Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 85
FÓLK í FRÉTTUM
SPIKE LAUGAVEGI 37 SIMI 561 6080
2 fyrir 1 á Foreldragildruna kl. 3 og 5.20
S4Miili3ll KRINGLU m
/
FLOTT FLIS FÖT
mllljónlr llta
, nel smá grfn •••
••• en fjölmarglr lltlr
Sannkölluð upplifun
*
Okeypis ó
Guffagrín
kl. 3 og 5
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
MARGRÉT Kristín Blöndal á Popp
í Reykjavík-tónleikunum.
mynd er svo geggjuð að ekki sé
vert að reyna hana; heyr til að
mynda lagið Heartbomb sem verð-
ur trauðla lýst með orðum. Ekki
má þó skilja þetta sem svo að plat-
an sé sundurlaus grautur, langtífrá;
Mai-grét hnýtir hana saman og
þegar hlustað er á af kostgæfni er
allt ofur rökrétt, meira að
segja skyndilegar taktskipt-
ingar eða hljómagangur ut-
an úr geimnum í rólyndis-
legri ástarballöðu; allt á sér
stað og tíma og allt í einu.
Bestu lög á plötu Mar-
grétar eru einmitt þau þar
sem hún gefur sköpunar-
gleðinni lausan tauminn,
Heartbomb er hreint frá-
bært lag með víruðum takt-
grunni og framandlegu
kryddi, I Cuba, glaðvært
sumar á ströndinni með
tígrishákarlinn sveimandi
fyrir utan og blóðrautt sól-
arlag. Eftirminnileg er
textalínan: He’s chopping
me up / I feel so displaced!
Vekur reyndar athygli að
undir glaðværu yfirborði er
þung undiralda í textunum
og sumir beinlínis óþægi-
lega opinskáir.
Fjölbreytni plötunnar
hefur sett suma gagn-
rýnendur út af sporinu og
skiljanlegt, því stundum
þarf djúpköfun til að greina
þræðina sem hnýta allt
saman. A tónleikum Mar-
grétar með hljómsveitinni
hefur mátt greina að hún
hefur komið einhverjum
böndum á sköpunar- og spil-
agleðina en vonandi sleppir hún
fram af sér beislinu þegar næsta
skífa er tekin upp því það er
einmitt ólgandi fjörið og óhemju-
gangurinn sem gerir plötuna eins
frábærlega skemmtilega og hún
vissulega er, sannkölluð upplifun.
Árni Matthíasson
roksýMw^ Á au/lav
KL. 5 M£f> Í5L£M$KV TAU
OG KL 9 BS/SKU TALI
Fyrsta tækifæri til að sjó nýju Disney myndina.
TREFLAR 1890
HÚFUR 1390
TÓNLIST
Geisladiskur
NATURALLY
Fyrsta breiðskífa Margrétar
Kristfnar Blöndal, Möggu.
Stínu, sem hún kýs að kalla
Naturally. Margrét semur lög
og texta á plötunni en Gra-
ham Massey leggur henni lið
við lagasmiðarnar í fjórum
laganna. Hljóðfæraleikur er í
höndum Grahams Masseys,
Jóhanns Jóhannssonar og
Valgeirs Sigurðssonar, Guðni
Finnsson leikur á bassa og
Arnar Geir Ómarsson á
troinmur, en einnig koma við
sögu fjölmargir aðrir, blásar-
ar, strengjaleikarar og svo
má telja. 45,22 mín. One
Little Indian gefur út, Japís
dreifir.
Á TÓNLEIKUM sem
haldnir vora undir yfir-
skriftinni Popp í Reykjavík
í haust kom Margrét Krist-
ín Blöndal, Magga Stína, sá
og sigraði með hljómsveit
sinni. Bæði var að Margrét
var ákveðin og einörð og
svo var hljómsveitin sem
hún hafði sér til stuðnings
frábærlega vel samansett.
Tónlistin sem Margrét og
hljómsveit fluttu var margklofin,
óteljandi straumar hrísluðust yfir
viðstadda, allt frá léttu heillandi
poppi í villta Ham-keyrslu og
þannig er því einnig farið á plöt-
unni hennar Naturally sem hér er
gerð að umtalsefni.
Víða er við komið og engin hug-