Morgunblaðið - 20.11.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 25
HHHhHHHÍÍÍ f O R L A G 1 i
|lVI Á l_ O G IVI E IM IM 1 VM gI
Reuters
BILL Clinton svarar spurningum japanskra áhorfenda í sjónvarpssal.
Clinton í opin-
berri heim-
sókn í Japan
Tókýó. Reuters.
TVEGGJA daga opinber heimsókn
Bills Clintons Bandaríkjaforseta til
Japans hófst í gær, og munu efna-
hagsmál verða í brennipunkti í við-
ræðum hans við japanska ráða-
menn.
Forsetinn þáði í gær teboð Aki-
hitos Japanskeisara og Michiko
keisaraynju. Joe Lockhart, tals-
maður Hvíta hússins, sagði að í
virðingarskyni við japanskar siða-
reglur gæti hann ekki skýrt frá því
sem fór á milli keisarans og forset-
ans. Hann greindi þó frá því að
Clinton hefði hitt keisarahjónin í
einkavistarverum þeirra í keisara-
höllinni. Spjall þeirra hefði verið
svo ánægjulegt að teboðið hefði
staðið tíu mínútum lengur en áætl-
að hefði verið, þar sem þau hefðu
fengið sér annan tebolla.
Nærgöngular spurningar
í sjónvarpsþætti
Clinton kom í gær fram í sjón-
varpsþætti þar sem hann svaraði
spurningum japanskra áhorfenda.
Umræðurnar snerust að mestu leyti
um efnahagsmál, en forsetinn þurfti
einnig að svara nærgöngulum
spurningum. Húsmóðir frá Osaka
spurði Clinton hvernig hann hefði
beðið konu sína og dóttur afsökunar
á sambandi sínu við Monicu Lewin-
sky, og hvort þær hefðu fyrirgefíð
honum. „Eg gerði það á beinan og
hreinskilinn hátt og tel að þær hafi
gert það,“ svaraði Clinton, og bætti
við að þessari spurningu ætti frekar
að beina til þeirra en hans. Stjórn-
andi þáttarins var ekki seinn á sér
að skipta um umræðuefni.
MARAÞON
fjölvítamín
maraþon*
vU4tnín
aNDO)íUNAKEFNI «&=
Vítamín og steinefni fyrir
íþrótta- og athafnafólk
Clinton sagði í sjónvarpsþættin-
um að viðskiptahalli Bandaríkjanna
hefði aukist verulega vegna efna-
hagskreppunnar í Asíu, en að
bandarískir markaðir yrðu samt
sem áður opnir Japönum og öðrum
Asíuþjóðum. Hann sagði að Japan
gæti haft mikinn ávinning af þvi að
opna markaðskerfi sitt frekar, og
hvatti landsmenn til að láta ekki
deigan síga, þó horfur væru slæmar
í efnahagsmálum. Þá sagði hann of
snemmt að leggja mat á frammi-
stöðu núverandi ríkisstjórnar
Japans, sem tók við völdum í sept-
ember.
Ofgamenn mótmæla
komu Clintons
Öfgasinnaðir hægiámenn mót-
mæltu í gær komu Clintons, og
kröfðust þess að endi yrði bundinn
á hernaðarsamstarf Bandaríkjanna
og Japans. Öfgamennirnir keyrðu
um götur Tókýó á þremur vörubíl-
um, stöðvuðu umferð og hrópuðu
slagorð gegn Bandaríkjunum í
gjallarhorn. Hægrimenn í Japan
hafa á síðustu árum í auknum mæli
snúist gegn Bandaríkjunum, og
kennt þeim um versnandi efna-
hagsástand í landinu.
Tilkynning um afsögn varnar-
málaráðherra Japans, Fukushiro
Nukaga, varpaði einnig skugga á
heimsóknina, en hann sætir nú
rannsókn vegna fjármálahneykslis.
'f/f,
V/
VÖRURMEÐ
ÞESSUMERKI
MENGA MINNA
Norræna umhverfismerkiö
hjálpar þér aö velja þær vörur
sem skaöa síður umhverfiö.
Þannig færum viö verömæti
til komandi kynslóða.
UMHVERFISMERKISRÁÐ W//,
HOLLUSTUVERND RÍKISINS w
Upplýsingar hjá Hollustuvernd ríksins
I sfma 568 8848, heimasíöa: www.hollver.is
I nóvember:
verð frð
1. desember:
Þorvaldur Guðmundsson, eða
Þorvaldur í Síld og fisk eins og hann
var löngum kallaður, ólst upp í
fátækt hjá einstæðri móður en varð
einn af mestu athafnamönnum síóari
tíma og hæsti skattgreiðandi landsins
um áratuga skeið. Þorvaldur var
brautryðjandi í íslensku atvinnulífi,
fyrst í matvælaiðnaði en síðar einnig
í veitinga- og gistihúsarekstri. En
Þorvaldur var einnig einstæður
fagurkeri og eignaðist stærsta lista-
verkasafn í einkaeign hér á landi.
Margt mun koma á óvart í þessari
viðburðaríku og skemmtilegu bók
um einstæðan mann.