Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 92
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
LAUGARDAGUR 14. NOVEMBER 1998
VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kristján Ragnarsson
formaður LIU
Tækjum
afstöðu á
Tæp 4% landsmanna
vilja kaupa hlut í FBA
Drengur í
lífshættu
eftir um-
grundvelli
jafnræðis
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður
LÍÚ, segir að ef lögð verði fram til-
laga um gjald á allar auðlindir á ís-
landi verði útvegsmenn að taka af-
stöðu til hennar á grundvelli jafn-
ræðis. Hann ítrekar hins vegar and-
stöðu við auðlindagjald á sjávarút-
veginn.
Kristján var spurður um afstöðu
til hugmynda Þorsteins Pálssonar,
sjávarútvegsráðherra, um jafnræðis-
reglu við nýtingu auðlinda og gjald-
töku, sem hann reifaði á fundi smá-
bátasjómanna á fimmtudag.
„Sjávarútvegsráðherra var þarna
að ræða um þetta á þeim grunni sem
þessi auðlindanefnd á að starfa eftir,
að allar auðlindir þessa lands séu
metnar, aðgangur að þeim og nýting.
Hann vísar einnig til þess réttar sem
menn hafa haft til nýtingar á auð-
lindinni. Við verðum að bíða og sjá
hvað kemur út úr þessari nefnd og
taka síðan afstöðu til þess á grund-
“velli einhvers jafnræðis, ef menn
telja koma til greina einhverja inn-
heimtu á slíku gjaldi.
Við höfum hins vegar ekkert skipt
um skoðun um að auðlindagjald við
núverandi aðstæður með hliðsjón af
afkomu útgerðarinnar leiðir ekki til
annars en breytingar á gengi krón-
unnar, sem var raunar upplegg Al-
þýðuflokksins þegar hann lagði fyrst
fram tillögur um slíkt gjald. Allh-
þekkja til hvers gengisfelling leiðir,
þ.e. óðaverðbólgu. Við seljum ekki
auðlindagjald úr landi til húsmæðra í
útlöndum sem kaupa físk í matinn.
Hinn kosturinn er að lama þessa at-
vinnugrein og þar með allt atvinnulíf
á landsbyggðinni. Útvegsmenn hafa
því ekki látið af andstöðu sinni við
auðlindagjald," sagði Kristján.
ALLS óskuðu 10.734 aðilar eftir að
kaupa hlutabréf í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins, FBA, fyrir um
19 milljarða króna. Seldur var 49%
eignarhlutur ríkisins í bankanum og
óskuðu þeir 10.734, sem skráðu sig
fyrir hlut, eftir að kaupa samtals um
13,5 milljarða króna að nafnverði á
genginu 1,4. Söluverðið nemur því
18,9 milljörðum króna.
Til sölu voru 4.665 milljónir króna
að söluverði og er því umframeftir-
spurn um 14,2 miiljarðar. Til saman-
burðar má nefna að viðskipti með
hlutabréf á Aðallista Verðbréfaþings
Islands fyrstu 10 mánuði ársins
námu 8,8 milljörðum króna.
Bjarni Ármannsson, forstjóri
FBÁ, sagðist ánægður með árangur-
inn: „Það að nálægt 4% landsmanna
skuli fjárfesta í FBA er mikilvæg-
asta sönnun þess að bankinn er að
festa rætur í íslensku samfélagi,
þjóðinni og hluthöfum til heilla. Eg
held að þessi niðurstaða endurspegli
traust almennings á þeim hlutum
sem hér er verið að vinna að og vel
hafi verið staðið að uppbyggingu
bankans, bæði að samruna fjárfest-
ingarlánasjóðanna og stefnu og
starfsemi bankans," sagði Bjarni.
Rétt aðferðarfræði,
mikil eftirspurn
Hreinn Loftsson, formaður fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu,
sagðist afar ánægður með niður-
stöðu útboðsins sem hefði farið fram
úr björtustu vonum. Hann sagði
greinilegt að mikil eftirspurn væri
eftir bréfum í öflugum hlutafélögum
líkt og þeim fjármálafyrirtækjum
sem ríkið hefði nú hafíst handa við
að einkavæða.
„Útkoman sýnir okkur einnig
fram á að sú aðferðarfræði sem not-
uð var í fyrsta áfanganum, þ.e. að
gefa einstaklingum kost á að eignast
hlutabréf í umræddum félögum með
áskriftarfyrh-komulagi, er augljós-
lega rétt. Margir sérfræðingar höfðu
haldið því fram að markaðurinn réði
ekki við þessi stóru fyrirtæki en út-
boðin hafa sýnt fram á að svo sé.
Þetta gefur okkur einnig byr í seglin
í næstu skrefum einkavæðingarferl-
isins, bæði hvað varðar sölu FBA,
viðskiptabankanna auk annaiTa
stórra ríkisfyrirtækja s.s. Landssím-
ans, sem búast má við að verði seld-
ur á næstu misserum," sagði Hreinn.
■ 10.734 skráningar/20
Drengur í
lífshættu
eftir um-
ferðarslys
NIU ára drengur varð fyrir
bifreið á Miklubraut um
klukkan átta í gærkvöldi.
Hann hlaut meðal annars lífs-
hættulega höfuðáverka, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu.
- Ekki var vitað hver dreng-
urinn var og auglýsti lögregl-
an því í útvarpi og sjónvarpi
eftir aðstandendum hans.
Skömmu síðar höfðu foreldrar
drengsins samband við lög-
reglu.
Drengurinn var á leið norð-
ur yfir götuna við bensínstöð
Skeljungs þegar hann varð
fyrir bílnum.
Lýsi fyrir
hjartveika
NEMENDUR í Mýrararhúsaskóla
á Seltjarnarnesi hafa drukkið
lýsið hressilega alla vikuna. Um
leið og þeir byggðu upp eigið
þrek styrktu þeir hjartveik börn,
en Lýsi hf. gaf Neistanum, félagi
hjartveikra barna, 15 krónur fyr-
ir hvern millilítra sem nemend-
urnir drukku af lýsi. Samkvæmt
upplýsingum frá fyrirtækinu var
búist við því að lýsisdrykkja
barnanna hefði skilað hálfri
milljón króna.
--------------
Þorlákshöfn
Skelfing í
skólanum
OFSAHRÆÐSLA gi-eip um sig í
grunnskóla Þorlákshafnai' þegar
jarðskjálfti reið yfir í gærmorgun.
Jón H. Sigurmundsson aðstoðar-
skólastjóri sagði að sér hefði komið á
óvart hvað sum börnin urðu hrædd.
Kennarar hefðu verið í því hlutverki
að veita börnunum áfallahjálp og
ákveðið hefði verið að gefa frí í skól-
anum eftir hádegi.
Jón sagði að sum barnanna hefðu
skriðið undir borð þegai' skjálftinn
reið yfii', sem væru rétt viðbrögð, en
önnur hefðu hlaupið út og engin leið
hefði verið að stoppa þau. Þau hefðu
ekki gert sér grein fyrir því að hætta
gæti stafað af því að vera við glugga.
Nokkur börn hefðu æpt upp fyrir sig
og við það hefði gripið um sig eins
konar múgsefjun. Nokkur börn
hefðu verið óhuggandi og liðið hefði
yfír einn nemanda.
Jón sagði að svona sterkir skjálft-
ar væru ekki algengir í Þorlákshöfn
og greinilegt að börnin vissu ekki
hvernig þau áttu að bregðast við.
Hann sagði ljóst að full þörf væri á
að kenna börnum viðbrögð við jarð-
skjálfta.
„Börnin óttuðust að skólinn myndi
hrynja í einu lagi yfir þau. Þau hafa
fræðslu sína um jarðskjálfta mest úr
sjónvarpi þar sem myndir eru sýnd-
ar af húsum sem hrunið hafa í heilu
lagi. Þau gera sér ekki grein fyrir að
hér eru sterkbyggðari byggingar,"
sagði Jón.
■ Öflugur jarðskjálfti/6
Meinatæknar endurráða sig í kjölfar samkomulags í gærkvöldi
Fá störf áfram, biðlauna-
réttur ekki viðurkenndur
gAMKOMULAG náðist milli meinatækna, sem
sögðu upp störfum á rannsóknarstofu Landspítal-
ans í blóðmeina- og meinefnafræði, og stjórnar
spítalans um kvöldmatarleytið í gær. Meirihluti
meinatækna eða allir sem tök áttu á í gærkvöldi
skrifuðu undir ráðningarsamninga og komu aftur
til starfa kl. 23.30 í gærkvöldi. Ingólfur Þórisson,
aðstoðarforstjóri Landspítalans, segir að starf-
semi spítalans eigi að komast í eðlilegt horf á
næstu dögum.
Samkomulagið náðist eftir að meinatæknar
höfðu fengið skriflega yfirlýsingu, undirritaða af
forstjóra og aðstoðarforstjóra spítalans, um að
þeim yrðu öllum tryggð áframhaldandi störf við
spítalann, þrátt fyrir hugsanlegar breytingar á
rekstrarformi rannsóknarstofunnar. Meinatæknar
fengu hins vegar ekki viðurkennd biðlaunarétt-
indi, sem voru erfiðasta atriði deilunnar á síðustu
dögum.
„Samkomulagið felur í sér að við tryggjum við-
komandi starfsmönnum störf áfram. Þó svo að
rekstrarformi rannsóknarstofunnar verði breytt,
halda allir sínum störfum og þurfa ekki að óttast
að það reyni á biðlaunaréttindi. Missi einhver
meinatæknir vinnu sína vegna hagræðingar eða
skipulagsaðgerða í þessu nýja fyrirtæki tryggjum
við viðkomandi áframhaldandi sambærilegt starf á
Landspítalanum. Fólk þarf því ekki að óttast að
missa vinnu sína þannig að það reyni á biðlauna-
réttinn,“ sagði Ingólfur.
Deiluatriði borið
undir dómstóla
Anna Svanhildur Sigurðardóttir, talsmaður
meinatæknanna, sagði að yfirlýsing sú sem meina-
tæknarnir fengu í gærkvöldi tryggði meinatækn-
um störf sín, þó svo að rannsóknarstofan yrði
sjálfstæð rekstrarleg eining. „Ríkisspítalarnir
ábyrgjast að viðkomandi meinatæknar fái sam-
bærilegt starf eða starfskjör á Landspítalanum,
verði einhver hagræðing eða skipulagsbreyting
gerð,“ sagði hún.
Fyrr í vikunni hættu nokkrir meinatækna við að
hefja störf þegar í ljós kom að einum meinatækn-
anna var gert að sækja skriflega um yfirmanns-
stöðu sína. í samkomulaginu sem náðist í gær-
kvöldi felst að viðkomandi meinatæknir fær end-
urráðningu í sína stöðu. Samkomulagið byggir að
öðru leyti að mestu á þeim drögum að samningi
sem fyrir lá um seinustu helgi.
Auk þess féllust stjórnendur Ríkisspítala á að
greiða afturvirkt frá 1. desember hluta þeirrar
launaleiðréttingai' sem meinatæknai' fá við það að
færast yfir í nýtt launakerfi. Stjómendur spítalans
féllust hins vegar ekki á að greiða þá launahækk-
un alla, sem meinatæknar telja sig eiga rétt á, og
hafa meinatæknar ákveðið að bera það mál undir
dómstóla.
Hefðum þurft reynda
samnlngamenn
Anna sagði að það væri mikill léttir meðal
meinatækna að deilunni skyldi vera lokið. „Ég vil
hins vegar hvetja starfsstéttir, sem ætla að fara út
í samningaslag við samningamaskínu á borð við
starfsmannahald Ríkisspítalanna, að hafa reyndan
ráðgjafa eða vanan samningamann með sér. Á
þessari leið höfum við dottið ofan í alla þá pytti,
sem þeir hafa lagt fyrir okkur. Þeir nota samn-
ingatækni eins og reiði, niðurlægingu, hroka og
sleikjugang, og allt sem maður les um í bókum.
Þetta er þrautaganga, sem við fórum út í, blautar
á bak við eyrun. Þetta hefði aldrei tekið þennan
tíma eða orku, ef við hefðum haft reynt fólk með
okkur,“ sagði Anna.
Morgunblaðið/Kristinn