Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 53

Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 5%, V andræðastarfsfólkið í heilbrigðiskerfinu Heilbrigðisstarfsmenn sem kalla hátt eftir bættum kjörum, m.a. með uppsögnum, eru einfaldlega að gera vinnuveitanda sínum og þjóðfélaginu greiða þegar til lengri tíma er litið. Staðreyndin er sú að snúi ráðamenn sér ekki að rót vandans og geri verulega bragarbót á launum og aðbúnaði starfsfólks á sjúkra- húsunum verður heil- brigðisþjónustan brátt rústir einar, rekin af allt of fáum, þreyttum og þrautpíndum starfsmönnum. Eins og alþjóð er kunnugt hefur hver heilbrigðisstarfshópurinn á fætur öðrum verið með háværar kröfur um launahækkanir undan- farið, læknar, hjúkrunarfræðingar og nú siðast meinatæknar. Vand- ræði hafa skapast í starfsemi sjúkrahúsanna og yfirvofandi neyðarástand oft verið nefnt. Þjóð- in hefur skiljanlega haft miklar áhyggjur af þessu og hafa vand- ræði þessi mikið verið rædd m.a. á Alþingi. Talað hefur verið um starfsmennina sem vandamál og þeim gjaman verið brigslað um ábyrgðarleysi og leiða verið leitað sem eiga að hindra að svona lagað endurtaki sig nokkru sinni. Forsætisráðherra er nú í farar- broddi þeirra sem telja sig hafa lausnina, þ.e. setja lög sem hindra að hópar fólks geti sagt starfi sínu lausu. Bingó! Lögin hlýtur þá að eiga að nota einhvem vegin svona: „Hvað, uppsögn? Nei heyrðu mig, það hafa tíu manns sagt upp núna svo þú getur ekki sagt upp.“ „Já, en ég er búin að ráða mig annað.“ „Skiptir ekki máli þú vinnur héma lengur!“ - Það hlýtur auðvitað hver og einn að sjá að svona lög brjóta gegn grundvallarmannrétt- indum. Það neyðir eng- inn neinn til að vinna á ákveðnum vinnustað nema hann vilji það sjálfur. Nú fóram við að nálgast kjarna málsins, þ.e. ef starfsfólk er reiðu- Snúi ráðamenn sér ekki að rót vandans og geri verulega bragar- bót á launum og aðbún- aði starfsfólks á sjúkra- húsunum, segir Herdís Herbertsdóttir, verður heilbrigðisþj ónustan brátt rústir einar. búið að segja upp atvinnu sinni í stóram stíl hlýtur eitthvað að vera að á vinnustaðnum. Vandinn liggur því ekki hjá starfsfólki sjúkrahús- anna heldur hjá vinnuveitendun- um, sjúkrahúsunum sjálfum. Stóra sjúkrahúsin era vinnustaðir þar sem óhóflegt álag er á starfsfólkið allan sólarhringinn og laun í litlu samræmi við vinnuframlagið. St- arfsfólkið er einfaldlega orðið langþreytt og þegar engar venju- legar aðferðir gagnast því t.þ.a. vekja athygli á óviðunandi kjöram sínum grípur það til þess örþrifa- ráðs að segja einfaldlega upp og endurráða sig ekki nema kjörin verði lagfærð. Þegar svona langt er gengið hafa venjulegast fjöl- margir starfsmenn nú þegar farið og leitað annað. Það er staðreynd að það vantar mikið upp á að stöðugildi margra stétta á þessum stofnunum séu setin og er álagið þá bara þeim mun meira á hina sem enn era í starfi. Hér er ég ekki einungis að tala um fagstéttir, vandamálið er vaxandi meðal ann- arra stétta einnig, s.s. í ræstingu. Að mínu mati era því þessir sem eftir era og kalla hátt eftir bættum kjöram, m.a. með uppsögnum, ein- faldlega að gera vinnuveitanda sín- um og þjóðfélaginu greiða þegar til lengri tíma er litið. Staðreyndin er sú að snúi ráðamenn sér ekki að rót vandans og geri veralega brag- arbót á launum og aðbúnaði starfs- fólks á sjúkrahúsunum verður heilbrigðisþjónustan brátt rústir einar, rekin af allt of fáum, þreytt- um og þrautpíndum starfsmönn- um. Við Islendingar höfum einfald- lega ekki efni á að láta þetta ger- ast. Höfundur er deildarstjóri B-6, SHR. Herdís Herbertsdóttir Safnar biaðburðarkerra eða blaðburðarpoki ryki í geymslunni þinni ? Þeir blaðberar, fyrrverandi og núverandi, sem eru með blaðburðarkerrur og/eða -poka en þuría ekki á að halda við blaðburð, vinsamlegast hafi samband við áskriftardeild í síma 569 1122. Borðplötur & sóibekkir Rispuvöm á yfirbor&i Líming vatns- og hitaþolin (B3, B4) BakhliS einnig þétthúðuð Sérstök slithúð sem eykur endingu Nýjasta plasthúðunartækn Melamine rakaheld filma til varnar vatni og raka aS neSan Framleitt samkvæmt ISO 9000 gæðastaðli Fjölbreytt litaval, margar þykktir og breiddir. Hagstæðustu verðin! Sögurnarþjónusta i ó staðnum. f 'w± L»Jfiy-tÍnirHRTÍ RAÐCREfÐSLUR eLz ;ÍT? GERIÐ BJALF __YEBtP HMtíH VERSLUN FYRIR ALLA I EILDSOI ERSLUNI •tryggi Vi& Fellsmúla Simi 588 7332 Opið fró kl. 9 -18 virkadoga ogfrókl. 10-14 laugardagg Skammdegis- BrightUght lampinn ersvarvið skammdeginu Skammdegisþreyta og þung- lyndi geta valdið almennu áhugaleysi, leti og óeölilegri þreytu. Ein besta lækningin við skammdegisdoöanum er birta og enginn vafi leikur á því að dagsljós hefur mjög góð áhrif á almenna líðan okkar. Bright Light lamþinn frá Philips gefur birtu samsvarandi náttúru- legu dagsljósi. Flöktfrítt Ijósið minnkar þreytu og eykur orku hjá þelm sem nota það reglulega. Bright Light lampinn er nettur og auðvelt að taka með sér hvert sem er. Veri: 39.900 kr. Heimilistæki hf SÆTÚNS SÍMIS69 1SOO www.ht.is Stjörnuspá á Netinu -..

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.