Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. NOVEMBER 1998
V>? >:
Ljósmyndasýning á mbl.is
/ boði tim ftmm
Ferðasaga Péturs Blöndal blaðamanns
og Þorkels Þorkelssonar Ijósmyndara í
máli og myndum á mbl.is.
www.mbl.is
_ *
Tvö Islandsmót
um helgina
SKAK
Félagsheimili IIe 11-
is, Þönglabakka 1
UNGLINGAMEISTARAMÓT
ÍSLANDS
20.-22. nóvember
Um helgina er teflt um Islands-
meistaratitla í flokki 20 ára og
yngri og í flokki netverja!
SKÁKSAMBAND íslands
heldur Unglingameistaramót
Islands 1998 (fyrir skákmenn
fædda 1978 og síðar) dagana
20.-22. nóvember n.k. Tefldar
verða 7 umferðir eftir Monrad
kerfi og er umhugsunartíminn 1
klst. á keppanda.
Mótið hefst klukkan 19:30
föstudaginn 20. nóvember og
verða tvær fyrstu umferðirnar
tefldar þá um kvöldið. Á laugar-
deginum verða 3.-5. umferð
tefldar og hefst taflið kl. 13. Á
sunnudeginum hefst keppnin
einnig klukkan 13 og þá verða
tvær síðustu umferðirnar tefld-
ar.
Teflt verður í Hellisheimil-
inu, Þönglabakka 1. Þátttöku-
gjald er kr. 800. Skráning fer
fram í síma Skáksambands Is-
lands 5689141 alla virka daga
kl. 10-13 og á mótsstað föstudag
20. nóvember frá kl. 19.
Unglingameistari Islands
1998 fær farseðil á skákmót er-
lendis í verðlaun, en auk þess
verða skákbækur í verðlaun
fyrir 1.-5. sæti.
Islandsmótið í
netskák 1998
Taflfélagið Hellir gengst fyr-
ir íslandsmóti í netskák n.k.
sunnudag, 22. nóvember kl.
20.00. Tefldar verða 9 umferðir
eftir Monrad kerfi. Umhugsun-
artíminn er fjórar mínútur með
tveggja sekúndna viðbót við
hvern leik. Þetta er í annað sinn
sem mótið er haldið en Islend-
ingar voru fyrstir þjóða til þess
að efna til keppni af þessu tagi
á alnetinu. Fyrsti Islandsmeist-
arinn og núverandi handhafi tit-
ilsins er Benedikt Jónasson.
Auk þess að teflt er á alnet-
inu hefur Islandsmótið í net-
skák þá sérstöðu, að keppendur
tefla undir dulnefnum og vita
þeir því ekki hvort andstæðing-
urinn er byrjandi eða stór-
meistari. Þetta undirstrikar að
mótið er fyrst og fremst til að
hafa gaman af því, enda hefur
oft verið fjörugt á netinu meðan
mótið hefur staðið yfir.
Verðlaun, sem era farandbik-
ar og verðlaunapeningar, verða
veitt í þremur flokkum: ís-
landsmeistari, Islandsmeistari
áhugamanna (1800 stig eða
minna) og besti byrjandinn
(skákmenn án íslenskra Elo-
stiga). Einnig fær Islandsmeist-
arinn 10.000 kr. vöraúttekt hjá
gefanda verðlaunanna, EJS -
Einar J. Skúlason hf.
Skák á alnetinu breiðist hratt
út og era að jafnaði vel á annað
þúsund skákmenn úr öllum
heimshornum að tafli í einu á
vinsælustu skákþjónunum.
Teflt verður á evrópska
skákþjóninum í Árósum. Þátt-
tökutilkynningar og fyrir-
spurnir sendist með tölvupósti
til Kristjáns Eðvarðssonar
(giggo@samskipti.is). Nauð-
synlegt er að taka dulnefni
fram í þátttökutilkynningu!
Þátttakendur fá síðan póst með
aðgangsorði til að komast inn á
skákþjóninn laugardaginn 21.
nóvember.
í ár verður í fyrsta skipti
boðið upp á nýja þjónustu fyrir
þátttakendur sem ekki hafa að-
gang að alnetinu. Þeir geta haft
samband við Tölvuleiguna,
Laugarnesvegi 112, sem mun
bjóða upp á aðstöðu fyrir
nokkra keppendur. Nánari upp-
lýsingar veitir Ai'inbjörn Gunn-
arsson í síma 588 2868. Nauð-
synlegt er að hafa samband
sem fyrst, því nokkrir keppend-
ur hafa þegar óskað eftir að fá
aðstöðu hjá Tölvuleigunni.
Mótið er í boði Taflfélagsins
Hellis og EJS hf. og er því þátt-
taka ókeypis. Nánari upplýsing-
ar um mótið er að finna á
heimasíðu Hellis: www.sim-
net.is/hellir.
Disney-
skákmótið í París
Hinu árlega Disney-skákmóti
fyrir börn er nýlokið í París í
Frakklandi. Mótið er skipulagt
af Disney-fyrh’tækinu í sam-
vinnu við Alþjóðaskáksamband-
ið, FIDE, og franska skáksam-
bandið. í mótinu taka þátt 157
börn frá yfir 50 löndum, þar af
67 stúlkur. Teflt er í fjóram
riðlum: Drengir 12-14 ára,
stúlkur 12-14 ára, drengir undir
12 ára og stúlkur undir 12 ára.
Tefldar ei-u atskákir, alls 9 um-
ferðir.
Eins og vænta má þegar Dis-
ney er annars vegar er börnun-
um boðið upp á margs konar
skemmtun auk skákmótsins.
Meðal annars fá þau að sjálf-
sögðu að heimsækja Dis-
neyland í París.
Mikið er lagt í þetta mót.
Sérstakur vefur hefur verið
settur upp á alnetinu þar sem
fylgjast má með helstu skákum
um leið og þær era tefldar.
Þetta er gert með sérstökum
skákborðum, sem tengd era við
tölvu, sem getur fylgst með
stöðunni á borðinu og sent hana
sem stöðumynd út á netið. Dag-
lega era síðan 001 úrslit allra
skáka ásamt stöðunni í hverjum
riðli.
Stórmeistarar skýra skákir
og sjálfur Anatoly Karpov,
heimsmeistari FIDE, leggur
einnig hönd á plóginn.
Fjórir Islendingar tóku þátt í
þessu skemmtilega skákmóti,
einn í hverjum flokki. Árangur
þeirra varð sem hér segir:
Guðjón H. Valgarðsson 4 v.
(28.-34. sæti af 45)
Hilmar Þorsteinsson 4 v. (27.-
32. sæti af 45)
Ingibjörg E. Birgisdóttir 5 v.
(9.-16. sæti af 33)
Anna L. Gísladóttir IV2 v.
Ingibjörg Edda náði því best-
um árangri íslensku keppend-
anna. Hún tapaði tveimur
fyrstu skákunum, en stóð sig
mjög vel í síðustu sjö umferðun-
um, vann fjórar skákir, gerði
tvö jafntefli og tapaði einni
skák.
Atskákmót öðlinga
Atskákmót öðlinga 1998 hefst
fimmtudaginn 19. nóvember.
Tefldar verða 9 skákir eftir
Monrad-kerfi, þrjár skákir á
kvöldi. Teflt verður einu sinni í
viku, á fímmtudagskvöldum
klukkan 20:
1.-3. umf. 19. nóvember
4.-6. umf. 26. nóvember
7.-9. umf. 3. desember
Upplýsingar um mótið gefur
Ólafur S. Ásgrímsson í vinnu-
síma 560 5764 og heimasíma
567 6698, GSM 895 5860
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson