Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 FRÉTTIR Ný gjaldskrá fyrir útgáfu og birtingu gagna frá Landmælingum gagnrýnd Kostnaður hundruð þús- unda við hveria útgáfu UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur sett nýja gjaldskrá fyrir útgáfu og birtingu gagna frá Landmælingum íslands og gagnrýna forsvarsmenn útgáfufyrirtækja og stofnana, sem gefa út prentað efni með kortum unnum upp úr gögnum Landmæl- inga, hana harðlega. Heldur Haukur Jóhannesson, forseti Ferðafélags ís- lands, því fram að þessi gjaldskrá hafi í för með sér gífurleg höft fyrir alla útgáfustarfsemi í landinu og Sig- urður Svavarsson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir að hún setji útgáfu náttúrufarsbóka aft- ur um nokkra áratugi. „Ef farið verður strangt eftir þess- ari gjaldskrá, sem menn eiga greini- lega að gera, þá skiptir kostnaðurinn hundruðum þúsunda í hvert skipti sem um einhverja útgáfu er að ræða,“ segir Haukur. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Islands, gagnrýnir gjaldskrána harðlega. „Þetta mun hafa verulega aukinn kostnað í fór með sér varðandi alla útgáfu á okkar vegum, hvort sem þar er um að ræða skýrslur, tímarit eða kort,“ segir hann og bætir við: „Það er alveg ljóst að við stöndum frammi fyrir því að þurfa annaðhvort að fá fjárveitingu til að standa straum af auknum kostnaði, eða þá að draga úr og endurskoða rekstur- inn og endurskoða alla okkar útgáfu- starfsemi." Getur íþyngt bókaútgáfu „Mér sýnist að þetta geti íþyngt bókaútgáfu í landinu all verulega og verði farið grimmt eftir þessari gjaldskrá gæti útgáfa náttúrufars- bóka horfið nokkra áratugi aftur í tímann,“ segir Sigurður Svavars- son, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. „Mér sýnist ljóst að umhverfisráðuneytið sæki fyi'ir- mynd að gjaldskrá sinni til þeirra landa, sem lengst ganga í gjaldtöku, og í þeim löndum hafa stærri korta- og bókaútgefendui- einfaldlega brugðist við með því að leita annað eftir grunngögnum fyrir kort sín.“ ■ Gífurleg höft/14 Boy; George á Islandi BOY George var væntanlegur til landsins í gærkvöldi og verð- ur plötusnúður á skólaballi hjá Menntaskólan- um við Sund í kvöld á Hótel íslandi og á skemmtistaðn- um Inferno. Boy George, sem heitir réttu nafni George O’Dowd, var söngvari Culture Club einnar vinsælustu poppsveitar heims í lok áttunda og byrjun níunda áratugarins. Lög sveitarinnar „Do You Really Want to Hurt Me“ og „Karma Chamelion" fóru bæði í efsta sæti vinsældalista. Morgunblaðið/Atli Vigfusson GUÐNÝ J. Buch á Einarsstöðum í Reykjahverfi, sem sér um reyk- inguna, með ostinn í grisjunni ásamt kjötmeti. Hangiosturinn er að verða tilbúinn Laxamýri. Morgunblaðið. Framkvæmdir að hefjast við Barnaspítala Hringsins Fyrsta skóflu- stunga tekin í dag REYKTUR ostur er ný afurð sem Grétar Sigurðarson hjá Mjólkur- samlagi Kaupfélags Þingeyinga hefur verið að gera tilraunir með að undanfömu en slfkur matur er óviða á borðum manna. Kvarg er tekið í grisju þegar ver- ið er að gera Havarti ost og látið reykjast þar til komið er sterkt reykbragð. Osturinn geijast í reyknum en hann þarf þrisvar sinn- um meiri reyk en stórt sauðalæri. Að sögn Grétars er hangiostur- inn, eins og hann kallar hann, nyög góður sem pinnamatur í veislur og einnig góður ofan á brauð og hangikjöt. Samkvæmt tilrauuum þeim sem Grétar hefur gert er best að kofa- reykja ostinn við tað. HEILBRIGÐISRÁÐHERRA tek- ur í dag íyrstu skóflustunguna að byggingu hins nýja bamaspítala Hringsins sem rísa á á Landspít- alalóð. Fyrirhugað er að spítaUnn verði tekinn í notkun vorið 2001. Um verður að ræða rúmlega 6.000 fermetra byggingu, á fjórum hæð- um. Bamaspítalinn á að rúma þá starfsemi sem fram fer á Bama- spítala Hringsins og er aðaláhersla lögð á stórbætta aðstöðu fyrir sjúk böm og aðstandendur þeirra og á öll starfsaðstaða að batna til muna. Áhersla verður lögð á aukna göngudeilda- og dagdeildaþjónustu þannig að möguleikar skapist fyrir böm að vera eins mikið heima og kostur er á. Helgafells hefur umsjón með af- greiðslu pantana og dreifingu íyr- ir Morgunblaðið. Á seinustu dögum hefur komið fram nokkur gagnrýni á hönnun og rekstur bamaspítalans. Ásgeir Haraldsson, forstöðulæknir Bama- spítala Hringsins, segir að áður en hönnun byggingarinnar hófst hafi farið fram mikið starf innan barna- spitalans við að skilgreina þarfir og verkefni spítalans. Teikningar þróaðar í samstarfi við starfsfólk „Þetta var unnið af starfsfólki bamaspítalans úr öllum starfs- stéttum. Hönnuðimir tóku gott til- lit til þessara ábendinga og á und- anfornu ári hafa teikningar verið þróaðar frekar í miklu samstarfi við starfsfólk og allar teikningar verið kynntar væntanlegum not- Morgunblaðið hefur einnig tek- ið upp samstarf við stærstu bóka- verslunina á Netinu, Amazon, um sölu á erlendum bókum. Slóð vefjarins er www.mbl.is/baekur/. endum hússins og þá sérstaklega foreldrafélögum langveikra bama. Síðasti fundur með foreldrafélög- unum var haldinn fyrir tveim vik- um og á honum kom fram almenn ánægja með það hversu vel hefði tekist tfl,“ segir Ásgeir. Teikningar kynntar á Netinu Arkitektar byggingarinnar eru Sigríður Magnúsdóttir og Hans Olav Andersen, verkvinna er í höndum Almennu verkfræðistof- unnar og Suðurverk annast jarð- vinnu. Allar teikningar af spítalan- um og framkvæmdaáætlun verks- ins hafa verið settar inn á heima- síðu Barnaspítala Hringsins sem opnuð var sl. fóstudag. Slóðin er www.rsp.is/hringur. Ikveikja í Hanira- borg SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík slökkti eld í ruslageymslu í Hamraborg 20 í Kópavogi um miðjan dag í gær. Kveikt hafði verið í rusla- geymslunni og barst reykur í stigagang hússins. Reykur barst einnig í Nóa- túnsverslun um viftu verslun- arinnar, sem er við hlið húss- ins, en svo heppilega vildi til að rafvirki var á staðnum, sem gat snúið sogi viftunnar í blástur svo verslunin tæmdist fljótt af reyk. Bóksala á mbl.is MORGUNBLAÐIÐ opn- aði í gær nýjan vef á mbl.is, Bókatíðindi 1998, í samvinnu við Félag ís- lenskra bókaútgefenda. Á vefnum má finna 455 bókatitla með lýsingu og mynd frá 81 forlagi. I framhaldi af þessari opnun hefur Morgun- blaðið ákveðið að gera öllum kleift að kaupa bækur á vefnum með afslætti. Þar verða allir bókatitlarnir til sölu og öll bókaforlögin hafa sömu tækifæri varðandi sölu bóka sinna. Dreifingarmiðstöð Vöku- Sérblöð í dag VIDSKIPn MVINNULÍF ; VÍB [—53 -a -a FYRIRTÆKI : Samiðvið Reykjavfk-: Vanguard % /p J® urhðfn • Viðskiptin nema % Flutninga- | þegar l'/> . - F. þorp á ; milljarði/B1 r EÆJ- ~ ri Klettasvæði/B4 . it V W: V* *ÍÍÖÉ fcjQxJ * M MEÐ blaðinu ^ Cv • da9 fyigir átta síðna -:A'::v auglýsinga- AUGLYSING wm blað frá IKEA. Steinar Dagur Adolfsson til liðs við Kongsvinger/C1 ••••••••••••••••••••••••••••• England stöðvaði sigur- göngu Tékklands/C2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.