Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 68
^8 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
FRÉTTIR
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Málþing Félags
ábyrgra feðra á
Hótel Loftleiðum
FÉLAG ábyrgra feðra stendur fyrir
málþingi á Hótel Loftleiðum laugar-
daginn 21. nóvember kl. 10-12 f.h.
undir heitinu Eru pabbar óþarfír?
Fundarstjóri verður Súsanna
Svavarsdóttir.
piafur Ingi Ólafsson, formaður
FAF, setur málþingið, Ragnar Ragn-
arsson, Félagi íslenskra leikskóla-
kennara, Hólmfríður Sveinsdóttir,
Kvenréttindafélagi Islands, og sr.
Bragi Skúlason flytja ávörp. A eftir
verða umræður.
Opið hús hjá
Nýrri dögun
NY DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, verður með opið hús
í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20-22 í
safnaðarheimili Háteigskirkju.
Allir velkomnir.
Málanefndir Sjálfstæðisflokks
um samgöngu-, fjarskipta-
og upplýsingamál
Málþing
Opið málþing verður haldið í Valhöll,
fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17-19.
Yfirskrift málþingsins er:
Framtíð fjarskipta á Islandi
Hvernig á að tryggja samkeppni á fjarskiptamarkaði?
Á að selja Landssímann?
Ef svo er, hvernig?
Framsögumenn gera grein fyrir því hvaða meginmarkmið þeir telja að
hafa þurfi að leiðarljósi við ákvörðun um framtíðarskipan fjarskiptamála
á Islandi.
Stutt framsöguerindi flvtia:
Þórarinn V. Þórarinsson, Ármann Kr. Ólafsson, Eyþór Arnalds,
stjómarformaður Landssímans. aðstoðarmaður samgönguráðherra. þróunarstjóri OZ.
Kristján Gíslason,
framkvæmdastjóri,
Radíómiðun.
Arnþór Halldórsson,
framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs, TAL.
Jón Magnússon,
hæstaréttarlögmaður.
Umræður verða á eftir framsöguerindum.
Fundarstióri: Tómas Ingi Olrich, alþingismaður.
ILOYII
SKÓR FYRIR KARLMENN
Góðir götuskór
Litur: Svart • Stærðir: 40-47
Teg. Amarillo • Verð kr. 13.990
Goretex
Litur: Svart • Stærðir: 38-47
Teg. Kid • Verð kr. 13.990
Extra vídd
Easy going
Nýkomin sending
DOMUS MEDICA
við Snorrabrouf • Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 • Reykjovík
Sími 5689212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Lúsarlaun
öryrkjans
í MORGUNBLAÐINU
föstudaginn 13. nóvember
vekur Guðlaugur Þ. Þórð-
arson athygli á nefndar-
launum borgarstjóra í
hafnarstjórn. Það setti
endanlega punktinn yfír i-
ið hjá mér um hversu stór
mistök ég gerði með því að
kjósa R-listann.
Konan sem ég hafði svo
mikla trú á að mundi gera
eitthvað gott fyrir mig og
börnin mín er hreint ekk-
ert betri en bankastjórarn-
ir sem leika sér á laxveið-
um á kostnað skattborgar-
anna.
Ég hefði ekkert á móti
því að tvöfalda árslaunin
mín með því að sitja
nokkra fundi!
A dögunum var haldin
ráðstefna um fátækt á Is-
landi, sem mig langaði til
að sækja, en ég, sem á
bara þrennar buxur til
skiptanna og hef sömuleið-
is börn að sjá fyrir, átti
bara ekki 6.000 kr. í svo-
leiðis munað. Síðan fréttir
maður líka af þessu fína
hófi á vegum borgarstjóra
með áfengi á boðstólum.
Sumt fólk kann ekki að
skammast sín!
Nú, þegar jólin nálgast,
sem að eiga að vera svo
gleðileg en eru valdur að
botnlausum kvíða um það
hvort mér tekst að halda
þau með öllu tilheyrandi,
kaupa ný föt á mig og
börnin og góðan mat, þá
hefði ég svo sem ekkert á
móti því að hafa þó ekki
væri nema smábrot af
þessari einu og hálfu millj-
ón sem frú borgarstjóri
fékk sem „smá“ launaupp-
bót! Ég býst ekki við því
að frú borgarstjóri þurfí að
hafa svo miklar áhyggjur
af jólunum því hún lifir
ekki á lúsarlaunum öryrkj-
ans.
Ég vona að hún hugsi til
okkai', sem berjumst fyrir
steikinni, á næsta nefndar-
fundi.
Að lokum óska ég henni
gleðilegra jóla og vona að
hún sofi vel.
Margrét Christensen,
Dalseli 33.
Tapað/fundið
Leðurhanski týndist
á Laugavegi
LEÐURHANSKI, svartur
með gráu að ofan, týndist
á leiðinni frá Hagkaupi á
Laugavegi að Sundhöllinni
sl. mánudag. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
554 5744.
Jakki tekinn í
misgripum í Þórshöll
SL. fóstudagskvöld var
svartur tvíhnepptur jakki
með ljósgrænu fóðri tek-
inn í misgripum úr fata-
hengi Þórshallar. Þetta er
eina yfirhöfnin mín og í
kuldanum er hennar sárt
saknað. Sá eða sú sem hef-
ur jakkann í fórum sínum
vinsamlegast hafi sam-
band í síma 567 1917. Sig-
rún.
Gleraugnahulstur
tapaðist
TVÖFALT gleraugna-
huistur með tvennum gler-
augum, öðnim dökkbláum
og tvískiptum, hinum
venjulegum, tapaðist á
leiðinnhi frá Næturgalan-
um að Víðihvammi í Kópa-
vogi aðfaranótt sl. sunnu-
dags. Finnandi er vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 554-6084.
Svört úlpa týndist á
Glaumbar
SVÖRT úlpa, Rocky, týnd-
ist á skemmtistaðnum
Glaumbar aðfaranótt sl.
sunnudags. I úlpunni voru
bíllyklar. Þeir sem kannast
við úlpuna hafi samband í
síma 557 3346.
Dýrahald
Lítill grár köttur
týndur í Hlíðunum
ATHUGIÐ! Lítill, grár
köttur týndist við Bólstað-
arhlíð 23. Hann er með
græna hálsól sem í stendur
Arni, s. 561-8158, en það
þýðir ekki að hringja í það
símanúmer heldur era þeir
sem hafa orðið kattarins
vai'ir beðnir að hringja í
síma 698 3537.
SKAK
limsjnn Margeir
l'élursson
STAÐAN kom upp í ís-
landsflugsdeildinni um helg-
ina. Stefán Kristjánsson
(2.145), Taflfélagi Reykja-
víkur, B sveit, var með
hvítt, en Ólafur B.
Þórsson (2.205), Helli,
B sveit, hafði svart og
átti leik.
24. - Hxf3+! 25. Dxf3 -
Hf8 26. Kg2 - Hxf3 27.
Bxf3 - e5 og svartur
vann örugglega á liðs-
muninum.
Atskákmdt öðlinga (35
ára og eldri) hefst í
kvöld, fimmtudaginn
19. nóvember, kl. 20 í
félagsheimili Taflfélags
Reykjavikur, Faxafeni
12. Tefldar verða 9 umferðir
eftir Monrad-kerfi og er öll-
um heimil þátttaka sem náð
hafa 35 ára aldri. Umhugs-
unartími er 30 mín. á skák
og verða veittir verðlauna-
gripir fyrir þrjú efstu sætin.
Keppnin fer fram fimmtu-
dagskvöldin 19. og 26. nóv-
ember og 3. desember.
Þátttökugjald er kr. 1.000.
SVARTUR leikur og vinnur
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
NÚ ERU allir á Netinu. íslending-
ar nota Netið flestum þjóðum
meira og skyldi engan undra, eins og
þessi þjóð er yfirieitt fljót að tileinka
sér alla nýja tækni, sem ætiuð er ál-
menningi. Til þess að finna þá staði á
Netinu, sem notandinn vill sjá, þarf
hann að slá inn svokallaða vefslóð,
sem sett er saman úr nokkrum liðum,
oft skammstöfunum. Þegar á að vísa
til þessara slóða í mæltu máii eða rit-
uðu getur verið úr vöndu að ráða.
A að líta á slóðina sem eina heild og
óbeygjanlega í fallakei-fi ísiensks
máls? Er t.d. mögulegt að beygja
www.mbl.is, sem er vefslóð Morgun-
blaðsins á Netinu? Allir sjá, að það er
ekki hægt. Þar er ekkert orð til að
beygja og sama máli gegnir um fjöida
annarra vefslóða. En hvað með slóð-
ina www.visir.is? Er rétt að rita og
segja: Ég heimsótti visi.is? Að sögn
visis.is ...? Víkverji telur það hæpið. í
fyrsta iagi er visir ekki ísienskt orð,
þar sem ekki er hægt að nota sérís-
lenska stafi í vefslóðir. I öðru lagi
verður r-ið að fylgja með þegar slóðin
er slegin inn í vafrann (forritið sem
notað er tii að skoða vefinn) - vanti
það finnur foiritið ekki vefsíðuna. Því
finnst Víkverja hæpið að sleppa því í
rituðu máli, vegna þess að sá sem les
gæti haft hug á að skoða vefsíðuna,
sem vísað er til, en fengi einungis
villuboð ef r-ið vantaði í slóðina.
Þeim sem finnst að hér sé vegið að
beygingakerfi íslenskunnar má benda
á aðra lausn en að beygja einstaka
slóðarhluta. Flestir vefir heita eitt-
hvað og má þá vísa til heitis þeirra í
stað slóðar. T.d. heitir vefur Morgun-
blaðsins Morgunblaðið á Netinu og
vefurinn íjrir enda slóðarinnar
www.visir.is heitir einfaldlega Vísir.
Því er nærtækt að segja t.d.: Ég sá
þetta í Morgunblaðinu á Netinu eða
ég heimsótti Vlsi.
Allir hljóta að geta verið sammála
um að þetta láti betur í eyrum og fari
betur á prenti en ef vefslóðirnar væru
notaðar í stað nafnanna. Þui'fi hins
vegar að vísa til vefslóðar af einhverj-
um ástæðum, er eðlilegt að rita hana
með þeim stöfum sem nauðsynlegir
eru til að finna vefsíðuna. Ef svona er
farið að, telur Víkverji ekki ástæðu til
að hafa áhyggjur af óæskilegum
áhrifum vefslóðanna á beygingakerfi
íslenskunnar.
XXX
DÓTTIR kunningja Víkverja var
greind ofvirk og misþroska fyrir
um það bii níu mánuðum. Foreldrana
hafði lengi grunað að ekki væri allt
með felldu, en það tók langan tíma að
komast að hinu sanna, þrátt fyrir
margar ferðir tii lækna og sáiíræð-
inga. Þegar loksins sérfræðingur
kvað upp sinn dóm létti foreldrunum
mikið, ekki vegna niðurstöðunnar
sem slíkrar, heldur að vita eitthvað og
geta í framhaldi af því gripið til við-
eigandi ráðstafana. Að geta loks veitt
barni sínu þá hjáip sem það þarf.
Fljótiega eftir að niðurstaða lá fyr-
ir var ákveðið að reyna að koma barn-
inu og foreldrunum að hjá Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans,
BUGL, þar sem meðferð og fræðsla
er veitt. Barnið var sett á biðlista og
er þar enn. í vor var talið að barnið
kæmist að seinni hluta sumars en
nýjustu upplýsingar eru þær að það
komist vonandi að fljótlega eftir ára-
mót.
Biðlistar í heilbrigðiskerfinu eru
vel þekktir og allir jafn mikið
áhyggjuefni; hvort sem um ræðir fóik
sem bíður eftir hjartaaðgerð eða
öðru. Oft er það nú svo að fullorðnir
geta sýnt biðlund, og í einhverjum til-
fellum hægt að fara fram á að þeir
bíði, að minnsta kosti ef veikindin eru
þess eðlis að aðgerð þoli bið. Eiga að
minnsta kosti auðveldara með það en
biessuð börnin. En að börn þurfi að
bíða mánuðum saman eftir að fá
hjálp, ekki síst þegar um andlega
vanlíðan er að ræða eins og í um-
ræddu tilfelli, er sorglegra en tárum
taki. Kunningjanum finnst það heldur
aumt þjóðfélag sem ekki getur búið
börnum sínum betri aðstæður en
þetta.
XXX
OG í lokin örstutt „getraun". Úr
hvaða fréttabréfi skyldi eftirfar-
andi texti vera? „Frést hefur af vand-
ræðum vélaverktaka á Hágöngu-
svæðinu vegna mikilla snjóa. Er þetta
vonandi byrjunin á snjóamiklum vetri
og gleður það menn eftir óvenju lé-
legan vetur á suðursvæðinu í fyrra.“
Svo mikið er víst að ekki eru það sam-
tök vélaverktaka sem gefa blaðið
út(!), heldur er tilvitnunin í Sleða-
fréttir, fréttabréf Landssambands ís-
lenskra véisleðamanna.