Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 71

Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ HESTAR bara þeirri þjónustu sem býðst þótt aðrir líti frekar til íslands sem upprunalandsins. Við gætum svo auðveldlega sett upp þjónustu við bandaríska eig- endur íslenskra hesta og áhugafólk hér heima. Til dæmis með því að bjóða þeim upp á að koma hingað í viku til tíu daga til að læra um ís- lenska hestinn, prófa hann, taka þátt í félagslífi og skemmtunum og sjá sýningar svo það geti upplifað allt sem við gerum með íslenska hestinn hér á Islandi." Hagsmunir heildarinnar verða að vera í fyrirrúmi „Það er áríðandi í því markaðs- starfi sem unnið er og verður unnið í framtíðinni í Bandaríkjunum að allir hugsi um hagsmuni heildar- innar. Nú þegar eru komin upp margvísleg vandamál sem skemmt gætu markaðinn. Þetta eru vanda- mál sem skapast hafa vegna lé- legra viðskiptahátta af hálfu Is- lendinga og einnig Bandaríkja- manna, en einnig vegna vankunn- áttu. Það er því nauðsynlegt að við einbeitum okkur að því sem vel er gert og eflum fræðslu til að koma í veg fyrir að fólk sé að gera miður góða hluti aðeins vegna vanþekk- ingar.“ A síðasta ári var kynnt hugmynd um að gefa út handbók um íslenska hestinn, en enn hefur ekki orðið af því að hún yrði gefin út vegna fjár- skorts. Þetta er þó verkefni sem Hulda segir nauðsynlegt að hafi forgang og muni nýtast nýjum eig- endum íslenskra hesta hvar sem er. „Það mætti líkja þessari bók við handbók sem fylgir hverjum bíl. I henni væri hægt að fletta upp á hvernig gera á hlutina, t.d. hvernig nasamúll á að sitja. Grundvallar- upplýsingar um fóðrun, hirðingu, járningar og fleira er hægt að setja upp á einfaldan hátt í svona bók. Sumum finnst þetta kannski óþarfi, en það er margt fólk sem þarf á þessum upplýsingum að halda. Þessa bók væri hægt að gefa út á mörgum tungumálum auk íslensku. Eg sá öfgakennd dæmi um van- kunnáttu í ferð minni til Bandaríkj- anna og við þurfum að koma í veg fyrir slíkt.“ Gljáfægð og vel haldin liross „Það er ljóst að markaðurinn í Bandaríkjunum er óþrjótandi. Við þurfum að komast yfir ákveðin vandamál en þau eru ekki óyfir- stíganleg. Fyrst þurfum við að ein- beita okkur að frístundamarkaðn- um og ég er sannfærð um að í kjöl- far þess getum við farið að senda út dýrari hross, sem vissulega eru þegar fyrir hendi í Bandaríkjunum á nokkrum stöðum. Þetta ferli yrði í samræmi við reynslu knapanna. En reynslan sýnir að eftir því sem færni og kunnátta eykst sækir fólk í hross sem hæfa aukinni getu.“ Hulda segir að sumarexem sé til staðar á sumum stöðum í Banda- ríkjunum en sé ekki eins mikið vandamál og víða í Evrópu. Svo virðist sem hross í Kaliforníu fái yfirleitt ekki sumarexem. „Mér fannst merkilegt hvað ís- lensku hestunum virtist líða vel í Kaliforníu þrátt fyrir hitann, en þau eru yfirleitt rökuð á veturna. Einnig var ég mjög ánægð með að sjá hvað íslensku hrossin voru alls staðar vel haldin. Það er greinilegt að fólk leggur mikið upp úr snyrti- mennsku og að fóðra hestana sína vel. Við þurfum að hafa þetta í huga og kynna hestinn okkar sem snyrtilegan og glæsilegan hest. Eg hef sjaldan séð eins gljáfægða hesta og á sýningunni sem ég fór á. Það versta sem við getum gert sjálfum okkur er að senda lélega og ljóta hesta á þennan markað. Það borgar sig ekki. Þá erum við bara að skjóta okkur í fótinn!“ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 71 Einnig frá Ravensburger... Púsluspil Fjölskytduspil Þroskaspif IWálað eftir númerum RENAULT Ármúli 13 Sími söludeild 5751210 Skiptiboró 575 1200 Clio heillar alla. Hann ertraustur, Ijúfúrog lipur og með línurnar í lagi. Clio hefur alla kosti smábfls, en þægindi og öryggi stærri bíla. Helstu öryggisþættir: - ABS bremsukerfi Verð ffá 1.188.000 kr. - Loftpúðar - Fjarstýrð hljómtæki úrstýri - Samfellanlegt stýri - Nýtegund öryggishöfuðpúða ™ M Mazda Demio Mazda Demio er fjölnota bíll sem er kjörinn fyrir þá sem hafa í mörgu að snúast. Hann er þeim frábæru eiginleikum búinn að á svipstundu er hægt að breyta honum úr fjölskyldubíl í vinnubíl sem rúmar vörur og kassa eða tómstundabíl fyrir skíðabúnaðinn, útilegudótið eða hnakkinn á hestinn. Hann er fallegur og einstaklega hentugur. Mazda Demio er alltaf til í allt! Verð: Oemio LX 1.215.000 kr. □emio GLX 1.595.000 kr. - ávallt viðbúinn! mazoa Skúlagata 59 • Sími 540 5400 • www.raesir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.