Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Starfsmenn Hringrásar brytja brotajárn í gríð og erg við Krossanes
Morgunblaðið/Kristján
Haugurinn
verður um
4.000 tonn
STARFSMENN Hringrásar hafa
síðustu vikur verið að brytja niður
brotajárn á móttökusvæði Sorpsam-
lags Eyjafjarðar við Krossanes.
Einnig er tekið við brotajárni í öðr-
um sveitarfélögum á svæðinu.
Þegar hafa safnast yfir þrjú þús-
und tonn af brotajárni sem borist
hefur víða að áf svæðinu, en gert er
ráð fyrir að áður en yfir lýkur verði
magnið um eða yfir fjögur þúsund
tonn. Ekkert verður flutt út héðan á
þessu ári, en stefnt að útflutningi á
því næsta, eða jafnvel strax í janú-
ar. Verðið er lágt um þessar mundir
og halda menn þá frekar að sér
höndunum.
Sveinn Ásgeirsson hjá Hringrás
sagði að fyrirtækið hefði gert
samning við Sorpsamlag Eyja-
fjarðar um þessa vinnslu og hefðu
starfsmenn komið reglulega á síð-
ustu misserum til að vinna við
brotajárnið. Stefnt er að því að
skipa brotajárninu út á næsta ári
og Sveinn sagði að gámar og svæði
þar sem skila ætti brotamálmum
væru rækilega merkt, en þó vildi
brenna við að þar kenndi ýmissa
grasa en það tefði mjög vinnsluna.
„Við höfum fundið ýmislegt í
gámunum, spýtnabrak, hey og nú
síðast rákumst við á heilan úrbein-
aðan nautaskrokk," sagði Sveinn
og vildi hvetja fólk til að lesa merk-
ingar gámanna áður en það léti
hlutina frá sér.
Minna ummál
Hringrás hefur yfir að ráða fær-
anlegri endurvinnslustöð og hefur
hún farið víða á síðustu mánuðum,
m.a. á Akranes, Stykkishólm, ísa-
fjörð, Blönduós, Mývatn og Húsavík
og nú er verið að vinna á Akureyri.
Feiri sveitarfélög hafa sett sig í
samband við starfsmenn, en margir
hafa sýnt áhuga að sögn Sveins og
eru að leita lausna. „Það er alveg
gi'einilegt að fólk hefur tekið við sér
og hugsar á umhverfisvænni nótum
nú en áður,“ sagði Sveinn.
Hann nefndi að ummál brota-
járnsins væri afar mikið og menn
væri víðast hættir að urða það, enda
tæki það mikið pláss frá því efni
sem ekki væru önnur ráð með en að
urða. Hvert tonn af óunnu brota-
járni er um 7 rúmmetrar, en um-
fangið verður mun minna þegar bú-
ið er að brytja það niður.
Starfsmenn Hringi-ásar verða á
ferðinni á næstunni, en þegar þeir
eru ekki við er svæðið við Krossa-
nes opið á miðvikudögum frá kl. 8 til
18 og laugardögum frá 10 til 16.
Franskir
fiskimenn
ELÍN Pálmadóttir blaðamaður
fiytur fyrMestur um veiðar
franskra fiskimanna við Island í
stofu 25 í Háskólanum á Akur-
eyri, við Þingvallastræti, næst-
komandi laugardag, 21. nóvem-
ber, og hefst hann kl. 14.
Elín hefur kynnt sér líf og
veiðar þessara fiskimanna og
samskipti þeiira við landsmenn
og m.a. skrifað bókina Fransí
Biskví um þetta efni, en hún
kom út árið 1989.
Á blómatíma þorskveiðanna
voru um 200 skip með 4.000
frönskum íjskimönnum á hverri
vertíð við Island í 7 mánuði og
var barist við íslensk vetrarveð-
ur með seglin ein að vopni. Tók
sú barátta sinn toll, en mörg
skip og fiskimenn áttu ekki aft-
urkvæmt eins og sjá má í
frönskum og íslenskum kii’kju-
görðum. Sagnir lifa enn af sjó-
slysum, skipsströndum og
frönskum fiskimönnum.
Fyrirlestur Elínar er öllum
opinn.
Skákmót
TIU mínútna mót verður haldið
í skákheimili Skákfélags Akur-
eyi'ar í kvöld, fimmtudagskvöld-
ið 19. nóvember kl. 20 og er það
fyrir 45 ára og eldri. Á sunnu-
dag, 22. nóvember kl. 14 verður
haldið fimmtán mínútna mót í
skákheimilinu.
Þór og KA
Alplata
með neyð-
arnúmeri
FÉLAGAR úr íþróttafélögun-
um Þór og KA munu á næst-
unni ganga í hús og fyrirtæki
að selja neyðarsímanúmers-
plötu, litla álplötu með neyðar-
númerinu.
Þetta eru plötur sem henta
á öll símatæki, hvort sem er
farsíma, heimilis- eða fyrir-
tækjasíma. Ekki þarf að ít-
reka nauðsyn þess að hafa
neyðamúmerið ailtaf við
höndina og eru Akureyringar
því hvattir til að taka vel á
móti sölufólki og aðstoða þar
með íþróttafélögin til að koma
neyðamúmerinu á alla síma á
Akureyri. Verð á plötunni er
300 krónur. Missi einhver af
sölufólkinu er hægt að nálgast
þær í félagsheimilum félag-
anna.
Eins vilja félögin benda
Akureyi’ingum á að börn eða
fólk sem er að vinna hin ýmsu
verkefni á vegum félaganna
er merkt þeim. Borið hefur á
að ómerkt börn hafa komið í
hús að biðja um peninga eða
eitthvað annað til styrktar
hinum ýmsu deildum í nafni
félaganna, en séu þau ekki
með þar til gerð merki með
sér eru þau ekki á vegum fé-
laganna.
Nýtt tríó með
tónleika á
Norðurlandi
TRÍÓIÐ Gítar Islancio heldur
tvenna tónleika á Norðurlandi í
vikunni. Þetta er nýstofnað tríó,
skipað gítarleikurunum Birni
Thoroddsen og Gunnari Þórðar-
syni og kontrabassaleikaranum
Jóni Rafnssyni.
Fyrri tónleikar tríósins verða á
Café menning á Dalvík í kvöld,
fimmtudag kl. 21.30, en hinir síð-
ari á Kaffi Akureyri á morgun,
föstudag, kl. 21.30.
Tónlistin sem þeir félagar
leika er oft og tíðum létt og
sveiflukennd og meðal höfunda
má nefna Django Reinhardt,
Chick Corea, Duke Ellington,
Björn Thoroddsen og Gunnar
Þórðarson.
GÍTAR Islancio: F.v. Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson.
Ráðstefna um Alz-
heimersjúkdóminn
FÉLAG áhugafólks og aðstandenda
sjúklinga með Alzheimer og skylda
sjúkdóma á Akureyri og nágrenni,
FAASAN efnir til ráðstefnu í Odd-
fellowhúsinu á Akureyri laugardag-
inn 21. nóvember. Ráðstefnan verð-
ur sett kl. 10.30 og henni lýkur um
kl. 17.30.
Fjöldi erinda verður íluttur á
ráðstefnunni, nefna má að Guðrún
K. Þórsdóttir, framkvæmdastjóri
FAAS í Reykjavík, kynnir starf-
semi félagsins, segir frá ferli
HOTEL SKJALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16
NYTT HOTEL A BESTA
STAÐ í MIÐBORGINNI
VETRARTILBOÐ
Verð frá kr. 2.700 á mann í2ja manna herbergi.
Morgunverðarblaðborð innifalið.
Frír drykkur á veitingahúsinu Vegamótum.
uííaSr
Sími 511 6060, fax 511 6070
guesthouse@eyjar.is
Alzheimersjúkdómsins og kær-
leiksþjónustu í kringum hann,
Gerður Sæmundsdóttir hjúkrunar-
fræðingur fjallar um viðhorf til
minnissjúkra og samskipti við þá,
Berglind Magnúsdóttir, sálfræð-
ingur fjallar um sálfræðilega þætti
við samskipti við minnissjúka,
Ingibjörg Pétursdóttir ræðir um
iðjuþjálfun á dagvistardeild fyrir
minnissjúka og Birna Matthías-
dóttir, listmeðferðarfræðingur um
áhrif listmeðferðar.
Þorlákur Jónsson frá Islenskri
erfðagreiningu og Jón Snædal öldr-
unarlæknir fjalla um Aizheimer-
sjúkdóminn, ferii hans og þau úr-
ræði sem standa til boða, Halldór
Halldórsson yfirlæknir ræðir um
gi-einingarferli þessa sjúkdóms á
Akureyri og Þóra Ákadóttir hjúkr-
unarfræðingur ræðir um það helsta
sem er að gerast í málefnum minn-
issjúkra á Akureyri. Að loknum er-
indum verða almennar umræður.
Fundarstjóri er Valgerður Jóns-
dóttir hjúkrunarfræðingur, aðgang-
ur að ráðstefnunni er ókeypis og
eru allir áhugamenn og velunnarar
félagsins hvattir til að mæta.
Folda á Akureyri
Uppsagnarfrestur
starfsfolks
framlengdur
UPPSAGNARFRESTUR starfs-
fólks ullariðnaðarfyrirtækisins
Foldu á Akureyri hefur verið fram-
lengdur í að minnsta kosti einn
mánuð til viðbótar, að sögn Her-
manns Sigursteinssonar fram-
kvæmdastjóra. Áður hafði uppsagn-
arfresturinn verið framlengdur
fram í miðjan þennan mánuð.
Hermann sagði fyrirtækið enn
vera að vinna upp í samninga og þar
starfa nú um 30 manns. Öllu starfs-
fólki Foldu var sagt upp sl. sumar
en þá voru tæplega 50 manns á
launaskrá hjá fyrirtækinu. í kölfar-
ið hefur verið unnið að því að endur-
skipuleggja reksturinn og skoða
framhaldið en Hermann sagði málið
enn í vinnslu og ekkert af því að
frétta á þessari stundu.
Börn og bænir
LÍF og fjör hefur verið á fjöl-
skyldumorgnum í Glerárkirkju síð-
ustu fimmtudaga en þá hafa mömm-
ur, ömmur og börn komið saman,
hlýtt hefur verið á fróðleg erindi
sem tengjast barnauppeldi og börn-
in leikið sér saman.
í dag, fimmtudaginn 19. nóvem-
ber, ræðir sr. Gunnlaugur Garðars-
son sóknarprestur um börn og bæn-
ir, en rannsóknir benda til að sterk
tengsl séu milli trúar og heilbrigðis
og margir vitna um hvernig trúin
hefur komið þeim í gegnum áföll í
lífinu.
Allir þátttakendur fá falleg bæna-
veggspjöld sem Skálholtsútgáfan
hefur látið vinna.