Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 14

Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ný g;jaldskrá Landmælinga vegna birtingar korta og annarra gagna harðlega gagnrýnd „Gífurleg höft á alla iítgáfustarfsemi“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Ný gjaldskrá fyrir út- gáfu og birtingu gagna frá Landmælingum Is- lands hefur verið harð- lega gagnrýnd. I sam- tölum við forsvarsmenn útgefenda og stofnana, sem gjaldskráin nær til, var því meðal ann- ars haldið fram að þetta setti útgáfu nátt- úrufarsbóka aftur um nokkra áratugi. NÝ GJALDSKRÁ sem umhveríis- ráðuneytið hefur sett íyrir útgáfu og birtingu gagna frá Landmæling- um íslands á prentuðu formi sætir harðri gagnrýni forsvarsmanna út- gáfufyrirtækja og stofnana sem gef- ið hafa út prentað efni með kortum sem unnin hafa verið upp úr gögn- um Landmælinga. Telja þeir að gjaldskráin auki kostnað við korta- gerð og birtingu prentaðs efnis stórlega. Auk þess kemur fram gagmýni á að hjá Landmælingum skuli vera til útfærsla „á blaði“, sem ekki hafí verið birt í Stjómartíðind- um, þar sem til dæmis komi fram að fella skuli niður birtingargjald fyrir kort í ákveðnum tilvikum, og áform um sérstaka samninga við ákveðna notendur. Umrætt blað er dagsett í nóv- ember 1998 og ber yfirskriftina „Útgáfa og birting gagna frá Landmælingum Islands í prent- uðu formi.“ Þar er fjallað sérstak- lega um leyfisgjöld og segir að gert sé ráð fyrir að „smákort og skýringarmyndir unnar af öðrum en LMI í mælikvai'ða minni en 1:2 000 000 séu undanþegnar gjald- töku“. í fyrstu grein gjaldskrárinnar eins og hún birtist í Stjórnartíðind- um B kemur eftirfarandi fram: „Af útgáfu og birtingu gagna frá Land- mælingum íslands (LMÍ) í prent- miðlum skal stofnunin innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þess- ari.“ Á áðurnefndu blaði segir að í framhaldi af umsókn um útgáfu eða birtingu skuli „gerður sérstak- ur afnotasamningur þar sem kveð- ið er á um gjald og nánari skilmála fyrir útgáfu eða birtingu gagn- anna, m.a. takmarkanir á meðhöndlun þeirra og hvernig þau skuli merkt.“ í kaflanum um leyfis- gjöld segir að lendi eftir- gerð milli tveggja stærð- arflokka í gjaldskránni skuli reikna gjaldið eftir þeim stærri. Áfall fyrir útgáfustarfsemi FÍ Haukur .Jóhannesson, forseti Ferðafélags Islands, segir þessa gjaldtöku Landmælinga Islands áfall fyrir útgáfustarfsemi félags- ins. Haukur segir að nýja gjald- skráin sé fyrst og fremst frábrugð- in fyrri gjaldskrá að því leyti að nú séu engar undanþágur veittar. Hann bendir m.a. á að skv. þeim gjaldflokkum sem birtir ei'u sem fylgiskjal gjaldskrárinnar eigi að innheimta gjöld fyrir jafnvel minnstu kort og myndir af stærð- inni A5 og A6 þar sem um sé að ræða smákort yfir útlínur landsins og jökla. „Menn þurfa að sækja um birtingarleyfi og greiða 5.000 krón- ui' fyrir það og í ofanálag sérstakt einingagjald fyrir hvert eintak. Þetta eru gífurleg höft fyrir alla út- gáfustarfsemi í landinu. Ef farið verður strangt eftir þessari gjald- skrá, sem menn eiga greinilega að gera, þá skiptir kostnaðurinn hundruðum þúsunda í hvert skipti sem um einhverja útgáfu er að ræða,“ segir hann. Hann segir að Ferðafélag Is- lands vinni mjög kostnaðarsama kortagerð fyrir árbækurnar sem félagið gefur út. Félagið hafi m.a. unnið mjög nákvæmt örnefnasett í kortin, sem séu í raun bestu heim- ildir sem finnanlegar séu á kortum um örnefni í landinu. Þrátt fyrir það þurfí FI að greiða fyrir grunn- gögnin jafnvel þótt vitað sé að ör- nefnakortin séu aðalheimild Land- mælinga Islands fyrir ömefnum í dag. Hann segir einnig að þóknunin fyrir birtingu nokkurra korta sem þeim beri að greiða ef um útgáfu minni háttar bæklinga sé að ræða sé hærri en allur prent- kostnaðurinn við útgáfu þeirra. „Þetta eru höft á út- gáfustarfsemi í landinu," segir hann. „Enn verra er þó að þetta gerist á sama tíma og á sér stað tæknibylting við tölvunotkun í landinu, þar sem menn tengja allar upplýsingar við kort. Það stangast í raun algerlega á við markmið for- sætisráðuneytisins um að ísland verði tæknivætt á þessu sviði ef all- ir eiga að fara til eins aðila og biðja um leyfi fyrir öllu sem gert er á þessu sviði,“ segir Haukur. Hann segir að kostnaður FÍ vegna gjaldskrárinnar í tengslum við einstakar útgáfur, t.d. á árbók FÍ, sem gefin sé út í 9.000 eintök- um, muni hlaupa á nokkrum hund- ruðum þúsunda króna fyrir félagið. „Það er einnig stórfurðulegt að BÆKISTÖÐVAR Landmælinga Islands. samkvæmt 5. grein gjaldskrárinn- ar á að gefa reikninga út við undir- ritun afnotasamnings. Gjalddagi er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Bókaútgáfa getur hins vegar átt sér eins til tveggja ára aðdraganda en menn þurfa að borga gjald strax í upphafi. Þar með er ekki öll sagan sögð. Um er að ræða gjaldskrá fyrir notkun, út- gáfu og birtingu en auk þess þarf að kaupa sjálf gögnin af Landmæl- ingum á tölvutæku formi. Þá gjald- skrá höfum við ekki séð enn en við vitum að stafræn gögn hafa hingað til verið seld við geipiverði," sagði Haukur. Hann telur einnig að þessi gjald- heimta verði gífurlega íþyngjandi fyrir ferðaþjónustuna í landinu. Það þuifi ekki mikið hugmyndaflug til að sjá hvaða kostnaður bætist við fyrir ferðaþjónustuaðila sem sendi kynningarbæklinga með kortum út um allan heim í tugþúsundum ein- taka þar sem gjöldin eru byggð á flatamiáls- og einingaverði. Þoivaldur Bragason, forstöðumað- ur upplýsinga- og markaðssviðs Landmælinga, sagði í viðtali, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, að nánari útfærsla á gjaldskránni væri á blaði, sem ekki hefði verið birt í Stjórnartíðindum, þar sem meðal annars væri kveðið á um nið- urfellingu birtingargjalda í ákveðn- um tilvikum. Haukur segir að þarna sé slegið úr og í og bætir við að hann hafi ekki fengið að sjá þetta blað. „Það eru engin ákvæði í gjald- skránni um að hægt sé að semja sig frá henni og engin heimild í lög- unum til þess,“ segir hann. „Það er alveg ljóst. Þessi ádráttur um að hægt sé að semja sig að hluta til frá gjaldskránni er ekki heimill samkvæmt henni.“ Forneskjulegt leyfisveitingakerfi Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar íslands, gagnrýnir gjaldskrána harðlega. „Þetta mun hafa verulegan aukinn kostnað í för með sér varðandi alla útgáfu á okkar vegum, hvort sem þar er um að ræða skýrslur, tíma- rit eða kort,“ segir hann. „Við, eins og flestar rannsóknarstofnan- ir, notum út- og hæðarlínui' lands- hluta þegar við birtum gögn varð- andi náttúru Islands og notum fyrst og fremst útlínur landsins. Áð fjárhagsþættinum frátöldum tel ég einnig mjög alvarlegt hvað þarna er verið að setja á þung- lamalegt leyfisveitingakerfi gagn- vart allri útgáfustarfsemi hér á landi. Það er ótrúlegt í þessu upp- lýsingaþjóðfélagi sem verið er að koma á að menn þurfi að sækja um leyfi fyrir allri útgáfu, sem byggist að einhverju leyti á gögn- um frá Landmælingum Islands. Jafnvel þótt aðeins sé um að ræða útlínur landsins eða loftmynd. Ég tel að þarna ráði forneskjuleg sjónarmið ferðinni. Þar fyrir utan efast ég um að þessi skattheimta eigi sér lagastoð,“ segir hann. Jón Gunnar nefnir sem dæmi um þýðingu þessa fyrir Náttúru- fræðistofnun að stofn- unin gefi út fjölrit þar sem sýnd er útbreiðsla á hópum lífvera á kortum. „Þessi fjölrit hafa kostað okkur 100-150 þúsund í útgáfu en þarna komum við til með að þurfa að borga einhver hundruð þúsunda í viðbót í skatt til Landmælinga íslands fyrir hvert slíkt hefti,“ segir Jón Gunn- ar. „Það er alveg ljóst að við stönd- um frammi fyrir því að þurfa ann- aðhvort að fá fjárveitingu til að standa straum af auknum kostnaði, eða þá að draga úr og endurskoða reksturinn og endurskoða alla okk- ar útgáfustarfsemi," segir Jón Gunnar, aðspurður hvernig stofn- unin muni bregðast við. Hann segist hafa átt í viðræðum við umhverfisráðuneytið og Land- mælingar undanfarin tvö ár og kveðst hafa varað mjög við að þessi leið yt’ði farin. „Ég hef margoft varað við því að þetta hefði veru- legar hömlur í för með sér á alla útgáfustarfsemi og alla möguleika á kortanotkun í þjóðfélaginu," seg- ir hann. Jón Gunnar bendii' einnig á að þessar gjaldaálögur leggist ekki aðeins á útgáfustarfsemi heldur einnig á birtingu allra rannsókn- arniðurstaðna vísindamanna þai' sem kort eru notuð. „Ef vísinda- maður ætlar að birta niðurstöður á kortaformi í vísindariti þarf hann að sækja um leyfi og gi'eiða gjald. Þetta eru því einnig hömlur á rannsóknarstarfsemi," segir hann. Of frek gjaldtaka getur snúist upp í andhverfu sína „Mér sýnist að þetta geti íþyngt bókaútgáfu í landinu allverulega og verði farið grimmt eftir þessari gjaldskrá gæti útgáfa náttúrufars- bóka horfið nokkra áratugi aftur í tímann," segir Sigurður Svavars- son, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. „Áður voni undan- þáguákvæði fyrir birtingu korta í bókum en nú er það ekki lengur. Við erum að horfa upp á að tollur- inn til Landmælinga á til dæmis stórum myndskreyttum verkum, sem krefjast korta, geti numið hundruðum þúsunda og hreinlega komið í veg fyrir að þau verði gerð úr garði eins og talið er heppileg- ast. Þetta er einnig furðulegt í því ljósi að annars staðar í heiminum era upplýsingar af þessu tagi að verða almenningseign. Mér sýnist ljóst að umhverfisráðuneytið sæki fyrirmynd að gjaldskrá sinni til þeirra landa, sem lengst ganga í gjaldtöku, og í þeim löndum hafa stærri korta- og bókaútgefendur einfaldlega brugðist við með því að leita annað eftir gi-unngögnum fyr- ir kort sín. Það hefur til dæmis gerst í Bretlandi. Þannig að of frek gjaldtaka getur einfaldlega snúist upp í andhverfu sína. Þar að auki er þetta furðulegt út frá sam- keppnissjónarmiðum. Landmæl- ingar eru jafnframt útgefandi og þá vaknar sú spurning hvort ætlast sé til þess að starfsemi Landmæl- inga verði á einhvern hátt klofin upp, þannig að framleiðsla og sala verði aðskilin frá þessu innheimtu- apparati. Hann telur að þótt erfitt sé að átta sig á einstökum gjaldflokkum gjaldskrárinnar sé ljóst að þarna geti í mörgum tilfellum verið um óhemju háar upphæðir að^ ræða við útgáfu einstakra rita. „Ég get ekki ímyndað mér að menn hafi skoðað þetta mál til enda. Ég veit að þetta snertir mjög marga aðila. Þetta snertir meðal annars fyrir- tæki sem eru í samkeppni við Landmælingar við kortagerð,“ segir hann. „Við erum að láta lögmann fé- lagsins skoða þetta mál og á hvern hátt við get- um brugðist við. Hann mun væntanlega leita einhverra skýringa á þessu. Okkur hefur ekki unnist tími til að funda um málið en það var sent út til stjórnarmanna [á þriðjudag].“ Sigurður gagnrýndi einnig að þegar væri farið að tala um niður- fellingu gjalda fyrir einföld skýr- ingarkort og minni kort. „Það sem maður er hræddur við er að þegar farið er að tala um undanþágur og sérsamninga, sem gætu orðið reglan, en gjaldskráin í raun frávik, skapist hætta á mis- munun og að jafnræðissjónarmið verði fyrir borð borið. Þá er í raun verr af stað farið en heima setið.“ Hann sagði að viðbrögð sín hlytu að byggjast á því hvernig gjaldskráin lægi fyrir, en ekki því hvernig menn hefðu hugsað sér að útfæra hana eða víkja frá henni. Setur einnig hömlur á rannsókna- starfsemi Gjald hærra en allur prentkostnað- ur bæklinga?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.