Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 65 , FRÉTTIR Snerpa heldur ráðstefnu um aldamótavanda Morgunblaðið/Kiistinn BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra opnaði formlega Vefbóka- safnið í Bókasafni Seltjarnarness. Fyrsta vefvakt íslenskra almenningsbókasafna ISLENSK almenningsbókasöfn hafa verið að vinna að samstarfs- verkefni um vefvakt á Netinu. Félag um vefbókasafn var stofn- að 9. október sl. í þeim tilgangi að hafa formleg samtök um verk- efnið. Verkefnið felur í sér að byggja upp Vefbókasafn á Net- inu þar sem safnað verður saman skipulega íslenskum og erlendum vefkrækjum. Lögð er áhersla á að upplýs- ingar um samfélagsþjónustu ríkis og sveitarfélaga verði fyrir hendi í Vefbókasafninu. Einnig eru tengingar á innlendar og erlend- ar fræðslu- og upplýsingaveitur, auk efnis sem nýtist fólki í tóm- stundum. Vefbókasafnið er upplýsinga- tæki sem aðgengilegt er allan sólarhringinn á Netinu. Til að tryggja að allir geti notað það verður það aðgengilegt almenningi á almennings- bókasöfnunum. Þannig er tryggt aðgengi að upplýsingum fyrir fólk án tillits til efnahags eða búsetu. Almenningsbókasöfnin eru alhliða upplýsingamið- stöðvar sem ber að tryggja öllum notendum sínum greiðan aðgang að upplýsingum jafnt á rituðu máli, í formi myndefnis, í hljóðrituni sem á tölvutæku formi. Föstudaginn 13. nóvember var Vefbókasafnið formlega opnað á vefnum. Opnunin fór fram í Bókasafni Seltjarnarness og það var menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, sem opnaði vefinn. Slóð vefbókasafnsins er http://www.vefbokasafn.is íslenska útvarpsfélagið opnar dagskrárvef TÖLVU- og netþjónustan Snerpa á Isafirði efnir til ráðstefnu til fræðslu um vandamál tengd ártal- inu 2000 í tölvu- og upplýsingakerf- um nk. laugardag 21. nóvember kl. 14 í matsal Framhaldsskóla Vest- fjarða á ísafirði cg jafnframt í bókasafninu á Patreksfirði um fjar- fundakerfi framhaldsskólans. Meðal ræðumanna verða Ingólf- ur Helgi Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Hugmóts hf. sem m.a. hefur sérhæft sig í ráðgjöf um þetta efni. Einnig Jóhann Gunnarsson, sérfræðingur í fjár- málaráðuneytinu og ritari 2000- nefndar fjármálaráðherra, Krist- ján Haraldsson, orkubússtjóri hjá Orkubúi Vestíjarða, og Jón Arnar Gestsson frá Snerpu. Fluttar verða framsögur og jafnframt verður svarað fyrirspurnum úr sal um málefnið. Meðal efnis í fyririestrum verður Afhending Landgræðslu- verðlauna LANDGRÆÐSLUVERÐLAUN 1998 verða afhent í höfuðstöðvum Landgræðslunnar í Gunnarsholti föstudaginn 20. nóvember og hefst athöfnin kl. 15. Til að ná settum markmiðum um gróðurvernd og landbætur leggur Landgræðslan mikla áherslu á fræðslu, kynningu og þátttöku almennings í land- græðslustarfinu. Hlutverk land- græðsluverðlaunanna er að kynna og efla enn frekar það mikla sjálf- boðaliðastarf sem unnið er að víðs vegar um landið, segir í fréttatíl- kynningu. Þessi verðlaun eru veitt einstaklingum og/eða félögum og fyrirtækjum fyrir framúrskarandi störf í þágu landgræðslu og gróð- urverndar. Leitað var eftir til- nefningum frá öllum búnaðarsam- böndum og umhverfisnefndum landsins og munu fjórir aðilar hljóta verðlaunin í ár. Dómnefnd var skipuð þeim Huldu Valtýsdóttur, Sigurgeiri Þorgeirssyni, Níelsi Ai’na Lund, Sigmundi Einarssyni og Sveini Runólfssyni. Með veitingu landgræðsluverð- launanna vill Landgi'æðslan vekja athygli þjóðarinnar á fórnfúsu starfi ótal þjóðfélagsþegna að land- græðslumálum og jafnframt hvetja fleiri til dáða. umfjöllun um orsakir vandans og útbreiðslu, viðbrögð, hvort sá tími sem til stefnu er er nægur, líkleg áhrif hérlendis og erlendis, hvernig hægt er að undirbúa sig, á hvað leggur hið opinbera áhersiur í þessu efni, birgðasöfnun, varaleiðir og margt fleira er að 2000-vandan- um snýr. Þá verður bent á leiðir til að lág- marka afleiðingar vandans og einnig verður dreift á ráðstefnunni upplýsingum um hvernig má sam- ræma lausn á 2000-vandanum og önnur verkefni í tölvu-, sjálfvirkni- og upplýsingamálum. Fundarstjóri á Isafirði verður Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Isafjarðarbæjar, og á Patreksfirði verður fundarstjóri Haukur Már Sigurðarson, forseti bæjarstjóiTiar í Vesturbyggð. Aðgangur er ókejT>is og opinn öllum sem áhuga hafa á efninu. UPPLÝSINGAR OG LEIDBEININGAR um MND sjúkdómlnn hqndo foreldrum barna og ungs fðlks Bæklingar um MND- sjúkdóminn MND-félagið hefur gefið út tvo bæklinga sem fjalla um það hvernig í'ætt er við börn um það þegar ást- vinur þeirra fær MND-sjúkdóminn. í öðrum bæklingnum eru leið- beiningar fyi’ir foreldra og aðstand- endur barnanna. Hinn bæklingur- inn er skrifaður fyi'ir börnin sjálf til þess að fræðast um sjúkdóminn og þær tilfinningar sem vakna þegar ástvinur missir smám saman líkam- lega getu til daglegra hluta og hvernig hægt er að búa sig undir fráfall hans. Hægt er að nálgast bæklingana á skrifstofu félagsins. NÝR dagskrár- og þjónustuvefur var opnaður 17. nóvember undir auðkenninu ys.is. Allir ljósvakamiðl- ar Islenska útvarpsfélagsins, Stöð 2, Sýn, Bíórásin, Fjölvarp, Bylgjan og Mónó, verða með heimasíður á vefnum. Einstakir dagski'árliðir miðlanna verða kynntir og boðið upp á tengingar við erlenda mynda- banka og heimasíður framhalds- þátta, segir í fréttatilkynningu. Dagskrá allra miðlanna verður birt á einum stað. Velja þarf tákn- mynd þess miðils sem áhugi er á og birtist þá tímasettur listi yfir alla dagski'árliði tiltekins dags, ásamt nánari kynningu. Þjónusta við áskrifendur verður á vefnum. Þar má m.a. finna upplýs- ingar um myndlykilinn og senda ÍÚ vítt og breitt um landið, auk þess sem algengum spurningum við- skiptavina er svarað. Einnig geta áskrifendur sagt álit sitt á dagskrá og þjónustu Islenska útvarpsfélags- ins á vefnum ys.is. Unglingameist- aramót í skák SKÁKSAMBAND íslands heldur Unglingameistaramót Islands 1998 fyrir skákmenn fædda 1978 og síðar dagana 20.-22. nóvember og verða tefldar 7 umferðir eftir monrad- kerfi. Umhugsunartími er 1 klst. á alla skákina. Þátttökugjöld er 800 kr. og verður teflt að Þönglabakka 1, félagsheimili Hellis. Skráningar eru í síma Skáksambands íslands alla virka daga kl. 10-13 og á mótsstað föstudaginn 20. nóvember frá kl. 19. Fræðslufundur um gigt á Selfossi STJÓRN Gigtarfélags Suðurlands boðar til fræðslufundar um gigtar- sjúkdóma á Hótel Selfossi fimmtu- daginn 26. nóvember nk. kl. 20. Frummælandi verður dr. Björn Guðbjörnsson, gigtarsérfræðingur og yfirlæknir á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri, og nefnir hann erindi sitt Gigtin truflar svefninn. Umræður og fyrirspurnir að erindi loknu. Allir velkomnir. íþróttabúðin flutt á Grensásveg ÍÞRÓTTABÚÐIN hefur flutt úr Borgartúni 20 á Grensásveg 8. Verslunin leggur áherslu á vörur frá Nike og einnig golfvörur í miklu úrvali frá Spalding, Maxfli, Top Flite, Masters og Etonic. Verslunin er opin mánudaga til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16. Myndasögur Moggans- vinningar í LITALEIK á baksíðu Mynda- sagna Moggans i gær, miðviku- daginn 18. nóvember, láðist að geta vinninga. Þeir era: 10 myndbönd Töfrajól Fríðu, 20 Disney-bolir. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Selja 5 metra há gervi- jólatré SKÁTAHREYFINGIN hefur í 6 ár selt gervijólatré til styi'ktar starfsemi sinni sem þeir nefna „sí- græna jólatréð", en það er eftirlík- ing Normannsþins, að sögn skát- anna. Nú bjóða þeir upp á hærri gervi- jólatré en áður hafa boðist hérlend- is, en hæsta tréð sem þeir selja er 5 metra hátt. Skátarnir segja eftir- spurn eftir stærri trjám hjá þeim hafa farið vaxandi síðustu ár og eru það fyrst og fremst fyrirtæki og stofnanir sem kaupa stóru trén. Kirkjur hafa til að mynda verið að kaupa stór tré en víða láta þær jóla- tré standa í allt að mánuð í kirkj- unni, en það hefur verið mjög erfitt að halda náttúrulegu trjánum ferskum í þann tíma. Þá spara þessir aðilar sér allmikla fyrirhöfn með því að velja þennan fjárfest- ingarkost. Skátarnir bjóða nú „sígx-æna jóla- tréð“ sem þeir selja með 10 ára ábyi-gð, í 12 stærðum frá 90 sm upp í 5 metra há. Þetta eru eldtraust tré og fylgir stálfótur með. Tréð er að- eins selt í Skátahúsinu við Snorra- bi'aut. 21 keppir um titilinn „Herra ísland“ ÞRIÐJA árið í röð stendur Fegurð- arsamkeppni íslands nú fyrir vali fegursta karlmanns íslands. Keppnin er með svipuðu sniði og val Fegurðardrottningar Islands þ.e. að undangengnar eru forkeppnir úti á landi og koma keppendur því víðs vegar af landinu. Til úi-slita keppir að þessu sinni 21 herra á alch’inum 18-29 ára. Þessir hen-ar hafa að undanförnu stundað líkamsrækt stíft í World Class undir stjórn Hafdísar Jóns- dóttur og æfingar á sviði Broadway hófust 2. nóvember. Kadri Hint, „choreogi-afer" og dansari frá Eist- landi sér um sviðsetningu og þjálfun keppenda. Skipulag og undirbún- ingur keppninnar er í höndum Elín- ar Gestsdóttur, framkvæmdastjóra Fegurðarsamkeppni Islands. EIGENDUR verslunarinnar Ego Dekor, þeir Pálmi Gestsson og Friðvin Guðmundsson. Ego Dekor opn- að í Hafnarfírði NÝLEGA var opnuð húsgagna- og gjafavöruverslunin Ego Dekor að Bæjarhrauni 14 í Hafnarfirði. I þessari nýju verslun er boðið upp á skrautmuni og nytjalist. „Hjá Ego Dekor verður lögð áhersla á að bjóða upp á vandaða og listiæna muni fyrir heimilið, svo sem hús- gögn og gjafavörur sem hannaðar eru af evrópskum listamönnum," segir í fréttatilkynningu. Eigendur verslunarinnar eru þeir Pálmi Gestsson og Friðvin Guð- mundsson. Verslunarstjóri er Björg Guðmundsdóttir. KOLFINNA Guðmundsdóttir, eigandi Kertabúðarinnar. Ný kertabúð á Þórðarhöfða NÝ KERTABÚÐ hefur verið opnuð á Þórðarhöfða 1 við hliðina á Hlölla- bátum. Eigandi er Kolfinna Guð- munsdóttir og handsker hún kerti fyrir viðskiptavini í versluninni. I kertabúðinni eru í boði íslensk kerti af öllum stærðum og gerðum. Einnig ei' hægt að fá handskorin skrautkerti í versluninni. Verslunin er opin virka daga frá kl. 10-18. LEIÐRÉTT í YFIRFYRIRSÖGN og á einum stað í viðtali við Rannveigu Ár- mannsdóttur á blaðsiðu 8 í gær var nafn Alþjóðaskrifstofu háskólastigs- ins í'itað sem Alþjóðaskrifstofa Há- skóla Islands. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.