar og einn til
viðbótar særðist alvarlega. Daginn
áður höfðu að minnsta kosti tveir
fallið og 120 særst í átökum milli
námsmanna og öryggissveita í
Jakarta.
Leiðtogar námsmannanna og lög-
reglan sömdu um að gera hlé á átök-
unum síðar um daginn eftir að
æðsta löggjafarsamkunda landsins
(MPR, sem er æðri eiginlegu þingi
landsins, Dewan) lauk fjögurra daga
fundahöldum um pólitískar umbæt-
ur í landinu.
Suharto sæti
rannsókn
Löggjafarsamkundan samþykkti í
gær að enginn mætti gegna forseta-
embætti landsins lengur en í tvö
fimm ára kjörtímabil, að draga úr
pólitískum áhrifum hersins í áföng-
um og efna til kosninga í maí eða
júní á næsta ári. Sameinaði þróun-
arflokkurinn (PPP), sem nýtur
stuðnings múslima, hafði ki’afist
þess að herinn yrði sviptur þingsæt-
um sínum en löggjafarsamkundan
hafnaði þeirri kröfu. Hún féllst hins
vegar á að fækka þingmönnum
hersins í áföngum.
Herinn af þingi og mannrétt-
indabrot könnuð
Námsmennimir vilja að herinn
verði sviptur þingsætum sínum
strax og og krefjast þess að hafin
verði rannsókn á mannréttindabrot-
um og spillingu Suhartos, íyrrver-
andi forseta, sem sagði af sér í maí
eftir fjöldamótmæli andstæðinga
hans. MPR samþykkti lög um að-
gerðir gegn spillingu í stjómkerfinu
og er þar kveðið á um að hægt verði
að hefja rannsókn á spillingarmál-
um Suhartos. Ekki var þó víst að
námsmennimir telji lögin fullnægj-
andi.
Nokkrir fréttaskýrendui- hafa
áætlað að Suharto og fjölskylda
hans hafi dregið sér andvirði allt að
2,8 milljarða króna á 32 ára valda-
tíma hans. Suharto hefur neitað
ásökunum um að hann hafi falið
auðæfi sín erlendis.
Reuters
INDÓNESÍSKIR námsmenn flýja undan hermönnum, sem skutu gúinmíkúlum og beittu táragasi til að
stöðva göngu stjórnarandstæðinga að þinghúsinu í Jakarta.
Krabbameinsrannsóknir Judahs Folkmans dregnar í efa
Ekki enn tekist að stað-
festa niðurstöðurnar
FULLTRÚAR bandarísku krabba-
meinsstofnunarinnar (NCI) hafa nú
lýst vonbrigðum sínum vegna þess að
þeim hefur ekki tekist að endurtaka
á ái’angursríkan hátt rannsóknir sem
dr. Judah Folkman, prófessor við
Harvard-háskóla, kynnti á síðasta
ári. Sannkallað fjölmiðlafár braust út
bæði austan hafs og vestan í maí á
þessu ári þegar almenningi vom
kynntar niðui'stöður Folkmans sem
þóttu vekja miklar vonir í baráttunni
við krabbamein.
Hafði Folkman tekist að útrýma
krabbameinsæxlum í músum með því
að beita lyfjunum endóstatín og angi-
ostatín samtímis á æxlið og þannig
komið í veg fyrir að æðar, sem bera
æxlum næringu með blóði, mynduð-
ust og einnig að koma í veg fyrir að
æxlin mynduðust aftur. Höfðu vís-
indamenn um allan heim bundið
miklar vonir við þessa aðferð en tóku
vitaskuld undii- þau orð Folkmans að
ekki væri meira vitað en það að „ef
maður væri mús með krabbamein þá
væri hægt að lækna hann“.
The Wall Street Joumal greindi
hins vegai- frá því á forsíðu síðastlið-
inn fimmtudag að uppgötvun Folk-
mans hefði enn ekki staðist grund-
vallarkröfu allra vísindarannsókna,
nefnilega þeirrar að aðrir vísinda-
menn geti endurtekið tilraunina og
fengið sömu niðui’stöðu. I yfirlýsingu
sem NCI sendi frá sér eftir að grein
The Wall Street Journal hafði birst
sagði að stofnunin myndi áfram
rannsaka áhrif lyfjablöndu endóstat-
íns og angiostatíns en því var bætt
við að til þessa dags hefðu rannsókn-
ir NCI ekki sýnt þá æxlaminnkun
sem Folkman og samstarfsmenn
hans hefðu greint frá. Væri í sam-
starfi við Folkman nú unnið að því að
varpa ljósi á hvers vegna niðurstöður
hópanna væru svo ólíkar.
Vildi NCI ekki ræða málið fi'ekai’
en talsmaður stoftiunai’innai’ mun þó
hafa staðfest að frétt The Wall Street
Journal væri í öllum meginatriðum
rétt. Gaf Folkman sjálfúr frá sér yfir-
lýsingu þar sem sagði að rannsóknir
væru tímafrekar og að alltof snemmt
væri að ætlast til þess að vísinda-
menn NCI næðu sama árangri og
starfsfólk hans.
Hernaðarsérfræðingar telja hugsanlegt, að loftárásir á frak muni hefjast í næstu viku?
DEILAN VIÐ IRAKA - LIKLEG SKOTMÖRK
Skyndilegur brottflutningur allra starfsmanna Sameinuðu þjóðanna
frá Bagdad bendir til, að hugsanlega séu loftárásir yfirvofandi,
sennilega strax f næstu viku. Brottflutningur vopnaeftirlitsmanna
og starfsmanna Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar gefa það
einnig til kynna
ÍRAK
Bagdad
IRAN
33.
br.baugur
SKOTMORK
Arásir NATO-
herflugvéla og
stýriflauga
Samhæfð
loftvamakerfi (ratsjár-
og fiugskeytastöðvar)
Fjarskiptabúnaður
Hergagnaverksmiðjur
Herbúðir
lýðveldishersins
Herflugvellir
ATBURÐIR OG DAGSETNINGAR, SEM GETA HAFT AHRIF A TIMASETNINGU ARASA
14. nóvember
Bill Clinton Bandarikjaforseti fer í
10 daga ferð til Malasíu, Japans
og S-Kóreu
16. nóvember
Utanrikis- og varnarmálaráðherra
11 rikja Vestur-Evrópubanda-
lagsins hittast í Róm
17. -18. nóvember
Robin Cook, utanrikisráðherra
Bretlands, fertil Egyptalands og
Saudi-Arabíu
18. -19. nóvember
Nýtt tungl yfir Bagdad — fyrsti
líklegi árásardagurinn
23. nóvember
Enterprise, annað bandariska
flugmóðurskipið, kemur inn í
Persaflóa
26. nóvember
Bandaríska herþyrluskipið
Belleau Wood kemur inn á
Persaflóa
7. desember
Leiðtogar sex rikja, sem aðild
eiga að Samstarfsráði
Persaflóarikja, koma saman í
Abu Dhabi
19. desember
Fösfumánuður múslima hefst
Aherslan á
stýriflaugar en
ekki liðsafla
London. The Daily Telegraph.
HERAFLINN, sem Bandaríkja-
menn hafa flutt til Persaflóasvæðis-
ins, er minni en samt öflugri en sá,
sem áður hefur tekist á við Saddam
Hussein. Um það eru hernaðarsér-
fræðingar sammála. Segja þeir, að
áhersla sé nú á Tomahawk-
stýriflaugar og á minni liðsafla á
jörðu niðri.
Haft er eftir heimildum, að undir-
búningi hugsanlegra árása verði lok-
ið á næstu dögum og telja margii-
líklegt, að látið verði til skarar skríða
aðfaranótt 19. nóvember en þá
kviknar nýtt tungl yfir Bagdad.
Bandarísku flugvélarnar gætu þá
gert árásir í skjóli myrkurs.
Ekki er vitað hver skotmörkin
verða en þau geta ýmist verið her-
gagnaverksmiðjur Iraka eða önnui’
mannvirki í því skyni að ógna stöðu
Saddams og stjórnar hans. Hafa
menn rnestar áhyggjur af, að Irakar
muni reyna að svara fyrir sig með
eiturefnaárás á nágrannaríkin, til
dæmis ísrael.
300 herflugvélar
Bandaríkjamenn eru með mikinn
vopnabúnað, meðal annars
stýriflaugar, sem unnt er að skjóta
frá kafbátum, beitiskipum og tund-
urspillum. Þá eru 12 B-52-sprengju-
flugvélar komnar til bresku her-
stöðvarinnar í Diego Gai’cia við Ind-
landshaf en hver þeirra getm’ borið
18 Tomahawk-flaugar.
Á næstu dögum munu Bandaríkja-
menn verða komnir með um 300 her-
flugvélar á Persaflóasvæðið og þar
af 12 F-117, torséðar þotur. Verða
þær líklega ekki notaðar fyrr en búið
verður að gera loftvarnakerfi íraka
óvirkt en þá geta þær flutt sinn ban-
væna farm, 2.000 kg sprengjur, sem
eru leysistýrðar og sérstaklega ætl-
að að sprengja upp öflug byrgi.
--------------------
Kúrdaleiðtogi
handtekinn
Róm. Rcuters.
ÍTALSKA lögreglan handtók í gær
Abdullah Ocalan, útlægan leiðtoga
Kúrdíska verkamannaflokksins, sem
haldið hefur uppi skæruliðastarfsemi
í Tyrklandi um árabil.
Ocalan var handtekinn er hann
kom til Fiumicino-flugvallar í Róm
frá Moskvu og var hann með falskt
vegabréf. Hafa Tyrkir þegar farið
fram á, að hann verði framseldur
þeim. Lamberto Dini, utanríkisráð-
herra Ítalíu, sagði í gær, að ítölum
hefði borið skylda til að handtaka
Ocalan enda hefðu jafnt Þjóðverjar
sem Tyi’kir gefið út skipun um hand-
töku hans.