Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 29
__________LISTIR__________
Leyfí veitt fyrir
„Spíralnum“
London. Reuters.
BYGGINGARNEFND í London
hefur veitt leyfi fyrir afai' umdeildri
viðbyggingu við Victoria og Albert-
safnið þar í borg. Allt frá því teikn-
ingar af byggingunni birtust fyrst,
hefur staðið mikill styrr um hana, en
hún hefur verið kölluð „Spírallinn"
og gefur það nokkra hugmynd um
útlitið.
Það er hinn þekkti þýski arkitekt
Daniel Liebeskind sem hannaði við-
bygginguna en hann þykir einkar
framúrstefnulegui- í hönnun. Er
kostnaður við hana áætlaður um 78
milljónir punda, um 9,3 milljarðar ísl.
kr., en hún á að hýsa sýningarsali.
Það eru einkum íbúar í nágrenn-
inu
sem hafa horn í síðu „Spíralsins",
sem er sagður einna líkastur hlaða
af ísmolum. Voru margir á því að
byggingarnefnd í London myndi
ekki veita leyfi fyrir byggingunni,
sem einn íbúanna kallaði „spíral úr
samanböggluðum kössum". Liebes-
kind segist hins vegar fullviss um að
byggingin rísi og að hún verði ein-
stök í sinni röð. „Ég held ekki að
fólki muni bregða, ég held að því
muni líka hún.“
Njrjar bækur
• STYRJALDARÁRIN á Suður-
landi er eftir Guðmund Kristins-
son.
Bókin fjallar um hernám og
hernaðarumsvif á Suðurlandi á
árunum 1940-45.
Sagt er frá um 40
herstöðvum
Breta, Kanada-
manna og Banda-
ríkjamanna á
ýmsum stöðum á
Suðurlandi. Fjall-
að er m.a. um
ótta Breta við
þýska innrás og
varnarviðbúnað
þeirra á Suðurlandi. Þá er ítar-
legur kafli um Hudson-flugsveit-
ina og baráttuna við kafbátana og
sagt frá hertöku kafbátsins U-
570.
Bókin byggir á viðtölum við
fjölda Sunnlendinga, breska og
bandaríska hermenn, sem voru á
Suðurlandi, flugmann úr 269.
flugsveit RAF í Kaldaðarnesi og
yfirmann þýskrar flugsveitar í
Noregi. Þá er fróðleikur sóttur í
ritaðar heimildir og skjöl.
Höfundur hefur áður ritað
bækurnar Heimur framliðinna,
Kristinn Vigfússon staðarsmiður
og Saga Selfoss^
Útgefandi er Árnesútgáfan.
Bókin er 317 bls., með 212 ljós-
myndum og uppdráttum af her-
stöðvum á Suðurlandi. Prentun:
Prentsmiðja Suðurlands ehf. Bók-
band: Grafík ehf. Verð 3.980 kr.
Guðmundur
Kristinsson
SÍmmtikfw
ófýwmefomi
Clio heillar alla. Hann ertraustur, Ijúfurog
lipur, með línurnarí lagi. Clio hefuralla kosti
smábíls, en þægindi og öryggi stærri bíla.
Helstu öryggisþættir:
RENAULT
Ármúli 13
Sfmi, söludeild 575 1220
Skiptiborð 575 1200
- ABS bremsukerfi
- Loftpúðar
- Fjarstýrð hljómtæki úrstýri
og margt fleira