Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
REYNDU að þreyja þorrann og góuna, elskan. Gerðu Framsóknareymdinni það ekki
til geðs að hrökkva upp af fyrir kosningar ...
Morgunblaðið/Kristinn
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra tók fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu við sjúkrahúsið Vog
í vikunni. Gert er ráð fyrir að taka tvær nýjar deildir í notkun þar í september á næsta ári.
Tvær nýjar álmur á Vogi
FYRSTA skóflustunga nýrra
áfanga við sjúkrahúsið Vog var
tekin síðastliðinn þriðjudag og
gerði það Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra.
Byggð verður álma við austur-
enda núverandi sjúkrahúss sem
hýsa á göngudeild og önnur við
vesturendann, en þar verður sér-
stök meðferðardeild fyrir ungt
fólk. Er hvort tveggja nýjung í
rekstri Vogs.
í frétt frá Samtökum
áhugafólks um áfengis- og vímu-
efnavandann, SÁÁ, segir að við-
byggingarnar séu skipulagðar í
samráði við Ingibjörgu Pálmadótt-
ur heilbrigðisráðherra, enda hafi
hún hvatt SÁÁ til að flýta fram-
kvæmdum og heitið stuðningi rík-
isvaldsins við þær að liluta.
Áætlað er að taka nýju deildirnar
í notkun í september á næsta ári
en þær eru alls um 1.400 fermetr-
ar að stærð.
Með göngudeild verður hægt að
bjóða íjölbreyttari og ódýrari með-
ferðarúrræði en áður og segir í
frétt SÁÁ að slá megi því föstu að
biðlistar verði úr sögunni. Þá segir
að brýnt sé að fá sérhæfða með-
ferðardeild fyrir ungt fólk vegna
þess vaxandi fjölda ungs fólks sem
komi í meðferð.
Byggingarkostnaður nýju ál-
manna er áætlaður um 200 millj-
ónir króna. Afla á um 40 milljóna
meðal almennings, 100 milljónir
koma frá ríki og sveitarfélögum,
fyrirtæk: og verkalýðsfélög leggja
til um 40 milljónir _og 20 milljónir
eru af eigin fé SÁÁ.
Ráðstefna um kvótakerfið
Rætt um
reynsluna af
kvótakerfínu
Tryggvi Þór Herbertsson
MORGUN, fóstu-
daginn 20. nóvem-
ber, verður haldin
ráðstefna á vegum Hag-
fræðistofnunar Háskóla
íslands og sjávarútvegs-
ráðuneytisins.
Tryggvi Þór Herberts-
son, forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar, hefur
ásamt prófessor Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni
séð um skipulagningu
ráðstefnunnar.
„Hagfræðistofnun hef-
ur verið að skoða fisk-
veiðistjórnunarkerfið og
ýmislegt sem tengist því.
I framhaldi fórum við
þess á leit við sjávarút-
vegsráðuneytið að það
styrkti okkur í að halda
ráðstefnu um kvótakerfið.
Ráðstefnunni er ætlað að fræða
almenning um kvótakerfið, for-
sendurnar fyrir því og reynsl-
una sem af því hefur hlotist.
Ekki síður gefst þá tækifæri
til að leiðrétta þann misskilning
sem hefur loðað við kvótakerfið.
í opinberri umræðu hefur það
oft viljað brenna við að því sé
haldið fram að þjóðin geti inn-
heimt veiðigjald, þurfi að af-
nema eignarhald á auðlindinni
og þar með núverandi kvóta-
kerfi. Þetta er einn gi-undvall-
armisskilningur.
Veiðigjald og kvótakerfi geta
farið saman og það er hægt að
taka upp veiðigjald með því
kvótakerfí sem við höfum í dag.“
Frá fræðilegu sjónarmiði
þýðir kvótakeifið einfaldlega að
sóknin minnkar í fiskistofnana,
færri skip eru notuð og þar af
leiðandi minna fjármagn til að
veiða sama magn af fiski. Of-
fjárfestingin hverfur og til verð-
ur fiskveiðirenta. Síðan má
skattleggja fyrirtækin ef menn
kjósa svo og ná þannig fisk-
veiðirentunni til þjóðarinnar.
Menn þurfa því ekki að vera
mótfallnir kvótakerfinu þó þeir
séu með veiðigjaldi og jafnvel
öfugt. Reynsla okkar íslendinga
hefur sýnt að kvótakerfið hefur
orðið útgerðinni mjög til fram-
dráttar. Það er því góð reynsla
af kvótakerfinu.“
-Hvaða erlendu fyi-irlesara
fáið þið til liðs við ykkur?
„A ráðstefnunni verða ýmsir
fyrirlesarar sem era þekktir
innan greinarinnar og einnig ís-
lendingar sem hafa látið sig
málið varða.
Anthony Scott, sem var lengi
prófessor í hagfræði við Uni-
versity of British Columbia,
flytur fyrirlestur á ráðstefn-
unni. Hann skrifaði
eina af þeim ritgerð-
um sem taldar era
hornsteinar fiskihag-
fræðinnar. Það er oft
vitnað í hana í um-
ræðum íslenskra
hagfræðinga um fiskveiðimál.
Þá verður Lee Anderson, pró-
fessor í hagfræði við University
of Delaware, með fyrirlestur.
Hann er mjög þekktur í þessari
grein og hefur m.a. samið eina
þekktustu kennslubók í fiski-
hagfræði sem heitir The
Economics of Fisheries Mana-
gement.
Phil Major flytur fyrirlestur
en hann var ráðuneytisstjóri í
sjávarútvegsráðuneyti Nýja-
►Tryggvi Þór Herbertsson er
fæddur í Neskaupstað árið 1963.
Hann lauk prófi í iðnrekstrar-
fræði frá Tækniskóla Islands
árið 1992 og lauk síðan MS-prófi
í hagfræði frá Háskóla Islands
árið 1995. Tryggvi lauk doktor-
sprófi í hagfræði frá Háskólan-
um í Árósum árið 1998.
Hann er lektor við Háskóla ís-
lands og forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar.
Eiginkona hans er Sigurveig
María Ingvadóttir og eiga þau
samtals 4 börn.
Sjálands meðan kvótakerfið þar
var í mótun og rætt var og deilt
um veiðigjald. Þar hefur verið
góð reynsla af kerfinu og það
náð að festast í sessi. Phil Major
sinnir nú alþjóðlegri ráðgjöf um
skipulag fiskveiða."
- Verða ekki íslenskir fyrir-
lesarar líka?
„Jú, og þar má til dæmis
nefna þá Þórólf Matthíasson,
dósent í hagfræði við Háskóla
íslands, og Ragnar Árnason,
prófessor í fiskihagfræði við
Háskóla Islands. Ragnar mun
fjalla um hvernig kvótakerfið
getur bætt nýtingu fiskistofna
og varðveitt þá og Þórólfur talar
um veiðigjald en hann hefur
skrifað nokkrar ritgerðir um
kvótakerfið og veiðigjald í er-
lendum fræðiritum."
- Hverjum er ráðstefnan
ætluð?
„Öllum sem vilja setja sig
verulega vel inn í kvótakerfið,
hvemig það virkar fræðilega og
hver reynslan hefur verið af því
í löndum eins og t.d. Nýja-
Sjálandi og á íslandi.
Það er mikilvægt að ráðstefna
um þessi málefni sé haldin á Is-
landi, sérstaklega núna, þegar
ýmsar hliðarverkanir
kvótakerfisins eru
farnar að koma fram.
Mikils misskilnings
hefur gætt og ég er
þess fullviss að ráð-
stefna eins og þessi
getur hjálpað til við að leiðrétta
hann. Þessvegna er það gott
framtak hjá sjávarútvegsráðu-
neytinu að styðja við ráðstefnu
sem þessa.“
Ráðstefnan verður haldin á
Hótel Loftleiðum og hefst hún á
hádegi. Tryggvi segir að allir
fyrirlestrarnir fari fram á ensku
en verði jafnóðum túlkaðir á ís-
lensku. Sjávarútvegsráðuneytið
hefur með skráningu á ráðstefn-
una að gera.
Veiðileyfi
og kvótakerfi
geta farið
saman