Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Rússneskir stjórnmálamenn deila hart um kynþáttahatur
Vara við hættu á
upplausn Rússlands
Reuters
Samið í Moskvu
JEVGENI Prímakov og Keizo Obuchi, forsætisráðherrar Rússlands og
Japans, undirrituðu í gær víðtækt samkomulag um samgöngur, fjár-
festingar, orkusölu, ferðaþjónustu, umhverfísmál og fjarskipti, auk
þess sem stjórnir landanna hétu því að leggja aukna áherslu á að und-
irrita formlegt friðarsamkomulag vegna heimsstyijaldarinnar síðari.
Rússar og Japanir hafa ekki samið um frið vegna deilu um Kúrileyjar
en þeir hafa nú samþykkt að skipa tvær nefndir til að vinna að lausn
málsins.
Þá staðfesti Evrópusambandið í gær að beiðni rússneskra sljórn-
valda um matvælaaðstoð hefði borist en að matarsendingarnar gætu
líklega ekki hafist fyrr en í janúar. Ástæðan er skriffinnska, en slíkar
samþykktir þurfa m.a. að fara fyrir Evrópuþingið. Mun ESB senda
Rússum mat fyrir um 400 milljónir ECU, um 32 milljarða ísl. kr.
KARL Bretaprins bregður hér á
Ieik ásamt ungu fólki, sem starf-
að hefur fyrir góðgerðastofnun
eða -sjóð, sem hann stofnaði.
Efndi sjóðurinn til veislu í tilefni
SERGIO Marchi, viðskiptaráð-
herra Kanada, sagði í gær að
APEC, Efnahagssamvinnuráð As-
íu- og Kyrrahafsríkja, myndi bíða
álitshnekki ef leiðtogar samtak-
anna hunsuðu handtöku Anwars
Ibrahims, fyrrverandi aðstoðarfor-
sætisráðherra Malasíu, á fundi sín-
um í landinu í næstu viku.
Jean Chretien, forsætisráðherra
Kanada, sagði í gær að hann kynni
að ræða við eiginkonu Anwars þeg-
ar hann fer til Malasíu til að sitja
árlegan leiðtogafund APEC á
þriðjudag og miðvikudag.
Bandaríska sendiráðið í Malasíu
skýrði frá því í gær að Madeleine
Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, vonaðist eftir því
að geta rætt við eiginkonu Anwars
þegar hún færi til Kuala Lumpur
vegna fundarins. Hins vegar væri
ólíklegt að Bill Clinton Bandaríkja-
forseti hitti hana að máli.
af 50 ára afmæli Karls og var
hún haldin þar sem kvikmyndin
Með fullri reisn var tekin. Muna
vafalaust margir eftir senunni,
sem hér er verið að endurtaka.
Mahathir Mohamad vék Anwar
úr embættum aðstoðarforsætis-
ráðheira og fjármálaráðherra 2.
september á þeirri forsendu að
hann væri „siðferðilega óhæfur“.
Anwar var handtekinn 18 dögum
síðar á grundvelli öryggislaga,
sem heimila ótímabundið gæslu-
varðhald án réttarhalda. Hann var
síðan ákærður fyrir spillingu og
kynferðisleg afbrot, m.a. kynmök
við karla, en samkynhneigð er
ólögleg í Malasíu. Anwar kvaðst í
gær ætla að höfða mál gegn
stjórninni vegna brottvikningar-
innar.
Marchi sagði að vísbendingar
um að dómsmálið byggðist á röng-
um sakargiftum og pólitísku sam-
særi gegn Anwar væru mikið
áhyggjuefni og APEC myndi bíða
álitshnekki ef leiðtogar samtak-
anna reyndu að humma það fram
af sér á fundinum.
Moskvu. Reuters.
ÖRYGGISRÁÐGJAFI Borísar
Jeltsíns Rússlandsforseta lýsti því
yfir í gær að kynþáttahatur og þjóð-
ernisátök kynnu að blossa upp í
landinu og að þörf væri á því að
herða eftirlit með öfgasamtökum.
Harðar deilur hafa staðið í Rúss-
landi að undanfórnu vegna andgyð-
inglegra ummæla þingmanns
kommúnistaflokksins og tregðu
flokksins og þingsins til að refsa
honum. Jeltsín hefur lítið haft sig í
frammi í þessari deilu en vangavelt-
ur um veikindi hans fengu byr undir
báða vængi á fimmtudag er hann
hætti á síðustu stundu við að mæta í
kvöldverðarboð til heiðurs Keizo
Obuchi, forstætisráðheiTa Japans.
Sagði talsmaður Jeltsíns, aðspurður
um heOsu forsetans í gær, að hún
væri „í lagi“.
Nikolaj Bordjuzha, öryggisráð-
gjafi Jeltsíns og varaformaður ör-
yggisráðs forsetans, hvatti í gær til
þess að leynilögreglumenn laumuðu
sér inn í hópa öfgamanna og reyndu
að eyðileggja þá innan frá. „Sovét-
ríkin liðuðust í sundur vegna þjóð-
ernisátaka. I dag stöndum við
frammi fyrir svipuðu ferli og kunn-
um að horfa upp á upplausn Rúss-
lands nema gripið verði til harðra
ráðstafana til að stöðva öfgastefnu,"
sagði Bordjuzha í samtali við Inter-
fax.
Ástæða þessarar yfirlýsingar er
einkum þau ummæli Alberts
Makashovs, þingmanns kommún-
istaflokksins, að réttast væri að út-
rýma gyðingum. Þess hefur verið
krafist að dúman, neðri deild rúss-
neska þingsins, víti þingmanninn og
aflétti þinghelgi yfir honum, en
meirihlutinn hafnaði því og lét
nægja að samþykkja ályktun um að
kynþáttaumræða ætti ekki heima í
flokkapólitík. Fjöldi gyðinga býr í
Rússlandi, þrátt fyrir að gyðinga-
hatur eigi sér þar langa sögu.
Þjóðernisöfgar
„stöðvaðar“
Á fimmtudag sendi Jeltsln frá sér
skriflega tilskipun um að „stöðva"
yrði þjóðernisöfgastefnu og í kjöl-
farið kvaðst yfirmaður rússnesku
leynilögreglunnar, Vladimír Putín,
myndu fara fram á það við saksókn-
ara að höfðað yrði mál á hendur
Makashov.
Kommúnistar hafa varið
Makashov fimlega en lýstu því að
endingu yfír að ummæli hans hefðu
verið „óviðeigandi og röng“. Jafn-
framt réðst flokkurinn harkalega á
fjölmiðla fyrir að blása málið upp en
í gær birti Kommersant frétt þar
sem haft var eftir auðkýfingnum og
gyðingnum Boris Berezovskí, að
háttsettir menn innan leynilögregl-
unnar og kommúnistaflokksins
hefðu lagt á ráðin um að myrða
hann.
Dmitrí Jakúshkín, talsmaður
Jeltsíns, stendur enn fast við að búið
hafi verið að ákveða fyrirfram að
forsetinn yrði ekki f kvöldverðarboð-
inu til heiðurs Obuchi en því hafa
Japanir hafnað. Jakúshkfn hefur
hins vegar ekki gefið neina skýringu
á fjarveru forsetans.
Þá fullyrti hann í gær að Jeltsín
myndi hitta Gerhard Schröder,
kanslara Þýskalands, sem heldur til
Moskvu á mánudag, en talsmenn
kanslarans hafa látið í ljósi efasemd-
ir um að af fundi leiðtoganna verði
en hann er áætlaður á þriðjudag.
Jeltsín dvelur nú á sveitasetri sínu
skammt frá Moskvu.
APEC-fundur 1 skugga réttarhalda
Hvött til að taka
á máli Anwars
Kuala Lumpur, Singapúr. Reuters.
Halldór Ásgrimsson um fund sinn með aðstoðarutanríkisráðherra Kína
Samskiptin við Kínverj a
eru komin í samt lag
Morgunblaðið/Þorkell
HALLDÓR Ásgrímsson ásamt Wang Yingfan, aðstoðarutanríkisráð-
herra Kína, í Ráðherrabústaðnum.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra átti í gær fund með Wang
Yingfan, aðstoðarutanríkisráðherra
Kína, í Ráðherrabústaðnum í
Reykjavik en sendinefhd Wangs átti
ítarleg samtöl við embættismenn úr
islenska utanríkisráðuneytinu á
fimmtudag þar sem rædd voru mörg
mál, bæði milli landanna og alþjóðleg
mál, sem snertu viðskipti, mannrétt-
indi, afvopnunarmál og þróunina í
Evrópu og Asíu.
Sagði Halldór í samtaii við Morg-
unblaðið að hann hefði lýst sérstakri
ánægju við Wang um þá umræðu sem
átti sér stað um mannréttindamál
milli embættismanna, og að Kínveij-
ar skyldu vera tilbúnir til að ræða þau
með jákvæðum hætti. Það væru
nefnilega ýmsir sem stæðu í þeirri trú
að þeir vildu ekki ræða þessi mál.
,Að mínu mati hefur verið þróun í
jákvæða átt í mannréttindamálum í
Kína og það er mikilvægt að það sé
almennt viðurkennt að þessi mál eru
alþjóðleg og því er nauðsynlegt að
menn ræði þau,“ sagði Halldór.
Jafnframt sagði Halldór að sér
hefði leikið forvitni á að heyra af
samskiptum milli Kína, Indlands og
Pakistans vegna þeirra tíðinda að
Indverjar og Pakistanar hefðu tekið
upp kjamorkuvopnaframleiðslu sem
að sjálfsögðu væri mikið áfall, ekki
aðeins fyrir Asíubúa heldur allan
heim. Sagði Halldór Kínverja hafa
áhyggjur af þessari þróun.
Viðskipti við Kina orðin
meiri en við Tævan
„Það sem er athyglisvert í sam-
skiptum íslands og Kína er að öll við-
skipti og önnur samskipti fara mjög
vaxandi og útflutningur okkar til Kina
er nú orðinn meiri en til Tævans,"
sagði Halldór og kvaðst vænta þess að
enn meiri vöxtur myndi eiga sér stað
á næstu árum. „En hins vegar vildi
Wang taka það fram að Kínverjar
væntu þess að viðskipti okkar við
Tævan ykjust jafnframt, það væri
ekki í þeirra þágu að þau drægjust
saman heldur þvert á móti.“
Sagði Halldór það mikilvægt að á
því væri fullur skilningur að sam-
band okkar íslendinga við Tævan
fengi að vaxa því viðskipti Tævana
hefðu verið okkur mikilvæg, og það-
an hafi einnig komið margir ferða-
menn. „Eg er þeirrar skoðunar að
samskiptin við Kína að undanförnu
hafi verið farsæl og það hafi tekist að
leysa þau mál sem komu upp í sam-
skiptum ríkjanna sem voru til nokk-
urra óþæginda." Sagði Halldór að
það hefði verið staðfest í þessari
heimsókn Wangs að ekki væru nein
eftirmál vegna deilu landanna á síð-
asta ári um heimsókn tævanskrar
sendinefndar hingað til lands.
Yarað við
fólksflótta
Managva, Washington. Rcuters.
RÁÐAMENN í Mið-Ameríku-
ríkjunum, sem urðu fyrir barð-
inu á fellibylnum Mitch, segja,
að hætta sé á, að fjöldi manna
flýi til Bandaríkjanna komi
Bandaríkjastjórn ekki til hjálp-
ar með mikilli efnahags- og
matvælaaðstoð.
Carlos Flores, forseti
Hondúras, sagði í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina
ABC í fyrrakvöld, að lands-
menn sínir væru enn að reyna
að ná áttum eftir hörmungarn-
ar af völdum fellibylsins en
brátt vildu þeir fá vinnu til að
geta haft í sig og á en hana
væri varla að hafa. Þá mætti
búast við, að fólk reyndi að
komast burt og það færi í
„norður". Sagði Flores, að það
hefði gerst áður, til dæmis þeg-
ar fólk flýði borgarastyrjald-
imar í Mið-Ameríkuríkjunum.
Sendiherra Nicaragua í
Bandaríkjunum hefur einnig
varað við þessu og hann segir,
að til verði að koma eins konar
Marshall-aðstoð. Að öðrum
kosti sé hætta á, að upplausn
og einræði verði aftur hlut-
skipti fólksins í þessum lönd-
um.