Morgunblaðið - 20.11.1998, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Framkvæmdir hafnar við Barnaspítala Hringsins
Hringskonur leggja
fram 100 milljónir
FRAMKVÆMDIR við nýbyggingu
Barnaspítala Hringsins á Landspít-
alalóðinni í Reykjavík hófust í gær
með því að Ingibjörg Pálmadóttir
heil’origðisráðherra tók fyi-stu
skóflustunguna. Áætlaður heildar-
kostnaður er einn milljarður króna
og er gert ráð fyrir að spítalinn
komist í gagnið vorið 2001.
Ingibjörg Pálmadóttir sagði að
undirbúningsnefnd hefði staðið vel
að málum. Hún sagði bæði stjórn og
stjómarandstöðu styðja fram-
kvæmdina. Ráðherra þakkaði sér-
staklega hlutdeild Kvenfélagsins
Hringsins en Hringskonur hefðu
einnig átt drýgstan hlut að máli
þegar barnadeild Landspítalans var
komið á fót árið 1957. Að loknu
ávarpi ráðherra flutti biskup ís-
iands, Karl Sigurbjörnsson, bless-
unarorð og síðan var athöfninni
fram haldið í anddyri K-byggingar
Landspítalans.
Hátíðisdagur fyrir
börn á Islandi
Siv Friðleifsdóttir, formaður
bygginganefndar, sagði þetta há-
tíðisdag fyrir börn á Islandi þegar
hefja ætti framkvæmdir við sér-
hannað barnasjúkrahús. Hún sagði
löngu tímabært eftir áratuga starf
barnadeildarinnar að hún fengi
sérhannaða byggingu og að góð
samstaða hefði myndast um það.
Hún þakkaði Hringskonum dugnað
við fjársöfnun og að þrýsta á
stjórnvöld um að ráðast í úrbætur
fyrir sjúk börn. Siv sagði bygging-
una hafa stækkað um 13% við
hönnunina, bæði tæknirými á
fimmtu hæð og í kjallara en einnig
hefðu álmurnar verið stækkaðar
lítillega. Hún sagði mikla greining-
ar- og hönnunarvinnu hafa farið
fram síðustu árin vegna barnaspít-
alans. Hefðu arkitektar hússins,
Sigríður Magnúsdóttir og Hans-
Olav Andersen, starfað mest að
henni ásamt starfsfólki barnaspít-
alans.
Elísabet Hermannsdóttir, for-
maður Hringsins, sagði gleði í hug-
um Hringskvenna þegar séð væri
að markmið þeirra í áratugi væri nú
í augsýn. Hún sagði marga eiga
þakkir skildar fyrir stuðning enda
þyrfti mikið og sameiginlegt átak
margra til að reisa og reka bygg-
ingu sem bamaspítalinn væri, ríkis-
ins, félagasamtaka, fyrirtækja og
almennings.
Að síðustu sýndi Anna Ólafía Sig-
urðardóttir, hjúkrunarfræðingur,
sem starfað hefur sem verkefnis-
stjóri með tæknimönnum við undir-
Morgunblaðið/Ásdis
INGIBJÖRG Pálniadóttir heilbrigðisráðherra tekur fyrstu skóflustung-
una að nýbyggingu Barnaspítala Hringsins á Landspítalalóð. Að baki
henni standa frá vinstri: Siv Friðleifsdóttir, Elísabet Hermannsdóttir,
Ingólfur Þórisson, Vigdfs Magnúsdóttir og Karl Sigurbjömsson biskup.
búning byggingar, teikningar og
greindi frá helstu atriðum barna-
spítalans nýja. Alls verður húsið
6.500 fermetrar að stærð og skiptist
þannig: Á fyrstu hæð eru göngu-
deild og dagdeild, á annarri leik- og
kennslustofur ásamt skrifstofum, á
þriðju hæð almenn legudeild og
handlæknisdeild, á fjórðu hæð ung-
barnadeild og gjörgæsla nýbura og
á þakhæð og í kjallara eru tækni-
rými.
Áætlaður byggingakostnaður er
einn milljarður. I fjárlögum þessa
árs og samkvæmt fjárlagafrum-
varpi næsta árs verða alls 385 millj-
ónir til ráðstöfunar, frá Hringskon-
um koma um 100 milljónir króna og
úr sérstökum byggingarsjóði sem
verið hefur í vörslu Landspítalans
koma nokkrir tugir milljóna að sögn
Ingólfs Þórissonar, aðstoðarfor-
stjóra Ríkisspítala, en í þann sjóð
hafa síðustu 10 til 15 árin safnast
framlög frá einstaklingum og fyrir-
tækjum.
Uppsteypa hefst
í mars á næsta ári
Eins og fyrr segir eru fram-
kvæmdir hafnar og er gert ráð fyrir
að jarðvinnu ljúki um miðjan mars á
næsta ári. Verktaki við jarðvinnuna
er Suðurverk hf. og var tilboð fyrir-
tækisins 47% af kostnaðaráætlun.
Að henni lokinni er áætlað að upp-
steypa hússins hefjist. Henni á að
ljúka með haustinu en þá tekur við
frágangur utanhúss sem standa
mun fram í apríl árið 2000. í mars
það ár hefst einnig vinna við frá-
gang innanhúss og við búnað húss-
ins skömmu síðar. Þá á lóðafrágangi
að ljúka vorið 2000. Verklok eru síð-
an áætluð í apríl árið 2001.
Bygginganefnd skipa ásamt Siv
Friðleifsdóttur og Elísabetu Her-
mannsdóttur, Ásgeir Haraldsson,
forstöðulæknir barnadeildarinnar,
Guðmundur G. Þórarinsson, for-
maður stjómar Ríkisspítalanna, og
Vigdís Magnúsdóttir, forstjóri Rík-
isspítala, en hún stjórnaði jafnframt
athöfninni í gær.
Morgunblaðið/Kristján
Bóksala á mbl.is
Læknir á
fyrstur til
EIRÍKUR Páll Sveinsson, háls-,
nef- og eyrnalæknir á Akureyri,
var fyrstur til að nýta sér nýjan
vef Morgunblaðsins á mbl.is,
Bókatíðindi 1998, en hann pant-
aði sér bókina Áin mín, veiðibók
eftir Eirík S. Eiríksson, strax á
áttunda tímanum í gærmorgun.
Eiríkur sagðist í samtali við
Morgunblaðið aldrei áður hafa
nýtt sér Netið í viðskiptum.
„Ég sá fréttina um bókavefinn
fyrir tilviljun í Morgunblaðinu
snemma [í gærmorgun] og af því
að mig langaði í þessa bók brá ég
Akureyri
að kaupa
á það ráð að panta hana í gegn-
um Netið.“
Eiríkur kemur einmitt við sögu
í bókinni vegna veiði í Hofsá en
þar hefur Eiríkur verið við veið-
ar í Qóra áratugi. „Ég hef stund-
að veiði í rúm 40 ár en ég veit
ekki liversu mikill veiðimaður ég
er,“ sagði Eiríkur ennfremur.
í tilefni þess að Eiríkur var
fyrstur til að nýta sér bókakaup
á vefnum, heimsótti Rúnar Ant-
onsson, starfsmaður Morgun-
blaðsins á Akureyri, hann og
færði honum bók að gjöf.
Bókasala
hafin á mbl.is
Ný og enn haldbetri
a verkfæri
; v
Oruggara grip léttir vinnuna
og gerir hana ánægjulegri
Fæst í öllum betri byggingavöruverslunum
NÝR vefur Morgunblaðsins, mbl.is,
Bókatíðindi 1998, sem Morgunblaðið
hefur opnað í samvinnu við Félag ís-
lenskra bókaútgefenda, gerir öllum
kleift að kaupa bækur á vefnum með
afslætti, en á vefnum má finna 455
bókatitla með lýsingu og mynd frá
81 forlagi.
Nægir að skiúfa nafn tiltekins höf-
undar, þegar komið er inn á fyrstu
síðu Bókatíðinda. Þær bækur sem
eru til sölu eftir höfundinn birtast þá
á skjánum, en einnig er hægt að
skrifa titil muni notandinn ekki nafn
höfundar. Eftir að bók hefur verið
valin má smella á „kaupa“. Þá opnast
gluggi þar sem notandinn gefur upp
nafn sitt, heimilisfang greiðslukorta-
númer o.s.frv. Síðan er smellt á
„staðfesta" og þá hefst pöntunarferl-
ið, sem er gætt með ströngum ör-
yggisstaðli. Viðskiptin fara fram eins
og um hefðbundin posaviðskipti væri
að ræða, en dreifíngarmiðstöð Vöku-
Helgafells leitar heimildar korthafa
hjá viðkomandi kortafyrirtæki.
Þegar bækur eru keyptar á mbl.is
Bókatíðindi 1998 er eingöngu um
greiðslukortaviðskipti að ræða, en til
að fyllsta öryggis sé gætt eru upp-
lýsingarnar um viðskiptin dulkóðað-
ar áður en þær eru sendar til dreif-
ingarmiðstöðvai- Vöku-Helgafells.
Jafnframt er tryggt að kaupandinn
geti treyst því að hann sé einvörð-
ungu að versla við vefþjóninn mbl.is.
Þar ræður vottun frá bandaríska
fyrii-tækinu VeriSign.
Til nánari útskýringar má nefna
að vilji fyrirtæki láta votta vefþjón
sinn sækir það um slíka vottun til
fyrirtækis á borð við VeriSign og
sendir dulkóðunarlykil sem vef-
þjónninn býr til. Eftir að vottunar-
ferlinu er lokið fær viðkomandi fyiir-
tæki skráningarnúmer sem kenni-
mark, sem gildir fyrir viðkomandi
vefþjón og er notað til að kanna hjá
VeriSign hvort viðkomandi fyrirtæki
SMÉn«rimui HermannMon
VM& 44» v.)
SwÖ»»MAMlMðw.«!OI
C
ft.) SwwH: I
Ym<~ r Guacarf Mlkl -I
iu»,i—i—i—i—«w»*nr
Hm»a | Kmytl |
ÞANNIG lítur greiðsluformið
út, sem notað er þegar bækui'
eru keyptar á bókavef mbl.is.
Sjá má endanlegt verð sem
kaupandinn þarf að greiða með
afslætti og sendingarkostnaði.
sé það sem það segist vera. Kenni-
markið tengist léni fyrirtækisins, svo
sem www.mbl.is og er ekki hægt að
nota yfir önnur lén þótt þau séu i
eigu sama fyrirtækis.
Afgreiðslutíminn
tveir virkir dagar
Allar bókapantanir á vef Morgun-
blaðsins eru sendar samdægui's til
dreifíngarmiðstöðvar Vöku-Helga-
fells og á hverjum morgni er pöntun-
um gærdagsins safnað saman og
þær afgreiddar svo fljótt sem auðið
er. Afgreiðslutíminn er um tveir
virkir dagar, en aldrei lengri en tíu
dagar. Bækumar eru sendar inn-
pakkaðar til viðskiptavina annað-
hvort í gegnum dreifikerfi dreifing-
armiðstöðvai'innai' eða með pósti.
Bókakaup
á mbl.is
Notandinn tengist www.mbl.is og
smellir þar á “Bókatíðindi".
Hér er hægt að leita að bók eftir
höfundi eða titli. Bók er svo keypt
með því að smella á raBWIjlffi*
Þá opnast gluggi þar sem fyllt er
út nafn, heimilisfang, greiðslukorta-
númer o.s.frv. (sjá mynd).
Pöntunin er nú send dreifingar-
aðila, sem sér um að koma bókinni
til kaupenda.
vÉriSigxij
OrugB krwltkarlMiðAtpll
Þær upplýsingar sem sendar eru
dreifingaraðila eru dulritaðar
(þ.m.t. upplýsingar um greiðslu-
kort). Fyllsta öryggis er því gætt.
Einnig er tryggt að miðlarinn sé í
raun www.mbl.is.
Dreifingaraðili sér síðan um að
leita heimilda hjá greiðslukorta-
fyrirtækjum fyrir greiðslu.
HÉR má sjá myndræna fram-
setningu á þvf hvernig kaup
eiga sér stað á bókavef mbl.is.