Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vinnutímalöggjöf ESB færð út til bílstjóra og unglækna Morgunblaðið/Kristinn JÓNÍNA Bjartmarz, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna á fréttamannfundi í gær, ásamt meðnefnd- arkonum og iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Þörf á stuðningi við at- vinnurekstur kvenna í SKÝRSLU nefndar, sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði í vetur til að meta þörf fyrir sérstakar stuðningsaðgerðir sem taki mið af þörfum kvenna í atvinnurekstri, kemur fram að stuðnings sé þörf, enda segir m.a. í niðurstöðum skýrslunnar að konur séu almennt sammála um að þær hafi minna sjálfstraust en karlar til að stofna og reka eigin fyrirtæki. Þá kemur einnig fram að konur séu hræddari við að taka fjárhagslega áhættu en karlar og þær séu tregari til þess að veðsetja heimili sín til að fjármagna atvinnurekstur vegna afstöðu sinnar til fjölskyldunnar og ábyrgðar á henni. Marín Haf- steinsdóttir látin á fjórða aldursári MARÍN Hafsteinsdóttir lést á bamadeild Landspítalans þriðju- daginn 17. nóvember síðastliðinn. Marín greindist með sjaldgæfan hjartagalla þegar hún var fjögurra mánaða gömul og gekkst undir ell- efu hjartaþræðingar á ævi sinni. Marín var fædd 22. apríl 1995. For- eldrar Marínar eru Anna Óðinsdótt- ir og Hafsteinn Hinriksson og systkini hennar eru Fannar og Sunna. Gengist var fyrir fjársöfnun um allt land vegna veikinda Marín- ar árið 1995. í nefndinni sátu Jónína Bjart- marz formaður, Brynhildur Berg- þórsdóttir, rekstrahagfræðingur hjá Iðntæknistofnun, Herdís Á. Sæ- mundsdóttir sveitarstjómarfulltrúi, Anna Sigurborg Ólafsdóttir, deild- arsérfræðingur hjá iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu, og Elísabet Benediktsdóttir, rekstrarhagfræð- ingur hjá Byggðastofnun. Lánatryggingasjóður kvenna verður efldur I þessu skyni gerði nefndin til- lögu um að efla Lánatryggingasjóð kvenna, þar sem nefndin telur að lánastofnanir muni taka sjóðinn sér til fyrirmyndar og horfa frekar til arðsemi viðskiptahugmynda og trygginga í þeim, en til fasteigna- veða. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði að þess- ari tillögu yrði fljótlega hrint í fram- kvæmd auk þriggja annarra til- lagna, sem nefndin gerði í því skyni að efla atvinnurekstur kvenna. Þær felast í því að komið verði á fót mið- stöð fyrir atvinnurekendur þar sem fáanlegar verði á einum stað allar upplýsingar og þjónusta varðandi stofnun fyrirtækja, fjármögnun þeirra o.s.frv. Komið verði á fót tengslaneti fyrir konur í atvinnu- rekstri, með útgáfu fréttabréfa, námskeiða- og fundahaldi og annarri fræðslustarfsemi. Sérstak- ur stuðningur kæmi til vegna upp- lýsingamiðstöðvar lítilla og meðal- stórra fyrirtækja kvenna. Konur reka18% íslenskra fyrirtækja Nefndin byggði m.a. á niðurstöð- um úrtakskönnunar Félagsvísinda- stofnunar Háskóla íslands sem gerði könnun m.a. á viðhorfum kvenna til eigin atvinnurekstrar og þar kom fram að meirihluta kvenna finnst þær hafa lakari aðgang en kariar að styrkjum og lánum til at- vinnurekstrar. Ennfremur kom fram í skýrslunni að konur reka að- eins 18% íslenskra fyrirtækja í öll- um greinum atvinnurekstrar og hlutfallslega flest á sviði verslunar og þjónustu. Heildarvinnutími ís- lenskra kvenna sem stunda eigin at- vinnurekstur er iangur, að mati nefndarinnar, því rúmlega 40% þeirra vinna 60-79 klst. á viku og 30% kvenna vinna 80 klst. eða meira. HALLDÓR Grönvold, ski-ifstofu- stjóri ASÍ, segir Ijóst að íslensk stjórnvöld eru skuldbundin til að lúta vinnutímalöggjöf Evrópusam- bandsins (ESB) en framkvæmda- stjórn ESB hefur lagt fram tillögu um 48 stunda hámark á vikulegum vinnutíma unglækna, vörubifreiða- stjóra og verkamanna við járn- brautir og á sjó. Sagði Halldór að enn væri ekki ljóst hver áhrifin yrðu varðandi þessar stéttir á Is- landi. „Þessar reglur hljóta að taka gildi hér á landi,“ sagði Halldór. Sagði hann að reyndar yrði ekki ljóst hver niðurstaðan yrði varðandi vörubifreiðastjóra. Þeirra mál væru í upplausn hér á landi. Um bílstjóra hefðu á vettvangi Evi-ópusam- bandsins gilt ákveðnar reglur frá 1985 um aksturs- og hvíldartíma í langflutningum en vinnutími ann- arra bílstjóra félli undir almenna vinnutímareglu. „Þessi reglugerð Evrópusam- bandsins gekk í gildi á Islandi árið 1995 og var hún gefin út af dóms- málaráðuneytinu," sagði hann. „Sú reglugerð er ap okkar mati fullkom- lega ólögleg. í henni felast undan- þágur og frávik, sem við teljum að hvorki uppfylli Evrópureglurnar né íslensku vinnuverndarlögin." Sagði hann að ASÍ hefði staðið í bréfa- skriftum við dómsmálaráðuneytið vegna þessa í á annað ár með litlum árangri en hugmynd ASÍ væri að bílstjórar í langferðum yrðu látnir falla undir almennu vinnutímaregl- una. Vitað væri að reglur væru brotnar þegar um væri að ræða vöruflutninga á lengri leiðum og hjá bílstjórum langferðabíla yfir há- annatímann á sumrin. Halldór sagði að þegar hefðu ver- ið gerðir samevrópskir kjarasamn- ingai- við farmenn sem fælu í sér ígildi nýi-ra reglna. „Ég lít svo á að það sé verkefni aðila hér á landi hvort og þá með hvaða hætti eigi eða þurfi að hafa áhrif á hvíldar- tímaákvæði á íslenskum farskip- um,“ sagði hann. Orkuveita Reykjavíkur Tuttugu sækja um starf forstjóra TUTTUGU karlar hafa sótt um starf forstjóra nýs orkufyrirtækis Reykja- víkurborgar en vinnuheiti þess er Orkuveita Reykjavíkur. Umsækj- endur eiu: Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagns- stjóri, Ái'ni Gunnarsson fram- kvæmdastjóri, Ástvaldur Anton Erl- ingsson deildarstjóri, Daníel Helga- son framkvæmdastjóri, Einar Krist- inn Jónsson framkvæmdastjóri, Ei- ríkur Briem framkvæmdastjóri, Grétar ívarsson jarðfræðingur, Guð- leifur M. Rristmundsson deildar- verkfræðingur, Guðmundur Þór- oddsson vatnsveitustjói-i, Gunnar Axel Sverrisson yfii’verkfræðingur, Hreinn Frímannsson yfirverkfræð- Harður árekstur á Hellisheiði HARÐUR árekstur varð milli tveggja bfla á Hellisheiðinni um miðjan dag í gær. Þoka var á heiðinni þegar slysið varð. Virðist sem bfll sem var á aust- urleið hafi farið yfir á öfugan vegarhelming í veg fyrir bíl sem ekið var í vesturátt. Að sögn lögreglunnar á Sel- fossi var einn maður fluttur á slysadeild en meiðsl hans voru ekki talin alvarleg. Flytja varð annan bílinn á brott með drátt- arbfl. Samvinnu- háskólinn opnar fjar- námsvef FORSETI íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði í gær nýjan fjarnárnsvef Samvinnuhá- skólans á Bifröst. Hönnun og þróun á vefnum, sem er með slóðina fjarnam.is, er samstarfsverkefni Samvinnuhá- skólans og Islandia Internet. Verkefnið er jafnframt styrkt af Landsbanka Islands. Með opnun þessa vefjar er, að mati þeirra sem að honum standa, stigið nýtt skref í fjarnámsmálurn á Islandi. í fyrsta sinn er nemendum gert kleift að stunda nám frá heimili sínu, vinnustað eða annars staðar þar sem þeim hentar, á þeim tíma sem þeim hentar. Með fjarnam.is vill Samvinnu- háskólinn veita fólki úti á vinnu- markaðnum tækifæri til að end- urnýja og auka við sína menntun á þann hátt sem hentar vinnandi fólki. Samvinnuháskólinn býður með Morgunblaðið/Árni Sæberg MorgunDiaoio/Arn ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti opnar fjarnámsvef Samvinnuháskólans. þessum hætti upp á 30 eininga nám til BS-gráðu í rekstrarfræð- um. BS-gráða er alþjóðleg há- skólagráða sem veitir réttindi til framhaldsnáms í erlendum há- skólum. í fréttatilkynningu frá Sam- vinnuháskólanum segir að kann- anir hafi einnig sýnt að þeir sem útskrifist með slíka gráðu frá Bifröst séu líklegir til að fá góð og vel launuð störf í atvinnulíf- inu. Forsenda inntöku í fjarnáin- ið er að fólk hafi tveggja ára rekstrarfræðanám að baki. Þeir skólar sem útskrifa eða hafa út- skrifað rekstrarfræðinga með slíkt tveggja ára nám eru, auk Samvinnuháskólans, Háskólinn á Akureyri og Tækniskólinn. Einnig þekkist slíkt nám á Norð- urlöndum og gæti gefið sambæri- leg réttindi. Alls eru samkvæmt þessu um 1.100 manns hérlendis sem eiga möguleika á námi í fjarnam.is ingur, Ingólfui- Hrólfsson yfirverk- fræðingur, Kristján Arinbjarnar Halldórsson fagstjóri, Ólafur G. Fló- venz framkvæmdastjóri, Ólafur Jónsson rekstrarráðgjafi, Páll Valdi- marsson prófessor, Stefán Kærne- sted framkvæmdastjóri, Valgarður Stefánsson yfn-verkefnisstjóri, Víglundur Þorsteinsson rafmagns- tæknifræðingur og Þorsteinn Sigur- jónsson deildarstjóri. Fólk Ráðin ráð- • i»* í»* / gjafi fjar- málaráð- herra •RAGNHEIÐUR E. Árnadóttir hefur verið ráðin ráðgjafi fjármála- ráðherra og tók hún við af Þór Sig- fússyni hagfræðingi sem starfaði — með Friðriki ' Sophussyni, fyrrverandi ráð- herra. Ragnheið- ur er 31 árs Keflvfldngur. Hún lauk BA- prófi í stjórn- málafræði frá Háskóla íslands árið 1991 og MS- prófi í milliríkja- samskiptum frá Georgetown University í Was- hington DC í Bandaríkjunum árið 1994. Ragnheiður starfaði áður hjá Utflutningsráði íslands, fyrst sem viðskiptafulltrúi í New York og síð- an sem verkefnisstjóri á skrifstofu þess í Reykjavík. Hún var einnig framkvæmdastjóri Islensk-amer- íska verslunarráðsins í New York 1996-1997. Áður hafði Ragnheiður m.a. starfað hjá sendiráði Islands í Washington og hjá Öryggismála- nefnd. Sambýlismaður Ragnheiðar er Guðjón Ingi Guðjónsson. Ragnhciður E. raadóttir Enn ekki ljóst hver áhrifin verða á Islandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.