Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ 60 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 r MINNINGAR + Kristján Valdi- mar Kristjáns- son fæddist á Njáls- götu 19 í Reykjavík 15. ágúst 1920. Hann lést á Land- spítalanum 9. nóv- ember siðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristján Valdi- mar Jónsson, sjó- maður frá Akra- nesi, f. 11.10. 1887, fórst með kútter Valtý 28.2. 1920, og Sylvía Þorláksdótt- ir, saumakona og húsmóðir frá ísafirði, f. 27.9. 1887, d. 7.8. 1954. Sylvía giftist síðar Jóhannesi C. Klein frá Danmörku, kjötkaupmanni, sem var ekkjumaður eftir syst- ur Sylvíu. Kristján átti einn al- bróður: Gústaf, matsveinn, f. 1918, d. 1978, kvæntur Magde Rönne frá Danmörku, d. 1979, og hálfbróður Erling Klein sem dó ungbarn. Uppeldis- og frændsystkin Kristjáns voru: Carl Klein, kjötiðnaðarmaður, f. 1919, kvæntur Þóru Færseth húsmóður; Jens Klein, kjötiðn- aðarmaður, f. 1920, kvæntur Elínu Færseth, húsmóður, og Hulda Klein, húsmóðir, f. 1923, gift Jóhanni Kristjánssyni, kaupmanni í Kópavogi. Hinn 31. maí 1952 kvæntist Krislján eft- Kæri pabbi. Þá er komið að lokum samfylgd- ar okkar í þessu jarðlífí. A þeim tírna verður manni ósjálfrátt hugs- að til baka. Til þeirra stunda er við irlifandi konu sinni, Ragnhildi Jónu Magnúsdóttur, f. 1.8. 1924, frá Lamb- hóli. Hennar for- eldrar voru Magnús Helgi Jónsson prentari og fv. for- maður prentarafé- lagsins, og Sigur- lína Ebeneserdóttir húsmóðir. Börn Kri- stjáns og Ragnhild- ar eru 7: 1) Sigur- lína Sjöfn, ritari, f. 1947, gift Trausta Björnssyni kennara. Þeirra börn eru: a) Halldóra, gift Ólafí Stephensen og eiga þau eina dóttur, Elínu Sjöfn. b) Björn, kvæntur Bjarney Harð- ardóttur og eiga þau tvö börn, Hörð og Helen Maríu. 2) Sylvía Hrönn, sjúkraliði, f. 1952. 3) Kristján, skrifstofumaður f. 1954. Hans börn eru: a) Ólafur Guðsteinn (barnsmóðir Hrefna Ólöf Ólafsdóttir) í sambúð með Eddu Jóhannsdóttur og eiga þau eina dóttur, Önnu Líf. Frá fyrrum sambúð með Bryndísi H. Sigurðardóttur sjúkraliða: Kristján Kári og Daníel Heimir. 4) Magnús Helgi, sjómaður, f. 1955. 5) Jóhannes Bragi, bók- ari, f. 1960, kvæntur Svövu Hansdóttur fóstru og eru þeirra börn: Ragnhildur, Hans Ottar áttum saman, til þeirra hluta er við gerðum saman, til góðra stunda og til erfiðari stunda. Það kemur upp í hugann er ég var 5-6 ára og þú tókst okkur og íris Harpa. 6) Auður Gróa, húsmóðir, f. 1963, gift Guð- mundi Bragasyni vélstjóra og eru þeirra börn: Bragi og Bjarni. 7) Unnar Jón, lagermað- ur, f. 1966, kvæntur Guðnýju Einarsdóttur smurbrauðsdömu og eru þeirra börn: Kristján Óð- inn og Unnur Sylvía. Kristján ólst upp á heimili móður og fósturföður að Bald- ursgötu 14, Reykjavík, en við giftingu fluttist hann að Lamb- hóli v/Skeijafjörð, Reykjavfk, í þá nýtt hús sem hann byggði ásamt öðrum. Hann bjó síðan að Lambhóii alla tið sfðan, utan tvö ár 1967-1968 er fjölskyldan bjó á Seyðisflrði. Krisfján lærði kjötiðn hjá fósturföður sfnum og í Teknologiskskole í Kaup- mannahöfn 1954. Hann stýrði kjötverslun J.C. Klein að Hrísa- teig 14, Reykjavík, 1955 til 1967, vann í Kaupfélaginu á Seyðisfirði og versluninni Dvergasteini á Seyðisfirði 1967- 1968. Eftir að fjölskyldan flutti suður vann Kristján sem kjöt- iðnaðarmaður hjá Síld og fisk og síðan hjá Sláturfélagi Suður- lands þar sem hann endaði sinn starfsferil 1988. Kristján var lengi félagi í Oddfellowregl- unni, og einnig var hann félagi í Félagi íslenskra kjötiðnaðar- manna um langt árabil. Á sínum yngri árum var hann félagi og lék með knattspyrnufélaginu Víkingi. Utför Kristjáns Valdimars Kristjánssonar fer fram frá Neskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. systkinin er þá vorum á svipuðum aldri á hverjum einasta sunnudags- morgni í Sundhöllina við Baróns- stíg í sund. Á leiðinni heim var alltaf komið við í bakaríinu og keyptar kruður sem voru bakaðar í ofninum heima og síðan borðaðar með bestu lyst. Ég man hvað okk- ur þótti þær rosalega góðar. Mér verður hugsað til þess tíma er ég var lítill strákur heima á Lambhól og þú komst alltaf heim í hádeginu frá kjötbúðinni á Hrísa- teigi, sem þú rakst þá fyrir afa Klein. Þá komstu oft með eitthvert smádót handa litlum dreng, sem gladdi hann mikið. Aðeins seinna eða er ég var u.þ.b. 10 ára fékk ég svo stundum að vinna hjá þér í búðinni eins og eldri systkinin höfðu gert, og ég man hvað það var spennandi að fara með þér á eftir niður á Baldursgötu til afa og fá smákaup fyrir. Árið 1967 hætti búðin á Hrísa- teigi og þú fékkst vinnu hjá Kaup- félaginu á Seyðisfirði. Þá um vorið fórum við saman tveir feðgamir, á undan hinum í fjölskyldunni, ak- andi til Seyðisfjarðar. Það var æv- intýralegt ferðalag fyrir ungan dreng, og ekki síður var ævintýri líkast er við bjuggum saman tveir einir á Seyðisfirði fyrstu vikurnar áður en mamma og hin systkinin komu austur, þar sem við síðan bjuggum í tvö ár. Mér verður hugsað til allra ferð- anna sem við fórum saman í Selsund, fyrst er ég og við systkin- in vorum böm, og síðar er ég hafði aldur til fórum við ófáar ferðimar í Selsund til að veiða rjúpur. Það var með ólíkindum hvað þú varst dug- legur að fara austur með okkur til rjúpnaveiða eftir að aldurinn færð- ist yfir þig, enda varstu alltaf mikill fjalla- og útivistarmaður. Þótt hugur þinn væri orðinn óskýr síðustu árin veit ég að það gladdi þig mikið að sjá loks í fyrra- sumar rísa sumarbústað fyrir okk- ur í kvosinni á Selsundi, sem þú tókst frá fyrir þig og fjölskylduna fyrir mörgum ámm. Mér verður hugsað til allra þeirra stunda er þú eyddir úti í bíl- skúr við að snurfusa og dytta að bílunum þínum í gegnum tíðina, en þú varst virkilega duglegur við þá iðju alveg þangað til þú gast ekki lengur sjálfur, vegna veikinda, ekið bíl. Þú hafðir alltaf mjög gaman af barnabörnunum er þau komu til sögunnar og greinilegt var, er ég kom með strákguttana mína til þín á spítalann fjómm dögum fyrir andlátið, hvað þér þótti gaman að sjá þá, þótt þú gætir ekki tjáð þig með orðum. Strákamir mínir höfðu alltaf mjög gaman af að koma á Lambhól til að heimsækja afa og ömmu þar. Nú verður bara amma eftir þar til að heimsækja. Barnabörnin þín og bamabarna- börnin sjá nú á eftir kæmm afa sínum, við systkinin sjáum á eftir kæram föður og mamma á eftir kærum eiginmanni. Hvíl í friði kæri pabbi. Kristján Kristjánsson. Með nokkram orðum langar mig að kveðja tengdafóður minn, Krist- ján - eða Stjána afa, eins og hann var alltaf kallaður á mínu heimili. Það er svo skrýtið að alltaf held- ur maður að nægur tími sé til allra hluta. Það er sama hversu oft mað- ur er minntur á, alltaf er erfitt að gera sér grein fyrir því að enginn er eilífur og tíminn aldrei óendan- legur. En það er nú einhvern veg- inn þannig með okkur mannfólkið að við viljum aldrei missa þá sem okkur þykir vænt um, þó svo að dauðinn eigi að vera jafn eðlilegur hluti af lífinu og fæðingin. Einmitt þannig upplifði ég sjálfa mig þegar Stjáni dó. Þó svo að hann hafi verið orðinn mjög veikur og batahorfur ekki góðar vildi ég samt fá að eiga hann lengur. Það var svo margt sem mér fannst ég eiga eftir að segja og gera með honum og svo fannst mér bömin mín missa svo mikið að missa eina afann sem þau áttu eftir á lífi. Að eiga afa og ömmu tel ég vera fjársjóð í lífi hvers barns, að eiga einhvem annan að en bara pabba og mömmu sem er stoltur af manni og lætur sér varða framtíð manns, það er meira en lítið. En sem betur fer lifir minningin, hún er eilíf á meðal afkomenda hans. Elsku börnin mín, við pabbi skulum sjá til þess að minningin um hann afa fái að lifa með ykkur jafn björt og góð og hún lifir fyrir okkur, svo þið get- ið stolt sagt börnum ykkar frá hon- um Stjána afa. Annars er varla hægt að nefna Stjána á nafn án þess að finnast ég þurfa að segja Hilda líka, því afi og amma á Lambhól hafa alltaf verið nefnd í sömu setningunni. Að fara til ömmu og afa á Lambhól, eða hitta afa og ömmu á Lambhól, það verður erfitt að geta ekki nefnt afa lengur í þessu sambandi því þau voru svo stór hluti hvort af öðra. Ég kynntist Stjána fyrir einum átján áram þegar ég og Jóhannes sonur hans byrjuðum að vera sam- an. Við fyrstu kynni fannst mér hann vera frekar lokaður og kannski ekkert sérstaklega áhuga- samur um þennan stelpugemling sem farinn var að venja komur sín- ar á Lambhól. En smám saman eft- ir því sem á tímann leið kynntist ég þeim manni sem hann hafði að geyma, þeim manni sem stóð síður en svo á sama um mig og framtíð okkar Jóhannesar. Ég veit ekki hversu oft hann skaut því að mér á áram áður að honum fannst þessi annars stóri barnahópur sem hann átti ekki standa sig nógu vel í að gefa sér barnabörn - því þau vora bara þrjú og öll orðin stálpuð. Gleymi ég aldrei þeim degi er við komum nið- ur á Lambhól til að segja tíðindin. Stjáni hafði lagt sig og nennti ekki fram, þó svo að hann heyrði að komnir væra gestir. Við sögðum Hildu að við ættum von á barni og fór hún inn í herbergi til þess að vekja hann. Heyrðum við hana segja: „Stjáni minn, Jói og Svava era hérna frammi með fréttir fyrir okkur.“ Það skipti engum togum, hann stökk fram úr rúminu og spurði: „Er ég að verða afi?“ Já, hann var svo sannarlega Stjáni afi af lífi og sál og veit ég að barna- bömin eiga aldrei eftir að gleyma orðum hennar ömmu þegar henni fannst vera komið nóg af hlaupum og látum: „Krakkar mínir, ekki vera að æsa hann afa upp, hann er orðinn svo gamall og þolir það ekki.“ En afi, hann lét ekkert segj- ast, því þó svo börnin settust niður og reyndu að vera stillt og prúð gat afi hreinlega ekki hætt að ærslast í þeim. Þegar Ragnhildur elsta dótt- ir okkar var rétt tveggja mánaða gömul hringdi hann einu sinni í okkur og spurði eftir henni í sím- ann. Ég vissi eiginlega ekki hverju ég átti að svara, því telpan var nú ekki það bráðþroska að hún gæti talað í símann. Nei, þá vildi afi bara fá að heyra hljóðin í henni, því það var svo langt siðan hann hafði séð hana. Nú árin hðu og barnabörnunum fjölgaði jafnt og þétt og barna- barnabörnin fóra að líta dagsins ljós hvert af öðra. Ekki leiddist af- anum það, því það var sama hversu veikur hann var orðinn undir það síðasta, alltaf léttist á honum brún- in og grallarinn kom upp í honum ef böm vora einhvers staðar nærri. Elsku Hilda mín, ég veit að síð- ustu mánuðir hafa verið mjög erf- iðir. Guð gefi þér og þínum styrk til þess að horfa til framtíðarinnar. Minninguna um Stjána geymum við í hjörtum okkar. Svava Hansdóttir. Þegar ég fékk þær fregnir að elskulegur afi minn Kristján Valdi- mar Kristjánsson hefði andast að kvöldi hins níunda nóvember gerð- ust undarlegir hlutir. Ég hvarf aftur í tímann. Til þess tíma er ég var lítill drengur í heim- sókn hjá afa og ömmu minni á Lambhól. Þar var hásæti. Og ekk- ert venjulegt hásæti. Nei! Það var sæti umbúðalausrar væntumþykju og ástar. Sá mikli hagleikssmiður sem það reisti var afi minn og ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að verma það oft og mörgum sinn- um. Já, að vera patti hjá ömmu og afa var sældarlíf. Þar var stjanað við mann á alla kanta og bhknaði flest allt í samanburðinum við þá sælu, sem það var að vera hjá þeim. Maður átti meira að segja alltaf vísan leikfélaga, þar sem afi var oft á tíðum óþreyjufyllri en ég í að fara að leika. Og var ég jafnvel vakinn upp af honum ef honum fannst að of langur tími hefði hðið á milli leikstunda. Auðvitað hafði afi minn marga galla og sjálfsagt hef ég erft þá flesta. Samt sem áður era það ekki þeir sem sitja eftir heldur minning- in um þá gleði og ánægju sem skein úr andliti mínu. Og veit ég að sú gleði og ánægja var gagnkvæm og var alla hans tíð. Þetta er sú minning sem rís hæst og skrifa ég því á þessa lund. Nú ber ég þá von í bijósti að ég geti eitthvað miðlað af hagleiks- smíði hans til dóttur minnar henn- ar Önnu Lífar þar sem hans nýtur ekki lengur við. Og kannski verður hann mér innan handar í þeim efn- um eins og hann var mér innan handar í mínum leik hér áður fyrr. Orð megna lítils er dauðann ber að garði. Þrátt fyrir það vil ég kveðja ástkæran afa minn með þessum fátæklegu orðum og þakka fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Votta ég öllum aðstandendum samúð mína og sér- staklega yndislegri ömmu minni, henni Ragnhildi Magnúsdóttur. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson. Kveðja til afa. Elsku afi, ég sendi þér kæra kveðju mína. Megi ljós þitt lýsa mér og himnagöngu þína. Hafðu það gott og njóttu vel í nýjum heimkynnum þínum. Góði Guð, þér ég fel að líta eftir afa mínum. Ragnhildur, Hans Óttar og Iris Harpa. t Faðir okkar, tengdafaðir, fyrrverandi eigin- maður, afi og langafi, EINAR HELGASON bókbandsmeistari, hjúkrunarheimiiinu Eir, lést þriðjudaginn 17. nóvember. Ragnar G. Einarsson, Guðlaug Friðriksdóttir, Helgi R. Einarsson, Helga Stefánsdóttir, Steinunn Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur og barnabarn, RÚNAR BÁRÐUR ÓLAFSSON, Hólmgarði 2b, Keflavík, sem lést laugardaginn 14. nóvember, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudag- inn 20. nóvember kl. 14.00. Ólafur Þ. Guðmundsson, Guðlaug F. Bárðardóttir, Viðar Ólafsson, Róberta Maloney, Sveinbjörg S. Ólafsdóttir, Kjartan Ingvarsson, Árný Eyrún Helgadóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi, VIGFÚS SIGURÐSSON, Sogavegi 34, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu- daginn 20. nóvember kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er þent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins og deild 11 -E, krabbameinsdeild Landspítalans. Ragna Þ. Stefánsdóttir, Hanna Rúna Vigfúsdóttir, Ragna Skínner. KRISTJÁN VALDIMAR KRIS TJÁNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.