Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings yfírheyrir Kenneth Starr í dag
Starr yfírheyrður
í beinni útsendingu
Demókratar búa sig undir að ganga hart fram gegn saksóknaran-
um sem niðurlægði Bandaríkjaforseta frammi fyrir alþjóð fyrr á
árinu. Hann mætir hins vegar vel undirbúinn til leiks.
KENNETH Starr, sérskipaður sak-
sóknari í málum Bill Clintons Banda-
ríkjaforseta, verður tæplega tekinn
neinum vett-
lingatökum, er
hann kemur fyrir
dómsmálanefnd
fulltrúadeOdar
Bandaríkjaþings
í dag. Verður
þetta í fyrsta
sinn sem Starr
gefst færi á að
verja hina um-
deildu rannsókn
á hendur forsetanum, ekki síst þann
hluta hennar sem tengist kynferðis-
sambandi forsetans við lærlinginn
Monicu Lewinsky. Á Starr von á því
að hart verði gengið að honum við
yfirheyrslur nefndarinnar.
Yfírheyrslu dómsmálanefndar-
innar yfir Starr verður sjónvarpað
og segja fréttaskýrendur það vafa-
laust munu hafa áhrif á framsetn-
inguna. Demókratar muni ganga
hart fram gegn Starr í von um að
grafa enn frekar undan trúverðug-
leika hans en skoðanakannanir
benda til þess að fáir menn njóti
minni vinsælda í Bandaríkjunum
um þessar mundir en Starr. „Það
væri brjálæði að leggja ekki í hann.
Hann nýtur álíka trausts og
Saddam Hussein,“ sagði ónefndur
starfsmaður Hvíta hússins.
Efasemdir um starfs -
aðferðir Starrs
Demókratar í dómsmálanefndinni
hyggjast nýta sér yfírheyrslumar
yfír Starr eins og kostur er. Meðal
þess sem þeir íhuga, er að láta
nefndarkonu taka Starr á beinið fyr-
ir framkomu hans við vitnin, og þá
einkum konur. Telja demókratar það
muni t.d. koma sér einkar illa fyrir
Starr ef blökkukonan Maxine Wa-
ters krefjist svara við því hvers
vegna móðir Lewinsky hafi komið
grátandi og örmagna frá yfirheyrsl-
unum.
Starr er sakaður um að hafa ógnað
þeim sem báru vitni fyrir nefndinni,
þeirra á meðal móður Monicu
Lewinsky, frænku hennar og vinum.
Fullyrt er að saksóknarinn hafi hót-
að þeim ákæru fyrir „minniháttar“
brot ef þau bæru ekki vitni gegn for-
setanum.
Þá munu demókratar hafa uppi
efasemdir um réttmæti þeirra að-
ferða sem beitt var við yfirheyrsl-
urnar yfir Lewinsky en henni var
bannað að hafa samband við lög-
fræðinga sína á meðan á þeim stóð.
Hótuðu Starr og menn hans henni
því að gerði hún það myndu þeir aft-
urkalla tilboð um sakaruppgjöf
vegna atriða sem gætu leitt tii fanga-
vistar, svo sem þess að bera ljúg-
vitni.
RÖDDIN sem hvíslaði ástarorð-
um í eyra Bandaríkjaforseta fyr-
ir fimm árum reynist vera ung-
æðisleg, reiðileg, ráðvillt og afar
miður sín, þegar hlýtt er á 22
klukkustunda upptökur af sím-
tölum Monicu Lewinsky, þá
starfsstúlku í varnarmálaráðu-
neytinu, við starfssystur sína,
Lindu Tripp. Upptökurnar, sem
Tripp gerði án vitundar Lewin-
sky, voru gerðar opinberar á
þriðjudag en umfjöllunarefni
þeirra er samband Lewinsky við
Bill Ciinton Bandaríkjaforseta.
Sjö vikur eru liðnar frá því að
dómsmálanefndin fékk upptök-
umar í hendur og hafa starfs-
menn hennar notað tímann til að
þurrka út orð og setningar af
böndunum. Mun einkum vera um
að ræða blótsyrði og persónuleg
ummæli er varða aðra en kon-
urnar tvær.
Lewinsky er oft í miklu upp-
námi er hún ræðir við Tripp, sem
ræður henni heilt, kalt og yfir-
vegað. Á einum stað segist hún
ráðleggja Lewinsky eins og ef
væri hún dóttir hennar. Um-
ræðuefnið er kjóll Lewinsky, sem
er með sáðblettum úr forsetan-
um. Tripp segir Lewinsky að
5 mínútur á hvera þingmann
Starr verður vafalaust látinn
svara fyrir ásakanir um að menn
hans hafi lekið út atriðum úr yfir-
heyrslunum. Þá segjast demókratar
munu koma í veg fyrir að hann reyni
að beina yfirheyrslunni inn á nýjar
„Hljómur
hneyksl-
isins“
Tripp Lewinsky
senda hann ekki i hreinsun því
„hún kunni að þurfa á honum að
halda eftir einhver ár“.
Orðfæri Lewinsky þykir oft á
tiðum bera vott um ungan aldur
hennar. Hún er að „fríka út“ og
setningarnar eru brotnar upp
með innskotsorðum á borð við:
„ég meina“, „einsog“ og „eða
bara eitthvað". Stundum er hún
allt að því væmin, á öðrum stund-
brautir, „koma fram með nýjar og
órökstuddar ásakanir til að reyna að
blása lífi í misheppnaða rannsókn"
eins og einn nefndarmanna,
demókratinn Jim Jordan, orðaði það.
Þar sem yfirheyrslunum verður
sjónvarpað er viðbúið að nefndar-
menn leggi áherslu á stuttar, gríp-
um grætur hún svo að erfitt er
að greina orðaskil og fer þá
stundum heldur ófögrum orðum
um forsetann, sem hún kallar
m.a. „ógeðið“.
Tripp heldur hins vegar ró
sinni og stýrir Lewinsky, sem er
afar ráðvillt og sveiflast á milli
reiði í garð forsetans og trúnað-
ar við hann. Hún hlustar og ráð-
leggur Lewinsky og fæst greini-
lega við sitthvað fleira á meðan.
Heyra má hana borða, horfa á
sjónvarpið og skipa gæludýrun-
um að fara niður úr sófanum.
Talsmenn Clintons hafa mót-
mælt birtingu upptakanna, segja
þær enn eina tilraun andstæðinga
forsetans til að koma höggi á
hann. „Hljómur kynlífshneykslis-
ins“ eins og gárungarair kölluðu
upptökurnar, hefúr hljómað á öld-
um ljósvakans frá því síðdegis á
þriðjudag en talsmenn forsetans
spáðu því að almenningur þreytt-
ist fljótt á upptökunum.
Sagði Paul Begala, ráðgjafi
Clintons, að fólk sýndi þeim
áhuga líkt og þegar það hægði á
sér þegar það keyrði framhjá
bflhræi á hraðbraut. „En það
þýðir ekki að fólk vilji fleiri bfl-
hræ.“
andi og áhrifamiklar spurningar og
yfirlýsingar. Alls eiga 37 þingmenn
sæti í nefndinni og fær hver þeirra
fimm mínútur til að spyrja Starr.
Auk dómsmálanefndarinnar fá lög-
menn Clintons tækifæri til að yfir-
heyra Starr í hálfa klukkustund.
Höfðu þeir krafist einnar og hálfrar
klukkustundar en meirihluti dóms-
málanefndarinnar hafnaði því.
Starr verður ekki eina vitnið, því
dómsmálanefndin tilkynnti á þriðju-
dag að hún myndi kalla til fleiri. Er
fastlega búist við að þeirra á meðal
séu Lewinsky, Vernon Jordan, vinur
Clintons, og Betty Currie, einkarit-
ari forsetans.
Við öllu búinn
Starr hefur ekki setið auðum
höndum að undanfömu. Hann hefur
ásamt aðstoðarmönnum sínum farið
yfir allar hugsanlegar spumingar og
aðferðir sem demókratar kunna að
beita gegn honum. Meðal þess sem
hann mun leggja áherslu á, er
„ófrægingarherferð“ Hvíta hússins á
hendur honum og „sögulegt mikO-
vægi“ rannsóknarinnar.
Hafa ber í huga að því fer fjarri að
Starr sé nýgræðingur á þessu sviði,
þótt hann hafi aldrei komið fyrir
dómsmálanefnd þingsins. Var haft
eftir honum í síðustu viku að hann
myndi „ekki biðja nokkurn mann af-
sökunar á því að leita sannleikans".
En Starr hefur ekki látið þar við
sitja, því á þriðjudag lagði hann fram
fimmtán ný ákæruatriði á hendur
William Hubbell, einum helsta
bandamanni Clintons. Hubbell hefur
þegar setið í fangelsi í nokkra mán-
uði vegna dóms sem hann hlaut fyrir
fjársvik en málsókn Starrs á hendur
Hubbell tengist Whitewater-málinu
svokallaða, fasteignaviðskiptum
Clinton-hjónanna og fleiri, sem köll-
uðu á hina upphaflegu rannsókn á
hendur forsetanum.
Talið er að með þessu hafi Starr
viljað sýna að rannsókn hans væri í
fuÚum gangi og fyllilega réttlætan-
leg en andstæðingar hans segja
ákærumar á hendur Hubbell virðast
vera hefndaraðgerð vegna Lewin-
sky-málsins sem virðist vera að
renna út í sandinn.
Demókratar á þingi brugðust hinir
verstu við er ákærurnar voru birtar
og hótuðu því m.a. að hunsa yfir-
heyrslur dómsmálanefndarinnar yfir
Starr. Repúblíkananum Henry
Hyde, formanni nefndarinnar, tókst
hins vegar að róa demókrata.
Upptökur Lindu Tripp af samtölunum við Monicu Lewinsky
Ráðherrafundur Vestur-Evrópusambandsins í Róm
Evrópa leggi meira en
ávísanir til lausnar mála
Reuters
LAMBERTO Dini, utanríkisráðherra Ítalíu, (í miðju) ásamt José
Cutilheiro, framkvæmdastjóra VES, (t.v.) og Dag Jostein Fjærvoll,
varnarmálaráðherra Noregs.
Vinnutímalöggj öf
E SB færð út til bíl-
stjóra og unglækna
Brussel. Reuters.
Rúra. Reuters.
RÁÐHERRAR aðildarríkja Vestur-
Evrópusambandsins (VES) sam-
þykktu í lokaályktun tveggja daga
fundar í Róm á þriðjudag að Evrópa
yrði að hafa yfir sínum eigin varnar-
málaarmi að ráða sem væri fær um
að styðja af afli við umleitanir til að
finna friðsamlegar lausnir á deilu-
málum á borð við þau sem hæst hef-
ur borið á Balkanskaga á undanförn-
um árum.
Utanríkis- og vamarmálaráðherr-
ar allra landanna 28, sem taka þátt í
starfi VES, viðurkenndu að tog-
streita milli hinna ýmsu (fjölþjóð-
legu) stofnana truflaði markmið Evr-
ópuríkjanna um að leggja meira en
ávísanahefti til heimsmálanna. Tími
væri kominn til endurskoðunar á
þessu.
„Ráðherramir óskuðu eftir því að
komið væri af stað ferli innan VES
sem tækist á við spurninguna um
framtfð öryggis- og varnarmála Evr-
ópu,“ segir í mjög langorðri lokaá-
lyktun ráðherrafundarins.
Ekki í samkeppni við NATO
„Sérstök áherzla var lögð á að
koma auga á hvemig hægt væri að
bæta hemaðarlega möguleika Evr-
ópuríkjanna á að fást við lausn alvar-
legra deilumála (...), þar á meðal auk-
ið gegnsæi og samhæfni fjölþjóðlegra
herdeilda," segir í ályktuninni. Eng-
inn lagði til stofnun sjálfstæðs evr-
ópsks hers eða að farið yrði út í sam-
keppni við Atlantshafsbandalagið
(NATO), sem Bandaríkin eru burða-
rásinn í. En Evrópuríkin ættu að geta
gripið til herstyrks sem væri fær um
að stilla til fríðar með skilvirkum
hætti ef slíkar aðstæður koma upp „í
eigin bakgarði“ álfunnar.
VES var stofnað fyrir 44 árum, en
hefur aldrei stigið út úr skugga
NATO. ísland á sem NATO-ríki
aukaaðild að VES. Sum ríki álfunnar
hafa á undanförn-
um áram litið til
samtakanna sem
þess hernaðartækis
sem þau vora að
leita að til að svara
meintri þörf á slíku
tæki óháðu Banda-
ríkjunum, en þegar stríð brauzt út á
Balkanskaga reyndist NATO vera
eina stofnunin sem var fær um að
grípa inn í.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins (ESB) lagði í gær
fram tillögu þess efnis, að ákvæði
vinnutímalöggjafar ESB um 48
stunda hámark á vikulegan vinnu-
tíma yrðu færð út til ungiækna,
vörubifreiðastjóra og verkamanna
við járnbrautir og á sjó. í ESB-
löndunum snertir tillagan um
fímm milljónir manna.
Þetta frumvarp framkvæmda-
stjórnarinnar snertir fyrst og
fremst flutningageirann, en í
störfúm honum tengdum vinnur
flest það launafólk, sem var und-
anskilið gildissviði vinnutímalag-
anna, sem sett voru árið 1993 og
hafa einnig tekið gildi á íslandi í
gegnum EES-samninginn. Tillag-
an nú fylgir í kjölfar harkalegra
verkfallsaðgerða vörubifreiða-
stjóra vegna slakra vinnuað-
stæðna.
Neil Kinnock,
sem fer með sam-
göngumál í fram-
kvæmdastjórn-
inni, sagði að
lagabreytingin
ætti að geta gert
mikið til að lækka tíðni slysa og
dauðsfalla sem rekja má til of-
þreytu bflstjóra.
„Vörubflar og rútur lenda í 18%
allra umferðarslysa; þetta þýðir
um 18.100 dauðsfóll [í ESB á ári],
en um fimmtungur þeirra or-
sakast beint eða óbeint af of-
þreytu bflstjóra," tjáði Kinnock
fréttamönnum. „Þreyttir bflstjór-
ar eru ekki aðeins hættulegir
sjálfúm sér, heldur ekki sizt öllum
öðrum í umferðinni," sagði hann.
Kinnock og Padraig Flynn, sem
fer með félagsmál í framkvæmda-
stjórninni, sögðust báðir vænta
þess að ríkisstjórnir aðildarríkj-
anna myndu samþykkja tillöguna
fyrir lok næsta árs.
Aðlögunartími
fyrir unglækna
Flynn sagði að ákvæðunum um
unglækna yrði hrint í fram-
kvæmd í þrepum á sjö árum, í því
skyni að gefa heilbrigðiskerfun-
um í Bretlandi og Irlandi sérstak-
lega svigrúm til að laga sig að
hinum nýju reglum. Á aðlögunar-
tímanum yrði hámarksvinnuvika
unglækna, að meðaltali yfir fjög-
urra mánaða tímabil, takmörkuð
við 54 tíma. Áætlað er að um 15%
sjúkrahússlækna í Bretlandi vinni
meira en þetta, og að meðal-
vinnuvika írskra unglækna í
þjálfun sé um 65 tímar, að sögn
Flynns.
;*★**★,
EVROPA^