Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 50
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Nettoí ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR Danskar baðinnréttingar í miklu úrvali. Falleg og vönduð vara á vægu verði. /FOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420 mbl.is __AL.L.TAf= e/TTHV'AO rjÝTT DAGURINN í dag, 19. nóvember 1998, hefur verið valinn sem alþjóðlegur baráttu- dagur til að styðja kröfu palestínskra há- skólastúdenta á Gaza- svæðinu um náms- frelsi. I meir en tvö ár hafa ísraelsk yfirvöld neitað þeim um að sækja háskóla sína á Vestubakkanum, og komið þannig í veg fyrir aðgang þeirra að öflugustu mennta- stofnunum Palestínu. Þar er á ferðinni aug- ljóst brot á friðarsam- komulagi þeirra og PLO sem og þeim mannréttindasáttmálum sem Israelar eiga aðild að. Barátta Gaza-stúdenta Það var í mars 1996 sem yfir 1.300 háskólanemendum og kenn- urum frá Gaza-svæðinu var neitað um leyfi til að ferðast frá heimilum sínum til háskóla sinna á Vestur- bakkanum. Stúdentar og háskólar í Palestínu hófu þegar baráttu gegn banninu. Þegar ljóst var að því yrði ekki aflétt fór í gang al- þjóðleg baráttuherferð til að styðja sjálfsagðan rétt stúdenta á Gaza til menntunar. Mannrétt- indahreyfingar í Israel og Palest- ínu ásamt félagasamtökum og stúdentum víða um heim stóðu fyr- ir mótmælum, undirskriftasöfnun- um og dreifingu á upplýsingum t.d. með hjálp Netsins. Þessi barátta náði hápunkti í mars 1997 þegar ísraelskum sendi- ráðum víða um heim var afhent áskorun um að virða rétt palest- ínskra stúdenta. Einnig birtust heilsíðu auglýsingar í ísraelskum blöðum þar sem ísraelskir menntamenn vöruðu við afleiðingunum sem bannið hafði á friðar- ferli Israela og PLO. Israelska ríkis- stjórnin hefur þó hald- ið banninu til streitu. Hún hefur réttlætt að- gerðir sínar með því að lýsa því yfir að stúdentar á Gaza væru „líklegir hryðju- verkamenn" eins og talsmaður Netanyahu, forsetisráðherra Isra- els, komst að orði. Samkvæmt þessum ummælum á að líta á alla unga Palestínumenn frá Gaza sem efni í hryðjuverka- menn. Þessi kjánalegu rök eru enn í dag helsta réttlætingin fyrir því að engum einasta palestínskum Dagurinn í dag, segir Eidar Astþórsson, er alþjóðlegur baráttudag- ur Gaza-stúdenta. nemanda frá Gaza er leyft að stunda nám við menntastofnanir á Vesturbakkanum. Það er augljóst að hryðjuverk geta haft skaðleg áhrif á friðarferlið í Miðaustur- löndum, en það ætti að vera jafn- augljóst að brot Israelsmanna á friðarsamningum eru það einnig. Friðarsamkomulag ísraels og PLO Gaza-svæðið og Vesturbakki Jórdanár eru tvö aðskilin land- svæði sem hertekin voru af ísra- elsmönnum árið 1967. Óbreytt hernám ísraela þar stóð í tæp 30 ár í algjöru trássi við samþykktir SÞ og enn í dag hemema þeir stærstan hluta Vesturbakkans. Hafa þeir jafnvel innlimað hluta hans (Austur-Jerúsalem og ná- grenni) í ísrael, en þá innlimun viðurkennir ekki nokkurt ríki. I kjölfar friðarsamkomulags ísraels og PLO í Ósló árið 1993 var ísraelsku hernámi aflétt af flestum íbúum Gaza-svæðisins og einhverjum prósentum Vestur- bakkans var skilað til Palestínu- manna. I friðarsamningnum er einnig að finna ýmis önnur ákvæði. Eitt þeirra segir að „báðir aðilar [samningsins] viðurkenna Vesturbakkann og Gaza-svæðið sem eina svæðisheild“ og skuld- binda sig til að tryggja greiðar samgöngur þar á milli. Einnig eiga Israelar aðild að mannrétt- indasáttmála SÞ sem segir að „hver maður á rétt til menntun- ar“. Það að heimila ekki stúdentum frá Gaza að ferðast til Vesturbakk- ans er skýlaust brot á friðarsamn- ingi PLO og ísraels. Ekki ífkh- bjartsýni meðal palestínskra stúd- enta um að nýlegur samningur sem Arafat og Netanyahu undir- rituðu í Washington nú á dögun- um, muni breyta nokkru í baráttu þeirra fyrir námsfrelsi. ísraelsk yfirvöld á móti palestínskri menntun! Af átta háskólum í Palestínu eru aðeins tveir á Gaza-svæðinu. Þeir taka aðeins við fimmtungi þeirra sem útskrifast úr framhaldsskól- um þar og bjóða ekki upp á eins fjölbreytta menntun og háskólar á Vesturbakkanum. Palestínska þjóðin á fyrst nú, eftir langvarandi hernám, kost á að ráða hluta af landi sínu sjálf. Menntun þjóða er mikilvægur þáttur í möguleikum þeirra á velferð og stöðugu stjórn- arfari. Takmarkanir Israelsmanna á menntun Palestínumanna eru greinileg höft á möguleikum þeirra til betri framtíðar. Naomi Khazan, talsmaður ísra- elska þingsins, Knesset, missti út úr sér i sumar ummæli sem skýra hver raunveruleg stefna Israels- manna er í máli Gaza-stúdenta: „Hún er kerfisbundin og harðsnú- in áætlun sem hefur áhrif á öll æðri menntunarmál í Palestínu. Tilgangurinn er að sundra. Við er- um að tala um tilraun til að dreifa forystuhópnum og koma í veg fyrir að menntaður forystuhópur nái að myndast [meðal Palestínu- manna]“. Hvað getur þú gert? Dagurinn í dag er eins og áður sagði alþjóðlegur baráttudagur þar sem stúdentar ásamt öðrum einstaklingum, félagasamtökum og mannréttindahreyfingum víða um heim reyna að vekja máls á ranglætinu sem háskólastúdentar á Gaza-svæði Palestínu eru beitt- ir. Frekari upplýsingar um að- stæður Gaza-stúdenta er að finna á vefsíðunni: www..birzeit.edu/aff og þar er einnig að finna undir- skriftalista til stuðnings baráttu þeirra. Ef þér líkar ekki framferði Isra- elsmanna í garð Gaza-stúdenta og brot þeirra á friðarsamningum þá er um að gera að skrifa bréf eða póstkort til forsætisráðherra Isra- els þar sem þú tekur fram að þú styðjir baráttu stúdentanna á Gaza fyi-ir námsfrelsi (I support the Gaza Student Campaign for academic freedom). Heimilisfangið er: Prime Minister Benjamin Net- anyahu, 3 Kaplan Street, Jerusal- em 91007, Israel. Höfundur er ncmi við HÍ og vara- fomiaður félagsins Island-Palestína. ____________AÐSENPAR GREINAR Barátta fyrir námsfrelsi í Palestínu Eldar Astþórsson LANDK) OG ORKAN á Egilsstöðum t- ___________________ Ljósmyndasýning á 2. hæó í Flugstöðinni á Egilsstöóum Sýndar eru myndir Ragnars Axelssonar Ijósmyndara Morgunblaðsins af svæðum sem gætu farið undir virkjanir, samkvæmt áætlunum, sem gerðar hafa verið. Einnig eru sýndar saman- burðarmyndir þar sem fyrirhuguð uppistöðulón og mannvirki hafa verið teiknuð inná. Sýningin stendur til mánaðamóta og eru myndirnar til sölu. Hlífðarefni undir borðdúka Uppsetningabúðin Hverfisgötu 74, sími 552 5270. 20% afsláttur af ekta skosku smjördeigs- og hafrakexi frá 12.-20. nóvember. mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.