Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Ljóðasamkeppni grunnskólanna 1 A-Hún. Einn góðan veður- dag þarft þtí að fara Morgunblaðið/Jón Sigurðsson VERÐLAUNAHAFAR í ljóðasamkeppni grunnskólanna í A-Húna- vatnssýslu. Verðlaunahafar voru frá grunnskólunum á Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Blönduðsi. Morgunblaðið. MIKIL þátttaka var í ljóðasam- keppni meðal nemenda 5.-7. bekkj- ar grunnskólanna í A-Hún. Viður- kenningar fyrir bestu ljóðin voru af- hentar á degi tungunnar í grunn- skólanum á Blönduósi. Viðurkenn- ingar vora veittar hverjum árgangi og kenndi margra grasa í ljóðagerð austur-húnvetnskra barna, en þó má segja að veturinn, vináttan og hafíð hafí frekar öðru sett svip á ljóðagerð bamanna. Fyrstu verðlaun fyrir ljóð í fimmta bekk hlaut Hámundur Örn Helgason á Blönduósi fyrir ljóðið „Fjallamaður". Besta ljóðið í sjötta bekk, „Óli í berjamó", orti Lilja María Evensen, Blönduósi, og fyrstu verðlaun fyrir ljóð í sjöunda bekk hlaut Rannveig Gísladóttir, Blönduósi, en ljóð hennar heitir „Hafið“. Athygli vakti að stúlka í sjötta bekk grunnskólans á Blönd- uósi, Melani Vranjes, hlaut viður- kenningu fyrir ljóðagerð; Hún kom með fjölskyldu sinni til Islands um miðjan júní frá Júgóslavíu þannig að kynni hennar af málinu era ekki löng. Ljóð hennar, „Vinátta", lýsir á mjög áhrifaríkan hátt reynslu hennar af því að vera slitin úr um- hverfí sínu og þurfa að flytja til framandi lands. „í æsku eignastu vin/ sem þú tengist vináttuböndum/ Sem sannir bræður leikið þið sam- an öllum stundum. En einn góðan veðurdag /þarft þú að fara/ í burtu til framandi lands/ Þið eruð ekki lengur saman. En samböndin halda/ skrifaðu vini þínum, / TONLIST Hljðmdiskar BJARKARTÓNAR/ÉG ÓSKAÐI FORÐUM Samkórinn Björk, Austur-Húnavatns- sýslu. Stjórnandi og undirleikari: Thomas Higgerson. Einsöngvarar: Sigfús Pétursson, Steingrímur Ingv- arsson, Halldóra Ásdís Gestsdöttir. Söngur, börn: Agnes Björg Alberts- dóttir, Elín Ósk Magnúsdóttir, Lillý Rebekka Steingrímsdóttir, Óskar Þór Davfðsson. Upptökustaður: Blönduós- kirkja maí 1997 og ‘98. Upptaka stafræn-steríó: Stúdíó Stemma. Upp- tökumaður: Sigurður Rúnar Jónsson. Útgefandi: Samkórinn Björk. SAMKÓRINN Björk, sem hér kynnir sig á sínum fyrsta geisladiski, er þrjátíu manna blandaður kór, stofnaður 1983 að tilstuðlan nokkurra félaga í Tónlistarfélagi Austur-Húna- vatnssýslu. Kórinn er skipaður söng- Bókatitlar aldrei fleiri BÓKATÍÐINDI 1998 eru komin út og er verið að dreifa þeim til allra heimila landsins þessa dagana. Kynntar eru allar helstu bækur sem út eru gefnar á árinu og era titlar fleiri en nokkru sinni fyrr, eða um 450 talsins. Sagt er frá efni bókanna, höfundum, stærð og verði. Ókeypis happdrættismiði er á baksíðu allra eintakanna og verða dregnir út í desember 24 vinningar, einn á dag fram að jólum. Vinnings- númerin verða birt jafnóðum í dag- bókum DV, Dags og Morgunblaðs- ins, en bóksalar og skrifstofa Félags íslenskra bókaútgefenda geta einnig gefíð upplýsingar um þau. varðveittu vináttuna / í hjarta þínu alla daga. Þetta er í annað sinn sem keppni sem þessi er haldin í A-Húnavatns- sýslu og styrktu bókaútgáfurnar fólki frá Blönduósi og víðar úr héraðinu. Haustið 1995 kom Peter Wheeler til starfa hjá kórnum sem stjórnandi, en einnig núverandi stjómandi kórsins, Thomas Higger- son, sem undirleikari. Higgerson vai- svo ráðinn stjómandi kórsins árið 1997, en hann hafði þá komið viða við í íslensku tónlistarlífi síðan 1991, bæði sem stjómandi og undirleikari. Hann stundaði tónlistarnám í Bandaríkjun- um og framhaldsnám bæði þai- og í Pan's við École Normale de Musique (1974-75) og vann til ýmissa verð- launa, svosem hinna ái'legu tónlistai'- verðlauna Aitist Presentation Society í St. Louis (1985). Hann starfaði við tónlistarkennslu í Bandaríkjunum, m.a. við Tónlistarháskólann í Illinois, áður en hann fluttist til íslands - eða öllu heldur Skagafjarðar, 1991. Hljómdiskurinn ber vitni um gott starf, góða hæfíleika og góða stjórnendur. Margt gleður hugann við hlustun, sumar útsetningar skemmtilegai' og fallegar, aðrar orka tvímælis að mati undirritaðs - m.a. hvað varðar hraða, sem stundum er næstum enginn, o.fl. Kórinn er engu að síður góður og greinilega ágætlega þjálfaður. Éinsöngvarar meira og minna góðh'. Afturámóti er ljóst hvað háir diskin- um öðru fremur, en það er hljómgun (,,acoustic“) kirkjunnar - því ég er viss um að annars myndi Sigurður Rúnar skila sínu verki, sem upptöku- maður og stjóri, með skfrari hljómi en raun ber vitni: hann er ekki nógu hreinn og tær - og einnig vakna spurningar um jafnvægi (og skfr- leika), t.d. milli hljóðfæraleiks og söngs. Þetta er miður, þar sem kór- inn syngur vel og bömin líka, og aðrir gera einnig góða hluti - og sumt vek- ur athygli, bæði í söng og hvað varðar útsptningar. Ég ætla að mæla með þessum diski - með fyrirvara um hljóðritun. Oddur Björnsson Iðunn, Mál og menning og Vaka- Helgafell keppnina svo og Kaup- félag Húnvetninga, verslunin Borg á Skagaströnd og Sportmynd á Blönduósi. Nýjar bækur • TILBÚINN undir tréverk er önnur unglingabók Þórðar Helgasonar. í kynningu segir: Jens er 16 ára og gengst undir það mann- dómspróf að ráða sig í bygg- ingavinnu. Púlið tekur á taugamar en ýmsir félagar í vinnuflokkn- um koma á óvart, ekki síst ljóskan Sonja sem er góður smiður og karlamir, hörkutólin, reynast vinir í raun.“ Höfundur hefur einnig sent frá sér ljóð og smásögur. Utgefandi er Mál og menn- ing. Bókin er 133 síður, prent- uð í Svíþjóð. Ámundi Sigurðs- son og Halldór Baldursson gerðu kápu. Verð: 1.890 kr. • AÐGÁT skal höfð er eftir Þorstein Marelsson. í kynningu segir: „Þegar samræmdu prófin eru að baki og útihátíð aldarinnar í upp- siglingu fínnst Dóra ýmislegt á sig leggjandi til að missa ekki af öllu gríninu. Fyrr en varir dregst hann inn í vafa- saman félagsskap og flækist í í óþægilegt sakamál. At- burðarásin skýrist þegar Sáli kemur til hjálpar og Dóri leys- ir smám saman frá skjóðunni í bréfí til vinar síns.“ Þorsteinn hefur áður sent frá sér unglingabækur. Útgefandi er Mál og menn- ing. Bókin er 136 síður, prent- uð íSvíþjóð. Verð: 1.890 kr. Bj ar kar kóriim kynnir sig Menningar- og ferðaklúbbur settur á laggirnar ÚTVARPSSTÖÐIN Klassík FM stendur fyrir stofnun nýs menning- ar- og ferðaklúbbs í samvinnu við ferðaskrifstofuna Landnámu. Opn- unarhátíð verður á Hótel Borg, Gyllta salnum, sunnudaginn 22. nóvember kl. 16. Þar koma fram Bergþór Pálsson óperusöngvari, Biyndís Halla Gylfadóttir sellóleik- ari, Sigrún Eðvaldsdóttfr fiðluleikari og Steinunn Bfrna Ragnarsdóttfr píanóleikari. Kynntar verða ferðir klúbbsins sem fyrirhugaðar eru á næstunni, m.a. fímm daga aðventu- ferð til Edinborgar sem farin verður 10. desember nk. í fylgd hjónanna Sverris Guðjónssonar og Elínar Eddu Árnadóttur. Stofndagui'inn er helgaðm' vemd- ardýrlingi tónlistarinnar, heilagi'i Sesselju, sem var uppi á þriðju öld í Róm. Markmið klúbbsins er að miðla upplýsingum um það sem hæst ber í menningar- og listalífínu hverju sinni, hérlendis jafnt sem erlendis. Efnt verðui- til listviðburða þai' sem bæði erlendh' og innlendir listamenn koma fram. Félagsmönnum standa til boða vandaðar lista- og menningai'ferðfr í fylgd sérfróðra leiðsögumanna. Fyr- irhugað er samstarf við Kvikmynda- safn Islands, tónlistai'húsið í Kópa- vogi og aðrar menningai'stofnanfr. Félagsmenn munu njóta sérkjara á ýmsum stöpum, s.s. hjá Sinfóníu- hljómsveit Islands, leikhúsum borg- arinnar og hljómplötuverslunum. Mánaðai'lega fá félagsmenn sent vandað tónlistartímarit fi'á Classic FM í London ásamt geisladiski með nýjum upptökum með fremsta tón- listarfólki heims. Full aðild að klúbbnum kostar 1.200 kr., en 700 kr. óski fólk ekki eftfr tónlistartímaritinu og^geislaplötunni. I stjóra klúbbsins eiga sæti Aithúr Björgvin Bollason rithöfundur, Hall- dór Hauksson dagskrárstjóri Klassíkur FM, Hrafnhildui' Schram listfræðingur, Ingiveig Gunnai'sdóttir framkvæmdastjóri Landnámu og Steinunn Bfrna Ragnarsdóttfr píanó- leikari. Framkvæmdastjóri klúbbsins er Ragnai- Ólafsson. Aðgangur er ókeypis. Bandarískir org- eltónar til Islands ORGELKAUP Langholtskirkju og Neskirkju í Reykjavík vora fyrir skemmstu umfjöllunarefni héraðs- fréttablaðsins Eagle-Tribune í Massachusettes í Bandaríkjunum, en Fritz Noack orgelsmiður smíðaði org- elið og vinnur raunar að öðra fyrh' ís- lenska kfrkju. Þykh' þetta mikill heið- ur fyrh' Noack þar sem evrópski markaðurinn er sagður mun kröfu- harðari en sá bandaríski og japanski, sem Noack hefur hingað til unnið fyr- ir. Noack er raunar fæddur í Þýska- landi og lærði iðn sína þar. Hann fluttist til Bandaríkjanna fyrir tæpum fjöratíu áram og hefur starfað í Geor- getown í Massachusettes síðan. Hef- ur hann sex manns í vinnu við smíðina og hefur haft yfiramsjón með smíði um 130 orgela. í greininni segir að ákvörðun um orgelsmíðina fyrir íslensku kirkjurn- ar megi rekja til ferðar Hauks Guðlaugssonai', söngmálastjóra Þjóðkh'kjunnar, til Boston fyrir nokkrum árum. Haukur hafí hitt Noack að máli og úr varð að Noack smíðaði orgel í tvær íslenskar kirkj- ur. I greininni er rætt við Jón Stefánsson, stjórnanda Lang- holtskórsins, sem fer fögrum orðum um smíði Noacks, segir hljóm orgela hans einstaklega fallegan. Og Noack er ekki síður ánægður: „Við eram ákaflega stolt af þessu og ekki bara okkar sjálfra vegna, heldur fyrir hönd bandai'ísks tónlistarlífs. Þótt Island sé svona lítið land er áhuginn á kfrkjutónlist og gæði henn- ar einstök. Okkur fellm’ það vel þegar fólk kann að meta það sem það fær.“ Á MYNDINNI eru Magnús Guðmundsson, sviðsstjóri og tæknimaður, Unnar M. Sigurbjömsson, Þórður Bjarnason, Helgi Róbert Þórisson, Jenný Ingudóttir og Vala Þórsdóttir. Neðri röð: Kristjana Magnea Jónasdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Ásta Sóley Sturludóttir. Leikfélag Kópavogs s Okeypis á Dario Fo LEIKFÉLAG Kópavogs frum- sýnir Betri er þjófur í húsi en snurða á þræði eftir Dario Fo á inorgun, laugardag kl. 21. Leikstjóri er Vala Þórsdóttir. Sex ungir áhugaleikarar taka þátt í sýningunni, og enn fleiri starfa á bak við tjöldin. í Þjófinum segir frá ólánleg- um innbrotsþjófi sem verður fyrir truflunum við störf sín. í ljós kemur þó að húsráðendur hafa engu síður óhreint mél í pokahorninu, og leikurinn tekur því óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sú nýbreytni verður tekin upp að hafa ókeypis í Ieikhúsið í anda Dario Fo en hann baráttumaður fyrir bættum hag alþýðunnar og vill Leikfélag Kópavogs því gefa öllum tækifæri til að kynnast einu af verkum hans, segir í fréttatilkynningu. Aðeins eru fyrirhugaðar fjór- ar sýningar fyrir jól, þ.e. 21. nóvember, 28. nóvember, 5. og 6. desember kl. 21.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.