Morgunblaðið - 14.11.1998, Side 44

Morgunblaðið - 14.11.1998, Side 44
44 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN Metsala NINTENDO Game Boy með lita- skjá kom á markað í Japan fyrr á árinu og annaði Nintendo eftir- spurn. Nú er hún væntanleg í Evrópu og Nintendo-menn segjast við öllu búnir; þeir ætli sér að selja að minnsta kosti hálfa aðra milljón tölva í Evrópu fyrir jól. Reyndar gera þeir ráð fyrir að tölvan seljist upp fyrir jól, en nýj- ar sendingar berist síðan á mark- að í byrjun janúar. HÁGÆÐA TÖLVUSKJÁIR CTX hágæða tölvuskjáir eru í verðflokkum sem henta einstaklingum jafnt sem stórum fyrirtækjum. CTX tölvuskjáir hafa hlotið lof virtustu gagnrýnenda í heimi fyrir lága bilanatíðni, skýra skjámynd og litla útgeislun. CTX tölvuskjáirnir eru framleiddir samkvæmt ISO 9002 stöðlum og uppfylla kröfur Evrópu- sambandsins um orkunotkun. endurnýtingu og vistvæni. #©■111 TÆKNIBÆR Skipholt 50c - 105 Reykjavlk Sími: 551 6700 - Fax: 561 6700 Netfang: pantanir@tb.is - www.tb.is gamallar konu, Mercedes Colomar, og áttar sig þá á að ekki er ailt með felidu í ráðuneytinu, því hann neyð- ist til að senda hana af stað fótgang- andi. í kjölfarið leggur hann sjálfur upp í fjöguiTa ára ferð til að grafast fyrir um spillinguna, en einnig til að leita uppi Colomar. Leið Mannys liggur um borgina E1 Marrow, hafnarþorpið Ru- bacava, námunýlendu og að hliði ní- unda niflheims og hvarvetna er ný- stárlegt umhverfi og hver staður hefur sitt sérstaka andrúmsloft, þar til kemur að uppgjörinu við hinn illa Hector LeMans. títpæld og skemmtileg saga Sagan á bak við leikinn er ein- staklega útpæld og skemmtilega saman sett, slær Apaeyjulanglok- una út eins og ekkert sé, en þrátt fyrir myrk öfl og spennu er enginn óhugnaður á ferð. Dauðinn er vissu- lega viðkvæmt viðfangsefni, en í leiknum verður hann eins og hvað annað sem ber við. Það sem glæðir söguna þó lífi fyrst og fremst er frá- bær talsetning hennar og útfærsla. Samtöl eru áhugaverð og skemmti- leg og fígúrumar sem Manny hittir á leið sinni uppfullar með sérkenni og persónuleika, til að mynda ritar- inn Eva, fúllyndi trúðurinn og svo má telja. Raddir eru vel valdar, nægir að nefna Tony Plana sem leikur Manny og fer skemmtilega með spænskublendinn framburðinn. Ekki má síðan gleyma tónlistinni í leiknum sem er skemmtilega djass- skotin með mariachi-keim. Grafíkin í leiknum er venju frem- ur skemmtileg. Fígúrurnar allar, þrívíðar beinagrindur, eru sérdeilis vel af hendi leystar og allt umhverfi þeirra skemmtilega gamaldags; dæmigert viðskiptaumhverfi vestan hafs á sjöunda áratugnum, en víða bregður fyrir áhrifum frá forn- mexíkóskri byggingarlist sem er snjöll hugmynd. Pað tekur reyndar smátíma að læra að stýra Manny og sum sjónarhom ganga ekki vel upp, en það kemur ekki að sök. Hægt er að keyra leikinn án þrívíddar- hraðals, en hann verður miklu skemmtilegri með hraðli sem vonlegt er. Ekki er gott að segja hversu langan samfelldan tíma tekur að klára leikinn, senni- lega í kringum fimmtíu til sextíu tíma fyrir meðalskussa, en þó er ljóst að þótt gaman sé að leysa hann og vinna á illmenninu í lokin þá er eftirsjá að umhverfinu og Manny og öllum þeim sem verða á vegi hans í landi hinna dauðu. LucasArts-menn hafa sett saman frábæran leik sem blandar sér í toppbaráttuna yfir leiki ársins. Grim Fandango krefst að minnsta kosti Windows 95/98,133 MHz Pentium-örgjörva, 32 MB innra minnis, fjögurra hraða geisla- drifs, PCI-skjákorts með að minnsta kosti 2 MB minni og 16-bita hijóðkorts. DirectX 6.0 fylgir á geisladisknum og verður að setja það upp til að hægt sé að keyra leikinn. Leikur- inn styður Direct3D-þrívíddarkort með að minnsta kosti 4 MB minni. Leikurinn var reyndur á tölvu með 450 MHz Pentium II, 128 MB innra minni, 16 MB Riva TNT-skjá- korti og SoundBlaster Live hljóðkorti. niflheim, land eilífrar hvíldar. Sam- kvæmt þjóðtrúnni er fjögurra ára ferðalag á leiðarenda, en góðir og guðhræddir komast á skemmri tíma, ekki síst ef þeir kaupa pakka- ferð af Manny, til að mynda í bíl, með skipi eða hraðlest #9 sem tek- ur ekki nema nokkrar mínútur. Manny er að vinna upp í skuld við máttarvöldin eftir lastalíf en virðist ævinlega lenda á þeim sem lítinn fjársjóð eiga á himnum og hafa ekki efni nema á göngustaf í mesta lagi. Fyrir vikið er hann búinn að fá við- vörun frá yfirmanninum; ef honum tekst ekki að selja að minnsta kosti einn lúxuspakka verður hann rek- inn. Snemma í leiknum tekst honum þó, með aðstoð þess sem stýrir, að komast að banabeði guðhræddrar Yið hlið níunda niflheims Fremst fyrirtækja í ævintýraleikjum er LucasArts. Árni Matthíasson brá sér í heimsókn í land hinna dauðu í nýjustu af- urð fyrirtækisins, Grim Fandango, sem hann segir einn besta leik ársins. FÁUM fyrirtækjum er eins lagið að gera góða ævintýraleiki og LucasArts. Allt frá því leikirnir um Zack MacCracklin komu út á sínum tíma hefur aðal LucasArts-leikja verið geggjuð kímni og frábær graf- ísk úrvinnsla. Meðal helstu leikja síðasta árs var Monkey Island III og margir hafa reynt að slá þann leik út en engum tekist fyrr en nú að LucasArts-liðar ganga fram af sjálfum sér með leiknum frábæra Grim Fandango. Leikjahönnuðurinn Tim Schafer er mörgum að góðu kunnur, ekki síst fyrir leikina eftirminnilegu Full Throttle og Day of the Tentacle (báða leikina er hægt að fá í ódýrri útgáfu í betri leikjaverslunum og ástæða til að hvetja leikjaunnendur að skella sér á þá, sérstaklega þann síðamefnda). Aðal Schafers er kímnin og nánast súrrealískt hug- myndaflug og Grim Fandango er þar engin undantekning. Fjör í landi hinna dauðu Grim Fandango gerist í landi hinna dauðu. Söguhetjan er Manny Cavalera sem safnar sálum, ef svo má að orði komast, er sölumaður hjá dauðaráðuneytinu. Hann ferð- ast til lands lifenda og hefur upp á þeim sem eru bráðfeigir, sker af þeim hlekki lífsins með ljánum og selur þeim síðan pakkaferðir til ei- lífrar hvíldar. Sagan byggist á mexíkóskri þjóðtrú og gerist í landi hinna dauðu, en um það þurfa fram- liðnir að fara á leið sinni í níunda Skeifunni 11 • Rvk • Sími:550-4444 og Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarf. • Sími 550-4020 Viðskiptavinir athugið: Lokað verður vegna vörutalningar í BT Skeifunni á Sunnudag. BT Hafnarfirði verður opið frá kl.t 3:00-17:00 Sanitarium Frábær ævintýraleikur þar sem þú leikur geðsjúkan mann. Shogo Þrívíddarskotleikur. Frábær Manga-graffk. Pottþéttir dómar! Grim Fandango Himnasending frá Lucas Arts. Ævintýra- leikur af bestu gerð. Carmageddon II Þessi er bannaður innan 18(ekkert grín). Keyrðu allt í klessu! Raifroad lycoon II Þú stefnir að því að verða járnbrautarisi í þessum frábæra leik. Links 99 Ný útgáfa af frægasta golfíeik allra tíma. Hola í höggi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.