Morgunblaðið - 14.11.1998, Síða 54

Morgunblaðið - 14.11.1998, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GYLFIÞOR MAGNÚSSON + Gylfi Þór Magn- ússon fæddist í Vestmannaeyjum 20. desember 1942. Hann lést af slysför- um 6. nóvember síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Hallgrímskirkju 13. nóvember. Það er happ á stuttri lífsleið að fá tækifæri til þess að kynnast sönnu sóma- fólki og enn meiri gæfa að njóta návistar þess í fjöl- skyldu. Slík var gæfa okkar bræðra sem áttum Gylfa Þór Magnússon fyrir mág. Það er með þakklæti í huga sem við lítum til baka og sjáum hvað þessi návist hans veitti okkur. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann og verður um ókomna tíð. Það er erfitt að kveðja svo einlægan og góðan vin sem féll svo snögglega frá. Mildi hans, lífsgleði og styrkur er okkur ógleymanlegur. Gylfi Þór hafði til að bera þann einstaka hæfileika að létta fólki lund og ná fram því besta úr hverjum og ein- um. Þetta gerði hann með kærleika sínum og einlægni og öðrum mann- kostum sem hann hafði til að bera. Við munum seint gleyma því er við, ungir strákar, sáum Gylfa Þór í fyrsta sinn. Á miðjum vetri stóð við útidyrnar annarlega klæddur mað- ur og sagðist hafa leyfi foreldra okkar til að sækja Siggu Dóru syst- ur og fara með hana á dansleik. Við horfðum á hann í forundran enda höfðum við hvorki kynnst svona fágaðri framkomu né séð jafn ung- an mann í kjólfótum fyrr. Annað sinn birtist hann okkur á fallegum sumardegi, albúinn í úti- legu á Land Rover í stuttbuxum. Þegar bíllinn rann í hlað var hann hálftómur að því er okkur fannst. Þarna birtist okkur mat hans á gildi einfaldleika og nægjusemi. Einn svefnpoki, einn bakpoki með helstu nauðþurftum og tveggja manna tjald. Þegar haldið var frá Byggðaveg- inum og tilvonandi tengdafjölskylda hafði sett mark sitt á ferðaundir- búninginn var jeppinn troðfullur af allskonar nýtísku ferðabúnaði sem sennilega hefur ekki verið notaður. Við áttum margar ógleymanlegar stundir í sumarbústað foreldra okk- ar, Bjargarhóli, við Þingvallavatn. Þarf mátti glöggt sjá hve mikill náttúruunnandi Gylfi var. Þar nostraði hann við hvert tré eins og börnin sín og mældi samviskusam- lega vöxt sprotanna milli ára. Þessi natni hans við umhverfið var okkur til eftirbreytni. Þær voru einnig ófá- ar ferðirnar sem við fórum saman á skíði og til veiða. Þar sýndi sig best hvaða mann hann hafði að geyma, drenglyndi hans og íþrótta- mennska. Ræktarsemi hans við for- eldra okkar og fjölskyldur var ein- stök og breytti þar engu um þótt einstakir fjölskyldumeðlimir dveldu í fjarlægum löndum. Hluttekning hans í lífi og starfi okkar var einstök og vakandi áhugi hans á þvi sem á döfinni var hverju sinni. Þessi eigin- leiki var honum fyrirhafnarlaus þrátt fyrir það mikla annríki sem hann bjó við sjálfur dags daglega. Þar nýttust honum vel einstakir skipulagshæfileikar. Margt í fari hans var okkur fram- andi lengi vel, en oftast fór það á þann veginn að við máttum af því læra, enda varð Gylfi fljótt sem okk- ar elsti bróðir. Það hlutverk fór honum vel, enda var þolinmæði hans og jafnaðargeði við brugðið. Mannkostir hans komu kannski best fram í einlægni hans gagnvart börnum, enda gaf hann sig jafnan að þeim óskiptur þar sem þau voru nærri. Hann sýndi fólki jafnan sömu kurteisi í framkomu, hver sem í hlut átti. Þannig var Gylfi. Minning okkar er rík þegar við kveðjum þig kæri vinur, svo langt fyrir aldur fram. Margt áttum við ógert saman, en við trúum að þín hafi beðið verðug verk á æðri stöðum. Elsku Sigga systir, missir ykkar er mikill. Megi góður Guð styrkja ykkur, Magnús Þór og Helga Björg. Hugur okkar er með ykkur. Egill og Örn. Það voru hnípnir samstarfmenn og félagar Gylfa Þórs Magnússonar er gengu að störfum sínum hjá SH þessa vikuna. Líkt og starfsgleðin væri sjóður sem menn höfðu vanist að leggja allir í að morgni dags, hver eftir sín- um kringumstæðum, og taka síðan úr í erli dagsins og alltaf nóg eftir samt. Þessa vikuna vantaði stórt framlag. Okkur var öllum ljóst að það munaði um Gylfa Þór og að héð- an í frá yrði sjóðurinn að vera án starfsgleði hans og birgja sig upp með öðrum hætti. Liðsheildin hafði misst einn af foringjum sínum og við yrðum líka án félagsskapar hans og vináttu. Uti lamdi regnið og vindurinn gnauðaði. Inni var hljóð- ara en endranær því að hvemig mátti það vera að Gylfi Þór birtist ekki framar hress og baráttuglaður, með bros á vör og hvatningarorð okkur öllum til handa? Þau voru víst að verða tólf, árin síðan fundum okkar bar saman hjá SH. Eg var nýbyrjuð en hann að koma heim eftir uppbyggingu sölu- skrifstofu SH í Hamborg og fullur tilhlökkunar að taka við umfangs- miklu starfi hjá fyrirtækinu í Reykjavík. Eg hafði vitað af honum og Siggu Dóru, ungu fólki á Akur- eyri og í Reykjavík, og svo honum í sívaxandi störfum sínum hér heima og síðar landnema í markaðssókn íslenskra fyrirtækja á Evrópumark- aði. En nú fengum við öll í Aðal- strætinu að kynnast Gylfa sem sam- starfsmanni með mikla reynslu, manni með óbilandi trú á farsælar lausnir ei-fiðra verkefna og jákvæð viðhorf til manna og málefna. Sömu eðliskostirnir hlutu að liggja að baki þvi að þessi maður hafði sinnt fé- lagsmálum af miklu kappi, var enn virkur í skátastarfi, var í klúbbum og gönguhópi og átti vini og kunn- ingja um land allt og úti um allan heim. Maður sátta og samlyndis var hann og átti vini í samherjum sínum en ekkert síður í hópi hinna, sem alla jafna voru hluti af samkeppn- inni. Og ekki var hann sporlatur fyrir fyrirtækið sem hann helgaði krafta sína í nær tvo áratugi. Ferðir hans til Rússlands fyrstu árin sem fram- kvæmdastjóri markaðsmála SH voru langar og strangar. Þar reyndi á samningsviljann, lipurðina og seigluna og Gylfi var kominn til að semja. Oftast töldu frystihúsamenn samningana góða og framleiðslan varð mikil en þar kom að þessi markaður lokaðist eins og öllum er kunnugt og þurfti þá að afla nýrra. Þá tók við aukin sókn á Asíumarkað og lengra inn á Evrópumarkað og enn var Gylfi meðal þeirra sem ruddu brautina og leiðbeindi um leið nýjum mönnum af reynslu sinni. Það útheimtir vissulega jafnvæg- islist í útsjónarsemi og lipurð að koma fram fyrir hönd íslenskra framleiðenda og ná sem bestu verði fyrir íslenskar sjávarafurðir jafn- framt því að vera eftirsóknarverður viðskiptavinur erlendra kaupenda. Sér í lagi vilja góðir viðskiptavinir skapa þau tengsl sem verða að trausti til framtíðarviðskipta. Einmitt á þessum vettvangi nutu eðliskostir Gylfa Þórs sín frábær- lega. Hann virðist hafa tekið þá stefnu mjög snemma að viðskipti með íslenskar fiskafurðir þurfi að byggjast á hugsun til framtíðar og trausti milli manna og fyrirtækja fremur en tangarhaldi og skyndivið- skiptum. Nýkominn til Islands eftir störf á Moskvuskrifstofu SH í sumar og haust, var Gylfi enn á ný reiðubúinn að takast af krafti á við ótal ný verkefni og var glaður við þá til- hugsun að geta verið meira með fjölskyldunni. Á skrifstofunum var hann boðinn velkominn heim. Ekki grunaði okkur að jafnframt væri komið að kveðjustund og að svo brátt væri honum ætluð lengsta ferðin. Fjölskyldu Gylfa Þórs Magnús- sonar votta ég mína dýpstu samúð. Alda Möller. Mér brá illa þegar mér var til- kynnt sviplegt fráfall Gylfa Þórs Magnússonar framkvæmdastjóra hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, langt um aldur fram. Við Gylfi kynntumst fyrst ungir, á tánings- aldri, ég örlítið eldri, í Skátafélagi Reykjavíkur. Hann var þá lágvax- inn og frekar samanrekinn ungling- ur, og hélt því vaxtarlagi nokkuð síðan, en varð þó skiljanlega ívið settlegri og virðulegri eftir því sem árin og ábyrgðin færðust yfir. Nokkrum árum eftir þetta tengd- umst við svo fjölskylduböndum sem stóðu lengi. Það var eiginlega ekki nokkur leið að láta sér falla öðru vísi en vel og reyndar ágætlega við Gylfa. Hann var einstaklega geð- prúður og vænn maður, jafnlyndur, viðræðu- og umtalsgóður, léttur í lund, góðviljaður og prúðmenni í öll- um samskiptum, en þó fastur fyrir þegar á þurfti að halda. Þá var hann góður fjölskyldufaðir og lifði fyrir konu sína og börn. Fljótlega eftir að hann útskrifaðist sem viðskipta- fræðingur valdi hann sér þá braut sem síðan varð ævistarf hans, störf að sölumálum íslenskra sjávaraf- urða erlendis. Eg þekkti að vísu aldrei náið til verka hans þar per- sónulega, en ég get þó ekki ímyndað mér annað en að skapgerð hans öll og lyndiseinkenni hafi notast þar vel sem endranær við oft á tíðum flókna og erfiða samningagerð. Eftir því sem á ævina líður átta menn sig venjulega sífellt betur á því hvað traustur og góður vinahóp- ur er þeim mikils virði og nauðsyn- legur. Án hans getum við einfald- lega ekki vökvað lífstréð eins og okkur öllum er óhjákvæmilegt. Þá verðum við eins og þöllin fræga í Hávamálum. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt vináttu Gylfa Þórs allan þennan tíma, sem mér finnst raunar að hefði átt að fá að vera miklu lengri. En gagnvart hinstu rökum lífs og dauða stendur allur mannleg- ur kraftur máttvana. Þá verðum við að taka því sem að höndum ber og standa á fótunum. Ég minnist sér- staklega nokkurra góðra og nota- legra stunda sem við áttum tveir einir saman, einkum í Hamborg og í Lundúnum hér á árum áður. Seinni árin urðu samskiptin sjálfsagt dálít- ið strjálli en við hefðum örugglega báðir kosið, en þó hringdumst við gjarnan á og fórum oft í smiðju hvor til annars ef öðrum lá á einhverju. Það var alltaf gott að leita til Gylfa. Fyi-ir þetta þakka ég að lokum, og farðu vel vinur. Eysteinn Sigurðsson. Lát Gylfa kom sem reiðarslag og minningarnar hrannast að. Hversu oft höfum við ekki heyrt um glað- væru hópana með hvítu húfurnar, sem gengu í blíðunni frá gamla timburhúsinu niðri í Lækjargötu? Fjögur ár liðin eða sex, gleði og hamingja á þjóðhátíðardaginn. I gegnum tímans rás, svo margir hóp- ar, óteljandi ræður, viðkvæmni og klökkvi. Virðulegir öldungar og myndarlegar konur, sem stigu fyrstu sporin. Brutu blað og sköp- uðu sögu. Hver glaðværi hópurinn hélt sína leið. 0, gömlu, dýrlegu æskuár, þið komið ekki aftur. Ar- gangur sextíu og þrjú drúpir nú höfði í hryggð. Gylfi var yndislegur vinur og bekkjarfélagi, hægur og traustur. Við ólumst upp saman í Hlíðunum og aðeins nokkrir mánuðir eru síðan við héldum upp á 35 ára stúdentsaf- mælið. Viðhorf hans til líðandi stundar var alltaf málefnalegt og uppörvandi. Hann sameinaði þá fá- gætu eðliskosti, sem gaman er að gleðjast með og gott að leita til, þeg- ar á móti blæs. Gylfi varð snemma félagsmála- maður og reyndar haggaðist hann aldrei í grundvallar viðhorfun sínum allt sitt líf, - frímúrari og sjálfstæð- ismaður. Hann tók þátt í stúd- entapólitík og var skáti. Við, sem fórum á Ulfljótsvatn sjö ára gömul og þrömmuðum tugi kílómetra um Grímsnesið, án þess svo mikið að drekka deigan dropa úr öllum tæru lækjunum á leiðinni, skiptum hreyf- ingunni gjarnan í alvöru- og stofu- skáta. Alvöru voru vaktir kl. 2 um nótt, til þess að storma upp á holt og verja vígið og skirrast ekki við að hirða lífið af andstæðingunum, sem reyndar var grisjubindi. Þá sofnuðu nú bara sumir á þúfu úti í guðs- grænni náttúrunni. Gylfi sofnaði aldrei, ái*verkni hans var við brugðið. Vígið var varið til hinstu stundar. „Immer der Alte“, - hann var alltaf samur og jafn. Það þyrmir yfir hópinn frá sextíu og þrjú og við hrópum í hnattahyl, en fáum ekkert svar. Svo óvænt var höggið og hörmulegt. Nú haustar og grasið sölnar neð- an Iþöku. Enn ein saga er nú sögð um eitt sinn glaðværan hóp, sem drúpir höfði. Hvar eru öldungarnir eða peysufatakonurnar, sem brutu blað? Ekki til, - við skyggnumst um, - þetta er allt ungt fólk. Það stendur enginn lengur en hann er studdur. „Integer vitae“, - hreina, göfuga líf, sem lýtur þeim ávallt, sem gaf það og á það að eilífu. Birtan yfir minningu Gylfa er svo sterk, að erfitt er um vik með þessar línur. Ég votta eiginkonu og börn- um, ættingjum og vinum mína dýpstu samúð. Algóður guð styrki þau í þungbærri sorg og veiti Gylfa mínum sinn frið. Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Gylfí Þór Magnússon var fæddur í Vestmannaeyjum en fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur þegar hann var fárra ára og ólst Gylfi upp á Melunum og síðar í Hlíðunum. Heimili þeirra Magnúsar Guðbjarts- sonar og Sigríðar Benónýsdóttur var heimili friðar og kærleika. Ekki aðeins báru öll samskipti þeirra hjóna og barnanna, Elísabetar og Gylfa, þess merki, heldur var öllum sem þangað komu, ungum sem öldn- um, háum sem lágum, sýnd virðing og umhyggja. Sama bróðurþel ein- kenndi allt líf og starf Gylfa Þórs. Þegar Gylfi var nær ellefu ára af- réð hann að leita inngöngu í Skáta- félag Reykjavíkur. Þar hófst langur og heilladrjúgur ferill skátastarfs sem báðir aðilar nutu góðs af, Gylfi og skátahreyfmgin á Islandi. Á þessum tíma hófst samstarf okkar Gylfa og ævarandi vinátta. Við höfð- um reyndar hist nokkrum sinnum í afmælum sameiginlegs kunningja og vorum báðir fæddir í Vestmanna- eyjum sama árið, en þekktumst ekki að ráði fyrr en skátastarfið var haf- ið. Á 45 árum hafa leiðirnar oft legið saman og mörg samtölin átt sér stað. Á liðsinni Gylfa og góð ráð var alltaf unnt að treysta. Ég væri vissulega ánægður ef ég gæti verið viss um að hafa gefið honum þó ekki væri nema lítið eitt á við það sem hann hefur veitt mér. í skátastarfinu sem annars staðar var Gylfi Þór ávallt hinn trausti fé- lagi. Menn sóttust eftir því að fá að starfa með honum og með störfum sínum án alls hávaða sýndi hann að honum mátti treysta til þýðingar- mikilla starfa. Innan skátahreyfíng- arinnar gegndi Gylfi margvíslegum trúnaðarstörfum og sat m.a. nokkur ár í stjórn Skátafélags Reykjavíkur. Fyrsta Gilwell-námskeiðið var haldið hér á landi haustið 1959, en Gilwell-þjálfunin er höfuð foringja- þjálfunar skáta. Mikill áhugi var meðal skátaforingja íyrir þátttöku á þessu námskeiði. Einn hængur var þó þar á, þátttakendur skyldu vera orðnir 18 ára samkvæmt alþjóða- reglum Gilwell-skólans. Þetta fannst sumum ekki geta átt við hér á landi þar sem skátaforingjar væru al- mennt mun yngri en í öðrum lönd- um. Eftir nokkra baráttu var fallist á að aldursmarkið mætti færa niður um eitt ár á þessu fyrsta námskeiði og miða við almanaksárið. Því feng- um við Gylfi báðir að sækja þetta fyrsta námskeið okkur til mikillar ánægju og fræðslu. Það er til marks um skynsamlegt mat Gylfa að hann sótti Gilwell-námskeið aftur nokkrum árum síðar til þess að geta tileinkað sér enn betur það sem þar var kennt, eins og hann sagði sjálf- ur. Gylfi gerðist ungur félagi í Frí- múrarareglunni og starfaði ötullega þar æ síðan. Hann naut starfsins í hvívetna og bræðurnir nutu þess að starfa með honum. Þar voru honum falin trúnaðarstörf sem hann rækti af þeirri alúð og samviskusemi sem vænta mátti. Eftir að Gylfi hafði lokið námi í viðskiptafræðum frá Háskóla Is- lands stundaði hann æ síðan störf á sviði viðskipta þar sem hæfileikar hans nutu sín vel. Með yfirvegun í athöfnum og orðum átti hann auð- velt með að vinna menn á sitt band. Þeir sem áttu við hann viðskipti komust fljótlega að því að treysta mátti því sem hann sagði. í viðskipt- um jafnt og í einkalífi myndaði Gylfi Þór varanleg bönd byggð á trausti. Eitt fyrsta starf Gylfa að loknu háskólaprófi var við fjármálastjórn húsgagnaverksmiðjunnai’ Valbjark- ar á Akureyri. Dvölin nyrðra varð örlagavaldur í lífi hans þegar hann kynntist Sigríði Dóru Jóhannsdótt- ur. Þau voru gefin saman í hjóna- band fyrir 27 árum. Á heimili þeirra, hvort sem var í Reykjavík, Ham- borg eða á Akureyri hefur verið gott að koma. Þar skortir aldrei virkt við þá sem ber að garði og allir hlutir gerðir af einstakri smekkvisi og natni. Gylfi og Sigga Dóra voru sam- hent hjón og nánast sjálfgefið að þegar nefna ætti annað hvort þá væru þau bæði nefnd. Saman hafa þau alið upp tvö mannvænleg börn sem bera foreldrum sínum og góðu uppeldi fagurt vitni. Lengstan hluta starfsævi sinnar vann Gylfi að sölumálum sjávaraf- urða, fyrst hjá Sölustofnun lagmetis en lengst af hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, þar sem hann hefur nú um árabil verið einn af lykil- mönnum farsæls starfs. Verður vandfyllt það skarð sem þar mynd- ast við fráfall hans. Það hefur verið ómetanlegt að fá að lifa og starfa með Gylfa Þór. Ég hef engan átt sannari vin og félaga. Hann var ávallt til staðar þegar á þurfti að halda, reiðubúinn að veita þá aðstoð sem þurfti. Margt mætti nefna en eitt einstakt vinarbragð kemur óhjákvæmilega upp í hugann. Á einum af fyrstu búskaparárum okkar Kristínar vantaði skyndilega einhvern til þess að gæta ungs sonar okkar milli 8 og 9 á morgana um tveggja vikna skeið. Auðsótt reyndist að fá Gylfa til þess að leysa vandann, gæta Magnúsai' Más og koma síðan í leikskóla þegar hann opnaði. Til þess að lýsa Gylfa Þór Magnús- syni mætti nota flest jákvæð lýsing- arorð íslenskrar tungu, en það verð- ur varla betur gert en með því að segja: Hann var drengur góður. Þannig mun hans lengi verða minnst af fjölda samferðamanna. Gylfi vai' þeirrar gerðar að hverjum þeim sem kynntist honum hlýtur að hafa reynst erfitt að láta sér líka illa við hann. Þeir eru margir sem sakna nú vin- ar í raun, sem kallaður er til nýrra heimkynna svo fyi'irvaralaust og ótímabært. Mestur hlýtur þó sökn- uðurinn að vera hjá Sigríðunum tveimur í lífi Gylfa Þórs, móðurinni og eiginkonunni, og börnum hans tveimur. Megi hæstur höfuðsmiður veita þeim styrk, von og trú á erfið- um stundum. Halldór S. Magnússon. Látinn er um aldur fram vinur og samstarfsmaður í mörg ár. Gylfí Þór Magnússon fæddist í Vestmannaeyj- um í árslok 1942 en faðir hans, Magnús G. Guðbjartsson, hafði í ársbyrjun 1941 keypt íshús Böðvars Árnasonar í Eyjum og stofnað um það fyrirtækið Is og fisk hf. Félagið hóf framleiðslu frystra fískafurða á árinu 1942, árið sem Gylfi Þór fædd- ist og Sölumiðstöð hraðfrystihús-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.