Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 1
264. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bandaríkjamenn og Bretar telja litilokað að Saddam standi við loforðin Óttast að nýtt Persaflóa- stríð sé óhj ákvæmilegt Bagdad, Washington. Reuters, The Daily Telegraph. RAÐAMENN í Bandaríkjunum og Bretlandi telja að nýtt stríð við Irak sé óhjákvæmilegt þar sem það sé nánast öiTiggt að Saddam Hussein Iraksforseti standi ekki við loforð sín um að reyna ekki að hindra vopnaleit eftii-litsnefndar Sameinuðu þjóðanna, UNSCOM. Breska dagblaðið The Daily Telegraph segir að þetta sé mat Bills Clintons Bandaríkjaforseta, Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og allra helstu ráðgjafa þeirra í öryggismálum. Jafnvel Frakkar, Rússar og fleiri þjóðir, sem hafa verið tregar til að fallast á hernaðaríhlutun í Irak, telji nánast öruggt að Saddam Hussein bjóði Bandaríkjamönnum birginn að nýju á næstu vikum eða mánuðum, þannig að þeir komist ekki hjá því að hefja loftárásir á Irak. Bandarískar og breskar hersveit- ir eru undir það búnar að hefja árásirnar fyi-irvaralaust. „Við mun- um skjóta fyrst og semja svo,“ hafði The Daily Telegraph eftir embættismanni í Washington. Embættismenn í Hvíta húsinu segja að Clinton, Madeleine Al- bright utanríkisráðherra, William Cohen varnannálaráðherra og Ge- orge Tenet, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, telji „afar ólíklegt“ að hægt verði að komast hjá loftárásum. Vopnaleitin haflr. á ný Starfsmenn vopnaeftirlitsnefnd- ar Sameinuðu þjóðanna fóru í gær í fyrstu eftirlitsferð sína í Irak frá því þeir komu aftur til landsins eft- ir að Saddam Hussein féll frá þein-i ákvörðun sinni að slíta öllu samstarfi við nefndina. Nefndin vildi ekki skýra frá því hvert eftir- litsmennirnir fóru, en hlutverk þeirra er að rannsaka staði þar sem grunur leikur á að Irakar hafi reynt að smíða langdrægar eld- flaugar og efna-, sýkla- og kjarna- vopn. Talið er að sérsveitir íraska hers- ins hafi notað hléið, sem varð á eft- irlitinu eftir að Saddam sleit sam- starfinu við nefndina, til að flytja eldflaugahluta og efni í gereyðing- aivopn milli staða. Reynist það rétt þarf eftirlitsnefndin að hefja vopna- leitina algerlega upp á nýtt og það gæti tekið hana að minnsta kosti þrjá mánuði að finna nýju felustað- ina. Reuters ÆTTINGJAR tyrkneskra hermanna, sem fallið hafa í stríðinu við Kúrda, á mótmælafundi við ítalska sendiráðið í Ankara í gær. Tyrkir mjög harðorðir í garð Itala Ankara, Róm, Stokkhólini. Reuters. MESUT Yilmaz, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í gær að ítalir væru samsekir um hryðjuverk ef þeir neit- uðu að framselja Abdullah Öcalan, leiðtoga skæruliðasveita Kúrda (PKK), til Tyrklands. „Ef þeir stand- ast ekki þessa prófraun verða þeir samsekir um öll þau hryðjuverk sem PKK hefur nokkurn tíma framið." Massimo D’Alema, forsætisráð- herra Ítalíu, brást hinn versti við þessari yfirlýsingu og sagði hana „óviðunandi". Kvað hann Itali ekki mundu láta undan þrýstingi af þessu tagi. Öcalan var handtekinn á Italíu í síðustu viku og fór fram á hæli sem pólitískur flóttamaður. Þykir Tyrkj- um sem Massimo D’Alema, forsæt- isráðhen-a Ítalíu, hafi gefið í skyn að ítalir muni samþykkja þá beiðni. Var haft eftir Öcalan í gær, að hann vonaði, að ítalir veittu sér hæli svo hann gæti starfað með Evrópuríkj- um að friðsamlegri lausn á baráttu Kúrda við tyrknesk stjórnvöld. Svíar vilja ræða við Ocalan um morðið á Olof Palme Haft var eftir Jan Danielsson, ríkissaksóknara í Svíþjóð, að hann myndi fara fram á það við ítölsk stjórnvöld að fá að ræða við Öcalan um morðið á Olof Palme, fyi-rver- andi forsætisráðherra Svíþjóðar, ár- ið 1986. Hans Holmér, sem var lög- reglustjóri í Stokkhólmi á sínum tíma, hélt því fram árið 1986 að PKK hefði staðið að baki morðinu og þótt þessi kenning sé af fæstum tekin trúanleg í dag sagði Daniels- son í gær að vel væri hugsanlegt að Kúrdaleiðtoginn byggi yfir upplýs- ingum sem leyst gætu morðgátuna. Reuters Cecilia er miðdepill- inn í Mílanó Mflanó. Reuters. HUN hefur verið 15 ára í 500 ár, var ástkona valdamikils manns og hún var máluð af snillingi. Um þessar mundir er hún á allra vör- um í Mflanó. Meira en 40.000 manns hafa keypt miða til að geta dáðst að „Konunni með hreysiköttinn", málverki Leonardo da Vincis af Ceciliu Gallerani, ungri ástkonu Ludovico II Moros, hertoga í Mflanó, en það verður til sýnis í Brera-safninu fram til 13. desem- ber. Þykir myndin hafa yfir sér sömu heillandi dulúðina og mynd Leonardos af annarri konu, Mónu Lísu. Eigandi myndarinnar er Czar- toryski-safnið í Kraká í Póllandi en Leonardo málaði hana 1489 eða 1490 eða um það bil 13 árum áður en hann málaði Mónu Lísu. Cecilia, sem var ekki af háum stigum, ól hertoganum eitt barn en hann kvæntist síðan hefðar- konunni Beatrice d’Este. Hún gekk þá að eiga greifa nokkurn og gat sér orð fyrir skáldskap. A hennar tíma var það þó ekki venja að gefa út það, sem konur skrifuðu. Eftir lát Ceciliu 1536 hvarf myndin sjónum manna í um 300 ár eða þar til pólskur prins keypti hana af ókunnum manni snemma á síðustu öld. Listfræð- ingar hafa kallað hana „fyrsta nútímamálverkið" vegna þess, að í því segir Leonardo skilið við kyrrstöðustflinn, sem var algeng- ur á hans tíma. — Áhyggjur af lækkandi sjávarhita í Barentshafí Talið skýra minni nýliðun Ósló. Morgunblaðið. SJÁVARHITI í Barentshafi er nú hálfri gráðu lægri en í meðalári og er það talið vera skýring á lítilli ný- liðun fiskstofnanna. Norskir fiski- fræðingar óttast einnig, að vöxtur fisksins verði ekki nema helmingur þess, sem hann var er best lét fyrir nokkrum árum. Nýlega var þorskkvótinn í Barentshafi skorinn mikið niður og þessar fréttir bæta ekki úr skák fyr- ir sjávarútveginn í Noregi. Harald Loeng, rannsóknastjóri við hafrann- sóknastofnunina í Björgvin, kynnti í I gær í Ósló tölurnar um sjávarhitann og raunar varaði hann við því fyrir hálfu öðru ári, að hitinn færi lækk- andi. Spáir hann því, að þetta ástand vari a.m.k. í tvö eða þrjú ár. Fiskurinn flýr kuldann Loeng segir, að minni sjávarhiti hafi áhrif á nýliðun fiskstofnanna, til dæmis þorsks, síldar og ýsu, og auk þess leiti fiskurinn í vestur og suður við þessar aðstæður. Það hafi meðal annars komið fram í lítilli Smuguveiði á þessu ári. Þegar Barentshafið kólnar stafar það af því, að þangað berst minna af Atlantshafssjó og segir Loeng, að það tengist hugsanlega einhverri hringrás í lofthjúpnum. Þar var kaldast síðast á áttunda og fyrst á níunda áratugnum og þá var sjávar- hitinn allt að tveimur gi-áðum lægri en í meðalári. Seint á níunda ára- tugnum var líka kalt, hálfri gráðu undir meðaltalinu, en síðan hefur sjórinn verið tiltölulega hlýr lengst af og á það mestan þátt í mikilli ný- liðun síðustu ára. Bob Livingston kjörinn einróma Washington. Reuters. ÞINGMENN repúblikana í full- tníadeild Bandaríkjaþings kusu í gær Bob Livingston næsta for- seta deildarinnar. Mun hann taka við af Newt Gingrich, sem ákvað að segja af sér vegna kosn- ingaúrslitanna 3. nóvember sl. Livingston var kjörinn með öllum atkvæðum á lokuðum fundi en í Repúblikanaflokknum er nú lögð mikfl áhersla á ein- ingu eftir hrakfarirnar fyrr í mánuðinum þegar flokkurinn missti fimm sæti í fulltrúadeild- inni og vegna ótta við að tapa meirihlutanum í kosningunum árið 2000. Livingston verður formlega kjörinn forseti deildar- innar þegar hún kemur saman 6. janúar nk. „Sumir segja, að tími repúblikana sé liðinn en það er eins og að halda því fram, að am- eríski draumurinn sé búinn. Það er ekki rétt,“ sagði Livingston á fundinum í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.