Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÚ er að sjá hvort gamla flokksfarartækið hefur eitthvað að gera í nýtísku mötorhjóla töffara. Lyfjanefnd afturkallar markaðsleyfí fyrir parkinsonslyfíð Tasmar Getur valdið alvarleg- um lifrarskemmdum LYFJANEFND ríkisins hefur aft- urkallað tímabundið markaðsleyfi lyfsins Tasmar, sem notað er við parkinsonssjúkdómi, og lagt til að notkun lyfsins verði hætt vegna hættu á alvarlegum aukaverkun- um. Lyfjanefnd er ekki kunnugt um alvarlegar aukaverkanir af völdum lyfsins hér á landi, en öllum sjúk- lingum sem nota lyfið er ráðlagt að hafa samband við lækni sinn hið fyrsta til þess að hefja meðferð á öðrum lyfjum. Evrópska lyfjamálastofnunin ráðlagði í fyrradag að hætta notk- un á Tasmar eftir þrjú dauðsföll erlendis vegna aukaverkana lyfs- ins, en ákvörðunin var tekin eftir að í ljós kom að lyfið getur valdið alvarlegum lifi-arskemmdum. Lyfið er framleitt af svissneska lyfjafyr- irtækinu Roche. Lyfjanefnd ríkisins bendir á að það sé mjög mikilvægt að sjúk- lingar hætti ekki að nota lyfið Tasmar á eigin spýtur. Eru sjúk- lingar eða aðstandendur þeirra beðnir um að hafa samband við þann lækni sem hóf meðferðina með Tasmar til þess að minnka skammt lyfsins smám saman á nokkrum dögum en um leið að auka skammt annarra parkin- sonslyfja. Jóhann Lenharðsson hjá Lyfja- eftirliti rfkisins segir að það sé mjög einstaklingsbundið hvaða lyf geti komið í stað Tasmar. Flestir parkinsonssjúklingar séu á nokki'um lyfjum og það að hætta einu þeirra geti þýtt að þeir þui-fi að auka skammt af öðru eða bæta við nýju lyfi. Ekki hættuástand Rannveig Gunnarsdóttir, for- stöðumaður Lyfjanefndar ríkisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að Tasmar hefði komið á skrá hér á landi 1. apríl síðastliðinn, en hún sagðist ekki vita hve margir hefðu notað lyfíð hérlendis. Lyfið væri notað ásamt öðrum lyfjum, og því væri um viðbótarmeðferð að ræða þegar önnur parkinsonslyf hefðu ekki dugað. „Petta er ágætt lyf, það vantar ekki, en eins og flest önnur lyf getur það haft slæmar aukaverk- anir og það á við um allflest lyf. Þetta er bara spurning um að þess verði gætt að það verði fylgst vel með sjúklingum,“ sagði Rannveig. Hún sagði að ekki væri neitt hættuástand á ferðinni og sjúkling- ar sem notað hafa lyfið þyrftu ekki að vera hræddir. Þeir þyiftu ein- ungis að hafa samband við lækni sinn og ráðlagt væri að nota önnur lyf í stadinn fyrir Tasmar. Málþing Félags ábyrgra feðra Eölilegt að stefna að jafnri forsjá og* umgengni Ólafur Ingi Ólafssson Félag ábyrgra feðra efnir til málþings undir yfirskriftinni „Eru pabbar óþarfir?" á Hótel Loftleiðum á milli kl. 10 og 12 á morgun laugardaginn 21. nóvem- ber. Meginmarkmið Fé- lags ábyrgra feðra snúa að því þegar börn búa ekki hjá báðum foreldr- um sínum. í þeim hópi eru hátt í 20.000 íslensk böm. Alls búa um 96% hjá mæðrum sínum og um 4% hjá feðrum sínum. Helstu verkefni félagsins hafa tengst því að eðlilega um- gengni forsjárlausra feðra við börn sín. Félag- ar í Félagi ábyrgra feðra eru um 150 talsins. Mál- þing félagsins er öllum opið og er aðgangur ókeypis. Olafur Ingi Olafsson, formaður Félags ábyrgra feðra, flytur inn- gangsorð á málþinginu. „Eftir að ég hef lokið máli mínu flytm' Ragnar Ragnarsson, leikskóla- kennari, erindi og kemur þar inn á skort á karlkyns fyrirmyndum á leikskólum. Hólmfríður Sveins- dóttir, varaformaður Kvenrétt- indafélags íslands, tekur því næst til máls. Botninn í málþing- ið slær Bragi Skúlason, sjúkra- húsprestur, og verður spennandi að heyra hvað hann hefur fram að færa. Fundarstjóri er Sús- anna Svavarsdóttir fjölmiðla- kona.“ - Svo vitnað sé í yfirskriftina „Eru pabbar óþarfir?" „Því fer auðvitað víðs fjarri. Böm þurfa á feðrum sínum að halda til að lífið gangi upp. Nið- urstöður rannsókna hníga allar í sömu átt. Að líkurnar á vandræð- um aukist þegar feðurnir eru ekki til staðar í uppeldi barn- anna. Eg get nefnt að í niður- stöðum könnunar Félagsmála- stofnunar Reykjavíkur á högum Vegalausra barna kemur fram að börn í þessum hópi eigi sameig- inlegt að vera tengslalaus við annað foreldri, þ.e. oftast föður- inn. Helgarfeður verða áþreifan- lega varir við að börnin skortir feður í hversdagslífinu. Fyrir ut- an að feðurnir eru sviptir því að fylgjast með daglegu lífi barn- anna.“ - Er eðlilegt, miðað við vaxandi þátttöku feðra í uppeldi ungra barna, að aðeins sé miðað við að úthluta forsjárlausum feðrum annarri hverri helgi með barninu við skilnað foreldranna? „Við höfum verið að vekja at- hygli á því að þjóðfélagið sé að breytast. Feður séu farnir að sinna ungum börnum sínum meira en áður svo að gamlar við- miðunarreglur um aðra hverja helgi eigi ekki lengur við. Gall- inn er bara hvað sýslu- fulltrúar eru fastir í því að fara eftir öðrum og eldri úrskurðum. Krafan um nútímalegt hugarfar verður auðvitað háværari með tímanum. Við verðum að treysta því að á endanum treysti sér ein- hver til að rjúfa hefðina. Annars er hefðin ótrúlega sterk. Ekki pðeins í tengslum við helgarnar. Ég get nefnt að í bók- inni Barnarétti, eins konar leið- beiningabók fyrir lögfræðinga, eftir Davíð Þór kemur fram að sú venja hafi myndast að gera ekki ráð fyrir því að yngra barn en ► Ólafur Ingi Ólafsson, stofn- andi og formaður Félags ábyrgra feðra frá því félagið var formlega stofnað fyrir um ári, er fæddur 3. maí árið 1964. Hann lauk námi í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum í Borgarnesi vorið 1984 og hefur starfað við fagið, sjómennsku og önnur störf síðan. Sambýliskona Ólafs Inga er Björk Guðbjörnsdóttir, skrif- stofumaður, og á hann eitt barn. þriggja ára dveljist yfir nótt hjá forsjárlausu foreldri ef forsjár- foreldri er andvígt næturgisting- unni. Þessi venja er auðvitað al- veg hreint fáránleg miðað við hvernig uppeldi barna er hagað í dag.“ - Við hvað fyndist þér eðlilegt að miða? „Ég er svo mikill byltingar- sinni að mér finnst eðlilegt að stefna af jafnri forsjá og um- gengni við barnið. Eg á við að þegar foreldrar skilji haldi ann- að foreldrið áfram að búa á gamla heimilinu. Barnið búi hjá því foreldri í viku og flyti svo til hins foreldrisins skammt frá til að búa þar í viku. Með því móti gæti barnið haldið áfram að ganga í sama skóla og umgang- ast sömu félagana. Eina breyt- ingin fælist í því að barnið þyrfti að aðlagast nýju heimili með öðru foreldrinu. Kannanir hafa jafnvel sýnt fram á að börnin geti þroskast af því að átta sig á því að ekki er hægt að ganga að sömu hefðum og siðum á tveim- ur heimilum. Svo við snúum okk- ur að foreldrunum þýðir auðvit- að jöfn framfærsla að meðlagið dettur út.“ -Felst ekki aðalvandinn í því að foreldrar hugsa ekki fyrst og fremst um hag barnanna við skilnað? ,Auðvitað er alltaf best ef fólk getur talað saman af skynsemi. Þó held ég að best sé til að fyrir- byggja hvers kyns misskilning og deilur að setja ákveðinn lag- aramma um um- gengni og framfærslu í hvert sinn.“ - Er algengt að börn, sem búa hjá öðru foreldri, hafí lítil tengsl , við hitt foreldrið? „Ég get nefnt í því sambandi I að í ritinu „Staða barna á Is- J landi“ sem Barnaheill gefur út kemur fram að börn einhleypra ; hafi oft eða í 31% tilvika ekkert ; samband við hitt foreldrið og , fram komi lítill áhugi hjá forsjár- I foreldrinu til að efla tengslin." Gamlar við- miðunarreglur eiga ekki leng- ur við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.