Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 11
Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn um lögleiðingu fíkniefna
Myndi leiða
til aukinnar
misnotkunar
UMRÆÐA um lögleiðingu fíkni-
efna hérlendis hefur leitt ákveðinn
hóp fólks til fundahalda og greina-
skrifa um málefnið. Nú síðast birt-
ist grein um málið í Morgunblaðinu
sl. þriðjudag.
Helstu rökin eru þau að glæpum
myndi fækka í kjölfar lögleiðingar
og hefur verið leitað til reynslu
Hoilendinga í því samhengi, en þar
þykir ekki refsivert athæfí að
neyta kannabisefna. Karl Steinar
Valsson aðstoðaryfírlögregluþjónn
hjá forvama- og fræðsludeild lög-
reglunnar í Reykjavík segir að
túlkun á gögnum lögreglunnar í
Hollandi sé tvennskonar þannig að
bæði þeir, sem séu með og á móti
lögleiðingu geti nýtt sér þau.
„Meðrökin eru því ekki nægilega
haldbær til að renna stoðum undir
þá staðhæfíngu að lögleiða eigi
fíkniefni," segir Karl Steinar. „Það
má líka velta því fyrir sér hvort
lögleiðing fíkniefna leiði ekki til
fjölgunar neytenda og þá hugsan-
lega fjölgunar þeirra sem misnota
efnin. Aukin misnotkun gæti í
framhaldi af því leitt til þess að
fjöldi fíkniefnatengdra aíbrota
stæði í stað eða í versta falli fjölg-
aði. Einnig verður að athuga, að
fíkniefnabrot tengjast ekki ein-
göngu auðgunarbrotum heldur
einnig ofbeldisbrotum, t.a.m. kyn-
ferðisbrotum."
Skylda ríkisins að vernda
borgarana
Frjálshyggjusjónarmið lögleið-
ingarsinna telja það svívirðu að
ríkið skuli hefta frelsi þeirra sem
vilja neyta fíkniefna afskiptalaust,
en Karl Steinar segir að vissulega
sé það ekki skylda ríkisins að
vernda einstaklinginn frá eigin
ákvörðunum. „Það er hinsvegar
skylda ríkisins að vernda borgara
og þá ekki síst fyrir þeirri hættu
sem þeim getur stafað af áhættu-
hegðun annarra. Þannig má segja
að með því að gefa einstaklingum
frelsi til fíkniefnaneyslu sé verið
að skerða frelsi þeirra sem ekki
neyta fíkniefna," segir Karl Stein-
ar.
Tillaga Framsóknar í sjávanitvegsmálum
Afstaða Halldórs
birtist á þinginu
HALLDÓR Ásgn'msson, formaður
Framsóknarflokksins, vill ekki tjá
sig um hvort hann styður drög að
ályktun um sjávarútvegsmál, sem
lögð verður fyrir flokksþing flokks-
ins; en þingið hefst á morgun.
I drögum að ályktun um sjávar-
útvegsmál er iagt til að hluti af
aukningu veiðiheimilda verði
leigður á kvótaþingi. Einnig er
lagt til að hagnaður útgerðar-
manna sem fara út úr atvinnu-
gi-eininni verði skattlagður með
sérstökum hætti.
Halldór sagði að ályktun um
sjávarútvegsmál hefði verið undir-
búin í fjölmennum hópi eins og aðr-
ar ályktanir sem lagðar yrðu fyrir
flokksþingið. Hann sagðist ætla að
fjalla um sjávarútvegsmál í ræðu
sem hann flytti við upphaf flokks-
þingsins.
Aðspurður sagðist Halldór ekki
hafa tekið þátt í að semja eina ein-
ustu ályktun fyrir þingið. Hann
hefði reynt að stuðla að því að opna
starf flokksins sem mest þannig að
Innbrotsþjóf-
ar handteknir
í Síðumúla
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók þrjá pilta undir tvítugu á sjötta
tímanum í gærmorgun er þeir voru
að brjótast inn í verslun í Síðu-
múla.
Öryggisvörður verslunarinnar
varð þeirra var og lét lögregluna
vita. Piltunum hafði ekki tekist að
brjóta sér lei'ð inn í verslunina, en
höfðu unnið talsverðar skemmdir
við innbrotstilraunina. Talið er að
þeir hafi reynt að komast yfir verð-
mæti í versluninni til að fjármagna
fíkniefnaneyslu.
sem flestir gætu haft áhrif á stefnu
hans.
Siv Friðleifsdóttir alþingismað-
ur, sem sækist eftir embætti vara-
formanns, sagðist ekki hafa tekið
þátt í að semja þessa ályktun. Hún
sagðist telja þetta athyglisverðar
tillögur. Þarna væri verið að gera
tillögu um að skattleggja þá sem
færu út úr atvinnugreininni, en
einmitt það atriði hefði verið gagn-
rýnt hvað harðast og átt þátt í að
koma óorði á annars gott kvóta-
kerfi.
Siv sagði að hugmyndir um að
leigja hluta af aukningu á kvóta á
kvótaþingi væru sömuleiðis athygl-
isverðar. Hún sagði að kvótaþingið
hefði ekki að öllu leyti virkað eins
og vonast var eftir. Það kunni því
að vera jákvætt að ríkið verði við-
skiptavaki og ti'yggi að það verði
ávallt nægilegt framboð af kvóta á
kvótaþingi.
Ekki náðist í Finn Ingólfsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í
gær.
Truflun á
símsambandi
BILANIR urðu í símstöðinni
á Seltjarnarnesi og Rauðará í
gær og ollu þær truflunum í
símsambandi hjá um 4 þúsund
notendum.
Ólafur Stephensen, for-
stöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála hjá Landsím-
anum, segir að bilanirnar hafi
ekki verið alvarlegar og við-
gerð tekið skamman tíma.
Einnig urðu truflanir á sím-
sambandi úr farsímum þegar
reynt var að hringja í númer
sem tengd eru þessum stöðv-
um.
FRÉTTIR
Verðlauna-
hafar
heiðraðir
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
stóð sl. þriðjudag fyrir samkomu
til heiðurs dr. Ólafi Arnalds,
samstarfsmönnum hans og að-
standendum verkefnisins Jarð-
vegsvernd, sem hlaut á dögunum
umhverfisverðlaun Norðurlanda-
ráðs. Þarna voru fluttar ræður
og ávörp og boðið upp á veiting-
ar. Á myndinni má sjá verðlauna-
hafann Ólaf Arnalds ásamt Guð-
mundi Bjarnasyni umhverfisráð-
herra.
Morgunblaðið/Kristinn
ATH.
TAKMAKKAl)
MAGIV
HREYSTI
•sportvÖRunus
Fosshálsi 1 - S. 577-5858
^Columbia
Sportswear Company®
Glacier úlpa
Verð áður 7.900.-
Hí. 5.990