Morgunblaðið - 20.11.1998, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Listi yfir
söluhæstu
plöturnar
Rúmlega 2.000 böm á
biðlista hiá dagvist barna
RÚMLEGA 2.000 börn eru á
biðlista eftir leikskólaplássi hjá
Dagvist barna, að sögn Steinunnar
Helgadóttur þjónustustjóra. Að
auki er fjöldi barna á biðlista eftir
að komast að hjá dagmæðrum eins
og nýlega kom fram í fréttum
Morgunblaðsins og er ástandið
verst í vestur- og miðbænum. Af
þeim börnum sem eru á biðlista hjá
Dagvist barna eru 224 tveggja ára
börn, fædd 1996, 763 eins árs börn,
fædd 1997, og rúmlega 200, sem
fædd eru á þessu ári auk barna sem
ekki eiga enn lögheimili í Reykjavík
en munu flytja þangað á næstunni.
Að sögn Kristínar Blöndal, for-
manns stjórnar Dagvistar barna, er
verið að taka einn nýjan leikskóla í
notkun og á næsta ári er fyrirhugað
að reisa tvo leikskóla og bæta við
deildum við eldri skóla. Má því gera
ráð fyrir um 100 nýjum heilsdags-
plássum á næsta ári.
„Við erum með rúmlega 2.000
börn á biðlista og má segja að þetta
sé að verða stöðug tala því það bæt-
ast alltaf fleiri börn við,“ sagði
Steinunn. Hluti þeh’ra sem sækir
um leikskólapláss sækh- um vist
hálfan daginn og 985 bíða eftir 4-6
stunda vist.
Tengsl inilli hálfsdagspláss
og heilsdagspláss
„Það er okkar reynsla að þeir sem
óska eftir hálfsdagsdvöl sæki mjög
íljótlega um dvöl allan daginn og
það er alltaf stór hópur sem bíður
eftir lengingu,“ sagði hún. „Vegna
þessa og reglu um aldursforgang, en
elstu börnin sitja fyrir, ganga heils-
dagsplássin til þeirra. Þess vegna
styttist biðlistinn í raun lítið þó svo
að verið sé að stækka leikskólana og
byggja nýja. Uppbygging hefur ver-
ið hröð en mikill hluti fer í heils-
dagspiáss. Þetta helst í hendur við
heilsdagsskólann og sjást gréinileg
tengsl þarna á milli og meiri þörf
fyrir heilsdagsdvöl og sex stunda
dvöl, sérstaklega þegar börnin eld-
ast.“
Aukin eftirspurn
Kristín sagði að samkvæmt
könnun sem gerð var síðastliðið ár
hefði átt að vera búið að vista nær
öll tveggja ára börnin og flest eins
árs börn en eftirspurn hefði aukist
frá því könnunin var gerð. Sagði
hún hugsanlegt að foreldrum, sem
samkvæmt könnuninni óskuðu eft-
ir plássi hluta úr degi, hefði snúist
hugur og viljað heilsdagspláss eft-
ir að þeir hefðu kynnt sér það
starf sem fram fer á leikskólunum.
„Það er unnið mjög gott starf á
leikskólum borgarinnar og for-
eldrar eru upp til hópa mjög
ánægðir eins og nýleg könnun sýn-
ir,“ sagði hún.
Kristín benti einnig á að atvinnu-
ástandið hefði áhiif á biðlistana. Mun
fleiri ungbai'namæður færu fyrr út á
vinnumarkaðinn en áður. „Þetta eru
helstu skýringar á því að biðlistinn
styttist ekki meira en raun ber vitni,“
sagði hún. „Annað er að okkar
reynsia hefur verið sú að um 25%
þeirra sem boðið er pláss í fyrsta sinn
hafa viljað fresta því að taka við
plássinu en nú vill enginn frest.
Þannig að þöi-fin hefur vaxið gífur-
lega.“
Verið er að taka nýjan leikskóla í
notkun og fyrirhugað er að byggja
tvo leikskóla á næsta ári auk þess
sem eldri skólar verða stækkaðir.
„Þetta tekur tíma og hjálpar ekki
þeim sem eru úrræðalausir núna,“
sagði Kristín. „Rætt hefur verið
um hvað sé til ráða og við auglýst-
um eftir dagmæðrum og það bar
einhvern árangur en ekki sem
skyldi.“
„ÞETTA er listi yfir söluhæstu
plötur á íslandi og er hann að
koma út í fyrsta skipti," segir
Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands hljóm-
plötuframleiðenda, um nýjan vin-
sældalista. „Listinn verður birtur
vikulega fram að jólum og aðra
hverja viku eftir það, tímabilið
janúar til október. Þetta er sam-
starfsverkefni smásöluaðila og
heildsöluaðila á hljómplötumark-
aðnum og Morgunblaðsins. Þetta
á að vera ábyrgur listi yfir sölu-
hæstu plöturnar."
Listinn er unninn þannig að
fengnar eru upplýsingar úr meg-
inþorra smásöluverslana á hljóm-
plötumarkaðnum. „Pricewater-
houseCoopers sér um að safna
upplýsingunum eftir mjög
ströngu kerfi,“ segir Gunnar.
„Síðan sjá óvilhallir aðilar um úr-
vinnslu gagna og uppsetningu
listans."
■ Geta alItaf/64
Morgunblaðið/Kristinn
Hlýtt í frímínútunum
STRÁKARNIR í Hliðaskóla voru á stutterma-
bolum í frímínútum í gær eins og um mitt sum-
ar væri. Mikil hlýindi hafa verið að undan-
förnu en hætt er við að stuttermabolir dugi
skammt gegn slagviðrinu sem Veðurstofan
spáir í dag.
70% hlutafjár í 10-11 selt
ISLANDSBANKI hafði milligöngu
um sölu á 70% hlut í Vöruveltunni
hf., rekstrarfélagi 10-11-verslana-
keðjunnar, í gær. Kaupendur voru
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn
hf., Landsbréf hf., Lífeyrissjóður-
inn Lífiðn auk nokkurra fyrirtækja
sem ekki eni á matvörumarkaði.
Einnig tók Islandsbanki að sér sölu
á 5% eignarhlut til viðbótar á al-
mennum markaði í dreifðri sölu.
Hjónin Eiríkur Sigurðsson og
Helga Gísladóttir eiga áfram 25%
hlut í fyrirtækinu.
Stefnt er að því að Vöruveltan hf.
verði orðin almenningshlutafélag
snemma á næsta ári.
Heildarvelta Vöruveltunnar hf.
er áætluð rúmir 3,3 milljarðar
króna á þessu ári. Verslanirnar eru
nú tólf og sú þrettánda bætist við
fyrir áramót. Áformað er að opna
fimm nýjar verslanir undir merkj-
um keðjunnar á næsta ári. Fyrsta
verslunin var opnuð í nóvember
1991.
Salan átti sér stuttan aðdrag-
anda og leituðu eigendur 10-11-
verslananna til Islandsbanka til að
hafa milligöngu um hana.
Umhverfísráðherra segir að fara þurfí
yfír gjaldskrármál Landmælinga í heild
Ekki ætlunin
að gjörbreyta
tekjugrunni
GUÐMUNDUR Bjarnason um-
hverfisráðherra segist vera ósáttur
við að sjá að Landmælingar Islands
hafi aðrar reglur til að vinna eftir en
gjaldskrá stofnunarinnar og segh-
hann að þörf sé á að fara yfir gjald-
ski'ármál stofnunarinnar í heild.
Ekki hafi verið ætlunin að gjör-
breyta tekjugrunni hennar.
„Mér finnst að gjaldskráin þurfi
bara að bera það með sér ef það eru
heimildir til samninga við aðila,
hvort sem það eru magnsamningar
eða hvaða aðrir samningar sem það
eru, þá þurfi þetta bai’a að koma
fram. En það er nokkuð sem ég vissi
ekki um eða okkur var ekki ljóst að
Landmælingarnar væru með
ákveðnar leikreglur eða vinnuaðferð-
ir í því sambandi, þannig að mér
finnst að það þurfi að taka þetta allt
til skoðunar í samhengi,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að hörð gagnrýni á
gjaldskrá Landmælinga Islands og
uppbyggingu hennar hefði komið sér
og ráðuneytinu á óvart og málið yrði
að sjálfsögðu tekið til skoðunar.
„Eg verð að fara yfir það vel og
vandlega og sjá hvað þarna liggur á
bakvið. Þó að við vildum skýra gjald-
skrána og fá ákveðna niðurstöðu í
umræðu sem Landmælingarnar hafa
haft í frammi við okkur um það að
þær þurfi að vita rétt sinn í þessu
efni þá var ekki ætlunin að fara að
valda einhverri byltingu eða gjör-
breyta tekjugrunni stofnunarinnar
heldur fyrst og fremst að skýra leik-
reglurnar," sagði Guðmundur.
Hann sagði að bæði stjómarfor-
maður Landmælinga íslands og
nýráðinn forstjóri væru nú staddir
erlendis, en þeir væru væntanlegir
til landsins um helgina og gjald-
skrármálið yrði skoðað í næstu viku.
---------------
*
Islendingur
lést í vinnu-
slysi á norsk-
um togara
53 ÁRA gamall íslenskur sjómaður
lét lífið í vinnuslysi um borð í norska
togaranum Solskjer í fyiradag, um
60 mílur vestur af Álasundi. Maður-
inn, sem var búsettur í Álasundi og
hafði nýráðið sig á togarann, að sögn
norsku lögreglunnar, lenti með höf-
uðið á milli trollhlera og veggs á
skipinu er verið var að hífa trollið
um borð og lést samstundis. Björg-
unarþyrla frá flugvellinum í Vigra
sótti hinn látna og flutti hann til
lands. Ekki er hægt að greina frá
nafni hans að svo stöddu.
SSldUlt
Á FÖSTUDÖGUM
Dulbúin ættarnöfn, Konum kynntir
tvínefni og ýmsar leyndardómar
nafngiftir Netsins
EJUAL
Blaðinu í
dag fylgir
24 síðna
vörulisti
frá TALLÓ.
„Verslaðu
á þínu
verði“.
Gangi
þér vei!
Keflavík efst eftir naum-
an sigur á KR / C2
Miklar breytingar hjá
Skagamönnum / C1
Fyígstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is