Morgunblaðið - 19.11.1998, Page 74

Morgunblaðið - 19.11.1998, Page 74
74 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ afsláttur af öllum vörum til 25. nóvember SPORTVÖRUVERSLUNINl SPARTA Levis Levi’s dagar í DERES fimmtudag til sunnudags Tilboð (03, 07, 61) .3.900 517....3.900 8....3.900 615....3.900 (65, 07) ... 3.900 bolir .....990 Kringlunni, sími 533 1717 OPIÐ SUNNUDAGA FÓLK í FRÉTTUM ERLENDAH @ €P © © © Hl Bragi Ólafsson rithöfundur fjallar um nýja breiðskífu Julio Iglesias „My life: The Greatest Iiits“ Hinn brot- hætti Julio „JULIO sjarmerar Sigtrygg, Sjón og Braga. Það tók Braga nokkra daga að ná sér niður á jörðina," segir um myndina í bók Arna Matthiassonar um Sykurmolana. ÞAÐ stóð víst aldrei til hjá Julio Iglesias að verða söngvari, ekki til að byrja með, að minnsta kosti. Nítján ára gamall stóð hann í marki spænska fyrstu deildar liðsins Real Madrid - þótti víst mjög efnilegur - en lenti þá í slæmu bílslysi með þeim afleiðingum að hann næstum því lamaðist og varð að eyða þremur árum í að ná heilsu aftur. Einn daginn á spítalanum kom aðstoðarmaður læknisins inn á stofuna hjá Julio og gaf honum gítar til að hann gæti lyft sér upp og hætt að syrgja ónýt- an knattspyrnuferil sinn. Og þess- um velviljaða aðstoðarmanni varð að ósk sinni; með hjálp gítarsins fór Julio að semja lög - hann hefur nú væntanlega eitthvað kannast við hljóðfærið áður - og líklega hefur hann farið fram úr björtustu vonum velgjörðarmanns síns því hann byrjaði að syngja við gítarundirleik- inn í rúminu, með þessari líka fínu rödd. Eftir að hafa náð sér af meiðslunum og hafíð nám í lögfræði ákvað Julio svo að snúa sér óskiptur að tónlist. (Ég geri ráð fyrir að hann hafí hætt í laganáminu.) Fljót- lega varð hann einn vinsælasti dæg- urlagasöngvari Spánar. Síðan sá vinsælasti. Svo liðu nokkur ár og hann varð heimsfrægur. Og þegar nokkur ár í viðbót höfðu bæst við líf Julios var hann orðinn frægasti söngvari í heimi, sé miðað við þann fjölda hljómplatna sem hafa selst undir hans nafni. Þetta er ævisaga Julios eins og ég kann að segja hana, það getur verið að það vanti nokkur smáatriði. Á þessum nýja tvöfalda safndiski, My life: The Greatest Hits, eru elstu upptökumar frá árinu 1978, þegar Julio var þrjátíu og þriggja ára gamall og lítið þekktur utan Spánar, og þær nýjustu frá þessu ári, tvö lög sem Julio hefur ekki gef- ið út áður. Platan er gefín út í sex mismunandi útgáfum út um allan heim; ensk/spænski-i (svokölluð al- þjóðleg útgáfa), alveg spænskri, franskri, ítalskri, portúgalskri og að lokum asískri, en ég þori ekki að ímynda mér hvaða máli Julio bregð- ur fyrir sig þar. Ég er með þessa al- þjóðlegu útgáfu. Að vísu er einnig að fínna á henni eitt lag á frönsku og setningar á stangli í hinum og þessum lögum sem eiginlega er ekki hægt að tala um að séu á öðru máli en einhvers konar spænskri ensku. Platan skiptist svo að segja í tvennt: fyrri diskurinn er næstum eingöngu byggður upp af lögum á ensku sem Julio ýmist syngur einn eða í einhvers konar samkrulli með öðrum heimsfrægum listamönnum. Diskur númer tvö er svo til alveg sunginn á spænsku. Burtséð frá tungumálunum tveimur eru þessar tvær hliðar á söngvaranum mjög ólíkar, rétt eins og vangar Julios hljóta að vera ólíkir ef það er rétt eins og sagt er að hann leyfi aðeins myndatökur á þeim hægri. Það er held ég mjög vel við hæfí að fyrsta lagið á plötunni sé To all the girls I’ve loved before sem Julio syngur með Willie Nelson. Þetta er skilst mér það lag sem gerði hann alvarlega heimsfrægan og svo er það líklega ágætis kynning á lista- manninum sjálfum sem hefur að eigin sögn sofið hjá fleiri en þúsund konum. En í meðförum þessara tveggja ólíku söngvara er þetta lag alveg sérstaklega vel heppnað, Willie svona grófur og nefmæltur og Julio viðkvæmur og næstum kvenlegur. Þetta er svo til eina lagið á plötunni þar sem mér finnst Julio ráða við að syngja á ensku. Ástæð- an fyrir þvi að lagið virkar svona vel er kannski sú að rödd Willies gefur laginu einhvern húmorískan blæ sem fær mann til að horfa (eða hlusta, réttara sagt) framhjá því hversu vandræðalegur Julio er á ensku. Það er oft þannig með söngvara sem hafa ekki ensku að móðurmáli að það tungumál hljóm- ar sjarmerandi í munni þeirra en sú er ekki raunin með Julio. Sem er slæmt vegna þess að honum virðist vera svo mikilvægt að syngja á ensku. Spánverjar eiga gjarnan í mestu brösum með enskan fram- burð og Julio á mjög erfitt með að láta enska texta hljóma sannfær- andi. Maður fær það oft sterklega á tilfinninguna að honum líði ekki vel innan um enskuna, eins og honum hafí verið att út í eitthvað sem hann veit að hann ræður ekki við. Þetta er sérstaklega áberandi í laginu sem hann syngur með Frank Sinatra, Summer Wind, og það bæt- ir ekki útkomu þess dúetts að karakter Franks einhvem veginn kaffærir gamla markvörð Real Ma- drid sem þarna er engan veginn á heimavelli. Heimavöllur Julios er hins vegar spænska og spænskættuð tónlist. Þess vegna er seinni diskurinn í þessum pakka mun skemmtilegri þótt sá fyrri skarti heilum helling af frægum söngvurum sem hjálpa Julio í gegnum lögin. Reyndar er ég ekki frá því að sá félagsskapur (t.d. Dolly Parton, Stevie Wonder, Diana Ross og Paul Anka) sé einmitt ástæðan fyrir lítilli hrifn- ingu minni með fyrrnefndan fyrri disk; Julio tekur sig óskaplega illa út í útblásnum amerískum dægur- lögum sem stundum reyna um of á fremur veika rödd hans. Það er að- eins eitt lag á þessum ensk/amer- íska diski, fyrir utan lagið með Willie, sem hentar rödd og karakt- er Julios mjög vel. Það er lagið Fragile eftir Sting, fallegt og inni- legt lag án þess að vera væmið eða yfirkeyrt eins og raunin er með flest þau lög sem Julio syngur með öðrum. (Undirrituðum er mjög í mun að láta lesendur vita að hann hafi ekki gaman af Sting en það verður að viðurkennast að þetta lag hans er frábært popplag og engu líkara en að það hafi orðið til bara fyrir Julio.) Á diski númer tvö eru elstu lögin frá þeim tíma þegar Julio nægði að syngja á móðurmáli sínu. Sum þeirra eru algerar perlur, lög eins og Hey, Momentos, Manuela og Abrázame, og hafa örugglega öðlast sess sem klassísk dægurlög í hug- um milljóna spænskumælandi ein- staklinga. Svo eru nýrri lög, ýmist ættuð frá Spáni eða Suður-Ámer- íku, t.d. lög af Tango, frekar daufri plötu með lögum m.a. úr söngbók Carlos Gardel, og tvö lög af plötu sem ber nafnið La Carratera og kom út fyrir þremur árum. Sú plata geymir einhverja albestu tónlist sem ég hef heyrt innan þeirrar mjúku rómantísku dægurlagadeild- ar sem Julio tilheyrir. Ef það er leyfílegt að tala um meistaraverk á þessu tónlistarsviði, þá er La Carratera eitt slíkt. My life: The Greatest Hits er lík- lega stærsti skammtur sem ég hef fengið af Julio í einu. Kannski over- dosis. En núna þegar ég hef hlustað á eins konar þverskurð af ferli Spánverjans fræga, og hef sett mig í þá stöðu að þurfa að fínna einhver orð yfír hann, dettur mér fyrst í hug orðið brothætt. Ekki í tengslum við lagið með Sting sem heitir nákvæm- lega Brothætt heldur vegna þess að eitt af mest áberandi söngtrixum Julios, þótt ekki sé það mjög áber- andi á þessum diskum, er að láta röddina „brotna" á mjög sérstakan hátt. I mörgum af hægari lögum Julios, sér í lagi framan af ferlinum, er honum svo mikið í mun að tjá ást sína til yrkisefnisins að röddin ein- faldlega kiknar undan álaginu og brestur. Og hann gerir það mjög smart og sannfærandi. Hin ástæðan fyrir því að mér datt í hug orðið brothætt er sú að Julio, jafn „valda- mikill“ skemmtikraftur og hann er, skortir oft tilfinnanlega sjálfstæði sem listamaður eða skemmtikraft- ur. Hann virðist oft taka svolítið brothættar ákvarðanir, eða lætur einhverja aðra um að taka þær fyrir sig. Það að hann skuli velja að syngja lög eins og My Way og Smoke Gets in Your Eyes (lög sem tengjast svo órjúfanlega öðrum söngvurum og sem hann ræður engan veginn við) bendir að mínu mati til þess að hann beri sáralítið skynbragð á eigin takmarkanir. Og það skringilega er að það gerist í öf- ugu hlutfalli við vaxandi frægð hans. En hvað er maður að gagnrýna herra Iglesias? Maðurinn er náttúr- lega með yndislega söngrödd og það sem hann gerir vel verður ekki gert betur. Gallinn er bara sá að hann er alltaf að hætta sér út á hálara svell, jafnbrothættur og hann er, og það óþarfí fyrir mann sem þegar hefur lent í einu alvarlegu slysi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.