Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 lega áhugamál okkar, flugvélar. Þú sagðir mér seinna að þú ætlaðir að skrásetja þennan fróðleik þinn og halda vel utan um þessa flugsögu sem lá bak við allan þennan fróð- leik þinn. Eg veit núna að þú stóðst við orðin þín því leiðir okkar lágu aftur saman, núna leitaðir þú til mín, þig hafði lengi langað til þess að læra sportköfun, komst á kynningu og sagðir svo eftir á: „Þetta er það sem ég vil læra næst.“ Áliugi þinn á námsefninu leyndi sér ekki, þú tókst námið alvarlega og þú jafn- framt Iagðir þig allan fram til þess að sigrast á vatnsfælni sem þú sagðir að hefði oft angrað þig. Með stjörnuglampa í augunum unnum við saman, þú og ég, ásamt öðrum nemendum, hvert skrefið á fætur öðra stigið til móts við nýjar æfíng- ar og aldrei slegið af. Þú fékkst útúr mér einhverja mestu gleði mína á mínum ferli sem kennari, eftir hverja æfíngu í sundlauginni klöppuðu allir fyrir settu marki. Þegar við æfðum flotjöfnunaræf- ingarnar þá sýndi ég ykkur hvern- ig hægt væri að labba á puttunum eftir sundlaugarbotninum, þú varst svo ánægður þegar þú varst búinn með þessa æfíngu að þú komst ekki uppúr fyrr en löngu seinn, það var svo gaman hjá þér. Það er gefandi starf að kenna og sjá nemendur sína ná settu marki. Hafið gefur og hafíð tekur, þetta hugtak þekkir íslenska þjóðin, við erum minnt á þetta á hverjum degi, við sækjum okkar björg í bú sem gerir okkur kleift að lifa og byggja þetta land. Við þurfum einnig að ganga þannig um umhverfí hafsins að vistkerfi þess fái að lifa og dafna fyrii- komandi kynslóðir. I ár er ár hafsins, íslendingar allir vilja að það gefi okkur það sem það hefur að gefa. Á móti er það siðferðileg skylda okkai’ að virða það með betri umgengni en hefur verið. Þú vildii' taka þátt í því átaki ásamt öðrum nemendum sem lært hafa sportköf- un hjá mér, þessi helgi var liður í lokaáfanga okkar að klára verkleg- ar æfíngar í sjó og að námi loknu ætlaðir þú að halda áfram og öðlast meh-i reynslu og halda áfram að kafa með okkur hinum. Þennan ör- lagaríka dag eftir að verklegum æf- ingum var lokið skoðuðum við þenn- an fallega heim undirdjúpanna, um- vafðh- fiskum, krabbadýrum, ki’oss- fiskum og marglitum þaraskógi. Stjörnuglampi vai- í augunum þín- um og heimferðin undirbúin, það var kominn tími til að kveðja undir- djúpin í þetta sinn. Skyndilega eins og hendi sé veifað breytist heim- ferðin í harmleik sem enginn mann- legur máttur fékk ráðið við, þú, elsku vinur, hafðir fengið nýtt hlut- verk og fórst strax til starfa hjá okkar almáttuga Guði. Ég reyndi allt til að hafa þig hjá mér og Jó- hannes köfunarfélagi þinn ásamt fóður sínum líka en okkur varð ekki að ósk okkar. Ég er þess fullviss að þú nærð settu marki þó að það sé í öðrum heimi en þeim sem við vor- um í um daginn. Þú ert með kafara- gleraugun þín með þér og getur skoðað óravíddir undirdjúpanna á himnum, það verður vel tekið á móti þér, þú ert drengur góður og vildir öllum vel. Ég veit að þú fylgist með mér og ég skal lofa þér því að halda áft-am að kenna öðrum sportköfun og leyfa þínum anda að koma með í hverja ferð hvar sem er og hvenær sem er. Að lokum langar mig til að kveðja þig með texta úr lagi Jó- hanns Helgasonar, Söknuði. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga þvi er ver, ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Elsku Rúnar minn, Guð geymi þig og blessi, minning þín er ljós í lífi okkar, ég sendi fjölskyldu, ætt- ingjum og vinum mínar einlægar samúðarkveðjur. Megi Guð almátt- ugur fylgja ykkur í sorg ykkar. Hinsta kveðja. Tómas J. Knútsson, Sportköfunarskóla Islands. LILJA VIGFÚSDÓTTIR HJALTALÍN ARNDAL + Jósefína Lilja Vigfúsdóttir Hjaltalín Arndal fæddist í Brokey á Breiðafirði 27. maí 1903, og ólst þar upp. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 12. nóvember síðastliðinn. For- eldrar Lilju voru Vigfús Jónsson Hjaltalín, f. 4.10. 1862, d. 3.7. 1952, bóndi í Brokey, og kona hans Kristjana Guðbjörg Kristjáns- dóttir, f. 10.9. 1874, d. 17.2. 1968. Systkini Lilju eru: Jón Bergur, nú látinn, fyrrv. bóndi í Brokey; Guðbjörg Kristín, nú látin, ljósmóðir í Stykkishólmi, en bjó síðast í Reykjavík; Hildur Halldóra, nú látin, húsmóðir í Stykkishólmi, síðar í Reykjavík; Lára Málfríður, nú látin, hús- freyja á Narfeyri á Skógar- strönd, síðar í Reykjavík; Vil- hjálmur Óskar, fyrrv. bóndi í Brokey, nú búsettur í Stykkis- hólmi; Eygló, fyrrv. kennari í Reykjavík; Laufey, dó ung kona. Hinn 1. janúar 1930 giftist Lilja Finnboga J. Arndal, fulltrúa bæjarfóget- ans í Hafnarfirði og síðar forsljóra Sjúkrasamlags Hafn- arfjarðar. Hann var fæddur 31. ágúst 1877 og lést 28. júní 1966, sonur Jóhanns Jónssonar og konu hans Sigríðar Eiríks- dóttur. Lilja hefur búið í Hafnarfirði, lengst af á Brekku- götu 9, síðan í Álfa- skeiði 80 en nú síðustu árin hefur hún dvalið á Hrafnistu í Hafnar- firði. Börn Lilju og Finnboga eru Jón Hjaltalín, f. 17.5. 1930, kvæntur Margréti Jóhannsdótt- ur frá Siglufirði. Synir þeirra eru Hlynur, f. 1957, kvæntur Auði G. Eyjólfsdóttur, dóttir þeirra er Karen Lísa, f. 1993; ív- ar, f. 1959, kvæntur Elínu H. Káradóttur en börn þeirra eru Margrét Helga, f. 1992, og Jó- hann Kári, f. 1995; Finnbogi, f. 24.10. 1933, kvæntur Hjördísi S. Þá hefur Lilja, tengdamóðir mín, kvatt þennan heim, södd lifdaga. Hún var margræð kona og við- kvæm, en skapstór og lá ekki á skoðunum sínum. Fastheldin var hún á grónar siðvenjur og mætti ekki alltaf skilningi. Lífsbaráttan hafði alið með henni vissa tor- tryggni og henni stóð ógn af ýmsu í samtíðinni, sem yngra fólk lét sér í léttu rúmi liggja. Það var að vísu ekki þess vegna sem hún leitaði á náðir draumsins, hún var draumspök í orðsins fyllstu merkingu, með afbrigðum ber- dreymin, og mundi drauma sína í smæstu atriðum. Fyrir kom að draumur og veruleiki flutu saman í eitt, einkum þegar líða tók á ævina, og þótti ekki tiltökumál. Hún hafði einnig fengið að upplifa fyiT á æv- inni, og stundum með nokkrum hrolli, að hún sá og heyrði fleira en aðrir. Fór ekki hjá því, að þessi lífs- reynsla mótaði nokkuð viðhorf hennar til tilvei-unnar. Lilja var höfðingi heim að sækja og því var líkast, að andi Brokeyjar- heimilisins svifi yfir borðum. Mót- tökurnar voru ætíð innilegar og eft- irminnilegar og einungis það besta á boðstólum. Og ekkert þótti full- komnað fyrr en boðið hafði verið uppá komfektmola, vindil og sérrí- glas. Þessir tíma koma ekki aftur. Samtalið snerist oftar en ekki um fjölskyldulíf og barnalán, já, útivinnandi konur og barnauppeldi í viðsjái'verðum heimi. Þrátt fyrir skoðanaágreining og snarpar orð- ræður var stutt í bros eða léttan hlátur, væri slegið á léttari strengi. Þá gat hún fyrirgefið tengdasyninum skeggvöxt og klæðaburð. Brokey var aldrei langt undan á góðri stund og það var spurt og spjallað og rifjað upp, en Lilja var góð og nákvæm sögumanneskja, sem bar mikla virðingu fyrir for- eldrahúsum og naut þess sérstak- lega að segja frá framtaki og góð- verkum föður síns, en á þeim bæ var stundum hlaupið undir bagga og hugvitið var látið í askana. Lilja lét sig hafa það að heim- sækja okkur hjónin og börnin tvisvar sinnum á erlendri grund, sitt í hvoru landinu. Þótt henni yrði villugjarnt í stórborginni lét hún ekki bugast og kom okkur hressi- lega á óvart með glæfralegum uppá- tækjum í fjölsóttum tívolígarði. Við fórum að efast um að við þekktum þessa konu, en lengi má manninn reyna. Þessi minningarbrot eiga að vera þekklætisvottur fyrir auðsýndan hlýhug og umhyggju. Þorgeir Þorgeirsson. Nú er hún amma mín horfin yfir móðuna miklu, en eins og mörg systkina hennar náði hún háum aldri og varð 95 ára gömul. Þegar höfð er í huga sú seigla sem einkenndi allt hennar líf liggur beint við að hugsa til upprunans, þess uppruna sem hún ávallt minnt- ist með sáram söknuði. Amma fæddist og ólst upp í Brokey á Breiðafirði og eins og hún aldrei þreyttist á að segja okkur barna- börnum sínum frá naut hún þar góðs atlætis og örlætis foreldra sinna á myndarlegu búi þeirra. Sú mikla ábyrgðartilfinning sem ein- kenndi hana öllum stundum var arf- ur sem hún fékk úr föðurhúsum. Þessum ábyrgu viðhorfum til lífsins miðlaði hún síðan af festu til barna sinna og barnabarna. Amma kom til höfuðborgarinnar á þriðja áratug aldarinnar og stund- aði þar nám í tungumálum einn vet- ur ásamt því að vera lærlingur á saumastofu. Síðan gerðist hún ráðs- kona hjá virtum borgara í Hafnar- firði, sem misst hafði eiginkonu á sóttarsæng. Og eins og gengur gift- ist hún þessum manni, Finnboga J. Arndal, sem var 26 árum eldri. Lífið varð enginn dans á rósum, en amma varð fyrst að annast það stóra heim- ili sem fyrir var, þá sín eigin börn, þrjú að tölu, og síðan eiginmann sem fyrr en varði var kominn á eft- irlaunaaldur. Peningarnir hrukku skammt og til að halda á floti stóru heimili gerði amma það sem henni var eflaust innrætt af sannfæring- arkrafti á æskuheimilinu. Hún tók á vandanum af dæmalausri eljusemi, tók að vinna myrkranna á milli og fórnaði sér þannig algjörlega fyrir börnin. Vitaskuld er þetta algengt hlutskipti kvenna á öllum tímum, en mér finnst samt eins og krafturinn sem einkenndi ömmu eigi sér ekki margar hliðstæður. Amma var þessi hvunndagshetja; sem alltof fáir telja efni í sögu. I minningunni er hún sívinnandi og sífellt með hugann við velferð ann- arra. Þegar ég var lítill var ég auð- vitað oft í eldhúsinu hjá henni og sú mynd sem ég hef íyrir hugskots- sjónum er amma yfir eldavélinni, færandi til brennheita potta með berum fingrunum og á stöðugum þeytingi milli eldhúss og borðstofu. Stöku sinnum hvarf hún beint ofan í gólfið í drungalegan, kaldan og rak- an steinkjallarann, þar sem hún geymdi súrslátrið og þvoði þvotta. Magarnir sem metta varð vora margir, því ekki var einvörðungu um að ræða okkur gestkomandi börnin og afa gamla, heldur einnig fullt hús af kostgöngurum kvölds og morgna. Á milli þess sem hún gaf lúnum erfiðismönnum kjarngóða Arndal frá Siglufirði, og eiga þau tvo syni, Stefán, f. 1958, kvæntur Þórdísi Eiríksdóttur, börn þeirra eru Edda Margrét, f. 1983, Axel, f. 1986, og Eirík- ur, f. 1989; Hreinn, f. 1965, sambýliskona hans er Ingi- björg Snorradóttir, og er dóttir þeirra Rakel Hjördís, f. 1997; Kristjana Vigdís Laufey, f. 7.6. 1939, gift Þorgeiri Þorgeirs- syni frá Laugum í Reykjadal og eru börn þeirra fjögur, Bergur, f. 1958, kvæntur Sig- ríði Kristinsdóttur og eru dæt- ur þeirra Bergþóra, f. 1991, og Vigdís, f. 1994; Lilja, f. 1959 en sambýlismaður liennar er Björn Erlingssou og eru synir þeirra Þorgeir, f. 1996, og Markús, f. 1998; Finnur, f. 1967; Fjóla, f. 1972, sambýlis- maður hennar er Baldur Bragi Sigurðsson, sonur þeirra er Emil Draupnir, f. 1998. Lilja var einn vetur í Reykja- vík og lærði fatasaum. Hún stundaði einnig tungumálanám. Lilja stundaði ýmis störf jafn- framt heimilisstörfunum. Hún rak matsölu á Brekkugötu 9 í mörg ár og voru margir í föstu fæði hjá henni, sumir hverjir ár- umsaman. títför Lilju fer fram frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. málsverði og þrengdi þrumurum í bitaboxin rauk hún með Hafnar- fjarðarvagninum til Reykjavíkur og sótti þar vinnu í dúkkugerð. Ein- hvern veginn náði hún alltaf að finna stund til að kaupa inn ofan í alla skjólstæðingana, sem þýddi daglegan matarburð upp bratta Brekkugötuna að gula húsinu undir hamrinum. Velferð kostgangaranna bar hún ávallt fyrir brjósti, og ég gleymi aldrei þeim stundum þegar hún útskýrði fyrir mér yfir rjúkandi pottunum hvaða brögðum hún beitti til að gera fæðuna kjarnbetri, enda fullyrti hún það við mig að um enga kostgangara væri jafn vel hugsað og hennar. Þessi orð mín era til þess hugsuð að bregða upp svipmynd af konu sem kunni þá list að lifa af í orðsins fyllstu merkingu. Svona var líf hennar, stöðug barátta og þraut- seigja, og brennandi áhugi á að miðla anda þessarar seiglu til af- komenda sinna. Ég vil í lok þessara hugleiðinga um ömmu mína þakka henni kær- lega íyrir allar þær stundir sem við áttum saman og allt sem hún hefur gefið mér. Blessuð sé minning hennar. Bergur Þorgeirsson. Þá er hún amma farin til annars heims í fjarska þar sem kyrrð og friður ríkir. Nú getur hún hitt þá sem hún hefur saknað og jafnframt fylgst með þeim sem eru henni kær- ir hér á jörð. Það er mikill söknuður að sjá á eftir ömmu en ég veit að hún beið lengi eftir þessari stund. Hún var mjög trúuð og sótti oft styrk til Guðs og var ekki hrædd við að fara. Þegai' ég horfi til baka minnist ég helst þeirra stunda þegar ég var barn og fékk oft að gista hjá henni yfir helgi. Alltaf var gott að vera hjá henni, heimili hennar var notalegt og fallegt og andrúmsloftið sér- stakt. Hún átti alltaf nóg til af mat og góðgæti og gaf sér iðulega mik- inn tíma til að spjalla um lífíð, til- veruna og trúna. Sagði oft frá draumum sem hana dreymdi og seinni árin voru það stundum draumar um framliðið fólk sem hún saknaði og um þann heim sem hún taldi vera þann stað sem við förum öll til á endanum. Amma eignaðist þrjú börn og átta barnabörn. Fjölskyldan veitti henni mikla hamingju og lífsfyllingu og hún var ánægð og stolt yfir hversu vel þeim farnaðist í lífinu. Sjálf bjó hún yfir óendanlegum lífskrafti og lífsvilja. Vildi standa á eigin fótum, vera öðram óháð og gafst aldrei upp þegar á móti blés. Þessir eiginleikar koma greinilega í ljós þegar hennar lífsferill er skoðað- ur. Hún rak til dæmis mötuneyti til margra ára á heimili sínu að Brekku- götu 9 í Hafnarfirði. Fannst henni mikilvægt að vinna heima og þBjfa þar af leiðandi ekki að fara frá böm- unum eða láta þau í annarra manna hendur. Vildi hún alltaf vera til stað- ar ef þau þörfnuðust hennar. Hún var með fjölda manns í mat bæði í hádeginu og á kvöldin ásamt því að útbúa nesti svo þeir hefðu með mið- dagskaffinu. Þetta gerði hún alla daga vikunnar, einnig um helgar. Þegar mest var voru um 20 manns í fullu fæði hjá henni. Lagði hún áherslu á hollan, góðan og næringar- íákan mat, sem var veglega útilátinn. Hún var dugleg, stundvís og stolt.af því sem hún gerði. Lagði mikið upp úr því að nýta allt vel, bakaði mest allt sjálf og keypti inn á hagkvæman hátt. Eins og gefur að skilja kynntist hún mörgum á þessum áram og tel ég víst að félagslega hafi þessi starf- semi verið henni mikilvæg, en um- fram allt gerði þessi vinna hana sjálfstæða. Hún bjó yfir stolti sem lýsti sér einnig í klæðaburði. Vildi alltaf vera vel til fara og átti úrval af fötum til skiptanna, en saumaði mest allt sjálf sem hún klæddist. Annars veitti amma sér ekki mik- ið á lífsleiðinni, var alltaf mjög spar- söm og nægjusöm. Þess vegna eru þær minningar sérstaklega ánægju- legar þegar amma heimsótti ol^iir til Englands og Svíþjóðar þar sem við bjuggum um tíma. Var það mikil upplifun fyrir hana að komast í nýtt umhverfi. Einna mest heillaði hana að heimsækja garða þai- sem uxu blóm í öllum regnbogans litum. Hún elskaði bjarta liti; gult, rautt og appelsínugult, en í fatavali var það blái liturinn sem var hennar uppá- hald. Dökkir litir gerðu hana leiða. Það var mikill söknuður þegar við bjuggum úti og skrifuðumst við öll á. Minnist ég einna helst þegar við töluðum inn á snældur og sendúírí á milli. Amma sýndi hér sérstaka frá- sagnarhæfileika þar sem hún sagði frjálslega en skipulega frá hvað á daga hennar hafði drifið. Fannst mér það mjög sérstakt því þessi tækni var henni framandi og hún komin á sín efri ár. Jólaboð ömmu eru mér einnig minnisstæð. Á hverju ári hittumst við öll, börn ömmu og barnabörn. Þá var oft glatt á hjalla, mikið rætt, bornar fram afbragðs veitingar og fóru allir ánægðir heim aftur. Það var annars alltaf notalegt að koma í heimsókn til ömmu, hún átti alltaf eitthvað gott með kaffinu, jafnvel þótt gestir kæmu fyrin'aralaust. Þótti henni mikilvægt að fólk íiéri ekki svangt frá hennar húsum. Heimilið og húsmóðurhlutverkið var hennar stolt og yndi. Amma elskaði að gefa gjafir, en fór alltaf hjá sér þegar henni var gefið eitthvað, fannst það alveg óþarfi. Hún vildi vera sú sem gerði eitthvað fyrir aðra og þess vegna tel ég það hafi verið henni ofraun að fara inn á Hrafnistu, sérstaklega þegar hún fór á sjúkradeild. Þá var það hún sem varð að þiggja allt af öðrum. Það, að geta ekki sýnt frum- kvæði, gefið af sér og haft eitthvað til að keppa að og berjast fyrir gerði hana lífsleiða. Hún óskaði þess stundum að hún fengi að fara og skildi ekki af hverju hún var Sdn bíða svona lengi. Með þessum orðum kveð ég ömmu mína og votta aðstandendum og vinum samúð. Lilja Þorgeirsdóttir. Elsku amma mín, þegar ég hugsa um þig ferðast hugur minn til þín í litlu íbúðina á Álfaskeiðinu. Ég man eftir þér í dyragættinni með galopið; og vinalegt viðmót, stofan svo hlý með stól úti í horni sem þú dottaðir stundum í. Merkileg mjög var frystikista þín sem í leyndust rjómatertur og kök- ur og ekki gleymi ég skál inni í stofu, einnig með góðgæti í. Ljúflegt er að minnast þess hve innilega þú skelltir uppúr. Yndisleg var hrifning þín og þitt góða hjarta. Amma mín, takk fyrir minnincr- arnar. K Fjóla Þorgeirsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.