Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 59»
FÓLK í FRÉTTUM
FÖSTUDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA
Glötuð æska
Bíórásin 2 ► 24.00, 4.00 Trufluð tilvera
(Trainspotting). Fáar rayndir vöktu jafnmikla at-
hygli árið 1996, og þessi nöturlega skoðun á eit-
urlyfjaumhverfinu í Edinborg. Þykir afar raun-
sæ og gefa trúverðuga lýsingu á þessari útgáfu
nútíma helvítis, og er að finna í öllum borgum
Evrópu, að Reykjavík meðtalinni. Fyndin, þrátt
fyrir allt, en gamanið bleksvart. Byggð á bók,
síðan leikriti, sem m.a. var sýnt hér í talsvert
áhrifamikilli og vel leikinni uppfærslu í Loftkast-
alanum. Þeh- Skotarnir Ewan McGregor og Ro-
bert Carlyle hlutu frægð og frama fyrir frammi-
stöðu sína í erfiðum hlutverkum og leikstjórinn,
Danny Boyle, fékk flugmiða til Hollywood. ★★★
Sæbjörn Valdimarsson
HARMONIKUBALL
verður annað kvöld, laugardagskvöld, í
ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima.
Dansinn hefst kl. 22.00. Félagar úr
Harmonikufélagi Reykjavíkur og Léttsveit félagsins
leika fyrir dansi, Ragnheiður Hauksdóttir syngur.
ALLIR VELKOMNIR
Olafía Hrönn Jónsdóttir
NO NAME andlit ársins1998
NO NAME
.-. COSMETICS .— —
‘Kýnning
Helga Sæunn förðunarfræðingur gefur
ráðleggingar í dag frá kl. 14-18
Sautján, Laugavegi
Bíórásin ► 10.00, 22.00 Fjölskyldu-
líf (A Family Thing, ‘96), sjónvarps-
mynd (frumsýning), sem að óséðu er
einkar áhugaverð. Þegar öldruð kona
deyr suður í Arkansas kemur í ljós að
hún er ekki móðir söguhetjunnar,
Earls Pilcher (Robert Duvall), heldur
blökkukona sem dó af barnsförum, og
Pilcher á litaðan hálfbróður (James
Earl Jones) í Chicago. Hann heldur
norður en fær í fyrstu óblíðar móttök-
ur. Handritið er skrifað af Billy Bob
Thornton, sem ári síðar fékk
Óskarsverðlaunin á því sviði (Sling
Blade). Ebert gefur ★★★
Bíórásin ► 12.00, 18.00 Bíómyndin
Hundaheppni (Fluke, ‘95), náði
aldrei inná tjaldið hérlendis. Fjallai’
um ævintýrleg samskipti hunda og
manna. Gæti leynt á sér. Box Office
Magazine: ★★
Bíórásin ► 24.00, 4.00 Trufluð til-
vera (Trainspotting, ‘96). Sjá umsögn
í ramma.
Stöð 2 ► 21.00 Krakkaleigan
(Rent-A-Kid, ‘95). Nýr forstöðumaður
á barnaheimili hyggst drýgja launin
með því að leigja út krakkagemling-
ana. Með Leslie Nielsen og
Christopher Lloyd. AMG: ★★14
Sýn ► 21.00 Krákan (The Crow, ‘94)
Kraftmikil draugasaga byggð á
teiknimyndahetju. Rokkstjama geng-
ur aftur og hefnir harma sinna. Utlit
myndarinnar er óvenju hryssingslegt,
grátt, blautt og guggið. Síðasta mynd
Brandons Lee, sem lést langt fyrir
aldur fram - líkt og faðir hans, Bruce.
Leikstjóm Alex Proyas er eftirtekt-
arverð.AAA
Stöð 2 ► 22.40 Rockford Los Ang-
eles er staðurinn (Rockford Files: I
Still Love L.A., ‘95). Enn ein sjón-
varpsmyndin um þessa fyrrum sjón-
varpshetju, sem James Garner lék
gjarnan ágætlega.
Sjónvarpið ► 23.00 Kavanagh -
Traust bönd (Kavanagh Q.C.: The
'I'ies That Bind, ‘PSj.Vikuskammtur-
inn af breska málfærslumanninum
James Kavanagh er á sínum stað.
Sýn ► 23.25 Fordæmda fljótið
(Damned River, ‘89). Þessa mynd
finnið þið ekki hjá Maltin, heldur í
Myndbandahandbókinni okkar A.I.
Þessi ósköp rákust sensagt inní ís-
lenskt kvikmyndahús. Við segjum:
Hversdagsleg B-útgáfa af „Deliver-
ance“ Boormans. Nokkur ungmenni
skella sér til Afríku til að reyna ævin-
týrasiglingu niður Zambesi. Leið-
sögumaðurinn reynist kolgeggjaður
svo lystiferðin breytist í ósköp og
skelfingar. Fúsk í fógru umhverfi.AVá
Stöð 2 ► 0.15 Dómsorð (The Verdict,
‘82) Þúsundasta og íyrsta endursýn-
ingin á einni bestu mynd Pauls
Newman. Missið ekki af henni.
★★★%
Sýn ► 0.55 Skarkárinn (The Entity,
‘81) Konu er margnauðgað af draugi
sem eltir hana á röndum í óvenjulegri
og ótrúlegi’i draugasögu sem sækir
óhugnaðinn í heldur ódýr brögð, en er
spennandi engu að síður þótt erfitt sé
að trúa því sagan byggi á sönnum at-
burðum. Með Barböru Hershey.
★★i4
Stöð 2 ► 2.20 Spennufíklar (I Love
TroubJe, ‘94). Afspyrnulélegt moð
með Nolte og Juliu Roberts. Hann
gæti verið langafí hennar. Afar róm-
antísk og ámóta spennandi mynd um
tvo rannsóknarblaðamenn garfandi í
sama málinu. ★★
Sæbjörn Valdimarsson
(C& LÍMMIÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða
Skemmuvegi 14,200 Kópovogi. S. 587 0980. fax 557 4243
bpn m o nni m m
Taktu þátt í „Mary“ netleiknum á kvikmvndir.is
„Toppurinn“ í dag!_
Gamanmyndin sem allir
eru að tala um...
27.000
fyrstu tvær vikurnar
ahorfendur
boúT
4K