Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 2 7
Rætt um
vopnahlé í
Kongó
SAMEINUÐU Þjóðirnar og
Einingarsamtök Afríkuríkja
munu standa fyrir viðræðum í
Botswana á föstudag til að
reyna að tryggja vopnahlé í
Lýðveldinu Kongó. Skærulið-
ar sem berjast gegn forsetan-
um Laurent Kabila munu í
fyrsta sinn hafðir með í ráðum.
Fulltrúar Lýðveldisins Kong-
ós verða ekki viðstaddir
viðræðurnar, en munu mæta
til fundar í desember. Nelson
Mandela, forseti Suður-Af-
ríku, hvatti Kabila í gær til að
ræða við leiðtoga allra stjórn-
málafylkinga í landinu.
Hvatt til sláttu
gullmyntar
EVRÓPUÞINGIÐ skoraði í
gær á þjóðir Evrópusam-
bandsins að slá gullmynt í hin-
um sameiginlega gjaldmiðli,
evru. Lagt var til að myntin
yrði 100 evra virði, og að gull-
innihald hennar færi ekki yfir
nafnvirði. Askorun Evr-
ópuþingsins er ekki bindandi,
og ekki þykir líklegt að henni
verði framfylgt. Yves-Thibault
de Silguy, sem fer með pen-
ingamál í framkvæmdastjórn
ESB, sagði á þriðjudag að
þótt áhugi væri fyrir sláttu
minnispeninga úr gulli myndi
engin mynt gilda á öllu evru-
svæðinu.
Varað við
óléttu vegna
sólmyrkva
KONUR í Comwall á Bret-
landi hafa verið varaðar við því
að verða óléttar í þessum mán-
uði, svo þær lendi ekki í því að
fá léttasóttina í miðjum sól-
myrkva, sem spáð er á miðju
næsta ári. Læknar óttast að
konur í barnsnauð komist ekki
á sjúkrahús í tæka tíð vegna
umferðarteppu, en búist er við
að um tvær milljónir manna
geri sér ferð til Comwall til að
fylgjast með sólmyrkvanum,
þar sem hann mun sjást hvað
best og lengst.
Njósnari ekki
framseldur
DÓMSTÓLL í París féllst
ekki á framsal breska njósn-
arans Davids Shaylers til
Bretlands,
og skipaði í
gærfyrir um
lausn hans
úr frönsku
fangelsi.
Shayler á
yfir höfði
sér ákæru á
Bretlandi
fyrir að leka
upplýsing-
um um bresku leyniþjónust-
una(MI5), og var hann hand-
tekinn í París í ágúst að beiðni
breskra stjórnvalda. Dóm-
stóllinn gaf ekki skýringar á
niðurstöðu sinni. Lionel
Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, hefur úrslitavald
í málinu, en hann hefur jafnan
tekið mið af úrskurði franskra
dómstóla.
ERLENT
Kínversk öryggismálayfírvöld handtaka og vísa úr landi blaðamanni Der Spiegel
Peking, Bonn. Reuters.
Skjalaleyndarlögum
beitt til að þagga nið-
ur í gagnrýnisröddum
KINVERSK yfirvöld handtóku í
gær blaðamann þýzka fréttatíma-
ritsins Der Spiegel í Peking og
vísuðu úr landi,
en hann er
sakaður um að
hafa haft kín-
versk leyniskjöl
undir höndum.
Þetta er í annað
sinn í haust sem
Kínverjar vísa
erlendum blaða-
manni úr landi.
Þýzka utan-
ríkisráðuneytið kom formlegum
mótmælum á framfæri við sendi-
herra Kínverja í Bonn. Brottvísun
blaðamannanna tveggja hefur
beint athygli umheimsins að
ströngum en oft illskiljanlegum
lögum sem gilda í Kína um skjala-
leynd.
Blaðamenn og stjómmála-
fræðingar segja að skilgreining
Kínverja á því hvað sé ríkisleynd-
armál sé mikið túlkunaratriði og
ströngum skjöl undir höndum sé
beitt til að þagga niður í gagnrýnis-
röddum á stjómvöld.
Pekingdeild ráðuneytis öryggis-
mála kínverska ríkisins gerði í gær
Júrgen Kremb, sem verið hefur
fréttaritari Der Spiegel í Kína um
árabil, að yfirgefa landið innan 48
tíma og er honum bannað að snúa
þangað aftur í fimm ár. í
októbermánuði var blaðamanni
japanska blaðsins Yomiuri Shimb-
un vísað frá Kína, ásakaður um að
hafa reynt að kaupa ríkisleyndar-
mál.
„Dæmigerð gildra“
Báðir vísa blaðamennirnir því á
bug að hafa gert nokkuð ólöglegt.
Kremb sagði að átta leyniþjón-
ustumenn hefðu gert húsleit á
heimili hans og sýnt honum meint
leyniskjöl. „Þetta var dæmigerð
gildra. Þeir vildu bara ná
fingraförum mínum á skjölin,“
sagði Kremb.
Brottvísun Krembs fór fram
með gamalkunnum hætti, sem
beitt er þegar kínversk yfirvöld
vilja losa sig við erlenda frétta-
menn sem þau telja vinna gegn
sér. Mjög náið er fylgzt með
viðkomandi blaðamanni og hann
síðan þvingaður til að yfirgefa
landið.
Kremb á blaða-
mannafundi í gær.
í öllum deildum Litavers
AUtað
laafsláttur
Veggflísar og gólfflísar
Mikiö úrval veggflísa og gólfflísa.
ítalskar veggflísar frá GIRARDI i____________
og gólfflísar frá PASTORELLI. v i
Öll hjálparefni. Hagstaett verö. /
Spáðu í flísar til frambúðar. ----J-----— - -
Jog allt tilheyrandi stgr. afsl.
íslensk og ensk málning,
þúsundir lita. - **-*•»' \
Litablöndun og fagþjónusta. .áRí~)\VÍSÍ
Þjónustan er löngu landsfraeg. _ . "-rrsr
Sýndu lit - það gerum við!
TRpwN
W H I T f
eggefh
'ölaafsláttur
'ommer■
Landsins mesta úrval af veggfóðri,
veggfóðursborðum og veggdúk. Nýir
barnaboröar með Disney-myndum:
LION KING.MERMAID,
ALLADIN, POCAHANDAS,
MJALLHVlTo.rn.fi. . ,.x
Fyrsta flokks vörumerki:
Vymura, Esta, Novo, Crown,^l^^fe^to|
Wallco.Alkor.
Verðið er ótrúlega hagstætt.
SOMMER - heimilisdúkurinn er
þykkur, mjúkur og slitsterkur.
faest I tveggja, þriggja og
fjögurra metra breidd og
mörgum litum og mynstrum.
Tvaer gerðir filtteppa. Ótrúlega góð
reynsla af þessum filtteppum
hérlendis sl. 10 ár - bestu
meðmaeli sem haegt
er að fá.
AZURA (þykkt).
FUN (þynnra).
400 sm breidd.
Svampbotn. IS litir.
laafsláttur
15%
Rúlluteppi - yfir
100 litir. Margar
gerðir af teppum á
stofur og herbergi.
slitsterk, mjúk og
áferðarfalleg teppi i
hólf og gólf á
heimilinu. 100%
polyamid. Breidd:
400 sm.
mog
gott verð
Full búð af allskonar dreglum og
mottum. Margar breiddir.
Skerum I lengd að ykkar ósk.
Gúmmímottur og «
gúmmídreglar, innan húss
sem utan. Rykmottur og
„slabb"-dreglar.
Stoppnet fyrir mottur og stök
teppi veita rétta öryggið.
kar fótbo
Mikiö úrval t.d.
veggfóöur, veggborðar,
saengurverasett,
handklacði,
veggklukkur,
ruslafötur, púðar,
borðlampar, i
glugguatjöld. m
'ólaafslá
Dæmi um fullt verð:
60 X llOsm kr. 1295
80 X 150 sm kr.2174
120 X 170 sm kr. 3645
170X235 sm kr.7245
'ólaafsláttur
Mottur I mörgum gerðum
og stærðum, úr ull og
gerviefnum. j
Ný mynstur - nýir litir.
Mjög hagstætt verð.
Líttu inn í Litaver - það hefur alltafborgað sig!
■‘/////fft'ttr.
Góð greiðslukjör!
Raðgreiðslur
E
CD
Góð greiðslukjcr!
Raðgreiðslur
Grensásveg 18. Síml 581 2444. Opið: Mánudaga til föstudaga til kl. 18. Laugardaga ffá kl. 10 til 16. Sunnudaga frá kl. 12 til 16.