Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Sameinast fornir íjendur í norskum stjórnmálum? Afar flókin staða er komin upp í Noregi, þar sem allt stefnir í stjórnarkreppu og stjórnmálamenn grein- ir á um hvernig bregð- ast eigi við. Stuðningur við stjórn miðflokkanna hefur hrunið og kann það að leiða til þess að Verkamannaflokkur og Hægriflokkur nái sögu- legu samkomulagi um nýja stjórn. Urður Gunnarsdóttir kynnti sér stöðuna. HINIR fomu fjendur í norskum stjórnmálum, Verkamannaflokkur- inn og Hægriflokkurinn, hafa náð samkomulagi um þrjú til fjögur veigamikil atriði í fjármálastefnu landsins. A sama tíma stendur minnihlutastjóm miðflokkanna frammi fyrir alvarlegri stjómar- kreppu, henni hefur ekki tekist að afla fylgis við fjárlagafrumvarp sem leggja á fram í næstu viku og horfir þunglega með að takist. Engu að síð- ur hefur áhiifamaður í einum stjórn- arflokkanna lýst því yfíi- að þótt fjár- lagafrumvarp stjórnarinnar verði fellt hafí það ekki sjálfkrafa í fór með sér afsögn hennar. Staðan er afar flókin. Nú er við völd minnihlutastjórn þriggja mið- flokka, Kristilega þjóðarflokksins, Miðflokksins og Venstre, sem hing- að til hefur notið stuðnings Hægi’i- flokksins og Framfaraflokksins. Flokkarnir tveir hafa hins vegar hafnað því að styðja fjárlagafrum- varp stjórnarinnar, eru ósáttir við skatta- og einkavæðingarstefnu hennar. Stjórnin hefur einnig leitað til Verkamannaflokksins um stuðn- ing en hann neitaði að styðja stjórn- ina á meðan hún stæði fast við áform sín um svokallaðar for- eldragreiðslur til foreldra sem kjósa að vera heima hjá börnum upp að tveggja ára aldri. Ekki boðað til kosninga í síðustu kosningum vora gerðar breytingar á fjárlögum sem gera stjórninni mun erfiðara fyrir en áður að ná samkomulagi um þau. Fram að því lagði stjórnin fram fjárlagafrum- varpið lið fyrir lið, og að síðustu var fjárlagaramminn samþykktur. Petta leiddi til málamiðlunar um einstaka liði, sem varð svo til þess að endgn- leg íjáriög fóra oftar en ekki fram úr því sem fyrirhugað var. -það er ys og þys á ys.is Scanfoto/Karina Jensen KJELL Magne Bondevik (fremst) hafði betur í baráttunni við Thorbjorn Jagland (fyrir miðju) í norsku kosningunum fyrir rúmu ári. Nú hafa líkur hins vegar aukist á því að Jagland skjótist fram fyrir Bondevik og setjist í stól forsætisráðherra í hans stað. Nú ber flokkunum að leggja fjárlagarammann fram fyrst, svo verða greidd atkvæði um ein- staka liði og þar stendur hnífurinn í kúnni. Stjórninni hefur ekki tekist að fá fylgi við fjárlögin í heild og því gefst lítið sem ekkert íými til samninga. Ekki reyndi á þetta ákvæði í fyrra þar sem stjórninni tókst að afla fjárlaga- frumvarpinu nægs fylg- is með aðstoð Hægri- flokksins og Framfai-a- flokksins. Engir aðrir flokkar á Jan Petersen. flækir málið hins vegar að nokkrir stjórnarliðar hafa lýst því yfir að stjórnin muni ekki fara frá sjálfkrafa þótt ekki fáist meirihluti fyrir fjárlögunum. Muni hún ekki fara frá fyrr en fram komi fjárlög sem njóti stuðnings meiri- hlutans. Þessu hafa stjómarandstæðingar mótmælt harðlega og því hlýtur að teljast lík- legt að borin verði upp vantrauststillaga á stjómina. Annar möguleiki sem nefndur hefur verið er norska þinginu era nógu stórir til að tryggja stjórninni meirihluta og hún heldur fast við fjárlagafrumvarp sitt. Kjell Magne Bondevik forsætisráð- herra hefur nær útilokað möguleik- ann á málamiðlun með yfirlýsingum um að stjórnin verði að leggja fram fjáriagafrumvarp sem hún sé sátt við en hann hefur reyndar einnig gefið óljóst í skyn fyrr í vikunni að einhver eftirgjöf sé möguleg. „Þvinguð" atkvæðagreiðsla Takist stjóminni ekki að fá mairi- hluta fyrir fjái'lagafrumvarpinu er ekki boðað sjálfkrafa til kosninga, heldur er leiðtogum flokkanna falið að reyna nýja stjórnannyndun. Það 1 Brandtex Shop in Sho Siðu jakkarnir eru komnir frá st. 38—48. Síðasta sending fyrir jóf. v Verð frá 4.900—7.900 svokölluð þvinguð atkvæðagreiðsla, þar sem þingmenn eru látnir greiða atkvæði um tvær tillögur sem taldar eru líklegar til að ná fram að ganga. Norskir stjórnmálamenn og stjórn- málaskýrendur eru hins vegar flest- ir sammála um að slík atkvæða- greiðsla sé ekki lögleg, þar sem með henni sé verið að neyða þingmenn til að greiða atkvæði með tillögu sem þeir séu ósammála. Kirsti Kolle Gronddahl, forseti norska Stór- þingsins, segir slíka atkvæða- greiðslu ekki til umræðu nú en úti- lokar ekki að til hennar kunni að koma síðar. Jagland vinsælli en Bondevik Ótal möguleikar á nýju stjórnar- mynstri hafa verið nefndir en hafa allh' þótt fremur ólíklegir, t.d. er hefðbundin stjórn síðustu ára, minni- hlutastjórn Verkamannaflokksins með stuðningi sósíalíska vinstri- flokksins og Miðflokksins, sögð útilokuð, Afstaða norskra kjósenda virðist sú að þeir kjósi að Thorbjorn Jag- land setjist aftur í stól forsætisráð- herra. Samkvæmt nýjustu skoðana- könnun Scan-fact vilja 52% Jagland sem forsætisráðherra en 48% styðja Bondevik og er þetta í fyrsta sinn frá því að Bondevik tók við stjórnar- taumunum sem Jagland skýst upp fyrir hann. Þetta er aðeins könnun á persónu- legum vinsældum þeirra, samkvæmt annaiTÍ skoðanakönnun vilja 59% kjósenda að Verkamannaflokkurinn taki aftur við stjórnartaumunum, um 35% vilja að flokkurinn myndi stjórn með Sósíalíska vinstriflokknum og sami fjöldi að hann snúi sér til Hægriflokksins. Um 74% kjósenda Hægriflokksins vilja að flokkurinn styðji stjórn Verkamannaflokksins. Fylgi við ríkisstjórnina er rétt tæp- lega 19%. Eygðu Tony Blair Um síðustu helgi hóf formaður flokksins, Thorbjorn Jagland, að biðla til Hægriflokksins, mörgum að óvörum þótt flokkarnir eigi nokkur stefnumál sameiginleg, t.d. Evrópu- mál. Hægi'imenn létu ólíklega með þetta í fyrstu, einkum fonnaðurinn Jan Petersen, en nú er komið annað hljóð í strokkinn. Talsmaður Hægriflokksins í efna- hags- og fjármálum, Per-Ki'istian Foss, segir flokkinn hafa „eygt Tony Blair í stað gamaldags sósíalisma“ í Verkamannaflokknum og að á þeim gi’unni geti flokkarnir brúað bilið. Ekki hefur komið til tals að flokk- arnir setjist saman í stjórn, einungis hefur verið rætt um stuðning Hægri- flokksins við stjórn Verkamanna- flokksins. Tillögurnar sem flokkarnir komu sér saman um þýða nokki’a eftirgjöf af beggja hálfu, Verkamannaflokk- urinn gefur eftir hvað atvinnulífið vai'ðar og Hægriflokkurinn lagar sig að Verkamannaflokknum hvað vai'ð- ar virkari Evi'ópustefnu og breyting- ar á hinu opinbera kerfí, Sameiginleg stefna flokkanna í Evrópumálum felst í því að Norð- menn taki upp viðræður við Evrópu- sambandið (ESB) til að styrkja stöðu sína innan Evrópska efnahagssvæð- isins (EES) og þátttöku í hinum ýmsu samstarfsverkefnum ESB. Nýta verði með öllum ráðum hlut- verk Noregs sem forystuþjóðar í orku- og olíuframleiðslu. Þá beri að ræða möguleikann á því að tengja norsku krónuna frekar við evróið, gjaldmiðið ESB-landanna. Verkamannaflokkurinn fellst á ki'öfur Hægriflokksins um nútíma- væðingu hins opinbera, sem felast m.a. í að gera efnahagskerfið virkara. Þá hafa flokkarnii' náð sam- komulagi um umdeildari mál, svo sem sameiningu sveitarfélaga, sem þeir telja að beri að hvetja til. Að síðustu má nefna að flokkarnir era sammála um nauðsyn þess að stofna Rannsóknarsjóð sem fái tekj- ur sínar af sölu hlutabréfa ríkisins í ýmsum fyiirtækjum. NATO íhugi aðild Litháens ZBIGNIEW Brzezinski, fyrr- verandi þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði í gær að Atlantshafsbandalagið (NATO) ætti að íhuga að veita Litháen aðgang að bandalag- inu. Kvaðst Brzezinski, sem var ráðgjafi í forsetatíð Jim- mys Carters, ekki telja tíma- bært að hleypa öllum Eystra- saltslöndunum í NATO en hins vegar mætti einnig íhuga aðild Slóveníu sem, líkt og Litháen, virtist nálægt því að uppfylla skilyrði NATO fyrir aðild. Innbrot hjá lögmönnum BROTIST var inn á skrifstofur lögmanna Anwars Ibrahims, fyrrverandi fjármálaráðherra í Malasíu, í gær og þar brotinn upp öryggisskápur sem m.a. geymdi gögn í máli Anwars. Ekki er ljóst hvort nokkra var stolið en Anwar hefur verið sakaðui' um spillingu og kyn- ferðisbrot. Neitaði hæstiréttur í Malasíu óskum Anwars um að fá lausn gegn tryggingu á með- an á réttarhöldunum stendur en Anwar hefur áfrýjað þess- um dómi til sérstaks áfrýjunar- dómstóls sem taka mun málið fyi'ir 28. nóvember. Ný og hættu- legri eiturlyf BRESKA lögreglan hefur var- að við því að ný og afar hættu- leg tegund eiturlyfja hafi nú ratt sér til rúms á nætui'klúbb- um í Bretlandi og segir hún að eiturlyfin séu þrjátíu og þrisvar sinnum sterkari en e- töflur. Segii’ lögreglan að nýju lyfin, „hjartastopp" og DOB, séu mun hættulegri, en sölu- menn hafí undanfarið selt við- skiptavinum sínum þau sem e- töflur, án þess að fólk hafi nokkra hugmynd um styrk- leika þeirra. Hafa þrír látist undanfarinn mánuð eftir að hafa tekið „hjartastopp." Vill verja heiður sinn í einvígi ROLAND Dumas, yfirmaður stjórnarskrárréttar Frakk- lands, sem undanfarna mánuði hefur sætt rannsókn vegna gruns um spillingu, sagðist í gær hanna að hann getur ekki varið heiður sinn upp á gamla mátann - með því að skora menn á hólm. Sagðist Dumas gjarnan vilja mæta Valei-y Giscard d'Estaing, íyiTverandi forseta Frakklands, í einvígi, en Giscard d’Estaing sagðist fyrr í mánuðinum telja að Dumas ætti að segja af sér. Ungbarn í frystinum SÆNSKA lögreglan handtók í fyrradag konu í smábæ í Mið- Svíþjóð er hún reyndi að fela líkamsleifar nýfædds bams í skógi. Konan kvaðst móðir barnsins, sem hún hefði myrt fyrir tíu árum, og falið í frystikistu. Það voru börn kon- unnai' sem fundu líkið og létu lögregluna vita.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.