Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Útreikningar Þorkels Helgasonar
á breyttri skipan kjördæma
Kvennalistinn
á mörkum
þess að hljóta
þingsæti
Forsætisráðherra mælir fyrir breyt-
ingu á kjördæmaskipan á Alþingi í dag
SAMTÖK um kvennalista næðu ekki
inn þingmanni á Alþingi samkvæmt
tillögum þeim sem nú liggja fyrir Al-
þingi um breytingu á skipan kjör-
dæma- og kosningalaga og sé miðað
við úrslitin í alþingiskosningunum
árið 1995. Þetta kemur m.a. fram í
útreikningum sem Þorkell Helgason
stærðfræðingur gerði að beiðni
Morgunblaðsins. Aðrir flokkar sem
buðu fram í alþingiskosningunum ár-
ið 1995 héldu hins vegar sínum þing-
mannastyrk nema hvað Alþýðuflokk-
ur, Framsóknarflokkur og Þjóðvaki
fengju hver einn jöfnunarþingmann
til viðbótar.
í frumvarpi til stjómskipunarlaga
sem Davíð Oddsson mælir fyrir á AI-
þingi f dag .er gerð tillaga um að
landinu verði skipt í sex kjördæmi í
stað átta en það er í samræmi við til-
lögu kjördæma- og kosningalaga-
nefndar, skipuð fulltrúum fimm
þingflokka, sem ráðherra skipaði í
september á síðasta ári. Samkvæmt
tillögum nefndarinnar verða þrjú
kjördæmi á suðvesturhorni landsins
og þrjú landsbyggðarkjördæmi.
Eins og fyrr segir gengur Þorkell
út frá kosningaúrslitunum árið 1995 í
útreikningum sínum en breytir úr-
slitunum með því að taka tillit til
fjölgunar kjósenda frá kjörskrá í
þeim kosningum til kjörskrártalna
árið 1997. Þá er atkvæðum skipt á
milli kjördæmanna sex með sam-
lagningu eða hlutfallsreikningi eftir
Ók á ljósa-
staur
BIFREIÐ var ekið á ljósastaur við
gatnamót Reykjanesbrautar og
Stekkjarbakka um kl. 13.30 í gær.
Ökumaðurinn var ekki í bílbelti og
hlaut höfuðmeiðsl er hann kastaðist í
framrúðu bifreiðarinnar. Hann var
fluttur á slysadeild með sjúkrabif-
reið en meiðslin voru minniháttar.
Ljósastaurinn skemmdist og var
kallaður út viðgerðarmaður til að
lagfæra hann.
því sem við á. í þeim útreikningum
þarf því að gefa sér ákveðnar for-
sendur um fylgi flokkanna. Til dæm-
is þær að fylgi þeirra sé það sama í
austur- og vesturhluta Reykjavíkur
og að fylgi þeirra sé eins á Siglufirði
og annars staðar í núverandi kjör-
dæmi bæjarins, Norðurlandi vestra.
Niðurstöðumar eru þess vegna ekki
nauðsynlega þær sömu og ef kosið
hefði verið árið 1995 samkvæmt til-
vonandi kjördæmaskipan.
Þingsæti færast til suðvestur-
horns landsins
Sé vikið aftur að útreikningum
Þorkels kemur fram að Samtök um
kvennalista fengju hvorki kjör-
dæmasæti né jöfnunarsæti. í fýrir-
liggjandi tillögum er gert ráð fyrir
því að stjómmálasamtök eigi rétt á
jöfnunarsætum þá og því aðeins að
þau hljóti að minnsta kosti 5% fylgi á
Íandinu öllu. Gildandi lög gera hins
vegar ráð fyrir því að réttur til jöfn-
unarsæta sé háður því að flokkurinn
hafi fengið kjördæmasæti. í niður-
stöðum Þorkels skortir Kvennalist-
ann nokkur atkvæði til þess að ná
þessu 5% marki og því hefði hann
ekki rétt á jöfnunarsætum. Til sam-
anburðar má geta þess að í síðustu
alþingiskosningum fékk Kvennalist-
inn einn kjördæmakjörinn þingmann
í Reykjavíkurkjördæmi og þar með
tvo jöfnunarmenn í Reykjavík og á
Reykjanesi.
I Ijósi óvissu í forsendum má þó
allt eins gera ráð fyrir því að
Kvennalistinn sé yfir 5% mörkunum
og hljóti þar með þrjú jöfnunarsæti.
Sé gengið út frá því í útreikningun-
um að Kvennalistinn hljóti þessi sæti
fengju hinir flokkamir jafnmarga
þingmenn og í síðustu alþingiskosn-
ingum.
Þrátt fyrir að stjómmálasamtökin
fengju jafn marga þingmenn á land-
inu öllu og í síðustu kosningum fær-
ast þingsæti flokkanna á milli lands-
hluta enda er það megintilgangur
breytinganna að jafna vægi atkvæða.
Þannig færast nokkur þingsæti frá
landsbyggðinni til þéttbýlisins á suð-
vesturhorni landsins.
LJÁÐU ÞEIM EYRA
í kvöld á Súfistanum
í Bókabúð Máls og menningar
|Mi
ö
Nýjar bækur kynntar
Guð hins smáa eftir Arundhati Roy.
Ólöf Eldjárn les úr þýðingu sinni
Gerður Kristný: Eitruð epli
Kristín Ómarsdóttir:
Lokaðu augunum og hugsaðu um mig
Sigmundur Ernir: Sjaldgæft fólk
Sigurður Pálsson: Parísarhjól
Aðgangur ókeypis - Hefst kl. 20.30
Mál og mennlng • Laugavegl 18 • Slml 515 2500
FRETTIR
Úthlutun þingsæta skv. frumvarpi
til stjórnskipunarlaga, nóv. 1998
Gengið er út frá kosningaúrslitum 1995 en tölunum breytt á tvennan hátt. Annars vegar er tekiö tillit til fjölgunar kjósenda frá kjörskrá 1995 til kjörskrártalna 1997. Hins vegar em atkvæði færð í hin nýju kjördæmi með samlagningu eða hlutfallaneikningi eftir því sem við á.
A B D G J V
Atkvæði Alþýðu- flokkur Framsóknar- Sjálfstæðis- flokkur ftokkur Alþýðu- bandalag Þjóð- vaki Kvenna- listi Alls
Norðvestur 1.964 5.906 5.827 2.543 1.080 779 18.098
Norðaustur 1.814 9.931 6.593 4.100 1.826 567 24.831
Suður 2.323 5.653 7.874 3.189 1.078 679 20.796
Suðvestur 5.480 7.312 13.639 4.423 2.112 1.462 34.428
Reykjavík-V 3.821 4.965 14.133 4.810 2.944 2.341 33.014
Reykjavík-A 3.821 4.964 14.133 4.810 2.944 2.341 33.012
Landið allt 19.222 38.732 62.199 23.875 11.984 8.168 164.180
Atkvæðahlutfall Gild
Norðvestur 10,8% 32,6% 32,2% 14,0% 6,0% 4,3% 100%
Norðaustur 7,3% 40,0% 26,6% 16,5% 7,4% 2,3% 100%
Suður 11,2% 27,2% 37,9% 15,3% 5,2% 3,3% 100%
Suðvestur 15,9% 21,2% 39,6% 12,8% 6,1% 4,2% 100%
Reykjavík-V 11,6% 15,0% 42,8% 14,6% 8,9% 7,1% 100%
Reykjavík-A 11,6% 15,0% 42,8% 14,6% 8,9% 7,1% 100%
Þingsæti ef V-Iistinn hlýtur jöfnunarsæti (Kjördæmissasti + jöfnunarsæti)
Norðvestur 1 4 3+1 1 9+1
Norðaustur 4 3 2 +1 9+1
Suður 1 3 4 1+1 9+1
Suðvestur 2 2 4 1 +1 +1 9+2
Reykjavík-V 1 1 5 1+1 1 +1 9+2
Reykjavík-A 1+1 1 5 1 1 +1 9+2
Landið allt 6+1 15 24+1 7+2 2+2 +3 54+9
Strangt til tekið lendir V-listinn undir þeim mörkum að eiga rétt á jöfnunarsætum.
Þingsæti ef V-listinn hlýtur ekki jöfnunarsæti Alls
Norðvestur 1 4 3+1 1 9+1
Norðaustur 4+1 3 2 9+1
Suður 1 3 4 1+1 9+1
Suðvestur 2 2 4 1 +2 9+2
Reykjavík-V 1+1 1 5 1+1 1 9+2
Reykjavík-A 1+1 1 5 1 1+1 9+2
Landið allt 6+2 15+1 24+1 7+2 2+3 0 54+9
Úrslit Alþingiskosninga 1995 (Kjördæmissæti + jöfnunarsæti)
A B D G J V Alls
Reykjavík 2 2 7+1 2+1 1+1 1+1 15+4
Reykjanes 2 2 4+1 1 +1 +1 9+3
vesturland +1 2 2 4+1
Vestfirðir 1 1 2 +1 4+1
Norðurl. V 2 1+1 1 4+1
Noröurl. E 2 2 1 +1 5+1
Austurland 2 1+1 1 4+1
Suðurland +1 2 2 1 5+1
Landið allt 5+2 15 21+4 7+2 2+2 1+2 50+13
Háskólanemar
mótmæla skertri
lesaðstöðu
Setuverk-
fall í
Þjóðar-
bókhlöðu
NEMAR við Háskóla íslands
ætla að mótmæla skerðingu á
þeim tíma sem Þjóðarbókhlað-
an er opin með því að fara í
setuverkfall í bókhlöðunni eftir
lokun frá kl. 19 til 22 í kvöld.
í fréttatilkynningu frá stúd-
entum kemur fram að í byrjun
skólamisseris í haust hafi íes-
aðstaða háskólanema verið
skert verulega en Þjóðarbók-
hlaðan hefur að undanfömu
verið opin frá kl. 8.15 til 19 frá
mánudegi til fimmtudags, til
kl. 17 á fóstudögum, og frá
10-17 á laugardögum en safn-
inu hefur verið lokað á sunnu-
dögum. Sérstaklega verður op-
ið vegna prófa til kl. 22 á virk-
um dögum á tímabilinu 25.
nóvember til 17. desember en
áfram verður lokað á sunnu-
dögum. Telja námsmenn þetta
engan veginn viðunandi og
benda m.a. á að flestar há-
skóladeildir ljúki prófum 21.
desember.
Lesaðstaða í
Odda lokuð
„Mikill fjárskortur Háskól-
ans og plássleysi hafa bitnað
harkalega á þeirri aðstöðu sem
stúdentar hafa til vinnu í Há-
skóla íslands. Niðurskurður
lesaðstöðu hefur verið mikill á
undanfórnum árum þrátt fyrir
þá miklu fjölgun nemenda sem
átti sér stað í upphafi áratug-
arins úr 4.300 í 5.700.
Nú síðast var lokuð lesað-
staða í Odda, húsnæði félags-
vísinda- og viðskipta- og hag-
fræðideildar. í þessum tveim-
ur af stærstu deildum Háskól-
ans stunda um 2.000 nemend-
ur nám en þeir hafa ekki feng-
ið úrlausn sinna mála þrátt
fyrir að nú sé komið að
próflestrartímabili í Háskóla
Islands. Stúdentar hafa ítrek-
að farið fram á aukið fjármagn
til að Þjóðarbókhlaðan verði
opin lengur sem fyrsta skref í
að leysa vandann," segir í
fréttatilkynningu.
Vill mat á
umhverfís-
áhrifum
ÓLAFUR Öm Haraldsson alþingis-
maður sagði á borgarafundi, sem
hann hélt um miðhálendi íslands í
gærkvöldi, að endurmat á virkjun-
aráformum á miðhálendinu væri
óhjákvæmilegt.
Fyrsta verkefnið á því sviði væri
að láta fara fram mat á umhverfisá-
hrifum Fljótsdalsvirkjunar. Fram
til þessa hefði verið fylgt gagnrýnis-
lausri nýtingarstefnu en nú væri
rétt að staldra við og endurmeta
stöðuna. I því skyni væri best að
nýta sér það stjórntæki sem lög um
mat á umhverfisáhrifum væri.
„Eg tel að það mat sem Lands-
virkjun lætur nú fara fram sé mjög
gott og ánægjulegt að fyrirtækið
skuli vanda til verka hvað það
snertir. En ég tel það ekki vera full-
nægjandi. Það vantar að minnsta
kosti einn stóran meginþátt í það
mat, þ.e. að gefa almenningi lög-
bundinn rétt til athugasemda og
íhlutunar. Jafnvel þótt eftir slíku
væri óskað af hálfu fyrirtækisins
þyrfti slíkt að vera í höndum rétt-
kjörinna aðila,“ sagði Ólafur Örn.
Andlát
JÓNAS GÍSLASON
JÓNAS Sturla Gíslason
vígslubiskup lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur
í gær, miðvikudaginn
18. nóvember, tæplega
72ja ára að aldri.
Jónas fæddist í
Reykjavík 23. nóvem-
ber árið 1926. Foreldr-
ar hans voru hjónin
Margrét Jóna Jónsdótt-
ir húsmóðir og Gísli
Jónasson skólastjóri.
Jónas lauk stúdents-
prófí frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið
1946 og guðfræðiprófi frá Háskóla ís-
lands árið 1950. Hann stundaði fram-
haldsnám í kirkjusögu og trúfræði við
Óslóarháskóla og Safnaðai’háskólann
í Ósló á árunum 1950 til 1951. Jónas
var sóknarprestur í Vík í Mýrdal 1953
til 1964 og fulltrúi hjá Almenna bóka-
félaginu 1964. Hann var sendiráðs-
prestur í Kaupmannahöfn 1964 til
1970 og sóknarprestur í Grensássókn
1970 til 1973. Jónas var aðjúnkt í guð-
fræðideild Háskóla íslands 1971 til
1973 og skipaður lektor 1973 og dós-
ent frá 1977 til 1988. Þá var hann pró-
fessor við guðfræðideild á árunum
1988 til 1990. Jónas var
vígslubiskup í Skálholts-
stifti frá árinu 1989.
Jónas ritaði bækur og
fjölda greina og ritgerða
um guðfræðileg og
sagnfræðileg efni, m.a. í
Kii'kjuritið, útgáfur á
vegum HI auk greina
sem birtust í erlendum
ritum. Einnig þýddi
hann Qölda rita og
greina um trúfræðileg
máleftii. Jónas gegndi
fjölmörgum trúnaðar-
störfum um ævina, m.a.
innan þjóðkirkjunnar, og var hann
fulltrúi Islands á fjölmörgum fundum
og ráðstefnum erlendis. Jónas var
formaður Ríkisútgáfu námsbóka
1953-1964. Hann átti sæti í stjórn
Hins íslenska Bibh'ufélags og >
menntamálanefnd þjóðkirkjunnar um
árabil og átti sæti í starfsháttanefnd
þjóðkirkjunnar á árunum 1974-1977.
Jónas var sæmdur Riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1990.
Eftirlifandi eiginkona Jónasar er
Arnfríður Inga Arnmundsdóttir hús-
móðir en þau gengu í hjónaband 26.
ágúst 1950. Eignuðust þau tvo syni.