Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Eftirlitsstofnun EFTA ræðir við íslensk stjórnvöld Fjallað um Ibúðalána- sjóð og smíði varðskips FULLTRÚAR Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hafa undanfarna daga verið hér á landi til að fara yfir stöð- una í útistandandi málum, þar á meðal flutning þeirra verkefna á vegum Ibúðalánasjóðs, sem áður voru í höndum veðdeildar Lands- banka íslands, til Sauðárkróks og fyrirhugaða smíði varðskips fyrir Landhelgisgæsluna, en ágreiningur er um hvort verkefni þessi séu út- boðsskyld. Indriði H. Porláksson, ráðuneyt- isstjóri í fjármálaráðuneytinu, sem fær erindi ESA um útboðs- og ríkis- styrkjamál, þótt þau kunni að heyra undir önnur ráðuneyti, sagði í gær að hann gæti ekki farið út í efnisat- riði, en þessi mál hefði borið á góma. „Farið var almennt yfir stöðuna í útistandandi málum,“ sagði hann. „Þetta voru hins vegar ekki fundir til að komast að niðurstöðu.“ ESA sendi 28. september bréf til íslenskra yfirvalda og spurðist fyrir um hvernig hátta ætti smíði nýs varðskips í framhaldi af umfjöllun fjölmiðla um það hvort bjóða þyrfti verkið út á Evrópska efnahags- svæðinu. Þama var um fyrirspurn að ræða og hefur henni ekki verið svarað þar sem ekki hefur verið ákveðið endanlega hvemig varð- skipsmálinu verði háttað. Indriði sagði að það mál væri í skoðun og ekki hægt að segja meira um það. Eftirlitsstofnunin hefði fyrst og fremst verið að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum og hvað lægi að baki hjá henni. Þá yrði að taka tillit til þess að ekki væri enn ljóst hvernig varðskipssmíðinni yrði háttað. Engin formleg afskipti enn þá „Þeir em að fylgjast með málinu, en í sjálfu sér eru þeir ekki með nein formleg afskipti ennþá,“ sagði hann. „Þeir eru að afla sér upplýs- inga um málið.“ Hann sagði að ekki hefði komið fram hvort stofnunin teldi að smíði skipsins væri útboðsskyld. Það væri matsatriði. Hann sagði að sama væri að segja um flutning þeirrar starfsemi, sem veðdeild Landsbankans hefur innt af hendi fyrir Húsnæðismálastofn- un, og flytja á til Sauðárkróks þar sem útibú Búnaðarbankans mun annast hana íyrir íbúðalánasjóð. Farið hefði verið yflr málið, en meira væri ekki um það að segja ut- an hvað verið gæti að farið yrði fram á frekari upplýsingar. Indriði sagði að auk útboðsmála hefði meðal annars verið farið yfír frjálsa fjármagnsflutninga. „Þeir eru að skoða ákvæði skattalaganna með tilliti til þess,“ sagði hann. „Það eru þá einkum undanþáguá; kvæði, sem miðast við Island. I fyrra var lögum um tekju- og eignaskatt vegna eignaskattsfrelsis á innstæður í bönkum, sem áður var miðað við að væru í innlendum stofnunum, breytt á þann veg að taki til innlána í bönkum almennt og þeir hafa verið að skoða önnur ákvæði laganna út frá sama sjónar- miði.“ Spurningar um lífeyrissparnað og skatta Hann sagði að einnig væri verið að fjalla um nýju lífeyrissjóðslögin. „Þar er gert ráð fyrir að þeir aðil- ar, sem annast vörslu á lífeyris- sparnaði, séu innlendir eða hafí starfsstöð hér á landi,“ sagði hann. „Þeir voru að kanna þann flöt á mál- inu ásamt hinu, að það væru ein- göngu iðgjöld til slíki-a lífeyrissjóða, sem væru frádráttarbær frá skatti. Þeir hafa ekki tekið endanlega af- stöðu í þessum málum, en eru að skoða þessa hluti.“ Indriði sagði að hópur manna frá Eftirlitsstofnuninni kæmi hingað einu sinni til tvisvar á ári til að ræða við íslensk yfirvöld. A þessum fund- um væri farið yfír mál með viðkom- andi ráðuneytum. '■:■ f 1 'lTÍ Morgunblaðið/Þorkell GUÐMUNDUR Bjarnason umhverfisráðherra hóf söfnunina á bensínstöð Olís í Álfheimum í gær. Endurvinna kerta- afganga KERTAGERÐ Sólheima hefur und- anfarin tvö ár unnið að vöruþróun og gæðamálum á framleiðslu sinni þar sem að mestu er stuðst við náttúru- legt hráefni og endurvinnslu. Nú eru að koma á markað „endurunnin kerti“ úr vaxafgöngum. Af þessu tilefni hafa Kertagerð Sólheima og OLÍS tekið höndum sam- an um söfnun á kertaafgöngum. í ár eru flutt inn ríflega 600 tonn af kertum og hefur innflutningur aukist um ríflega 260% á tíu árum. Varlega áætlað verða um 10% af þessu magni að sorpi og samkvæmt því urða Islendingar um 60 tonn af kertastubbum í ár. Kertastubbamir sem berast Kertagerð Sólheima em gróft flokk- aðir eftir lit. Vaxið er brotið í litla búta og ný kerti útbúin. Safntunnur verða á öllum OLÍS- stöðvum á Reykjavíkursvæðinu og verða endumnnin kerti til sölu á sömu stöðum. Breiðholts- símstöðin búin undir árið 2000 HUGBÚNAÐUR sjálfvirkrar símstöðar Landssíma íslands í Breiðholti verður uppfærður að- faranótt föstudagsins 20. nóvem- ber. Af þessum sökum geta sím- notendur í Breiðholti, Arbæ og Grafarvogi búizt við truflunum á símasambandi í stutta stund á bil- inu klukkan eitt eftir miðnætti til klukkan sex að morgni föstudags. Með uppfærslu hugbúnaðar Breiðholtsstöðvarinnar er verið að tryggja að ekki komi upp vandamál í búnaði stöðvarinnar þegar árið 2000 rennur upp. Nýi hugbúnaðurinn á jafnframt að stuðla að bættri samnetsþjónustu. Danskir sérfræðingar frá fyrir- tækinu LM Ericsson munu setja búnaðinn upp, en þeir hafa sett upp sams konar búnað í sjálfvirk- um símstöðvum í Danmörku. Breiðholtsstöðin er fyrsta sjálf- virka símstöðin í almenna síma- kerfinu, sem búin er undir komu ársins 2000 með þessum hætti. Landssíminn mun á næstu mán- uðum uppfæra hugbúnað annarra stöðva. Aðrar símstöðvar á höfuð- borgarsvæðinu verða endurbætt- ar í janúar og uppfærslu búnaðar í öllum sjálfvirkum símstöðvum á landinu á að ljúka fyrir mitt ár 1999. Morgunblaðið/Ásdís ÞORVALDUR B. Hauksson við vinnu sína í bakarnnu hjá Jóa Fel. S Islenskur bakara- nemi hlýtur gullverðlaun ÞORVALDUR Borgar Hauksson bakaranemi hlaut gullverðlaun í keppni evrópskra hótel- og mat- vælaskóla sem fram fór í Algarve í Portúgal á föstudag. Verðlaunin hlaut Þorvaldur fyrir eftirrétt sem hann kallaði Eldsumbrotin á íslandi. Þorvaldur á ólokið einni önn í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi, en hann starfar nú í bakarunu hjá Jóa Fei á Klepps- vegi. Lítur örugglega vel út á starfsskránni Tæplega 30 þátttakendur voru í keppni bakaranema sem fólst í því að gera besta eftirréttinn, en Þorvaldur var eini íslenski kepp- andinn. Hann sagði að þeir hefðu haft frjálsar hendur að öllu leyti og sjálfir búið til uppskriftirnar og ráðið útlitinu á því sem þeir út- bjuggu, en keppendurnir höfðu einn og hálfan klukkutíma til að klára verkefnið. „Ég lenti í fyrsta sætinu og hlaut gullverðlaun, og það var satt að segja rosalega góð tilfinn- ing. Ég bjó til appelsínu- og súkkulaðimús og hafði hana keilu- laga eins og eldfjall, en við höfð- um grúskað í þessu saman ég, Jói Fel. og Ingólfur Sigurðsson, bak- arameistari og kennari við Hótel- og matvælaskólann. Það er mikill heiður að hafa hlotið þessi verð- laun og vita að maður stendur svolítið framarlega miðað við nema í Evrópu. Þetta lítur líka ör- ugglega mjög vel út á starfs- skránni, og ekki síður er þetta góð auglýsing fyrir skólann og bakaradeildina sérstaklega," sagði Þorvaldur. Þetta er í fyrsta skipti sem ís- lenskir hótel- og matvælanemar taka þátt í keppni evrópskra hót- el- og matvælaskóla, en auk Þor- valdar kepptu framreiðslunemi og ferðamálanemi í sinum grein- um fyrir íslands hönd. Þorvaldur sagði að þeim hefði gengið ágæt- lega í keppninni þótt þeir hefðu ekki komist í verðlaunasæti. Svar við fyrirspurn um ferðalög starfs- manna Flugmálastjórnar Kostnaður 153 milljónir á 5 árum Á FIMM ára tímabili nam heildar- ferðakostnaður vegna utanlands- ferða stjórnenda og starfsmanna Flugmálastjórnar rúmum 153 millj- ónum króna og voru heildarferða- dagar alls 6.284. Eftirlitsferðir til að fylgjast með rekstri flugfélaga eða til að skrá flugvélar eru ekki reikn- aðar með ferðadögum og heildar- kostnaði. Þetta kemur fram í svari sam- gönguráðherra við fyrirspurn Jó- hönnu Sigurðardóttur á Alþingi um rekstrarkostnað Flugmálastjórnar. Jóhanna segir frá svarinu á nýrri heimasíðu sem hún hefur opnað á Netinu. Þar segir hún að ferðadag- arnir samsvari því að 3-4 starfsmenn á vegum Flugmálastjómar hafi á hverjum einasta degi allt árið um kring verið á ferðalögum erlendis en starfsmenn stofnunarinnar eru um 250 talsins. Jóhanna segir að í svarinu komi fram að ferðadagar 7 stjórnenda á 5 ára tímabili hafi verið 1.369 sem svari til þess að stjórnendurnir hafí að meðaltali verið í hálft ár erlendis á þessum tíma. Þetta eru flugmála- stjóri, og framkvæmdastjórar flug- leiðsöguþjónustu, flugumferðarþjón- ustu, fjármálaþjónustu, ílugvallar- þjónustu, loftferðaeftirlits og al- þjóðadeildar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.