Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýjar bækur • GULLRÁNIÐ er eftir Jack Higgins í þýðingu Gissurar O. Erlingssonar. Höfundurinn þræðir krókótt- ar klækja- brautir undir- heimalýðsins sem svífst einskis. Framið er fífl- djarft rán á gullstöngum, að verðgildi hundruð millj- óna sterl- ingspunda. Síðast er vitað um ránsfenginn og ræningjana um borð í flutningaskipi sem sekkur í miklu fárviðri. Skugga- leg glæpaklíka Mafíunnar flæk- ist óvænt í ráðabruggið um end- urheimt gullsins. Þar með hefst æsilegur eltingaleikur um refil- stigu undirheimanna þar sem enginn er óhultur um líf sitt. Utgefandi er Hörpuútgáfan á Akranesi. Bókin er214 bls., og sá Oddi hf. um prentvinnslu. Verð: 2.180 kr. • ORÐSNILLD - fleyg orð úr Ijóðum Einars Benediktssonar geymir u.þ.b. 200 fleygar hugs- anir úr Ijóð- um Einars Benedikts- sonar sem Gunnar Dal hefur valið. í kynningu segir: „Öll þekkjum við Aðgát skal höfð í nær- veru sálar“, en það á eftir að koma lesendum þessarar bókar á óvart hversu miklu fleiri kynngimagnaðar setning- ar leynast í ljóðum Einars Benediktssonar." Utgefandi er Bókaútgáfan Hólar. Bókin er 133 bls. með eftirmála. Prentvinnsla: As- prent/POB ehf. Verð: 1.980 kr. • JÖRÐ er sjötta Ijóðabók Ragnars Inga Aðalsteinssonar frá Vaðbrekku og hefur að geyma 35 ljóð. I kynningu segir: „Ljóðin í Jörð eru „fágaðir, tær- ir og seiðandi söngvar um samskipti jarðar og manns“. Ennfremur segir að Ragnar Ingi hafi í fyrri bókum sínum verið allra skálda fastheldnastur á hið hefðbundna ljóðform og er þessi nýja bók þar engin undantekn- ing. Ljóðin í Jörð eiga það sam- merkt að vera ort undir hefð- bundnum bragarháttum, flest undir fomyrðislagi. Útgefandi er Islenska bóka- útgáfan. Bókin er 43 bls., prent- uð í Offsetfjölritun hf. Umbrot: Guðmundur Þorsteinsson. Káputeikningu gerði Atli Rafn Kristinsson. Ragnar Ingi Aðaisteinsson Gunnar Dal Jack Higgins -það er ys og þys á ys.is Fornar og nýj- ar freistingar LEIKLIST Furðnleikhúsið SKÖPUNARSAGAN Höfundur handrits Ólöf Sverrisdótt- ir. Leikstjóri: Margrét Pétursdóttir. Leikarar: Ólafur Guðmundsson og Ólöf Sverrisdóttir. Leikmynd og búningar: Áslaug Leifsdóttir. Dans- höfuiulur og aðstoð við leikstjórn: Ólöf Ingólfsdóttir. Tæknimaður: Unnar Geir Unnarsson. Neskirkja 17. nóvember. BIBLÍAN geymir margar góðar og skemmtilegar tákn- og dæmisögur sem geta höfðað til barna og miðlað þeim boðskap sín- um ef þær eru settar fram á ein- lægan og lifandi máta. Þetta hefur leikhópur Furðuleikhússins einmitt gert. Hann hefur búið til leiksýningu ætlaða grunnskóla- bömum sem hann ferðast með og sýnir í kirkjum og skólum. Efnivið- inn sækja leikarar Furðuleikhúss- ins til sköpunarsögu fyrstu Móse- bókar, sögunnar af Paradísarvist Adams og Evu og sögunnar af syndafallinu og brottrekstrinum úr aldingarðinum. Það eru hins vegar ekki aðeins þessar gömlu og kunnu sögur sem leikhópurinn vinnur með heldur tengir hann boðskapinn við nútím- ann, við líf nútímafólks þar sem aukin neysla og veraldleg gæði sitja ofar trúarlífi og sambandi við Guð. Tengingin þama á milli var afar vel útfærð og notkunin á höggorminum úr fyrri hluta sýn- ingarinnar, sem breyttist í barka fyrir þurrkara í síðari hluta sýning- arinnar, var stórsniðug. Heimilis- tæki nútímans (sem verða æ fleiri og dýrari) voru í hlutverki freistar- ans, tákn þess sem villir um fyrir manneskjunni og glepur hana; maðurinn týnir sjálfum sér, sam- bandinu við aðra menn og við Guð í sífelldri sókn sinni eftir hinu ver- aldlega. Aðeins tveir leikarar koma fram í sýningunni. Þau Ólafur Guð- mundsson og Ólöf Sverrisdóttir leika Adam og Evu og engla, og Ólafur bregður sér einnig í hlut- verk hins fallna Ijósengils Lúsífers. Bæði léku þau af innlifun og náðu vel athygli hinna ungu áhorfenda. Leikmynd Áslaugar Leifsdóttur er (eins og gefur að skilja) færanleg og einfóld í sniðum og myndaði fal- lega umgjörð um leikinn. Dansar Ólafar Ingólfsdóttur lífguðu upp á sýninguna og tónlistin sem Unnar Geir Unnarsson tæknimaður spil- aði af bandi jók stemmninguna til muna. Undir lok sýningar talar Guð til ungu nútímahjónanna og var það vel til fundið (og í anda nýrra guð- fræðikenninga) að hafa rödd Guðs samsetta úr rödd karlmanns og konu (Gunnai- Gunnsteinsson og Tara Róbertsdóttir ljá Guði raddir sínar). Þetta er létt og skemmtileg sýn- ing sem miðlar kristnum boðskap á áhrifaríkan hátt og þeir prestar sem vilja ná til yngstu kynslóðar- innar ættu hiklaust að opna kirkjur sínar fyrir þessum leikhópi Furðu- leikhússins. Soffía Auður Birgisdóttir Astin í skugga háskans BÆKUR Skáldsaga RENUS I' HJARTA eftir Birgittu H. Halldórsdóttur. 158 bls. Bókaútg. Skjaldborg. Prentun: Star Standard Industries Pte. Ltd. í Singapore. Reykjavík, 1998. HEITI bókar þessarar er dálítið óvenjulegt. En textinn er ekkert óvenjulegur. Birgitta er líka ofur- venjulegur skemmtisagnahöfundur. Þetta mun vera hennar sextánda skáldsaga. Þar að auki minnist undirritaður að hafa lesið eftir hana nokkuð góðar smásögur. Birgitta gerir sér far um að byggja upp sögu. Sannarlega er það eitt frumskilyrði þess að skemmtisaga nái til les- enda. Augljóst er og að Birgitta hefur gaman af að lýsa fólki, útliti þess og háttum - að ógleymdu tilfinningalífi og hugrenningum - og láta það tala. Allmörg samtöl eru í sögu þess- ari. Ekki spillir það. Hitt er álitamál hvort Birgitta hefur kunnugleika til að líkja eftir málfari mismunandi hópa í þjóðfélaginu. Hvernig tala ungar stúlkur í Reykjavík svo dæmi sé tekið? Sjálf- sagt er það nú með ýmsu móti. En líkingamál þeirra - þegar þær grípa til þess í sinn hóp - mun þó vera af- slappaðra og ekki eins þjóðlegt og það sem Birgitta ljær þeim á tungu. Ætli henni láti ekki betur að líkja eftir talsmáta karla? Þeir eru í þess- ari sögu hennar fáorðari og gagn- orðari og þar með auðveldara að gera þeim upp orð og hugsanir. Þá leggur Birgitta talsverða áherslu á að láta persónur sínar hugsa nútímalega. Þess vegna lætur hún kvenpersónur sínar vera bæði sjálfstæðar og sjálfsöruggar. Að minnsta kosti vilja þær vera það. Og að hætti ýmissa tískuhöfunda blandar Birgitta saman blautlegum lýsingum og miskunnarlausri hörku afbrotaheimsins. Sé saga þessi metin sem saka- málasaga fyrst og fremst er veik- leiki hennar sá að les- andinn fær allt of mikið að vita strax í upphafi. Söguna skortir því hvort tveggja, dul og spennu. Persónurnar eru og helst til margar í ekki lengri sögu. Og morðin eru allt of mörg fyrir smekk undirrit- aðs. Ein misheppnuð morðtilraun hefði nægt. Annars byrjar þetta og endar sem ástar- saga. Og elskendakafl- arnir eru bestir. Líkast til er Birgitta ekki sér- lega snjall spennu- sagnahöfundur en þeim mun liðtækari ástar- sagnahöfundur. Umbrot bókarinnar er flausturs- legt. Bókaskrá höfundar, sem venja er að birta á bls. 2 - andspænis titil- síðu - er þarna komið fyrir með öðru efni á bls. 4. Þar að auki er uppsetning prentmálsins á þeirri síðu óvenjuleg, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Prófarkalestur er við- unandi nema hvað leitt er að rekast á prentvillu strax á fyrstu lesmáls- síðu. Erlendur Jónsson Birgitta H. Halldórsdóttir Reuters Innpökkuð tré VEGFARENDUR í Riehen í Sviss dást að nýjasta verki listamanns- ins Christo og eiginkonu hans, Jeanne-Claude, „innpökkuðum trjám“. Hefur listamaðurinn sveipað 163 tré í þunna filmu í garðinum við Beyler-listasafnið í borginni en hann er þekktur fyr- ir að pakka inn þekktum bygg- ingum, svo og heilum eyjum ef svo ber undir. Sýningin verður opnuð formlega á laugardag. Veðurstofa Wynters KVIKMYJVPIR Bíðborgin, Kringlubfð „THE AVENGERS" ★ Leikstjóri Jeremiali S. Chechik. Handrit Don McPherson, byggt á sjónvarpsþáttum Sydneys Newm- an. Tónlist Joel McNeely. Kvik- myndatökustjóri Roger Pratt. Að- alleikendur Ralph Fiennes, Uma Thurman, Sean Connery, Patrick Macnee,, Eddie Izzard, John Wood. 115 mín. Bandarísk. Warner Bros.. 1998. VAFALAUST muna margir eftir bresku sjónvarpsþáttunum sem myndin dregur nafn sitt af og reynir að hafa að leiðarljósi. Þeir voru bam síns tíma og nutu talsverðra vinsælda, einkum á Bretlandseyjum. Ekki síst fyrir líflegan leik þeirra Patricks Mac- nee og Diönu Rigg í hlutverkum leyniþjónustumannanna John Steed og Emmu Peel. Steed var spaugstofuútgáfa af hinum hátt- vísa, breska yfirstéttarmanni, með regnhlífina sína jafnan við hendina og „bowler“-hattinn í kórréttum stellingum á kollinum. Peel var algjör andstæða hans, bar með sér yfirbragð nýrra tíma, kenndra við Carnaby Street og kynlífsbyltinguna. Framburðurinn og klæðaburður- inn jafnan óaðfmnanlegur. Þau elduðu jafnan gráleitt silfur sín á milli þegar tími gafst til í linnu- lausri baráttunni við hátækni- væddu fjendur. Nánara samband lá jafnan í loftinu, ég veit þó ekki til þess að handritshöfundarnir hafi leyft þeim að kyssast, hvað þá hleypt þeim í bólið. Það er ekki lengur hægt að spaugast með þessar andstæður af neitt svipuðum árangri og fyr- ir þrjátíu árum. Það er Ijóst í upphafi og maður áttar sig ekki á því fyrir hvaða mistök þetta and- vana ferlíki komst á koppinn. The Avengers er í alla staði vond mynd, að undanskyldum góðum, en þreytandi brellum og fínum búningum, leikmjmdum og mun- um. Fyrir það fyrsta eru samtöl- in pínleg eftiröpun á orðaskaki sjónvai’pspersónanna, yfirborðs- kennd og mestmegnis óíyndin. Söguþráðurinn líkt og soðinn uppúr slakri Bondmynd; tví- menningarnir í höggi við e.k. Emst Blofeld, vísindamanninn De Wynter (Sean Connery), sem hyggur á alheimsfjárkúgun í krafti uppgötvunar sinnar á stýr- ingu veðurfarsins. Hefur hann hreiðrað um sig og starfsemina í miðri London. Ekki bætir leikur- inn úr skák. Þay Fiennes og Tur- man ná ekki að glæða sínar und- arlegu persónur neinu lífi og Connery er, aldrei þessu vant, ósannfærandi og þreytandi sem illmenniði De Wynter. Sá sem stýrir öllu heila klabbinu er svo lítt vanur Kanadamaður, Jeremi- ah Chechik, sem á m.a. að baki þá vondu mynd, Diabolique. Val hans í leikstjórasæti þessarar 100 miljón dala myndar er ótrú- legt. Skellur ársins. Sæbjörn Valdimarsson N^jar bækur • BERTHOLD - kjötfarsi er ung- lingabók eftir Smára Frey Jó- hannsson og Tómas Gunnar Við- arsson. Franz Berthold er fjórtán ára gamall. Og hann hugsar mikið. „Ég er bara þannig gerður að ég þarf alltaf að velta mér upp úr hlutun- um... Eitt er það til dæmis varðandi raksturinn... Hvort á maður að skafa upp eða niður?... Ég sakna pabba... en mamma... Hún fór bara á djam- mið... Ég hef oft velt fyrir mér þessu makavali hennar mömmu... Rekkju- nautur, elskhugi og bólfélagi Val- gerðar heitir nefnilega ekki Páll eða Sigurður, Friðrik eða Rósinkrans. Ónei... hann heitir Rósa!“ Smári Freyr Tómas Gunn- Jóhannsson ar Viðarsson Áður hafa komið út eftir þá bæk- urnar Blautir kossar, Ufsilon og Á lausu. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 190 bls., prentuð í Singapore. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Verð: 1.980 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.