Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 81

Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 81 í DAG ÁRA afmæli. í dag, laugardaginn 14. nóv- ember, verður níræð Helga Elísdóttir frá Gilsbakka á Hellissandi. Eiginmaður hennar, Kristjón Jónsson, lést árið 1983. Helga dvelst nú á heimili dóttur sinnar á Öldugötu 4, Hafnarfírði. . ÁRA afmæli. Á morgun, sunnudag- inn 15. nóvember, verður sextugur Garðar Ingvar Sigurbjörnsson, Hraun- brún 27, Hafnarfirði. Eig- inkona hans er Birna Jóns- dóttir. Þau taka á móti gest- um í dag, laugardaginn 14. nóvember, í Stjörnuheimil- inu við Ásgarð í Garðabæ, frá kl. 20. Nína ljósmyndari. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. september í Bú- staðakii'kju af sr. Pálma Matthíassyni Oddur Haf- steinsson og María Auður Steingrímsdóttir. Heimili þeiira er í Dalalandi 9. BRIDS Með morgunkaffinu Unisjón liuðmiindiir Páll Ai'iiarxnn Eftir opnun austurs á einu 15-17 punkta grandi verð- ur suður sagnhafi í fjórum hjörtum. Settu þig í hans spor: Austur gefur; NS á hættu. Norður A K64 V 1098 ♦ KG9 •?» Á763 Vestur Norður Austur Suður - - lgrand 2hjörtu Pass 4hjörtu Allirpass Vestur spilar út spaða- gosa, sem þú gefur. Aftur kemur spaði og nú tekur austur með drottningu og spilar svo spaðaás. Hvern- ig viltu spila? Það er deginum Ijósara að austur á hvern punkt sem úti er. Sem er að sumu leyti gott, því þá gengur hjartasvíningin, en að öðru leyti slæmt, því þá misheppnast svíning fyrir tíguldrottningu. En vestur gæti náttúrulega átt tígul- tíu og því kemur hring- svíning til álita, þá er tígulgosa spilað úr borði til að þvinga út drottninguna, og níunni síðan svínað í bakaleiðinni. En það er til öruggari leið, því það er vitað að austur á líka hjónin í laufi. Það þýðir að hægt er að ná á hann kastþröng í láglit- unum: Norður A K64 V 1098 ♦ KG9 *Á763 Vestur Austur ♦ G10932 * ÁD8 »2 V K53 ♦ 8752 ♦ D104 * 952 * KD108 Suður é75 VÁDG764 ♦ Á63 *G4 En fyrst verður að gefa slag. Og það verður best gert með því að henda tígli í þriðja spaðann! Austur skiptir væntanlega yfir í laufkóng, sem er drepinn og hjarta svínað. Síðan er trompunum einfaldlega spilað í botn og austur verðui- annaðhvort að fara niður á drottningu aðra í tígli eða henda laufdi-ottn- ingu. ... símtal úrflugvél til að segja að þú saknir hennar. TM Reg U.S. Pat. Off. — all rights reserved (c) 1996 Los Angeles Times Syndicate HÖGNI HREKKVÍSI COSPER VIÐ fáum alltaf klefa fyrir okkur þegar Bjarni er með gítarinn. STJÖRNUSPA cftir Frances Drake * * SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú ert fagurkeri og leggur mik- ið upp úr því að gera um- hverfí þitt vistlegt. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú ert í toppformi og nýtur þess að vera til. Það ætti ekki að vera þér erfitt þar sem allt hefur gengið þér í haginn að undanfórnu. Naut (20. apríl - 20. maí) f** Þú þarft að ganga úr skugga um að ekki sé verið að ganga á rétt þinn. Kynntu þér reglur laganna og hvort allt er eins og það á að vera. Tvíburar (21. maí - 20. júní) AÁ Það gæti verið tilbreyting að ganga í vinnuna því þú sérð umhverfið í öðru ljósi. Þú gætir líka hitt áhugavert fólk á leiðinni. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú ert með óþarflega miklar áhyggjur af fjárhagnum því hann er ekki eins slæmur og þú heldur. Ljón \ (23. júlí - 22. ágúst) Kátínan hefur ráðið ríkjum hjá þér um tíma og engin ástæða til annars en að halda henni við. Hláturinn lengir lífið. Meyja (23. ágúst - 22. septembcr) fii Þú ert þreyttur og eitthvað annars hugar í vinnunni og ættir að koma þér snemma í háttinn til að vera betur undir morgundaginn búinn. Vog xrx (23. sept. - 22. október) 4* 4* Það er kominn tími til að leysa frá skjóðunni og opin- bera leyndarmálin fyrir vin- um sínum. Þeir munu launa þér traustið með stuðningi sínum. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undr- ast þín eigin viðbrögð. Láttu það þó ekki slá þig út af lag- inu og haltu þínu striki. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) tScf Þér gengur allt í haginn og aðrir undrast á velgengni þinni. Njóttu þess en vertu meðvitaður um að lánið get- ur verið fallvalt. Steingeit (22. des. -19. janúar) Þú þarft að fara ofan í saumana á verkefni þínu jafnvel oftar en einu sinni. Þú munt svo sannarlega ekki tapa á því í þetta sinnið. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Ef þú vilt styrkja vináttu- böndin skaltu muna að góðir vinir geta verið saman bæði í sorg og gleði. Leyfðu vin- um þínum að umvefja þig kærleika nú. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkama þinn. Gefðu honum gætur og sinntu þörfum hans. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Sendi öllum ættingjum mínum og vinum, hugheilar þakkir fyrir heimsóknir, gjafir, blóm og skeyti og gerðu mér áttrœðisafmœlis- daginn minn 29. október sl., ógleymanlegan. Guð launi ykkur öllum. Kristín Magnúsdóttir, Réttarholti, Garði. YOGASTÖÐ VESTURBÆJAR I HUSI SUNDLAUGAR SELTJARNARNESS YOGA YOGA YOGA Priðjudaga og fimmtudaga kl. 10:15 Þriðjudaga og föstudaga kl.17:30 Leiöbeinandi: ANNA BJÖRNSDÓTTIR, yogakennarl Innritun og upplýsingar í sima 561 0207 SKIPTILINSUR 6ÍPAKKA FRÁ KR. 3.000 GLERAUGNABUDIN Helmout Kicidler 9 Gömlu dansarnir í Hreyfilshúsinu í kvöld kl. 22.00. Fé/ag harmonikuunnenda. í dag kl. 12—17: Kynning á S 0 1 r h Y S SNYRTIVÖRUNUM Snyrtivörur fyrir alla aldurshópa. Kaupauki fylgir. Hagkaup KRINGLUNNI Pantið jólafötin á alla íjölskylduna ur stærsta vörulista Evrópu Allar stærðir Opið á laugardögum til jóla Ármúla 17A - Sími 588 1980 - Fax 588 1985 Opið 11-17 mán.-fös. og 10-15 laugardaga. ottolisti@heimsnet.is 01111 á frábæra verði. Kynning á ostum í Kolaportinu um helgina Tangi Grund- arfirði selur allt úr sjónum nema hval Við höldum áfram með matvælahátíðina og um þessa heigi er Ostamarkaðurinn með kynningu á ostum frá öllum heimshornum. Samtökin sókn gegn sjálfsvígum eru með kökusölu og aðili frá Patreksfirði kynnir og selur hcilsukrem unnið úr ísienskum jurtum. Það var fjör á matvælahátíð Kola- portsins um síðustu helgi og fullt út úr öllum dyrum á sunnudeginum. Allir söluaðilar á matvælum eru nú komnir inn í matvælamarkaðinn og stemmningin var frábær. íslensku kartöflurnar runnu út, hákarlinn var í hverjum poka, margir keyptu laxinn og síldin seldist vel. Tangi á Grundarfirði er dæmi um aðila sem selur sína vöru án milliliða í Kolaportinu. Þau veiða fiskinn, vinna hann og selja síðan beint til neytenda í matvælamarkaðinum. Tangi er með fjölbreytt úrval af sjávarvöru og selur næstum allt nema hval. Þar má til dæmis nefna lausfryst ýsuflök, útvötnuð saltfiskflök, sól- þurrkaðan saltfisk, skelftsk, rækju, hörpudisk, lax, saltaða og kæsta skötu, gellur, kinnar og margt fleira. Sumir eru líka með óvenjulega vöru eins og Gylft sem selur sænauta-, og hámerarkjöt. Heimsókn í matvælamarkað Kola- portsins er ekki bara athyglisverð, heldur líka skemmtileg og hagkvæm. Látið ekki góða matvöru á lágu verði sleppa firá ykkur. Litið við í Kolaport- inu, uppliftð einstaka stemmningu og verslið við síðustu kaupmennina á horninu sem fyrirfmnast hér á landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.