Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 41 plnrgmnMnlíili STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. AGREININ GUR í STJÓRNSÝSLU VINNA HEFUR verið stöðvuð við byggingu verzlun- ar-, þjónustu- og íbúðarhúss á Laugavegi 53B í kjölfar ákvörðunar úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála að fella úr gildi byggingarleyfi bygg- inganefndar Reykjavíkurborgar. Framkvæmdir við hús- ið voru komnar vel á veg, þegar leyfið var fellt úr gildi og augljóst er, að byggingaraðilar verða fyrir stórfelldu tjóni vegna þessa. Abyrgðin hlýtur að teljast borgarinn- ar og eðlilegt er, að hún bæti það tjón, sem byggingar- aðilar verða fyrir. Enginn vafi er á því, að borgin ber siðferðilega ábyrgð, hvort sem hægt er að deila um lagalega hlið málsins eða ekki. Hún veitir byggingar- leyfið og þegar það liggur fyrir er eðlilegt að fram- kvæmdir hefjist. Það er einnig íhugunarefni, hvort ekki eigi að setja skýrar reglur um það, hversu langan frest opinberar úr- skurðarnefndir hafí til að kveða upp úrskurði sína, þegar mikilvægir hagsmunir borgaranna eru í húfi. Það er óþol- andi fyrir borgarana að opinberir aðilar geti bakað þeim tjón án þess að bætur komi á móti. Það tók úrskurðar- nefnd skipulags- og byggingarmála þrjá mámuði að fella úrskurð sinn, þótt nefndinni hlyti að vera ljóst, að bygg- ingarframkvæmdir voru hafnar og hvaða afleiðingar dráttur á starfi hennar hefði í för með sér fyrir bygging- araðila. Urskurðarnefndin er óháð stjórnvald, skipuð þremur mönnum, og tók til starfa um síðustu áramót samkvæmt ákvæðum í bygginga- og skipulagslögum. Störf hennar eru á valdsviði ríkisins og pólitísk ábyrgð á henni í höndum umhverfisráðherra. Skyldur ríkisins gagnvart borgurunum eru ekki síðri en Reykjavíkurborg- ar og annarra sveitarfélaga. Komi upp deilur um túlkun laga og reglna milli þessara opinberu aðila mega þær undir engum kringumstæðum verða borgurunum til tjóns heldur á ábyrgð hins opinbera. Hvað varðar byggingarleyfið er augljóst, að borgin og úrskurðarnefndin hafa mismunandi afstöðu til þess, hvort bílageymsla fellur undir nýtingarhlutfall hússins. Nefndin fellst ekki í þeim efnum á vinnureglur, sem borgin hefur viðhaft um langt árabil, að sögn Guðrúnar Ágústsdóttur, formanns skipulagsnefndar borgarinnar. Þá segir hún nefndina gera ríkari kröfur um deiliskipulag en verið hafi. Allavega er ljóst, að um ágreining er að ræða milli Reykjavíkurboi’gar og nefndar á vegum ríkisins, ági’ein- ing innan stjórnsýslunnar, sem byggingaraðilar á Lauga- vegi 58B geta enga ábyrgð borið á. UMMÆLI GORES TIL ÞESSA hefur það verið óskrifuð í'egla í alþjóðleg- um samskiptum að þjóðarleiðtogar haldi ekki uppi harðri opinberri gagnrýni hver á annan er þeir koma saman til funda. Það vakti því mikla athygli er A1 Goi’e, varaforseti Bandaríkjanna, hrósaði Anwar Ibrahim, leið- toga malasísku stjórnarandstöðunnar, og hvatti til stjórn- ai’farslegra umbóta í landinu í ræðu er hann flutti í kvöld- verðarboði við upphaf fundar Efnahagssamvinnuráðs As- íuríkja, APEC. Var ekki hægt að túlka ræðu varafoi’set- ans öðruvísi en sem harða gagni’ýni á gestgjafann í kvöld- verðarboðinu, Mahatir Mohamad, forsætisráðherra Malasíu. Aðrir leiðtogar APEC-ríkja hafa einnig notað fundinn til að lýsa yfir samstöðu með Anwar, sem nýlega var ekki einungis hrakinn úr embætti aðstoðai’forsætisi'áð- herra heldur handtekinn sakaður um margvísleg afbrot. Þykir málatilbúnaðurinn gegn Anwar vægast sagt vafa- samur. Stjórnvöld í Malasíu hafa brugðist hart við þessari gagni'ýni og fordæmt Bandaríkjastjórn harkalega. Hins vegar má spyrja hvort ekki sé eðlilegt að þjóðarleiðtogar noti tækifæri af þessu tagi fyrir annað en kurteisishjal. Veruleg ástæða er til að hafa áhyggjur af gangi mála í Malasíu og þeirri hörku er beitt hefur verið til að brjóta andstöðu við stjói'nina á bak aftur. Vonandi eru ummæli Gores til marks um það að í framtíðinni geti þjóðai’leið- togar ekki búist við því að vera óhultir fyrir gagnrýni í hópi starfsbræðra jafnvel þó að þeir gegni hlutverki gest- gjafa. Það er skylda þeirra ríkja er búa við frelsi og lýð- ræði að taka undir með þeim sem berjast gegn kúgun og harðræði þó svo að það kunni að koma við kaunin á vald- höfum viðkomandi ríkja. Flutningur hluta íbúðalánasjóðs til útibús Búnaðarbankans á Sauðárkróki Fyrsti fundur Samtaka um líknandi meðferð á íslandi ar þannig standi á „að einungis ákveðinn aðili [geti] veitt þjónustuna af tæknilegum eða listrænum ástæð- um“. „Eins og málið liggur fyrir virðist ekki á þessari stundu vera hægt að framkvæma væntanlega innheimtu og afgreiðslu lána nema fyrir milli- göngu [Reiknistofu bankanna], en það eru einungis tilteknar innlendar lánastofnanir sem hafa aðgang að henni,“ ski’ifar Jón. „Tæknilegan annmarka í þessu tilviki væri því væntanlega unnt að bera fyrir sig til að komast hjá útboði á EES-svæð- inu.“ Hann segir að ákvæðið geri hins vegar ráð fyrir lokuðu útboði þeirra sem í því geti tekið þátt og hér á landi séu slíkir aðilar væntanlega fjórir. „Hinir aðilarnir þrír gætu því væntanlega á þessum grundvelli gert athugasemdir ef samið er við einn af þeim aðilum sem aðgang hafa að RB án útboðs," segir hann. „Minnt er á að fyrir þá alla er í daglegum í’ekstri þeirra eftirsóknai-verð sú giíðai’lega peningalega velta sem samningui’inn felur í sér.“ Hann telur víst að greiðslan til Búnaðai’bankans fyrir allan útlagðan kostnað nemi einhverjum milljónum króna. Samkvæmt 12. gi-ein reglu- gerðar nr. 302/1996 samkvæmt lögum um skipan opinberra framkvæmda og um opinber innkaup eigi að bjóða út öll vörukaup og aðkeypta þjónustu, sem nemi meira en þremur milljónum króna. Lögfræðiálit um út- boðsskyldu stangast á Tvö álit, tvær niðurstöður. Undirbúnings- nefnd um stofnun Ibúðalánasjóðs fékk tvo lögmenn til þess að gera hvor sína umsögn- ina um hvort starfsemi sú, sem veðdeild Landsbankans sér nú um fyrir Húsnæðis- stofnun og fleiri og flytja á til Sauðárkróks, sé útboðsskyld og stangast niðurstöður þeirra á. Karl Blöndal skoðaði álitin og fékk viðbrögð hjá Gunnari Björnssyni, formanni undirbúningsnefndarinnar. UNDIRBÚNINGSNEFND um stofnun íbúðalánasjóðs fékk í upphafi þessa mán- aðar tvö lögfræðiálit um það hvort bjóða eigi út þau viðskipti fyrir sjóðinn, sem færast eiga frá veð- deild Landsbanka Islands hf., og er þar komist að sitt hvorri niðurstöð- unni. Jón Sveinsson lögmaður segir í niðurlagi álits, sem dagsett er þriðja nóvember, að skylt sé að bjóða út þann vei’kþátt, sem Búnaðarbanki Is- lands hyggist taka að sér fari greiðsla til bankans yfír þrjár milljónir króna, en sennilega megi komast hjá útboði á Evrópska efnahagssvæðinu á grundvelli tæknilegrar hindi’unar. Eggert B. Olafsson lögmaður kemst hins vegar í áliti, sem dagsett er 4. nóvember, að þeirri niðurstöðu að reglur EES um opinber innkaup taki ekki til íbúðalánasjóðs þar sem starfsemi hans verði viðskiptalegs eðlis. Að auki taki reglur EES ekki til samninga um innheimtu skuldabréfa. Gunnar S. Björnsson, formaður undirbúningsnefndar að stofnun Ibúðalánasjóðs, hafnaði því í samtali við Morgunblaðið 6. nóvember að verkefnið væri útboðsskylt og kvaðst byggja þá skoðun á lög- fræðiáliti. „Það er einfald- lega vegna þess að þetta er undir þeim mörkum sem gilda í þessum efnum og þessi starfsemi fellur ekki undir útboðsskyldu. Þetta er viðskiptastarfsemi, sem fellur ekki undir Evrópska efnahagssvæðið. Það er að minnsta kosti sú túlkun, sem við höfum frá lögfræðingum, sem eru færir á þessu sviði." Hann segir nú að álit lögfræðing- anna stangist að hluta til á: „Svo kemst [Jón Sveinsson] að því að þessi vei’kþáttur sem slíkur, sem raunveru- lega er ekki hægt að fara með nema til eins aðila, gæti varla vei’ið útboðs- skyldur þess vegna. Vegna þess að það er ekki nema einn aðili í raun, sem getur framkvæmt verkþáttinn sem slíkur, og þessi eini aðili er í raun sameignarfyrh’tæki allra bankanna og á þeim gi’undvelli er niðurstaða Jóns sú að þetta geti varla verið út- boðsskylt. Við erum raunverulega eingöngu að semja um innheimtuna eina og sér og það, sem snýr að Reiknistofu bankanna, og bankarnir geta því í raun ekkert boðið annað en það, sem Reiknistofan tekur af okkur hvei’ju sinni.“ Undh- yfirski'iftinni „Niðurstöður“ í áliti Jóns segir: „Meginniðurstaða mín er sú að skylt sé að bjóða út þann verkþátt sem Búnaðarbanki Islands hyggst taka að sér fari greiðsla til bankans yfír 3 milljónir króna.“ Niðurstaða okkar er önnur „Við erum nú ekki alveg samþykk þessu áliti sem slíku,“ segir Gunnar, „þannig að niðurstaða okkar er hin.“ Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, hefur lýst yfír því að ákvörðun undirbúningsnefnd- arinnar að semja við Búnaðarbank- ann um aðgang að Reiknistofu bank- anna án útboðs hafi komið Lands- bankanum verulega á óvai’t og Júlíus Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, hefur sagt að það sé skoðun sín að bjóða beri út þau viðskipti fyrir Ibúðalána- sjóð, sem færast eigi frá veðdeild Landsbankans. Það byggi hann á því að um bankaþjónustu sé að ræða og hún falli undir samninginn um EES fari viðskiptin yfir 15 til 16 milljónir króna. Núgildandi samningi milli Hús- næðisstofnunar ríkisins og Veðdeild- ar Landsbanka íslands um þjónustu og endurgjald fyrir þá starfsemi, sem veðdeildin annast fyrir Húsnæðis- stofnun vegna Byggingax-sjóðs ríkis- ins, Byggingarsjóðs verkamanna og tæknideildar Húsnæðisstofnunar, var sagt upp í maí 1997 og rennur hann út um næstu áramót. Ákveðið hefur verið að setja upp undii’deild inn- heimtusviðs Ibúðalánasjóðs á Sauðár- króki þar sem hægt er að tengjast Reiknistofu bankanna í gengum útibú Búnaðarbankans. Má gera bindandi samninga Jón Sveinsson segir í áliti sínu að ótvírætt verði að telja að undirbún- ingsnefnd Ibúðalánasjóðs hafí fulla heimild til að gera með bindandi hætti samninga við fjarmálastofnan- ir, sem bindi stjóx-n íbúðalánasjóðs. Hins vegar verði að telja að undir- búningsnefndinni sé skylt, eða í öllu falli varlegra, að afla samþykkis fé- lagsmálaráðherra til innheimtusamn- inga og matssamninga. Hann rekur að allskýr laga- og reglugerðarákvæði gildi um það hvernig skuli staðið að og farið með útboð og gerð verksamninga á vegum ríkisins, þar á meðal þjónustusamn- inga: „Verður að telja ótvírætt, að þegar fjárhæðir samnings fara fram úr þeim viðmiðunarmörkum sem sett eru sem lágmarksfjárhæðir í lögum og reglum, þá verði útboð að fara fram, ýmist innanlands eða á Evr- ópska efnahagssvæðinu. Á það er bent, að óheimilt er að skipta samn- ingum upp í því skyni að komast hjá útboði." Ekki útboðsskylda á Evrópska efnahagssvæðinu Samkvæmt 7. grein tilskipunar 92/50/EBE segir að hún eigi við þegar um sé að ræða kaup á þjón- ustu, sem fari fram úr um 16,5 millj- ónum króna. I samningsdrögunum, sem fyrir liggi, komi fram að greiðsla sé tvíþætt, annars vegar þjónustugreiðsla til þriðja aðila, Reiknistofu bankanna, sem ekki sé bejnn samn- ingsaðili, en Ibúðalána- sjóður komist ekki að nema gegnum Búnaðar- bankann, og hins vegar greiðslu til Búnaðarbank- ans fyrir útlagðan kostnað vegna verkefnisins. í álitinu kemur fram að ekki liggi nákvæmlega fyrir hversu háar greiðslur sá samningur feli í sér, sem nú liggi fyrir, en sé hún hærri væri skylt að bjóða þjón- ustuna út á EES-svæðinu ef ekki kæmi til einn fyrirvari. í b-lið 3. málsgreinar 11. greinar áðurnefndrar tilskipunar komi fram að heimilt sé að bjóða út og gera op- inbera samninga um kaup á þjónustu í lokuðu útboði án þess að auglýsing þar um hafi verið birt fyrirfram þeg- Líklegt að þjónusta yrði talin útboðsskyld „Líklegt er því að þjónustan, eins og hún er skilgreind í fyrirliggjandi samningsdrögum, yrði talin útboðs- skyld hér á landi,“ segir Jón. „Hætt er við því að einhver þeirra aðila sem telja á sér brotinn rétt skjóti ákvörð- un um gerð samnings við bankann til meðferðar sérstakrar úrskurðar- nefndar á þessu sviði.“ Nálgun úr annarri átt Eggert B. Ólafsson nálgast málið úr annarri átt. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að sýna megi fram á að starfsemi Ibúðalánasjóðs verði við- skiptalegs eðlis. Reglur EES um op- inber innkaup taki ekki til opinberra aðila ef starfsemi þeirra sé iðnaðar- eða viðskiptalegs eðlis og eigi því ekki við um Ibúðalánasjóð. Hann bætir við að verði þrátt fyr- ir þetta talið að reglur EES um op- inber innkaup taki til sjóðsins sé ljóst að þær taki ekki til samninga um innheimtuþjónustu. Við gerð til- skipunarinnar um þjónustukaup hafi verið ljóst að ekki væri öll þjónusta til þess fallin að vera grundvöllur út- boðs, hvað þá útboðs í mörgum lönd- um. „Til að gera framkvæmd tilskip- unarinnar markvissari var því brugðið á það ráð að skipta samn- ingum þeim sem tilskipunin tekur til upp í tvo flokka," skrifar hann í álit- inu. „I öðrum flokknum (viðbætir 1 A) eru taldar upp tegundir þjónustu sem fortakslaust er skylt að bjóða út en í hinum flokknum (viðbætir 1 B) eru taldar upp tegundir samninga þar sem skal stefnt að eins miklu [gagnsæi] og unnt er, þó án útboðs- skyldu.“ Innheimtuþjónusta og því ekki útboðsskyld Hann segir að innheimtuþjónusta flokkist undir „aðra þjónustu", sem talin sé upp í viðbæti 1 B, þótt ætla mætti að hún heyrði undir banka- og fjárfestingaþjónustu, sem teldist til viðauka 1 A. „Spurningin er því undir hvorn flokkinn innheimta skuldabréfa heyrir," skrifar Eggert. „Þegar það er haft í huga, að það leiðir ekki af eðli þjónustunnar, að banki eða önnur fjármálastofnun verði og geti einungis veitt hana, heldur þvert á móti, að hvaða aðili sem er, að Ibúðalánasjóði sjálfum meðtöldum, gæti, svo framarlega sem hann hefði til þess nægan tölvu- kost, annast þessa þjónustu/starf- semi, þá verður niðurstaðan sú að þessi starfsemi flokkist með síðar- gi-einda flokknum og sé því ekki út- boðsskyld." „Taki ekki til samninga um innheimtu- þjónustu“ „Hætt við að ekki verði un- að við samn- ingsákvörðun“ Vinnan snýst um líf sjúklinganna Samtök um líknandi meðferð á --7-------------------------------- Islandi koma saman til fyrsta fundar í kvöld og var Valgerður Sigurðardóttir, nýráðin yfir- læknir væntanlegrar líknardeild- ar, sem verður til húsa á Kópavogshæli, beðin um að rekja aðdraganda að stofnun samtakanna og segja frá starfí Heimahlynningar og væntanlegri líknardeild. FYRIR mér er það mikið líf að vinna í Heimahlynningu,“ sagði Valgerður en þar hef- ur hún starfað undanfarin níu ár. „Þar er verið að vinna með líf, jafnvel þótt það séu tveir dagar, tvær vikur eða tveir mánuðir eftir. Vinnan snýst um líf með það að markmiði að taka strax á einkennunum. Það er ekki verið að lækna sjúkdóminn held- ur líkna og lina þjáningar og nýta sér alla læknisfræðilega og hjúkrunar- fæðilega þekkingu sem til er til að takast á við þau einkenni, sem ein- staklingurinn hefur, hvort sem þau eru andleg, félagsleg eða af líkamleg- um toga.“ Eða eins og segir í lögum Samtaka um líknandi meðferð þá er markmið félagsins að stuðla að fram- förum á sviði líknandi ineðferðar samkvæmt skilgreiningu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, kynna líknandi meðferð sem gilt með- ferðarúrræði, stuðla að bættri mennt- un heilbrigðisstétta á sviði líknandi meðferðar, stuðla að og standa fyrir ráðstefnum og fræðslufundum um líknandi meðferð, hvetja til rann- sókna á sviði líknandi meðferðar og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi. Langur aðdragandi Samtökin voru stofnuð í vor og eru félagar einstaklingar starfandi í heil- brigðisstétt. Valgerður sagði að starf- andi væru norræn samtök, „Nordisk förening för palliativ várd“, sem starfað hafa í rúm tíu ár. I stjórn þess sitja tveir fulltrúar frá hverju Norð- urlandanna og settu samtökin sér það markmið að halda ráðstefnu í hverju landi og var hún haldin hér á landi í fyrra. „Eg átti sæti í stjórninni þar til á síðasta ári,“ sagði Valgerður. „En í framhaldi af ráðstefnunni og þessari vinnu í Norrænu samtökunum fannst okkur sem þar höfðum unnið að timi væri kominn til að stofna félag með sömu markmiðum á íslandi.“ Valgerður sagði að aðdragandinn að stofnun samtakanna og líknar- deildarinnar, sem verður í húsnæði Kópavogshælisins í nágrenni end- urhæfinga- og hæf- ingardeild LandspíL alans, væri langur. I lok sjöunda áratugar- ins varð mikil vakn- ing víða um heim um meðferð deyjandi sjúklinga. „Þetta skapaðist fyrst og fremst af mikilli þörf en ekki að ný þekking hefði komið fram,“ sagði hún. „Þetta var þörf sem varð til í kjölfar þessarar miklu tækniþróunar í lækinsfræð- inni þegar manneskjunni sjálfri var ekki nægilega sinnt og sérstaklega ekki þeim sem ekki er lengur hægt að lækna. Þá kom fram þessi aldar- gamla Hospice-hreyfing sem á ræt- ur að rekja til klaustranna þar sem oft var aðstaða til að taka við ferða- löngum og sjúku fólki sem veitt var umönnun þar til það dó.“ Morgunblaðið/Þorkell VALGERÐUR Sigurðardóttir, yfirlæknir Iíknardeildar. hlutinn væri krabbameinssjúkling- ar,“ sagði Valgerður. ' Standa undir væntingnm „Við tókum þá stefnu á þessum ár- um að sanna okkur og leggja alla krafta í vinnu og sýna að hægt væri að vinna þessa vinnu um leið og við öfluðum okkur þekkingar og reynslu svo að við gætum staðið undir vænt- ingum,“ sagði Valgerður. „En allan tímann erum við að hugsa fram á við og draumur okkar hefur verið að stofna líknardeild. Við höfum alltaf átt gott samstarf við sjúkrahúsin sem tekið hafa við sjúklingum okkar en um leið og þeir leggjast inn eru þeir horfnir úr okkar þjónustu. Það sem kom líknardeildinni af stað var höfð- ingleg gjöf Oddfellow-reglunnar, sem færði ríkinu 35 milljónir í tilefni 100 . ára afmælis reglunnar svo koma mætti upp húsnæði fyrir deildina. Þá þegar var mikill áhugi innan ríkis- spítala og skipaði heilbrigðisráðherra vinnuhóp til að undirbúa opnun líkn- ardeildar. Kallaðir voru til starfs- menn Heimahlynningar og fólk frá báðum sjúkarhúsunum til þess fyrst og fremst að sýna fram á þörfina og hversu stór deildin ætti að vera og hvernig ætti að skipuleggja hana. Það var svo í lok árs 1997 að ríkisspít- ölum var falið að stofna líknardeild en þá þegar höfðu menn augastað á Kópavogshæli og er stefnt að því að tíu rúma deild verði opnuð þar með vorinu.“ Heimahlynningin sinnir höfuð-» borgarsvæðinu og um 150 sjúkling- um á ári en milli 30 og 35 einstak- lingar eru í þjónust- unni á hverjum tíma. Sagði Valgerð- ur að ætlunin væri að líkanardeildin sinnti aðallega stóru sjúkrahúsunum og ætti að styi’kja heimaþjónustuna jafnframt því að vera móðurstöð líknandi meðferðar á landinu. „Tekið verður við sjúkling- um sem eru með mikil einkenni og krefjast sérhæfðrar líknandi með- ferðar en þetta verður ekki lang- ’ legudeild," sagði hún. „Eg held að við höfum sannað tilverurétt okkar. Ég er ekki að taka of mikið upp í mig að segja að við höfum fundið fyrir því að vinna okkar hefur verið vel metin og við fengið mikið þakk- læti og stuðning þeirra sem við höf- um sinnt.“ . Fjölskyldan er hluti af með- ferðinni Eðlilegur hluti af lífinu Hugmynda- fræðin beinist fyrst og fremst að því að líta á dauðann sem eðlilegan hluta af lífinu og að dauð- inn sé ekki sjúk- dómur, heldur líf. „Að það sé sjálfsagt að sinna fólki á þessu tímaskeiði eins og öðrum og að það hafí sérstakar þarfír og þörf fyrir sérstaka umönnun eða líknanneð- ferð, sem miðast fyi’st og fremst við að lina líkamlega og andlega þjáningu eins og verki, kvíða, depurð,“ sagði Valgerður. „Það sem er sérstakt við þessa hugmynd er að það er ekki ein- göngu sjúklingurinn heldur einnig fjölskylda hans sem er hluti af með- ferðinni. Henni er einnig sinnt og það þykir jafn sjálfsagt að sinna aðstand- endum og fylgja þeim eftir við andlát ástvinar. Þetta er töluvert öðruvísi en í heilbrigðiskerfinu þar sem þjónust- an miðast fyrst og fremst við sjúk- linginn sjálfan. Einnig er lögð mikil áhersla á samvinnu margra starfs- stétta. Þetta er þverfagleg teymis- vinna en að auki er starfsfólkinu sinnt sérstaklega því þetta er erfið og þung vinna, þar sem starfsmenn verða að gefa mikið af sér.“ Gildir um alla sjúklinga Sagði Valgerður að áhugi á líkn- andi meðferð hefði fyrst komið fram hér á landi um miðjan áttunda ára- tuginn en þá veitti Snorri Ingimars- son, læknir og þáverandi fram- kvæmdastjóri Kr-abbameinsfélagsins, hjúkrunarfræðingum styi’ki til að sækja ráðstefnu um líknandi meðferð og starfa þeir enn hjá Heimahlynn- ingu. „Áhugi á þessari meðferð rís upp í vinnu með krabbameinssjúk- lingum, því það eru sjúklingar með mikil einkenni og þar er þörfín mikil en í raun gildir þetta um alla sjúk- dóma,“ sagði hún. Ári síðar voru tveir _____ hjúkrunarfræðingar ráðnir ___ í hlutastarf til að skipu- leggja heimaþjónustu fyr- ir krabbameinssjúklinga og í mars árið 1987 var Heimahlynning Ki’abba- ““ meinsfélagsins stofnuð. Fljótlega kom Sigurður Árnason læknir til starfa og stofnuð var ráðgjafar- nefnd um líkn, þar sem koma saman prestar, sálfræðingar og félagsráð- gjafar auk áhugafólks sem styður starfsemina. Vatnaskil verða haust- ið 1989 þegar tveir læknar eru ráðnir ásamt fimm hjúkrunarfræð- ingum og komið er á sólarhrings- þjónustu með tímabundnum stuðn- ingi Rauða krossins. „Á sama tíma tókum við að okkur að sinna einnig eyðnisjúklingum sem óskuðu eftir að dvelja heima þó að langstærsti Manneskjunni var ekki nægi- lega sinnt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.