Morgunblaðið - 14.11.1998, Side 78
78 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
HA'HAfAP S7A ÞeSSI
‘ LAFANÞl eifSUf
AT> SJA pBSSA ÍLAfO
ANPI unoirhöku.'
Hundalíf
Ferdinand
Smáfólk
Jæja, félagar ... svarið þegar Hrói...
ég kalla upp nöfn ykkar ...
Segðu bara „hér“ ... þú þarft
ekki að útskýra hvers
vegna...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Vandinn hefur vax-
ið með aukinni synd
Frá Einari Rafni Stefánssyni:
SVONA hefði fyrirsögnin getað
hljóðað í Morgunblaðinu hinn 4.
nóvember sl. Eg gat ekki varist
reiði er ég las þessa grein. Reiður
og sorgmæddur yfir því að þeir
sem setja lög skyldu láta blinda sig
svo að leyfa þann ósóma sem spila-
kassar eru - í staðinn fyrir að þjóna
og vernda okkur, börn, konur,
menn og fjölskyldur frá hvers kon-
ar tortímingu þá er látið glepjast.
Og á kostnað hvers? Sagt var frá
tekjuaukningu og jafnframt fjölgun
þeirra sem eru í böndum spilafikn-
ar. Hvað kostar það okkur sem fjöl-
skyldu í ómældum tárum, angist,
ótta og peningum? Sálin er bundin í
synd sem ýtt er undir af stjórnvöld-
um. Það ætti einhver að blygðast
sín og iðrast gjörða sinna og biðja
Guð almáttugan fyrirgefningar og
snúa sér frá fyrri gjörðum Guði til
dýrðar.
Það vekur furðu mína að stofn-
um eins og Háskóli íslands sem á
að vera æðsta mennta- og menn-
ingarstofnum landsins, full af
þekkingu og visku og á að vita bet-
ur hvað orsakar hnignun og sundr-
ung í þjóðfélagi, skuli taka þátt í
slíku böli.
Guð segir í Matteusarguðspjalli
6:22-24: „Augað er lampi líkamans.
Sé auga þitt heilt, mun allur líkami
þinn bjartur. En sé auga þitt spillt,
verður allur líkami þinn dimmur.
Ef nú ljósið í þér er myrkur, hvílíkt
verður þá myrkrið. Enginn getur
þjónað tveimur herrum. Annað-
hvort hatar hann annan og elskar
hinn eða þýðist annan og afrækir
hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og
mammón." Hverjum ætlar þú að
þjóna? Þeim sem vill gefa þér líf og
það ríklegt? Eða þeim sem vill
ræna þig lífi? Upp til hvers erum
við að líta þegar við ættum að líta
niður á hann? Það er ekki út af
engu að á mörgum stöðum, þar sem
spilakassarnir eru, eru þeir á lítt
áberandi stöðum. Það býr blygðun í
hjartanu. Hafið þið ekki sannfærst
enn? Það vildi ég að þið gætuð séð
það fólk sem kemur til SAA niður-
brotið, lífið ein rjúkandi rúst. Þór-
arinn sagði, að þetta væri okkar nú-
tími og hluti af alþjóðlegri þróum,
sem ekki yrði stöðvuð. Nei, nei, nei,
við getum stemmt stigu við þessu
og sent það þangað sem það kom
frá.
Það var einn sem hélt að hann
væri búinn að sigra og að öllu væri
lokið sér í hag. En lítið vissi hann
að Jesús Kristur myndi rísa upp frá
dauðum og sigra þann kauða. Megi
Jesús Kristur rísa í hjörtum okkar
og gefa okkur það líf sem gefur
okkur vilja og kjark til að berjast á
móti því sem vill ræria okkur og
börn okkar Guðs gjöf. Því sem vill
myrkva sálir okkar og líf. Guð seg-
ir: Þar sem fólkið kastar frá sér að-
haldi þá ferst það.
Að lokum er svo rétt að minna á
ábyrgð foreldranna í þessu sam-
bandi. Nauðsynlegt er að foreldrar
ræði við börn sín um þær hættur
sem geta fylgt spilakössum og
fylgist með því sem börn þeirra eru
að gera.
EINAR RAFN STEFÁNSSON,
Smyrlahrauni 25, Hafnarfirði.
Tryggingar?
Frá Jóhannesi Þór Guðbjartssyni:
ÞAÐ ER farið að verða daglegt
brauð að sjá í dagblöðum heilsíðu-
auglýsingar frá tryggingafyrir-
tækjum um allskonar fjölskyldu og
heimilistryggingar og helst eru
þær þannig útfærðar að kaupir þú
þær ekki þá sértu eigingjarn og
þyki ekkert vænt um bömin þín.
Eg er nú svo einfaldur að halda að
með því að borga skatta (beina og
óbeina) væri ég búinn að kaupa
mér tryggingar hjá þeim aðilum
sem ég greiddi skattinn.
Það hlýtur að vera misskilningur
hjá mér því annars væri ekki verið
að auglýsa þessar tryggingar.
Maður sér allavega ekki heilsíðu
auglýsingar frá ríkisstjórninni um
þann rétt sem svona greiðslur mín-
ar til þeirra gefa mér.
Eg heyrði af kynningu á trygg-
ingum og verðbréfum fyrir eldri
borgara nýlega og sagði sá sem
sagði mér að ræðumaður hafi end-
að á því að tjá fundarmönnum að
þegar upp væri staðið gætu þau átt
allt að 20 milljónum króna. Fannst
honum það að vonum ekki lítils
virði að eiga tuttugu milljónir til að
taka með sér í gröfina.
Fyrir utan það að maður væri
búinn að borga skatta og allskonar
gjöld til ríkis og bæja í þeirri trá að
hann væri að vinna sér inn ákveð-
inn rétt til þjónustu ef eitthvað
bæri útaf hjá honum.
Er það virkilega meiningin hjá
landsfeðrum okkar að láta fjár-
málamenn vaða uppi með allskon-
ar fjárplógsstarfsemi í nafni
frjálshyggju og afnema allt sem
áunnist hefur með margra ára
uppbyggingu trygginga og sjúkra-
kerfís.
Ef tráa skal þeim auglýsingum
sem maður sér í fjölmiðlum þá er
það meiningin. Ekki er einleikið
hve læknis- og sjúkrakostnaður
hefur aukist að undanförnu og
nægir að vitna í skýrslu landlækn-
is um að margir fá ekki þá læknis-
aðstoð sem þeir þurfa því þeir
hafa ekki efni á henni. Ég vill með
bréfi þessu vekja athygli á þessu
og skora á ríkisstjórnina að at-
huga þessi mál áður en í óefni er
komið.
JÓHANNESÞÓR
GUÐBJARTSSON,
framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.