Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
BÆKUR
Sagnfræöi
ÆVISAGA ÞORSKSINS
- Fiskurinn sem breytti heiminum,
eftir Mark Kurlansky. Ólafur Hanni-
balsson þýddi. HKÁ, Reykjavík 1998,
320 bls.
„ÞAÐ er feikilegnr munur á
þjóðfélagi, sem veiðir hvali, og
þjóðfélagi, sem skoðar þá. Náttúr-
an er gerð að dýrlegri skrautsýn-
ingu til skemmtunar og fróðleiks,
einhverju sem er miklu fjær nátt-
úrunni en veiðamar eru. Stefnum
við í átt til heims, þar sem ekkert
er eftir af náttúrunni annað en
skemmtigarðar? Hvalir em spen-
dýr og spendýr verpa ekki milljón
eggjum. Við neyddumst til að
hætta veiðum í ábataskyni og hefja
húsdýrarækt til að sjá okkur fyrir
kjöti, reynum að vemda villtu dýr-
in eftir bestu getu. Það er erfiðara
að útrýma fiski en spendýram. En
eftir að hafa veitt Atlantshafs-
þorskinn í 1000 ár vitum við að það
er hægt.“
Svo segir bandaríski blaðamað-
urinn og rithöfundurinn Mark
Kurlansky í niðurlagi meginkafla
bókar sinnar, Ævisaga þorsksins,
fiskurinn sem breytti heiminum.
Það er í raun ótrúlegt í fyrstu, að
hægt sé að skrifa heila bók, ævi-
sögu þorsksins, upp á um 300 síð-
ur. En það er svo sannarlega hægt
og það sem meira er það er hægt
að gera það á mjög svo áhugaverð-
an og skemmtilega hátt.
Höfundurinn Mark Kurlansky
fer ótrúlega víða í frásögn sinni um
þorskinn, þótt Nýfundnaland, Nýja
England og ísland skipi þar stóran
sess. Mann hefði tæpast órað fyrir
hinum miklu áhrifum sem þorskur-
inn hefur svo sannarlega haft á
gang mála við norðanvert Atlants-
hafíð, en marga merkisatburði má
beint rekja til þorskgengdar og
markir miklir atburðir hafa svo á
móti haft mikil áhrif á þorskgengd-
ina. Það má rekja landafundi til
þorskveiða við austurströnd Norð-
ur-Ameríku, en föstuhald kaþólsku
kirkjunnar gerði þorskinn að eftir-
sóttum mat og fiskveiðar og fisk-
verkun að sérstakri atvinnugrein
um leið.
Öll þekkjum við þau stríð, sem
staðið hafa um þorskinn hér við
land, ekki bara deilur okkar vegna
Svo sannarlega
breytti hann
heiminum
útfærslu landhelginn-
ar í nokkram þrepum
á þessari öld, heldur
einnig deilur Breta og
Þjóðverja um fiskveið-
ar hér fyrr á öldum.
Höfundurinn lýsir á
skemmtilegan hátt
upphafi þorskveið-
anna, en þar voru Ba-
skar fremstir í flokki.
Þeir hófu veiðar og
verkun á þorski við
austurströnd Norður-
Ameríku löngu áður
en almenn vitneskja
varð um þetta gósen-
land í vestri. Þeir einir
vissu um leiðina vest-
ur til „þorsklandsins“ og höfðu fyr-
ir vikið yfirburðastöðu á fiskmörk-
uðum Evrópu á miðöldum.
Ævintýralegar sögur era sagðar
af þorskgengdinni út af þeim land-
svæðum, sem nú heita Labrador,
Nýfundnaland, Nova Scotia og
Nýja-England. Þegar landkönnuð-
urinn John Cabot kom þangað
veiddu skipverjar þorskinn í körf-
ur, sem þeir dýfðu í sjóinn. Talað
var um það í gamni og alvöra að við
það lægi að hægt væri að fara fót-
gangandi í land, gangandi á þorski.
Þarna vora allt fram á þennan ára-
tug auðugustu þorskmið veraldar,
en miðin við Island, Norðursjórinn
og Barentshafið, hafa einnig verið
gjöful mið. Höfundurinn rekur
sögu veiða við Ameríku, Island, í
Norðursjó og víðar allt fram til
þessa tíma og tvinnar hana saman
við stóratburði í veraldarsögunni.
Það kemur á óvart hve mikilvæg
fæða þorskurinn var, en það stafaði
í raun af tvennu, hve mikið var til
af honum annars vegar og hinu að
fastan krafðist fiskáts í miklum
mæli. Fiskinn var auðvelt að
geyma með því að verka sann í
skreið eða fletja, salta og þurrka.
Þannig varð fiskur undirstaða í
föstufæðu kaþólikka og meginkost-
Ólafur
Hannibalsson
Mark
Kurlansky
tu- sjómanna, sem vora langtímum
saman í hafi. Saltfiskurinn og
ski'eiðin vora einnig ákjósanlegur
matur í heitum löndum, bæði í Af-
ríku, Suður-Evrópu og Vestur-Ind-
íum, vegna þess hve próteinríkur
hann var og þoldi hitann vel. Þess
vegna var fiskurinn til dæmis flutt-
ur til Afríku, þar sem borgað var í
þrælum. Þeir voru síðan seldir til
þrælkunar á sykurekranum í Vest-
ur-Indíum, en þar var borgað fyrir
þá með sykri. Þrælarnir þurftu að
borða og þar kom saltfiskur og
skreið til sögunnar og svo þurftu
norðurálfumenn að drekka og syk-
urinn varð meðal annars að rommi.
Þýðandi bókarinnar, Ólafur
Hannibalsson, segir meðal annars
svo í formála sínum að bókinni:
„Hvarvetna breytti þorskurinn
hugarfari fólks. Pílagrímarnir, sem
námu land í Ameríku til að dýrka
guð sinn óáreittir við jarðyrkju í
sveita síns andlits, urðu, áður en þá
varði, auðugir kaupsýslumenn,
þrælasalar og áfengisbraggarar -
og ákafir unnendur frelsis, upp-
reisnarmenn og byltingarseggir -
allt fyi-ir tilstilli þorsksins. Þorsk-
urinn varð undirstaða sjálfstæðis
hinna miklu Bandan'kja Norður-
Ameríku.“
Sagan er heillandi lengst af, en
svo tekur að halla undan fæti. Vax-
andi eftirspum eftir fiski leiddi af
sér mikla sókn og þegar tæknin
slóst í för með útgerðinni urðu af-
köstin svo mikil að það sem menn
héldu að væri ótæmandi auðlind
fór að þorna upp. Fyrstu viðbrögð-
GERIADRIR BETUR!
Baðinnréttingar
Vandaðar
innréttingar frá Belgíu á verði
sem ekki hefur sést áður.
Otal möguleikar!
VERSLUN FYRIR ALLA !
ilLDSOI
ERSLUNJ
- tryggw
tfverB i!
Vi& Fellsmúla Sími 588 7332
OG
USTAKOKKAR Jll
DÁSAAALEGUR MATUR !
(Veriið
oelhom'ui!
BBTOil
Tiiboðsréttir:
HLAÐBORÐ
SÆLKERANS
Frjálst val:
Súpa, salatbar
os heitur matur,
margar tegundir.
kr.890."
Grillaður
KARFI
með möndlurjóma
03 ristuðu grænmeti.
AÐHNSKR. 1590.-
FISKIÞRENNA
með tveimur tegundum
af sósu, hvítlauksbrauði
og kryddgrjónum.
ADHNSKR. 1.590.
PASTA
að hætti kokksins.
aððnskr.1.590.-
Tilboð öll kvöld
03 um helgar.
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
Ottum/v/snttm^ tfónmvltt
réUttm^ pjti/it' ■'ht/tu, hittuStur,
satatlar ot/ suo ísoarimt áv/tir.
^er/Hijkliur m\íjóóu!
POTTURINN
OG
KJUKUNGABRINGA
með gljáðu grænmeti
og paprikusósu.
AÐHNSKR. 1.690
Grillaður
LAMBAVÖÐVI
með bakaðri kartöflu
og bemaise-sósu.
AÐHNSKR. 1.620.
GRISAMEDALIUR
með rauðlauksmarmelaði
og gráðostasósu..
AÐHNSKR.1.590.
Glóðað
NAUTA-
FRAMFILLET
m/ferskum sveppum,
madeirasósu og djúp-
steiktum tómati
AÐHNSKR.
BRfiUTfiRHOlTI 22
SlMI 551-1690
1.790
in vora að færa landhelgina út til
að hefta ásókn annarra en heima-
manna í þessa mikilvægu auðlind,
en það dugði ekki til. Heimamenn,
nánast hvar sem var við Atlants-
hafið norðanvert, reyndust fylli-
lega færir um að ofveiða eigin fisk-
stofna með aukinni tækni og án ut-
anaðkomandi hjálpar. Hran norð-
urþorsksins á Miklumiðum við
Nýfundnaland og á Georgsbanka
er höfundinum hugstætt og hann
lýsir á raunsannan hátt því sem olli
hraninu að því bezt er vitað og af-
leiðingum þess.
Það er margt að varast í fisk-
veiðum heimsins, en það sem skipt-
ir sköpum er aukin þekking og
skilningur á því að ekki má ganga
of nálægt fiskstofnunum. Þá verð-
ur að nýta af skynsemi og það gera
bezt þeir sem mestra hagsmuna
eiga að gæta.
Þá fylgja í bókinni fjölmargar
þorskuppskriftir frá mörgum lönd-
um, bæði gamlar og nýlegri. Það er
virkilega fróðlegt að sjá hvernig
fiskurinn hefur verið matreiddur,
hve mismunurinn er mikill eftir
þjóðum og landsvæðum, en úrslit-
um um meðlætið ræður víðast hvar
sú uppskera sem fyrir hendi var á
hverjum stað. Það er fyllilega þess
virði að prófa framandlega elda-
mennsku á þeim gula.
Ævisaga þorskins er vel skrifuð
bók. Hún er full af fróðleik, sett
upp á þann hátt að lesturinn verð-
ur ekki aðeins fræðandi, heldur
skemmtun um leið. Hún vekur
okkur einnig til nauðsynlegrar um-
hugsunar um gang mála á okkar
tímum og þá varkárni sem nauð-
synleg er til að um sjálfbæra nýt-
ingu verði að ræða. Hún vekur
okkur einnig til umhugsunar um
framtíð fiskveiðistjómunar. Hvað
verður næst? Getum við átt von á
því að fiskveiðistjórnunin verði
hrifin úr höndum veiðiþjóðanna
sjálfra í formi umhverfismerkinga
sem byggjast á óraunhæfum kröf-
um og færð til sjálfskipaðra vernd-
unarsinna, sem eiga í raun lítilla
sem engra hagsmuna að gæta? Við
höfum háð okkar þorskastríð, en
eigum við von á fleiram?
Það er óhætt að hvetja til lestrar
þessarar bókar. Hún er feikilega
vel unnin af hálfu höfundar, sem
hefur leitað fanga mjög víða í
heimildasöfnum og með heimsókn-
um til fjölmargra þorskveiðiþjóða
og þeirra, sem þorskinn borða.
Þetta er mjög skemmtileg „ævi-
saga“ og ekki spillir afbragsgóð
þýðing Ólafs Hannibalssonar.
Textinn er á góðu máli, auðlesinn
og rennur vel áfram. Þorskurinn
hefur svo sannarlega breytt heim-
inum.
Hjörtur Gíslason
-----------------
•HL J ÓMS VEITARSTJ ÓRINN
Kurt Mazur, sem verið hefur að-
alstjórnandi New York-fílharm-
óníunnar frá 1991, hefur þegið
boð um að verða aðalstjórnandi
Lundúnafflharmóníunnar. Mazur,
sem er 71 árs, mun halda áfram
starfi sínu í New York fram til
ársins 2002, en hann tekur við
tónsprotanum í Lundúnum árið
2000. Segir hann samning sinn
við Breta kveða á um takmarkað-
an fjölda tónleika á ári hverju en
Lundúnafflharmónían hefur ekki
haft aðalstjórnanda frá því að
Franz Welser-Most hætti þar árið
1995.
•EINN fremsti bókmenntagagn-
rýnandi Svía, Horace Engdahl,
var fyrir skemmstu kjörinn for-
maður sænsku bókmenntaaka-
demíunnar, sem velur nóbels-
verðlaunahafann í bókmenntum
ár hvert. Engdalil, sem er 49 ára
og hefur m.a. skrifað gagnrýni í
Dagens Nyheter, tekur við af St-
ure Allén. Þykir Engdahl einkar
fær bókmenntagagnrýnandi og
einn af þeim fáu sem megni að
skrifa fagurbókmenntir um fag-
urbókmenntir. Hefur honum jafn-
vel verið líkt við Danann Georg
Brandes.
Nýjar bækur
• Á KRÖPPUM öldufaldi - Viðtöl
við fjóra landskunna sjósóknara er
skráð af Jóni Kr. Gunnarssyni.
I kynningu segir
að rosknir sjó-
menn með langan
feril að baki hafa
lifað fjölbreyttara
lífi en flestir aðrir
starfshópar. Sjó-
sókn og fískveiðar
eru þrangnar
spennu og óvissu.
Baráttan er háð
gegn veðri og
vindum og oft og tíðum óvæntu
mótlæti. En hafi menn vilja,
reynslu og kunnáttu að vopni, lætur
árangurinn ekki á sér standa.
Hér er rætt við fjóra kunna sjó-
menn, þá Gísla Jóhannesson frá
Gauksstöðum í Garði, Jón Magnús-
son á Patreksfirði, Guðmund Arna-
son á Sauðárkróki og Gunnar
Magnússon í Reykjavík.
Utgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 243 bls. Umbrot og frágangur:
Skjaldborg. Bókin erprentuð í
Singapore. Verð: 3.480 kr.
• GENGIÐ á brattann - Ævisaga
Eyjólfs R. Eyjólfssonar „alkakræk-
is“ er skfáð af Eyrúnu Ingadóttur.
I kynningu seg-
ir að Eyjólfur R.
Eyjólfsson hafi
farið með fulla
skjalatösku af
frumsömdum ljóð-
um í áfengismeð-
ferð á Silungapoll
árið 1979 og hélt
hann að þar gæf-
ist góður tími til
að yfirfara þau.
Taskan var aldrei opnuð en síðan
þá hafa AA-samtökin og SÁÁ skip-
að stóran sess í lífi hans. Eyjólfur
hefur aðstoðað fjölda samferða-
manna sinna í glímunni við Bakkus
og var m.a. heiðraður fyrir störf
sín í SAÁ á 25 ára afmæli samtak-
anna.
Eyjólfur fékk viðurnefnið „alka-
krækir“ hjá gár-
ungunum í heima-
bæ sínum,
Hvammstanga, og
hefur það fylgt
honum síðan.
Hann ólst upp hjá
einstæðri móður
sinni í Hafnarfirði
í kreppunni en var
síðan munaðar-
leysingi í vistum,
en eftir það togarasjómaður á síðu-
togurunum í tvo áratugi. Eftir það
gerðist hann bóndi á Vatnsnesi.
í bókinni eru m.a. lýsingar á
samfélagi og lífsbaráttu í krepp-
unni, aðbúð og vinnubrögðum á
gömlu síðutoguranum, siglingum á
stríðsárunum og lífinu í erlendum
hafnarborgum.
Utgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 223 bls., prentuð í Singapore.
Umbrot og frágangur: Skjaldborg.
Verð: 3.480 kr.
9 SVIPÞING - minningaþættir
eftir Svein Skorra Höskuldsson.
Meginhluti þess-
arar bókar era
minningar Sveins
Skorra Höskulds-
sonar prófessors
um afa sinn og
ömmu og aðra for-
feður sína og er
sögusviðið fyrst og
fremst Skorradal-
Sveinn Skorri Ur, Reykjadalur og
iiöskuidsson Kaldakinn.
I kynningu segir að af næmi og
húmor dragi Sveinn Skorri upp
meitlaðar myndir af glæsimennum
og hugsjónafólki, drykkjumönnum
og skáldum. Sérstakur þáttur er
um litríkan og minnisstæðan bónda,
Eirík í Bakkakoti í Skorradal. Lýst
er örlögum venjulegs íslensks bú-
andfólks um leið og dregin er upp
ljóslifandi mynd af veröld sem var í
íslenskum sveitum.
Útgefandi er Mál og menning.
Svipþing - minningaþættir er 268
bls., prentuð íSvíþjóð. Kápumynd
er eftir Jón Reykdal. Verð: 3.680.
Eyrún
Ingadóttir
Eyjólfur R.
Eyjólfsson
Jón Kr.
Gunnarsso